Leggja á 39 prósenta skatt á eignir slitabúanna ingvar haraldsson skrifar 8. júní 2015 12:12 Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vísir/gva
Leggja á 39 prósenta einskiptis skatt á heildareignir fallinna viðskiptabanka eða sparisjóða, eins og þær verða metnar 31. desember 2015 samkvæmt tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Fram að þeim tíma hafa slitabúin tækifæri til að ljúka til að ljúka nauðasamningum sem að því gefnu að þau uppfylli stöðugleikaskilyrðin, en að öðrum kosti verða þau felld undir stöðugleikaskattinn. Stöðugleikaskilyrðin hafa verið samþykkt af ráðherranefnd um efnahagsmál og stýrinefnd um losun fjármagnshafta, en þeim er ætlað að koma í veg fyrir óæskileg áhrif vegna útgreiðslu fjármuna. Sjá einnig: Bein útsending frá fundi vegna afnáms gjaldeyrishafta „Með frumvarpi um stöðugleikaskatt er lagður til 39% einskiptis skattur á heildareignir fallinna viðskiptabanka eða sparisjóða, eins og þær verða metnar 31. desember 2015. Skattinum er ætlað að mæta þeim neikvæðu áhrifum sem leiða myndu af óskertri útgreiðslu fjármuna í tengslum við lok slitameðferðar skattaðila. Eftir að skatturinn hefur verið greiddur, og að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, fá skattaðilar undanþágu frá lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál. Þeir aðilar sem nú sæta slitameðferð en ljúka henni með staðfestum nauðasamningi fyrir 31. desember 2015 teljast ekki til skattskyldra aðila,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Lesa má tilkynningu ráðuneytisins í heild sinni hér að neðan:Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í gær að leggja fyrir Alþingi tvö frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra sem saman leggja grundvöll að heildstæðri aðgerðaáætlun um afnám fjármagnshafta. Ríkir almannahagsmunir krefjast þess að losun fjármagnshafta nái fram að ganga án þess að efnahagslegum og fjármálalegum stöðugleika sé ógnað. Markmið fyrirliggjandi áætlunar byggist á því meginsjónarmiði að höftum verði lyft í áföngum án þess að jafnvægi í hagkerfinu verði raskað og án þess að ríkissjóður eða almenningur taki á sig auknar fjárhagslegar byrðar. Heildarumfang vandans sem tekið er á í aðgerðaráætlun stjórnvalda nemur um 1.200 milljörðum króna. Eignirnar felast í krónueignum slitabúa fallinna fjármálastofnana að fjárhæð 500 milljarða, kröfum slitabúanna í erlendri mynt gagnvart innlendum aðilum að fjárhæð 400 milljarða og aflandskrónum í eigu erlendra aðila að fjárhæð 300 milljarða. Með afnámsáætlun stjórnvalda er komið í veg fyrir að þessar eignir flæði inn á gjaldeyrismarkað og hafi þannig neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð þjóðarbúsins.Stöðugleikaskilyrði og stöðugleikaskattur á slitabú fallinna fjármálafyrirtækjaLausn stjórnvalda gagnvart slitabúum fallinna fjármálafyritækja er tvíþætt: Annars vegar eru sett fram stöðugleikaskilyrði og hins vegar er lagður á stöðugleikaskattur. Stöðugleikaskilyrðin hafa verið samþykkt af ráðherranefnd um efnahagsmál og stýrinefnd um losun fjármagnshafta, en þeim er ætlað að koma í veg fyrir óæskileg áhrif vegna útgreiðslu fjármuna. Ljúki slitabú nauðasamningum fyrir árslok geta þau fengið að flytja fjármagn að því gefnu að þau uppfylli stöðugleikaskilyrðin, en að öðrum kosti verða þau felld undir stöðugleikaskattinn. Með frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, er ætlunin að einfalda þær reglur sem gilda um framkvæmd nauðasamningsumleitana fjármálafyrirtækja frá því sem nú er. Auk þess er í frumvarpinu ákvæði um að frumvarp að nauðasamningi fjármálafyrirtækis skuli ekki hljóta staðfestingu héraðsdómara nema fyrir liggi mat Seðlabanka Íslands um að það raski ekki stöðugleika í gengis- og peningamálum eða fjármálastöðugleika. Með frumvarpi um stöðugleikaskatt er lagður til 39% einskiptis skattur á heildareignir fallinna viðskiptabanka eða sparisjóða, eins og þær verða metnar 31. desember 2015. Skattinum er ætlað að mæta þeim neikvæðu áhrifum sem leiða myndu af óskertri útgreiðslu fjármuna í tengslum við lok slitameðferðar skattaðila. Eftir að skatturinn hefur verið greiddur, og að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, fá skattaðilar undanþágu frá lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál. Þeir aðilar sem nú sæta slitameðferð en ljúka henni með staðfestum nauðasamningi fyrir 31. desember 2015 teljast ekki til skattskyldra aðila. Að auki er breytingum á lögum um gjaldeyrismál, sem Alþingi samþykkti í gærkvöldi, ætlað að treysta forsendur aðgerða ríkisstjórnarinnar til losunar fjármagnshafta og vega á móti þeirri áhættu sem skapast þegar fjármagnshreyfingar og gjaldeyrisviðskipti tiltekinna aðila eru losuð í skrefum. Saman mynda þessi frumvörp heildstæða áætlun um lausn á þeim vanda sem útgreiðsla fjármuna frá föllnum fjármálafyrirtækjum til kröfuhafa við uppgjör þeirra myndi hafa að óbreyttu. Áætlað er að tekjur ríkissjóðs af stöðugleikaskatti geti orðið 682 milljarðar króna að teknu tilliti til frádráttarheimildar, en skattupphæð án frádráttar nemur tæpum 850 milljörðum króna. Stöðugleikaskilyrðin leysa vandann með áþekku umfangi og stöðugleikaskattur en samkvæmt annarri aðferðafræði og nálgun. Mikilvægt er að fjármunir sem renna til ríkisins vegna stöðugleikaskilyrða eða skatts hafi ekki óæskileg áhrif á peningamagn eða önnur þensluhvetjandi áhrif sem gætu raskað efnahagslegum stöðugleika. Verður þessum fjármunum, eftir því sem tækifæri gefast, varið til lækkunar skulda hins opinbera, enda hefur ríkissjóður borið mikinn kostnað af hruni fjármálakerfisins. Þegar uppgjör slitabúanna og losun fjármagnshafta er lokið verður stórum óvissuþætti eytt um efnahag ríkissjóðs og gert er ráð fyrir að vaxtaálag og vaxtakostnaður lækki umtalsvert.Gjaldeyrisuppboð fyrir aflandskrónueigendurAflandskrónur skapa vanda við losun fjármagnshafta þar sem um er að ræða auðseljanlegar krónueignir erlendra aðila sem gera má ráð fyrir að hefðu veruleg áhrif á gengisstöðugleika ef tilraun væri gerð til að losa þær út allar í einu. Aflandskrónuvandinn er leystur með uppboði á gjaldeyri og sölu skuldabréfa í íslenskum krónum og evrum með endurgreiðsluferil sem samræmist greiðslujöfnuði þjóðarbúsins. Eigendur aflandskróna geta valið milli þriggja kosta: Gjaldeyrisuppboðs, fjárfestinga í ríkisskuldabréfum til lengri tíma eða vaxtalausra og læstra reikninga. Uppboðsaðferðin tryggir að böndum verður komið á allar aflandskrónur. Þeir aflandskrónueigendur sem nýta uppboðið til að bjóða í gjaldeyri í skiptum fyrir íslenskar krónur munu greiða fyrir það álag og bera þannig nauðsynlegan kostnað af því að losna undan fjármagnshöftum.
Gjaldeyrishöft Mest lesið Stefna að því að opna deiliþjónustu bílferða fljótlega Atvinnulíf Dómstóll ógilti tollahækkanir Trump Viðskipti erlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Viðskipti innlent ESB skammar Shein: Falskir afslættir og villandi upplýsingar Neytendur Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Viðskipti innlent „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Hringrásin: „Ég er með blæti fyrir gömlu timbri“ Atvinnulíf Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Samstarf Fleiri fréttir Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum 4,5 milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Sjá meira