Tveir af þremur stærstu hluthöfum FL Group úr stjórn 19. júní 2008 10:59 Pálmi Haraldsson, Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason SAMSETT MYND
Þrír af mest áberandi viðskiptamönnum Íslands á undanförnum árum, Jón Ásgeir Jóhannesson, Pálmi Haraldsson og Hannes Smárason, hurfu á einu bretti út úr stjórn FL Group í morgun. Pálmi og Hannes eru báðir í hópi þriggja stærstu hluthafa félagsins. Ekki þarf að fara mörgum orðum um ástæður þess að Jón Ásgeir víkur sæti úr stjórn FL Group. Lög um hlutafélög gera honum ekki kleift að sitja í stjórnum íslenskra félaga næstu þrjú árin vegna þriggja mánaða skilorðsbundins dóms sem hann fékk á dögunum í Baugsmálinu. Ekki hefur náðst í Jón Ásgeir í morgun. Pálmi er annar eiganda Fons sem á 12,2% hlut í FL Group. Fons kom inn í hluthafahóp FL Group í byrjun desember á síðasta ári og má lauslega áætla að hlutur þess í félaginu hafi rýrnað um 13 milljarða miðað við gengi dagsins í dag. Ekki náðist í Pálma í morgun. Hannes Smárason er eigandi eignarhaldsfélagsins Oddaflug BV sem skráð er í Hollandi. Oddaflug BV á 10,8% hlut í FL Group. Ljóst er að Hannes hefur farið gífurlega illa út þeirri miklu lækkun sem orðið hefur á gengi bréfa í félaginu á undanförnum mánuðum. Hann er enn eftir því sem best er vitað eigandi Oddaflugs BV og mun því sitja með hlut sinn án þess að hafa nokkur völd. Hannes sagði í samtali við Vísi að það væri enginn sérstök ástæða fyrir því að hann hætti í stjórninni. „Menn hafa sínar ástæður á hverjum tíma,“ segir Hannes. Aðspurður hvort hann sé á leið út úr FL Group segir hann svo ekki vera. „Ég er alveg sallarólegur.“
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira