Almenningur aldrei eins jákvæður gagnvart Íbúðalánasjóði 26. janúar 2009 16:05 Guðmundur Bjarnason er forstjóri Íbúðalánasjóðs.
Viðhorf almennings gagnvart Íbúðalánasjóði hefur aldrei mælst eins jákvætt og nú ef marka má viðhorfsrannsóknir Capacent Gallup. Aðeins 3,9% segjast nú vera frekar eða mjög neikvæðir gagnvart sjóðnum, en 14,3% segjast hvorki neikvæðir né jákvæðir. Alls segjast 81,7% jákvæðir í garð Íbúðalánasjóðs, þar af eru 45% mjög jákvæðir og 36,7% frekar jákvæðir. Þeir sem eru mjög jákvæðir hafa ekki verið svo margir áður, eða 45%, en voru 28,5% fyrir þremur árum, 30,4% fyrir tveimur árum og 39% fyrir einu ári. 93,8 prósent telja að Íbúðalánasjóður eigi að starfa áfram í óbreyttri mynd. Þessi tala hefur líka hækkað jafnt og þétt í könnunum á undanförnum árum. Þannig töldu 74,2% að sjóðurinn ætti að starfa óbreyttur áfram fyrir þremur árum, 82,9% voru þeirrar skoðunar fyrir tveimur árum og 85,8% fyrir ári. Í könnuninni var meðal annars spurt hvort menn teldu að lán í íslenskum krónum ættu að vera verðtryggð áfram. 23,6% vildu halda verðtryggingunni, en 76,4% vildu afnema hana. 60,8% sögðust telja ólíklegt að þeir lentu í greiðsluerfiðleikum vegna afborgana af íbúðarhúsnæði á næstu 6 mánuðum. 55,7% sögðust mjög eða frekar ánægðir með að húsnæðislán sem ekki er hjá Íbúðalánasjóði yrði fært til sjóðsins. 33,4% sögðust hvorki ánægðir né óánægðir, en 10,9 frekar eða mjög óánægðir. Í könnuninni var meðal annars spurt hversu hátt hlutfall af kaupverði verðtryggð húsnæðislán ættu að vera að hámarki. Flestir, eða 33,6%, töldu að lánin ættu að vera 80% af kaupverði, en 22,1% vildu miða þau við hærra hlutfall kaupverðs en 80%. Spurt var hver hámarksfjárhæð verðtryggðra húsnæðislána ætti að vera. 44% þeirra sem svöruðu nefndu 30 milljónir eða hærra, 34,8% sögðu 20 - 29 milljónir, 6% töldu 15 - 19 milljónir hæfilega hámarksfjárhæð og 15,2% lægra en 15 milljónir. 74,5% sögðust vilja að Íbúðalánasjóður sæi um slík lán, en 5,4% viðskiptabankar eða sparisjóðir og 19,6% sögðu að báðir aðilar, þ.e. Íbúðalánasjóður og bankar/sparisjóðir, ættu að sjá um húsnæðislánin. Allir greiðsluseðlar Íbúðalánasjóðs birtast nú rafrænt í heimabönkum, en heimsendingu seðlanna á pappír var hætt í desember sl. 60,4% sögðu að þeim litist vel á þessa ráðstöfun. 1322 manns á landinu öllu á aldrinum 16 - 75 ára voru í úrtaki könnunarinnar, sem var gerð 24. nóvember til 8. desember 2008. Svarhlutfall var 64,1%.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira