Viðskipti innlent

Skuldatryggingarálag ríkisins tók kipp upp á við

Það eru ekki einvörðungu skuldatryggingaálög viðskiptabankanna þriggja sem hafa verið að hækka upp á síðkastið. Skuldatryggingaálag á skuldbindingar ríkissjóðs til fimm ára tók kipp upp á við í gærmorgun eftir að hafa haldist nokkuð stöðugt frá því í lok apríl.

Greining Kaupþings fjallar um málið í Hálf fimm fréttum sínum. Þar segir að álagið sé nú komið upp í 220 punkta, sem er um 40 punkta hækkun frá deginum áður, en það fór hæst í 450 punkta í lok mars.

„Þessi hækkun álagsins skerðir lánakjör ríkisins að öllu óbreyttu og gæti sú stóra lántaka ríkissjóðs sem tilkynnt hefur verið um, til þess að auka gjaldeyrisforðann, orðið torveldari en ella," segir í Hálf fimm fréttum

Ekki er ólíklegt að 3,6% gengislækkun krónunnar í vikunni skýri aukið álag ríkissjóðs í gær.

Skuldatryggingaálag ríkissjóðs tók að hækka skarpt á haustmánuðum þegar þrengingar hófust af fullri alvöru á lánsfjármörkuðum. Á fyrri hluta ársins 2007 hélst það í 6-10 punktum en var komið upp í 64 punkta um síðustu áramót.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×