Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gengisdómur gæti þýtt 350 milljarða eignatilfærslu Ef miðað verður við samningsvexti gengistryggðra lána mun um 350 milljarða króna eignartilfærsla eiga sér stað frá fjármálafyrirtækjum yfir til lántakenda. Að minnsta kosti 100 milljarðar króna munu lenda á ríkissjóði, og þar með skattgreiðendum, ef sú eignartilfærsla á sér stað. Þetta kemur fram í frétt í Viðskiptablaðinu í dag. 8.7.2010 07:11
Rekstur Landsbanka og Arion óviðunandi „Til lengri tíma litið er þetta ekki afkoma af kjarnastarfsemi sem menn væru sáttir við. En það verður að hafa hugfast að verið er að vinna úr erfiðum úrlausnarefnum. Mér finnst skýrslan ekki gefa tilefni til svartsýni,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. 8.7.2010 07:00
Kröfuhafar eignast Exista Héraðsdómur Reykjavíkur hefur að beiðni stjórnar Exista veitt félaginu heimild til að leita nauðasamninga við kröfuhafa sína. Ákvörðun stjórnar byggir á ítarlegri greiningu á stöðu félagsins og hvernig hámarka megi endurheimtur kröfuhafa. 7.7.2010 17:27
Tekjur ríkisins undir áætlun Tekjur ríkissjóð fyrstu fimm mánuði ársins námu 175 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins. 7.7.2010 16:13
Glittir í samning á milli Björgólfs Deutche Bank Deutsche Bank er við það að ganga frá samkomulagi við Björgólf Thor Björgólfsson varðandi skuldir Actavis við bankann. Þetta hefur Reuters fréttastofan eftir ónafngreindum heimildarmönnum. Heimildirnar herma að skuldir Actavis verði felldar niður að hluta en að í stað þess fái Deutsche bank hluta af söluhagnaði verði Actavis selt. 7.7.2010 15:33
Talsmaður neytenda fagnar viðbrögðum vegna gengislána „Þeir fallast á þetta og ég fagna því,“ segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, um yfirlýsingar viðskiptabankanna þar sem þeir hafa ákveðið að taka fasta krónutölu af umdeildum gengislánum. 7.7.2010 14:34
Bankarnir vilja fimm þúsund af milljón Arion Banki, Landsbanki og Íslandsbanki hafa ákveðið að bjóða einstaklingum með erlend íbúðalán hjá bankanum, með veði í fasteign, að greiða mánaðarlega 5.000 kr. af hverri milljón upphaflegs höfuðstóls lánsins á verðlagi við lánveitingu. Þetta er í samræmi við tilmæli Samtaka fjármálafyrirtækja sem send voru fjölmiðlum í dag sem og tilmæli FME og SÍ. 7.7.2010 13:59
Einhugur í peningastefnunefnd um vextina Allir þeir sem sæti eiga í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands voru sammála um það að lækka skyldi vexti bankans um 9,5 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun. 7.7.2010 16:30
Litlar breytingar á GAMMA Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,2% í dag í 11,4 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,1% í 5 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,3% í 6,5 ma. viðskiptum. 7.7.2010 15:53
Spá yfir 100 milljarða vöruskiptaafgangi Greining Íslandsbanka býst við að áfram verði myndarlegur afgangur af vöruskiptum við útlönd. Verð helstu útflutningsvara hafi hækkað verulega frá fyrri hluta síðasta árs og horfur séu á að innflutningur neyslu- og fjárfestingarvara verði enn um sinn með minna móti þar til hagkerfið nær sér á strik að nýju. 7.7.2010 12:17
Nær þúsund beiðnir um nauðungarsölur á fasteignum Skráðar nauðungarsölubeiðnir vegna fasteigna hjá sýslumanninum í Reykjavík í ár voru orðnar 968 í lok júní. 7.7.2010 11:24
Bankasýslan gagnrýnir uppgjör bankanna Í nýrri skýrslu Bankasýslu ríkisins um starfsemi ársins í ár kemur fram gagnrýni á uppgjör stóru bankanna þriggja. Þar segir að arðsemi eigin fjár þeirra lækki umtalsvert þegar gert hafi verið ráð fyrir óreglulegum liðum. 7.7.2010 10:28
Gift slapp með skrekkinn - þarf ekki að greiða milljarð fyrir verðlaus bréf Fjárfestingafélagið Gift slapp með skrekkinn í Héraðsdómi Reykjavíkur í lok júní en þá sýknaði dómari félagið af milljarðskröfu sem Landsbankinn gerði í félagið vegna framvirkra samninga um hlutabréf í Landsbankanum. 7.7.2010 10:03
Kortavelta heimilanna jókst um tæp 10% Kreditkortavelta heimila jókst um 9,8% í janúar-maí í ár miðað við janúar-maí í fyrra. Debetkortavelta jókst um 6,1% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar-maí 2010 um 8,0%. 7.7.2010 09:07
Vöruskiptin hagstæð um 8,6 milljarða í júní Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júní 2010 var útflutningur tæpir 48,0 milljarðar króna og innflutningur 39,3 milljarðar króna. 7.7.2010 09:01
Mikil lækkun á verðbólguálagi skuldabréfa Þriggja ára verðbólguálag á skuldabréfum lækkað úr 4,7% í 1,25% á fyrstu 6 mánuðum ársins, en álagið hefur ekki mælst svo lágt frá árinu 2005. 7.7.2010 08:56
Söluverðmæti íslenskra minkaskinna milljarður í ár Söluverðmæti minkaskinna frá íslenskum loðdýraræktendum í ár mun að minnsta kosti nema einum milljarði króna. Fyrir tæpum áratug var talið að þessi búgrein ætti vart framtíð fyrir sér. 7.7.2010 07:45
Dýrasta vefslóð heims aftur til sölu Dýrasta vefslóð heimsins sex.com er aftur til sölu. Þegar vefslóðin var seld síðast árið 2006 fengust 12 milljónir dollara eða einn og hálfur milljarður króna fyrir það. 7.7.2010 07:29
Líbýumenn hafa áhuga á að kaupa BP olíufélagið Stjórnvöld í Líbýu hafa nú áhuga á því að kaupa BP olíufélagið en hlutir í BP hafa hrapað í verði undanfarna mánuði eða frá því olíulekinn á Mexíkóflóa hófst í apríl. 7.7.2010 07:27
Ferrari bílar seljast sem aldrei fyrr í Noregi Sala á Ferrari bílum í Noregi hefur aldrei verið meiri en í fyrra og það sem af er þessu ári. 7.7.2010 07:17
Dyrum nærri lokað á erlenda fjárfesta Ísland er í öðru sæti á lista yfir þau aðildarríki Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) yfir þau lönd sem hafa miklar takmarkanir á beinni fjárfestingu erlendra aðila. Mestu hömlurnar eru í Kína. Næst á eftir Íslandi stendur Rússland og Sádi-Arabía kemur þar á eftir. Á hinum endanum eru Holland og Lúxemborg, sem hafa opnað dyrnar í fulla gátt fyrir beina fjárfestingu erlendra aðila. 7.7.2010 07:00
Fyrirtæki geta hagrætt í rekstri með kaupum á aðgangi að hugbúnaði á netinu. Lítil fyrirtæki þurfa ekki lengur að kaupa dýran hugbúnað og leggja fjármagn í tölvukerfi. Þau geta sparað sér háar fjárhæðir með því að kaupa aðgang að tölvuskýjum (e. cloud computing) á netinu til lengri eða skemmri tíma. Þegar netnotkun eykst með farsímum og spjaldtölvum verður þetta framtíðin í upplýsingatækni. 7.7.2010 06:45
Júanið í styrkingarfasa næstu misserin Kínversk stjórnvöld tilkynntu hinn 19. júní síðastliðinn að þau muni breyta stefnu sinni í gjaldmiðilsmálum. Undanfarin ár hefur gengi kínverska gjaldmiðilsins, júansins, verið fast við bandaríska dollarann en nú er stefnt að styrkingu. Verður gjaldmiðillinn settur á takmarkað flot í kringum körfu gjaldmiðla. Talið er að júanið muni styrkjast töluvert í kjölfarið en þessi stefnubreyting mun sennilega hafa veruleg áhrif á kínverska hagkerfið og raunar víðar. 7.7.2010 06:30
Hamfarir dreifa veirum Hamförum á borð við eldgosið í Eyjafjallajökli er nú tekið fagnandi af tölvuþrjótum. 7.7.2010 06:00
Búa þarf í haginnfyrir fyrirtækin „Við verðum að búa í haginn fyrir fjárfesta og bjóða upp á góðar aðstæður, í það minnsta sambærilegar og í nágrannalöndum. Þanni glæðum við atvinnustarfsemi sem er undirstaða efnahagslífsins,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. 7.7.2010 06:00
Gjaldeyrishöftin verst: CCP óskar eftir stöðugleika „Við höfum ekki velt því fyrir okkur að fara. En það er voðalega erfitt að taka ákvarðanir og gera áætlanir fram í tímann á þeim forsendum hvað eigi mögulega að gera hér í framtíðinni. Það virðist vera planið að sækja um aðild að Evrópusambandinu og taka upp evruna eftir einhver ár. Mér líst vel á það,“ segir Hilmar V. Pétursson, forstjóri tölvuleikjaframleiðandans CCP. 7.7.2010 06:00
Íbúðalánasjóður þarf að fá tugmilljarða á næstu árum Starfshópur á vegum félagsmálaráðuneytisins telur Íbúðalánasjóð þurfa allt að tuttugu milljarða króna frá ríkinu til ársins 2014 til að eiginfjárhlutfall sjóðsins verði eins og vera eigi. 7.7.2010 06:00
Leita ráða hjá Sveini Haraldi „Bæði íslensk fyrirtæki sem leita norrænna fjárfesta og norræn fyrirtæki sem hug hafa á að fjárfesta á Íslandi hafa leitað til mín. En þetta er ekki launað starf; ég hjálpa þeim í frítíma mínum utan vinnu. Þetta litla framlag mitt vona ég að sé hluti af því að rétta efnahagslífið við,“ segir Svein Harald Öygard, fyrrverandi seðlabankastjóri. Um tólf íslensk fyrirtæki hafa leitað til hans. 7.7.2010 05:30
Lilja kveður Seðlabankann Lilja Alfreðsdóttir, staðgengill framkvæmdastjóra á skrifstofu seðlabankastjóra, hefur verið ráðin ráðgjafi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) í Washington í Bandaríkjunum. 7.7.2010 04:30
Setur að manni óhug ef fyrirtæki flýja land „Ég tel hættuna á fyrirtækjaflótta því miður raunverulega,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar og fyrrverandi forstjóri Þjóðhagsstofnunar. Hann bendir á að fyrir hrun hafi umhverfi fyrirtækja hér um margt verið hagfellt og fyrir vikið eftirsóknarvert að starfrækja fyrirtæki í alþjóðlegum rekstri. 7.7.2010 03:30
Reikningum Akureyjar enn ekki skilað Eignarhaldsfélagið Akurey, sem á 60 prósent í lyfjafyrirtækinu Icepharma í gegnum dótturfélag, hefur enn ekki skilað ársreikningum fyrir árin 2007, 2008 og 2009. 7.7.2010 03:30
Atvinnuleysi á undanhaldi Atvinnulausum fækkaði um 1100 manns í júní frá fyrri mánuði, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að um árstíðarbundna fækkun sé að ræða en atvinnuleysi sé engu að síður á undanhaldi. 6.7.2010 14:50
Erlendum ferðamönnum fækkar um 5% Um 53.500 erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Leifsstöð í síðasta mánuði og fækkar þeim um eitt þúsund manns frá sama mánuði í fyrra. Fækkunin nemur tveimur prósentum milli ára, samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu. Frá áramótum hafa 170.400 erlendir gestir farið frá landinu. Þetta eru um 8.500 færri en árinu áður og nemur fækkunin tæpum fimm prósentum milli ára. 6.7.2010 11:59
1700 milljónir greiddar í atvinnuleysisbætur Vinnumálastofnun greiddi um síðustu mánaðamót rúmlega 1,7 milljarð króna í atvinnuleysistryggingar fyrir tímabilið 20. maí til 19. júní. Greitt var til túmlega 14.900 einstaklinga. Heildarupphæð atvinnuleysistrygginga fyrir maí síðastliðinn var hins vegar öllu hærri. Hún nam rúmum 2 milljörðum króna og var þá greitt til 16.005 einstaklinga. 6.7.2010 11:49
Steingrímur þögull um möguleg skaðabótamál vegna gengisdóms Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra vill ekki tjá sig um viðbrögð sín gagnvart mögulegum málaferlum kröfuhafa gömlu bankanna vegna hæstaréttardómsins frá 16. júní vegna gengistryggðu lánanna. 6.7.2010 17:22
Gamma stóð i stað Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 2,7 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,1% í 0,7 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 2 ma. viðskiptum. 6.7.2010 15:55
Gengi krónunnar mun haldast lágt Gengi íslensku krónunnar mun líklegast haldast lágt enn um sinn þó að það hafi hækkað um átta prósent frá áramótum, að mati Greiningar Íslandsbanka. 6.7.2010 13:01
Meira gist á hótelum á gossvæðinu Gistinætur á hótelum fækkaði um 10% í maí síðastliðnum miðað við sama mánuði í fyrra. Þær voru um 105 þúsund í maí síðastliðnum en 117 í maí í fyrra. Athygli vekur að gistinóttum fækkar á öllum landssvæðum nema Austurlandi og Suðurlandi en þar fjölgaði gistinóttum milli ára. 6.7.2010 09:06
Um 1,3 milljarða viðskipti með skuldabréf Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði lítillega í dag í 1,3 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði lítillega í 0,8 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 0,4 ma. viðskiptum. 5.7.2010 16:22
Um 21 þúsund umsóknir bárust um sumarstörf Um 2200 námsmenn sóttu um störf í tengslum við átaksverkefni í sumar á vegum ríkisins og sveitarfélaga. Ákveðið var að verja 250 milljónum úr atvinnuleysistryggingasjóði í samvinnu við ríki og sveitarfélög til að skapa sumarstörf fyrir námsmenn. 5.7.2010 15:48
Stjórnarformaður Strætó bs fundinn Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, verður formaður nýrrar stjórnar Strætó bs. Stjórnin kom saman í dag og skipti með sér verkum. Aðrir í stjórn eru Kjartan Örn Sigurðsson frá Álftanesi, Stefán Snær Konráðsson frá Garðabæ, Hjálmar Hjálmarsson frá Kópavogi, Hafsteinn Pálsson frá Mosfellsbæ, Einar Örn Benediktsson frá Reykjavík og Sigrún Edda Jónsdóttir frá Seltjarnarnesbæ. 5.7.2010 12:39
Danski krónprinsinn heimsótti Össur Össur hf. tekur þátt í samnorrænni sýningu að nafni Nordic Lighthouse sem haldin er samhliða heimssýningunni í Shanghai. Sýningin er kynningarvettvangur fyrir þekkt norræn vörumerki á borð við Lego, Skagen, Volvo, Danfoss o.fl. Sýningin stendur út október. 5.7.2010 11:10
Lexusbílar innkallaðir Tilkynnt hefur verið um innköllun á nokkrum gerðum Lexusbifreiða vegna ventlagorma sem valdið geta gangtruflunum. 5.7.2010 10:39
Fyrsta ákæra sérstaks saksóknara þingfest á morgun Ákæra sérstaks saksóknara á hendur þremenningunum sem grunaðir eru um umboðssvik í svokölluðu Exeter máli verða þingfestar í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Um er að ræða fyrstu ákærur sérstaks saksóknara. 5.7.2010 10:04
Furðar sig á kæru Vodafone Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, furðar sig á kæru Vodafone sem hefur stefnt Símanum og Fjarskiptasjóði ríkisins vegna sex hundruð milljóna króna samnings um háhraðanettengingar. Vodafone telur að samningurinn feli í sér ólögmæta ríkisaðstoð við Símann og krefst þess að hann verði dæmdur ólögmætur. Sævar sagði í samtali við fréttastofu að hann teldi að eðlilega hafi verið staðið að útboðinu. 4.7.2010 19:30
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf