Fleiri fréttir Stefnir í fjöldauppsagnir hjá Northern Rock Útlit er fyrir að allt að 2.400 manns verði sagt upp hjá breska bankanum Northern Rock á næstu þremur árum eigi að takast að snúa við rekstrinum. Þetta segir Paul Thompson, einn þeirra sem leiðir yfirtökutilboð Richard Bransons í bankann. 7.2.2008 11:50 2,3 milljarða króna tap á rekstri 365 7.2.2008 10:49
Sjá næstu 50 fréttir
Stefnir í fjöldauppsagnir hjá Northern Rock Útlit er fyrir að allt að 2.400 manns verði sagt upp hjá breska bankanum Northern Rock á næstu þremur árum eigi að takast að snúa við rekstrinum. Þetta segir Paul Thompson, einn þeirra sem leiðir yfirtökutilboð Richard Bransons í bankann. 7.2.2008 11:50
Rólegt á markaði í veðurhamnum Gengi Existu lækkaði um eitt prósent í upphafi viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag. Á eftir fylgdu Straumur, FL Group, Landsbankinn og SPRON, sem hefur lækkað um 0,5 prósent. Bakkavör og Kaupþing eru hins vegar einu fyrirtækin sem hafa hækkað í dag, bæði um 0,55 prósent, á afar rólegum degi. 7.2.2008 10:43
Ari Edwald með 54 milljónir í árstekjur Ari Edwald, forstjóri 365, fékk rétt rúmar 54 milljónir í laun, árangurstengdar greiðslur og fríðindi á síðasta ári eftir því sem fram kemur í ársskýslu félagsins sem birt var í morgun. 7.2.2008 10:07
Byr kaupir rekstur Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna Kaup Byrs sparisjóðs á rekstri VSP eru liður í aukinni þjónustu við viðskiptavini sparisjóðsins. Fram til þessa hefur Byr boðið viðskiptavinum sínum verðbréfaþjónustu í gegnum dóttur- og hlutdeildarfélög sín. 7.2.2008 09:50
Hagnaður SPRON 3,3 milljarðar eftir skatta SPRON hagnaðist um 3,3 milljarða eftir skatta árið 2007 en þetta kemur fram í uppgjöri fyrirtækisins sem birt var í dag. Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON segir afkomuna vera vel viðundandi í ljósi mikilla lækkana á hlutabréfamörkuðum. 6.2.2008 19:57
Guðmundur Hauksson með 5 milljónir í mánaðarlaun Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, var með 61 milljón í árslaun á síðasta ári samkvæmt ársskýrslu bankans sem sent var Kauphöllinni nú fyrir skömmu. 6.2.2008 19:41
Exista og FL Group leiddu lækkanir dagsins Það voru fyrirtækin Exista og FL Group sem leiddu lækkanir dagsins í dag í Kauphöllinni eins og oft áður. Tuttugu félög lækkuðu í dag en aðeins tvö hækkuðu lítillega, Century Aluminium Company og Eik Banki. Exista lækkaði mest, um 4,99 prósent en FL Group um 4,88 prósent. 6.2.2008 17:20
Breytingar á framkvæmdastjórn Askar Capital Gerðar hafa verið gerðar breytingar á framkvæmdastjórn Askar Capital. Dr. Sverrir Sverrisson tekur við eigin viðskiptum bankans. Á sama tíma tekur Christian Yates við af Sverri sem framkvæmdastjóri eignastýringar. 6.2.2008 15:48
Sampo fær leyfi til að kaupa meir en 10% í Nordea Finnska tryggingarfélagið Sampo hefur fengið leyfi sænska fjármálaeftirlitsins til þess að auka hlut sinn í Nordea bankanum yfir 10%. 6.2.2008 11:55
Franz Árnason verður formaður Nordvarme Franz Árnason, forstjóri Norðurorku og formaður stjórnar Samorku, félags orkufyrirtækja á Íslandi var á dögunum kjörinn formaður Nordvarme til næstu tveggja ára. 6.2.2008 11:42
HBSC sagður bjóða í Société Generale Gengi hlutabréfa í franska bankanum Société Generale hækkaði um rúm sex prósent á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag eftir að orðrómur fór á kreik að evrópski risabankinn HSBC sé að íhuga að leggja fram yfirtökutilboð í bankann. 6.2.2008 11:34
Sparisjóðurinn aftur í efsta sæti ánægjuvogarinnar í flokki banka Sparisjóðurinn var í efsta sæti í flokki banka og sparisjóða í áttunda skiptið á níu árum í hinni svokölluðu Íslensku ánægjuvog sem Capacent Gallup sér um. 6.2.2008 11:08
SPRON féll um rúm sex prósent í byrjun dags SPRON tók snarpa dýfu rétt eftir upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag þegar gengi þess féll um 6,17 prósent. 6.2.2008 10:17
Glitnir í jarðorkuverkefni á Indlandi Glitnir hefur sótt um að opna útibú á Indlandi. Jafnhliða þessu hefur Glitnir gert samstarfssamning við LNJ Bhilwara Group um byggingu á jarðhitaorkuverum á Indlandi og Nepal. 6.2.2008 10:05
BHP hækkar tilboðið í Rio Tinto Ástralska námafélagið BHP Billiton hefur hækkað óvinveitt yfirtökutilboð sitt í ál- og námurisann Rio Tinto. Helsta ástæðan fyrir bættu tilboði er gagntilboð frá Chinalco, stærsta álfélagi Kína, sem er í ríkiseigu, í Rio Tinto. Gengi hlutabréfa í BHP féll um fimm prósent í kjölfarið. 6.2.2008 09:37
Disney-risinn siglir gegnum niðursveifluna Hagnaður Disney-risans var umfram væntingar á fyrsta ársfjórðungi, sem lauk í enda janúar samkvæmt bókum afþreyingafyrirtækisins. Það skrifast á góða sölu á DVD-myndum á borð við „High School Musical“ og fjölgun gesta í Disneyland- og Disneyworldgarðana. 6.2.2008 09:02
Hlutabréf hrapa á mörkuðum í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hafa hrapað í morgun í kjölfar mikillar dýfu á Wall Street í gærdag. 6.2.2008 07:38
Viðunandi uppgjör í erfiðu árferði Fyrir helgi birtu bankarnir fjórir, Landsbanki Íslands, Kaupþing, Glitnir og Straumur banki, allir uppgjör sín. Öll eru uppgjörin lituð af þrengingum þeim sem riðið hafa yfir fjármálamarkaði heimsins á seinni hluta síðasta árs í kjölfar lausafjárþurrðar og óvissuástands tengdu undirmálslánum í Bandaríkjunum og fjárfestingum fjármálafyrirtækja í ógagnsæjum skuldavafningum. Undirmálslánakrísan reyndist heldur dýpri en sérfræðingar greiningardeilda höfðu gert ráð fyrir og afkoma bankanna, í það minnsta á síðasta fjórðungi ársins, heldur undir því sem spáð hafði verið. 6.2.2008 06:00
Feðgar á fljúgandi ferð „Þetta er ómetanleg gæðastund hjá okkur feðgunum,“ segir Hrafnkell Sigtryggsson, sviðsstjóri hjá Intrum. Hrafnkell er áhugamaður um íþróttir af flestu tagi sem reyna bæði á kraft og þol. Þar á meðal eru snjóbrettarennsli og seglbrettasiglingar. Motocrossíþróttin er ein þeirra en hana stundar Hrafnkell með sonum sínum tveimur hvenær sem færi gefst. 6.2.2008 00:01
Landic sækir á finnsk mið Landic Property hyggst sækja fram og auka verulega við eignasafn sitt í Finnlandi. Sem lið í þeirri áætlun opnaði félagið skrifstofu í Helsinki þann 5. febrúar. Kristín Jóhannesdóttir stjórnarformaður félagsins opnaði nýja finnska heimasíðu, Landic Finland, í tilefni dagsins. Þar með er félagið með starfsstöðvar í fjórum Norðurlandanna. Höfuðstöðvarnar eru á Íslandi, en auk þess rekur félagið skrifstofur í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi og nú síðast í Helsinki. 5.2.2008 19:35
Icebank hagnast um 1,6 milljarða króna Icebank hagnaðist um 1.616 milljónir króna á síðasta ári samkvæmt uppgjöri sem birt var í dag. 5.2.2008 16:53
SPRON lækkaði mest í dag Tuttugu félög lækkuðu í Kauphöllinni í dag. Lækkað SPRON þeirra mest eða um 7,27% og stendur gengi bréfa félagsins nú í 6,12. 5.2.2008 16:52
Stjórnarformaður SPRON seldi part af hlut sínum fyrir markaðsskráningu Hildur Petersen, stjórnarformaður SPRON, segist hafa selt hluta af hlut sínum í félaginu áður en það fór á markað. Þetta kom fram í hádegisviðtali Markaðarins í dag. 5.2.2008 13:17
Finnair með gott uppgjör Finnska flugfélagið Finnair birti í morgun tölur um afkomu sína á síðasta ársfjórðungi. Tekjur félagsins á fjórðungnum reyndust aðeins hærri en greiningaraðilar höfðu búist við. FL Group er næst stærsti hluthafinn. 5.2.2008 11:09
Forstjóri Össurar með 64 milljónir í árslaun Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, var með rétt tæpar 64 milljónir í árslaun á síðasta ári samkvæmt ársskýrslu félagsins 2007 sem kynnt var í morgun. Það gera um 5,2 milljónir í mánaðarlaun fyrir forstjórann sem skilaði 480 milljóna króna hagnaði á árinu. 5.2.2008 11:00
Færeyski bankinn hefur lækkað mest Þrjú félög hafa hækkað frá opnun markaðar í morgun í Kauphölllinni. Atlantic Petroleum hefur hækkað mest eða um 6,32% og Century Aluminum Company um 1,97%. 5.2.2008 10:45
Hagnaður Össurar nam 480 milljónum kr. Hagnaður Össurar hf. á síðasta ári nam 7,6 milljónum dollara eða um 480 milljónum kr. Heildarsalan á árinu nam 335,6 milljónum dollara eða yfir 20 milljörðum kr. Er það auking upp á 33% frá árinu 2006. 5.2.2008 09:26
SPRON lækkaði mest í dag Sautján félög lækkuðu í Kauphöllinni í dag. Lækkaði SPRON þeirra mest eða um 3,93 prósent og stendur gengi bréfa félagsins í 6,60. 4.2.2008 16:37
Samtök fjárfesta undrast svör SPRON Stjórn Samtaka fjárfesta undrast svör stjórnar SPRON um sölu stjórnarmanna á eignarhlutum. Í Fréttablaðinu birtust spurningar og svör stjórnar SPRON þann 29.janúar sl. 4.2.2008 16:14
Össur, SPRON og 365 birta afkomuna í vikunni Nú hafa uppgjör stærstu fyrirtækjanna í Kauphöllinni verið birt en nokkur mikilvæg uppgjör eru þó enn væntanleg. Í þessari viku munu Össur, SPRON og 365 birta afkomutölur sínar fyrir fjórða ársfjórðung síðasta árs. 4.2.2008 11:13
Róleg byrjun í kauphöllinni Viðskiptin í kauphöllinni fara rólega af stað í dag. Úrvalsvísitalan nánast stendur í stað eftir fyrstu viðskipti, hækkar um 0.04% og er í 5.466 stigum. 4.2.2008 10:25
Eignir Exista rýrna meira en eigið fé Þrjár lykileignir Exista, Sampo, Kaupþing og Bakkavör, hafa rýrnað um 42 milljarða frá því um áramót. Í máli forsvarsmanna Exista á kynningarfundi á föstudag kom fram að eigið fé hefði ekki minnkað nema um 7,4 milljarða á sama tíma. 4.2.2008 09:22
Hagnaður Íbúðalánasjóðs um 2,5 milljarðar Hagnaður af rekstri Íbúðalánasjóðs í fyrra nam rúmum 2,5 milljörðum samkvæmt ársreikningi sem birtur er á vef Kauphallar Íslands. 4.2.2008 08:00
Búast við samþykki Yahoo tilboðsins Bandarískir stjórnmálamenn hittast seinna í vikunni til að ræða tilboð Microsoft í Yahoo. Stjórn Yahoo veltir nú fyrir sér 44,6 milljarða dollara tilboðinu en nefnd á vegum þingsins segir að hún muni grandskoða tilboðið 8. febrúar næstkomandi. 3.2.2008 21:28
Segir erfiðleika íslenska hagkerfisins í augsýn Breska blaðið Sunday Telegraph fjallar í dag um stöðu íslenska hagkerfisins og ótta um erfiðleika á fjármálamarkaði hér á landi. Í greininni segir að Kaupþing sé sjö sinnum líklegri að standa ekki í skilum en meðal evrópskur banki. 3.2.2008 15:48
Sjálfstæður atvinnurekandi - eða ríkur? Þeir Bandaríkjamenn sem vinna fyrir sjálfan sig, eða þéna meira en eina milljón bandaríkjadala ( 65 milljónir íslenskra króna) á ári, eru líklegri til að verða skoðaðir sérstaklega af ríkisskattstofu Bandaríkjanna en aðrir Bandaríkjamenn. 3.2.2008 11:26
Viðskiptavinir Egg bankans mótmæla kortasvipti Reiðir viðskiptavinir internetbankans Egg hafa mótmælt ákvörðun bankans um að ógilda kreditkort þeirra eftir 35 daga. Egg segir að 161 þúsund kortum verði lokað þar sem lánstraust korthafanna hafi versnað frá því að þeir tóku upp viðskipti við bankann. 2.2.2008 17:45
Microsoft vill kaupa Yahoo Fyrirtækin Microsoft og Yahoo eru bæði í samkeppni við leiðandi leitarvélarisann Google. Nú hefur Microsoft boðist til að kaupa Yahoo með peningum og hlutabréfum á tæplega þrjú þúsund milljarða íslenskra króna. 2.2.2008 15:54
Útflutningur á óunnum botnfiski eykst Útflutningur á óunnum botnfiski hefur aukist fyrstu fjóra mánuði fiskveiðiársins miðað við sama tíma í fyrra. Mest er aukningin í útflutningi á óunninni ýsu eða 32 prósent. Starfsgreinasambandið vill að ríkisstjórnin geri það fýsilegra fyrir fyrirtæki að vinna aflann hér á landi. 2.2.2008 12:39
Nova boðar harðnandi samkeppni á farsímamarkaði Samskiptafyrirtækið Nova býður fría farsímanotkun að eitt þúsund krónum á mánuði þeim 3G farsímaeigendum sem skrá sig í viðskipti til fyrirtækisins í eitt ár. Þá er öllum sem kaupa 3G farsíma hjá Nova boðið að nota símann endurgjaldslaust fyrir tvö þúsund krónur á mánuði þegar gengið er til liðs við fyrirtækið. 2.2.2008 11:29
Starfsmenn Skagen fá 12 milljónir í bónus Á meðan flestir aðilar á verðbréfamörkuðum heims bera sig illa fagna eigendur, starfsmenn og viðskiptavinir norska fjárfestingarsjóðsins Skagen. Sjóðnum tókst furðuvel að halda sjó síðustu mánuði og við ársuppgjör í vikunni var ávöxtunin svo góð að hver einasti starfsmaður fékk sem svarar um tólf milljónum íslenskra króna í bónus. 2.2.2008 10:01
Flaga fellur eftir háflug Gengi Flögu féll um 3,2 prósent eftir ofsaflug í vikunni. Gengi bréfa í svefnrannsóknarfyrirtækinuhafði legið í lægstu lægðum alla síðustu viku en tók skyndilegan kipp undir vikulokin og rauk upp um rúm 160 prósent á fjórum viðskiptadögum. 1.2.2008 17:04
Víkingastyttan af Hard Rock er á skrifstofu Jóns Ásgeirs Jón Ásgeir Jóhannesson er í viðtali í nýjasta tölublaði Business Week. Þar ræðir hann við blaðamann um mögulega yfirtöku Baugs á bandarísku lúxusversluninni Saks í New York auk þess sem farið er yfir feril hans. Í viðtalinu kemur meðal annars fram að styttan af Leifi Heppna sem stóð í Hard Rock Café í Kringlunni á meðan sá staður var og hét, er niðurkomin í höfuðstöðvum Baugs í London. 1.2.2008 14:04
„Við erum ekki í vandræðum“ „Það hafa gengið sögur um að félagið eigi í erfiðleikum með lausafé en eins og kom fram erum við með lausafé fram yfir mitt næsta ár og það getur hvaða fjármálastofnun sem er verið stolt af því,“ sagði Lýður Guðmundsson stjórnarformaður Exista í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag. 1.2.2008 14:00