Landic sækir á finnsk mið 5. febrúar 2008 19:35 Skarphéðinn Berg Steinarsson, forstjóri Landic Property.
Landic Property hyggst sækja fram og auka verulega við eignasafn sitt í Finnlandi. Sem lið í þeirri áætlun opnaði félagið skrifstofu í Helsinki þann 5. febrúar. Kristín Jóhannesdóttir stjórnarformaður félagsins opnaði nýja finnska heimasíðu, Landic Finland, í tilefni dagsins. Þar með er félagið með starfsstöðvar í fjórum Norðurlandanna. Höfuðstöðvarnar eru á Íslandi, en auk þess rekur félagið skrifstofur í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi og nú síðast í Helsinki. Skarphéðinn Berg Steinarsson forstjóri segir að Landic Property hafi nú þegar mjög sterka stöðu á markaði á Íslandi, Danmörku og Svíþjóð og að fótfesta í Finnlandi sé mikilvægt skref í framtíðarsýn félagsins. „Finnski fasteignamarkaðurinn er sterkur, fellur vel að viðskiptamynstri félagsins og býður upp á eftirsóknarverð tæknifæri." Landic Property er meðal allra stærstu fasteignafélaga á Norðurlöndum. Það á og rekur yfir fimm hundruð fasteignir sem eru samtals um 2,7 milljónir fermetrar að flatarmáli. Það er stærsta fasteignafélagið á Íslandi, og hefur mjög sterka stöðu í Danmörku og Svíþjóð. Félagið á 10 fasteignir í Finnlandi sem eru tæplega 50 þúsund fermetrar að flatarmáli. Langstærsti leigutakinn er Nordea bankinn. Skarphéðinn segir að Landic Property eigi eftir að margfalda þá starfsemi sem nú er í Finnlandi og stórt skref í þá átt er opnun skrifstofunnar í Helsinki. „Verulegur uppgangur hefur verið í landinu á undanförnum árum og þar starfa mörg stór og öflug alþjóðleg fyrirtæki. Aðstæðurnar eru því ákjósanlegar fyrir framsækin fasteignafélög." "Við stefnum á mikinn vöxt í Finnlandi fyrst í stað, en til lengri tíma litið er markmið félagsins að víkka kvíarnar enn frekar út í nálægum löndum," segir Skarphéðinn. „Landic Property ætlar að hasla sér völl sem eitt allra öflugasta fasteignafélagið í Norðurhluta Evrópu. Með því móti getur það boðið viðskiptavinum sínum upp á fjölbreytta þjónustu og auðveldað fyrirtækjum að byggja sig upp í fleiri en einu landi."
Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira