Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Moody's staðfestir lánshæfismat bankanna Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody´s Investors Service staðfestir lánshæfiseinkunnir viðskiptabankanna þriggja í nýrri skýrslu þar sem fjallað er um bankakerfið á Íslandi. Matsfyrirtækið segir lánshæfishorfur bankanna stöðugar en hvað varðar einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika þá eru horfur neikvæðar fyrir Glitni og Landsbankann. 20.12.2006 12:05
Taka þarf upp evru lagist ekki hagstjórnin Hysji stjórnvöld ekki upp um sig buxurnar í stjórn efnhagsmála er upptaka evru eina leiðin til að hér náist stöðugleiki í efnahagsmálum, sagði Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, þegar hann kynnti nýja skýrslu um hagstjórnarumhverfið á Íslandi í morgun. Skýrslan er áfellisdómur yfir hagstjórn bæði ríkis og sveitarfélaga auk þess sem Seðlabankinn er sagður hafa gert mistök í stjórn peningamála. 20.12.2006 11:02
Delta hafnar US Airways Bandaríska flugfélagið Delta hefur hafnað yfirtökutilboði flugfélagsins US Airways. Tilboðið hljóðaði upp á 8 milljarða bandaríkjadali eða tæpa 552,5 milljarða íslenskra króna. Stjórn Delta ákvað hins vegar að leita allra leiða til að hagræða í rekstri og forða flugfélaginu frá gjaldþroti. 20.12.2006 10:35
Hlutabréf hækka á ný í Taíland Gengi hlutabréfa hækkaði um 9 prósent í Taílandi í dag eftir mjög mikla lækkun í í gær. Seðlabanki Taílands tilkynnti á mánudag að hann hyggðist taka upp gjaldeyrishömlur til að sporna gegn hækkun taílenska bahtsins. Afleiðingarnar urðu þær að fjöldi erlendra fjárfesta losaði sig við hlutabréfaeign sína á þriðjudag og gengi hlutabréfavísitölunnar fór niður um tæp 15 prósent. 20.12.2006 09:34
Tímaspursmál hvaða banki yrði fyrstur Ekki virðast í bráð uppi ráðagerðir hjá stóru viðskiptabönkunum að færa bókhald sitt yfir í evrur líkt og Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hefur upplýst um að hann ætli að gera um áramót. Málið hefur þó verið rætt og er til stöðugrar endurskoðunar bæði í Landsbankanum og Glitni. Kaupþing kýs hins vegar að tjá sig ekki um málið. 20.12.2006 07:30
Neðanjarðar-sport Ein vinsælasta íþróttagreinin sem nýríkir íslenskir athafnamenn stunda af miklum krafti er vínsöfnun og heyrast sögur af því að vel efnaðir einstaklingar leggi mikið upp úr því að útbúa vínkjallara þegar verið er að hreinsa út úr einbýlishúsunum. 20.12.2006 00:01
Fjármagna nágrannana Ég er búinn að kaupa jólagjafirnar fyrir gróðann af 365 og svo bakaði ég smákökur á sunnudaginn. Hef ekki klikkað á því svo árum skiptir, enda tekur maður því alltaf fremur rólega í desember og lætur aurana vinna fyrir sig. 20.12.2006 00:01
Vodafone með stærstu búð hér Í Skútuvogi í Reykjavík hefur verið opnuð stærsta Vodafone-verslun í heimi, um 400 fermetrar að stærð. Í tilkynningu Vodafone á Íslandi kemur fram að vöruúrvalið í búðinni sé einstakt og hún sé ein af fyrstu Vodafone-verslununum í heimi sem byggja á byltingarkenndri hönnun sem færa á viðskiptavinum nýja sýn á vöru- og þjónustuframboð fyrirtækisins. 20.12.2006 00:01
Uppgangur innan klæða Danir eru sterk verslunarþjóð og eiga langa sögu sem slík, enda þótt við teljum okkur auðvitað þeim fremri á öllum sviðum nema í fótbolta. 20.12.2006 00:01
TM Software styrkir Ljósið Hugbúnaðarfyrirtækið TM Software hefur ákveðið að styrkja Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Stuðningurinn felst í að veita Ljósinu afnot af sjúkraskrárkerfinu Sögu, sem Ljósið fær aðgang að í gegnum iCura-kerfisveitu. 20.12.2006 00:01
VÍS styrkir Einstök börn Í stað þess að senda jólakort tóku stjórnendur VÍS þá ákvörðun að styrkja Einstök börn um andvirði þeirra fjárhæðar sem varið hefur verið til slíks. Verður styrknum varið í stuðning við börn og barnafjölskyldur sem vegna sérstakra aðstæðna þurfa á stuðningi að halda. 20.12.2006 00:01
Nú sér fyrir endann á hækkunarferli stýrivaxta Hvort sem Seðlabanki Íslands hækkar stýrivexti lítillega á aukavaxtaákvörðunardegi sínum á morgun eða heldur þeim óbreyttum ber sérfræðingum saman um að eftir áramót verði ferli stýrivaxtahækkana bankans sem hófst í maí 2004 örugglega lokið. 20.12.2006 00:01
Gjaldeyrishömlum aflétt í Taílandi Ríkisstjórn Taíland tilkynnti í dag að hún muni aflétta gjaldeyrishömlum á alþjóðlega fjárfesta. Hömlurnar urðu til þess að fjöldi erlendra fjárfesta losuðu sig við taílenska hlutabréfaeign sína með þeim afleiðingum að gengi hlutabréfa í Taílandi hrundi í morgun. 19.12.2006 16:49
Mikill samdráttur íbúðalána hjá innlánsstofnunum Verulegur samdráttur var á milli ára í nóvember í nýjum íbúðalánum innlánsstofnana, eða 77 prósent. Greiningardeild Landsbankans segir samdráttinn á milli ára svipaða frá miðju ári. Ný útlán banka hafi náð hámarki skömmu eftir að þau hófust haustið 2004 og fóru hæst í rúma 34 milljarða króna í október sama ár. 19.12.2006 16:28
Íslandsmarkaður breytir um nafn Á hluthafafundi Íslandsmarkaðar hf., 12. þessa mánaðar var ákveðið að breyta um nafn á félaginu. Það mun eftirleiðis heita Reiknistofa fiskmarkaða hf. 19.12.2006 10:26
Óbreyttir stýrivextir í Japan Seðlabanki Japans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,25 prósentum. Bankinn hækkaði stýrivexti síðast um 25 punta í júlí í sumar og lét af núllvaxtastefnu sinni, sem hafði verið viðvarandi síðastliðin fimm ár. 19.12.2006 10:01
Promens lýkur kaupum á Polimoon Promens hf., dótturfyrirtæki Atorku hefur fallið frá eftirfarandi skilyrðum í tengslum við kaup fyrirtækisins á Polimoon ASA. Gert er ráð fyrir að kaupunum verði lokið þann 28. desember næstkomandi. 18.12.2006 17:03
Norsk Hydro og Statoil sameinuð Norsku ríkisfyrirtækin Norsk Hydro og olíufyrirtækið Statoil hafa samþykkt að ganga í eina sæng með það fyrir augum að stofna nýjan olíurisa, sem verður einn sá stærsti sinnar tegundar í heiminum sem sinnir olíuframleiðslu á hafi úti. Gengi hlutabréfa í Norsk Hydro hefur hækkað um 24 prósent í kauphöllinni í Olsó í Noregi í dag vegna fréttanna. 18.12.2006 09:32
Óbreytt verðbólga innan EES Samræmd vísitala neysluverðs innan aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins var óbreytt á milli mánaða í nóvember. Verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, hér á landi var óbreytt á milli mánaða eða 6,1 prósent, að sögn Hagstofu Íslands. 18.12.2006 09:21
Með skrifstofur í fimm löndum Fjárfestingarbankinn Askar Capital hefur starfsemi um næstu áramót. Bankinn verður með höfuðstöðvar í Reykjavík, en skrifstofur í Lúxemborg, Lundúnum, Búkarest og Hong Kong að auki. Bankinn starfar á vettvangi fyrirtækja og stórviðskipta, en sinnir ekki einstaklingsviðskiptum, þ.e. svokallaðri heildsölubankastarfsemi. 16.12.2006 06:45
Stork gefur sölu á hluta undir fótinn Stork fyrirtækjasamstæðan í Hollandi horfir til nokkurra fjárfestingarkosta sem gætu leitt til uppskiptingar á samstæðunni ef til þess þyrfti að koma til að fjármagna kaupin, hafa erlendir fjölmiðlar eftir Jan Kalff, stjórnarformanni Stork. 16.12.2006 06:30
Straumur heldur sinni stefnu Björgólfur Thor fagnar komu útlendinga að Straumi. Björgólfur Thor Björgólfsson telur að kaup Straums og fleiri fjárfesta á bréfum FL Group í Straumi breyti ekki miklu að því sem snýr að starfsemi Straums. 16.12.2006 06:15
FL fer úr Straumi með Finnair í farteskinu Straumur-Burðarás, Samvinnutryggingar og aðrir fjárfestar kaupa 22,6 prósenta hlut í Straumi af FL Group fyrir 42 milljarða króna. FL fær peninga, hlutabréf í Finnair og hefur bolmagn til að ráðast í 200 milljarða verkefni. 16.12.2006 06:00
Óbreytt verðbólga í Bandaríkjunum Vísitala neysluverðs hélst óbreytt á milli mánaða í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Þetta jafngildir því að verðbólga sé 2,2 prósent vestanhafs á ársgrundvelli, sem er þvert á spár greiningaraðila sem bjuggust við að vöruverð myndi hækka um 0,2 prósent á milli mánaða. Helsta ástæðan er lækkun á eldsneytisverði. 15.12.2006 16:33
Apple frestar birtingu ársuppgjörs Bandaríski tölvuframleiðandinn Apple greindi frá því í dag að fyrirtækið hefði frestað því að senda ársskýrslu sína til bandarískra fjármálayfirvalda. Ástæðan mun vera rannsókn yfirvalda á kaupréttarákvæðum stjórnenda hjá fyrirtækinu. 15.12.2006 14:32
FL Group með mikla fjárfestingagetu FL Group situr uppi með mikla fjárfestingagetu eftir að sala á 22,6 prósenta hlut félagsins í Straumi-Burðarási var samþykkt í morgun. Greiningardeild Glitnis segir að þrátt fyrir að hlutirnir séu seldir með tapi þá hafi félagið náð að auka hlutafé á yfirverði á erfiðum hlutafjármarkaði í sumar. 15.12.2006 12:00
Gengi BAE Systems hækkaði mikið Gengi hlutabréfa í breska fyrirtækinu BAE Systems hækkaði snarlega, eða um 5,1 prósent, þegar viðskipti hófust á markaði í Lundúnum í morgun eftir að yfirvöld í Bretlandi greindu frá því í gær að þau hefðu fellt niður rannsókn á fyrirtækinu vegna vafasamra viðskipta þess við Sádi-Arabíu. 15.12.2006 10:46
Samskiptamiðstöð ekki í frjálsri samkeppni Samkeppniseftirlitinu telur ekki ástæðu til að grípa til aðgerða vegna erindis frá félaginu Hröðum höndum, sem mælti yrði um fjárhagslegan aðskilnað samkvæmt 14. gr. samkeppnislaga innan Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra. 15.12.2006 10:02
Bandaríkjamenn og Kínverjar ná sáttum Stjórnvöld í Kína hafa sæst á að breyta gengisstefnu sinni, m.a. til að að færa það nær gengi bandaríkjadals með það fyrir augum að minnka viðskiptahalla Bandaríkjanna. Þetta var niðurstaðan að loknum fundi bandarískrar sendinefndar sem fór áleiðis til Kína í vikunni til fundar við ráðamenn. 15.12.2006 09:26
Stork boðar til fundar um vantraust á stjórn Stjórn Stork í Hollandi boðar með harmkvælum sérstakan hluthafafund þar sem efnið er vantraustsyfirlýsing á hana. Tekist er á um stefnu þar sem stærstu hluthafar vilja brjóta upp starfsemina. Marel hefur hug á að kaupa Stork Food Systems. 15.12.2006 07:15
Staðfest að brotið var á Mjólku Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest úrskurð Samkeppniseftirlitsins frá 13. október um að Osta- og smjörsalan hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína gagnvart Mjólku. 15.12.2006 06:45
Miklar sveiflur á 365 og Teymi Gengi 365 hækkar um rúm fjörutíu prósent í desember. Kaupréttarsamningar forstjóra 365 og Teymis hafa hækkað um tugi milljóna króna. 15.12.2006 06:45
Straumur selur í Artumas Straumur-Burðarás hefur selt allan sinn hlut í kanadíska orkufyrirtækinu Artumas Group sem er skráð í Kauphöllina í Ósló. Um sex prósenta hlut var að ræða sem hægt er að meta á rúmlega 600 milljónir króna. 15.12.2006 06:45
Líflegur upphafsdagur Icelandair Áhersla verður lögð á frekari vöxt fyrirtækisins, segir stjórnarformaður Icelandair Group Holding. Forstjórinn tók sprettinn úr Kauphöllinni í beina útsendingu hjá Bloomberg-fréttaveitunni. 15.12.2006 06:30
Samdráttur hjá iTunes? Bandaríski tölvu- og hugbúnaðarrisinn Apple vísar á bug fréttum þess efnis að sala á tónlist hjá iTunes-tónlistarveitu fyrirtækisins hafi dregist saman um 65 prósent á fyrri hluta ársins í Bandaríkjunum. 15.12.2006 06:30
FL Group tryggir sér frekari fjármögnun Félagið hefur fengið aðgang að 92 milljörðum á árinu. FL Group hefur samið um þriggja ára fjármögnun við Barclays Capital og fær með samningnum aðgang að 37 milljarða króna lánsfé. 15.12.2006 06:15
Starfsemi IG í Maryland lögð af Icelandic USA, dótturfélag Icelandic Group, ætlar að loka verksmiðju sinni í Cambridge í Maryland. Í verksmiðjunni fara á milli þrjátíu og fjörutíu prósent af framleiðslu Icelandic. 15.12.2006 06:00
Dagsvelta yfir 12 hundruð milljónum Lífleg viðskipti voru með Icelandair Group Holding á fyrsta degi félagsins í Kauphöllinni. Félagið hækkaði um 2,2 prósent frá útboðsgengi til fjárfesta og kostaði hluturinn 27,6 krónur í lok gærdags. 15.12.2006 06:00
Peningaskápurinn Framkvæmdastjóri House of Fraser, John King, fékk í gær afhentar tvær fjörutíu og fjögurra blaðsíðna skýrslur fullar af athugasemdum, aðra fyrir sig sjálfan og hina handa Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs. 15.12.2006 06:00
OMX gerir tilboð í kauphöllina í Slóveníu Norræna kauphallarsamstæðan OMX hefur gert kauptilboð í öll bréf Kauphallarinnar í Ljubljana í Slóveníu. Tilboðið hljóðar upp á 4,2 milljónir evra eða rúmar 386 milljónir íslenskra króna. 14.12.2006 16:08
Ekki víst hvort Ryanair hækkar yfirtökutilboð Michael O'Leary, forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair, hefur hvorki viljað segja af né á hvort flugfélagið ætli að hækka yfirtökutilboð sitt í írska flugfélagið Aer Lingus. Yfirtökutilboðið hljóðar upp á 1,48 milljarða evrur eða um 136 milljarða krónur en hluthafar hafa fram til morgundags til að ákveða hvort þeir taki því. 14.12.2006 14:45
Olíuverð hækkaði um rúman dal Heimsmarkaðsverð á hráolíu tók kipp í dag í kjölfar þess að aðildarríki OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja, ákváðu að minnka olíuframleiðslu ríkjanna um allt að hálfa milljón olíutunna á dag frá og með febrúar á næsta ári. Heildarsamdrátturinn á árinu nemur 1,7 milljónum tunna á dag. 14.12.2006 13:26
FL Group fær allt að 37 milljarða FL Group hefur skrifað undir þriggja ára samning við breska bankann Barclays Capital um allt að 400 milljóna evra fjármögnun. Þetta jafngildir til tæplega 37 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins í dag. FL Group fengið aðgang að ríflega 1 milljarði evra eða um 92 milljörðum íslenskra króna það sem af er árs fyrir tilstilli virtra alþjóðlegra bankastofnana. 14.12.2006 11:50
Forstjóri Icelandair í viðtali á Bloomberg Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group Holding, sagði í viðtali í beinni útsendingu á Bloomberg sjónvarpsstöðinni í dag, skömmu eftir skráningu flugfélagsins í Kauphöll Íslands, að sveigjanleiki Icelandair skipti félagið miklu máli enda væri það mikilvægur lykill að velgengni flugfélaga. 14.12.2006 10:55
Icelandic Group lokar verksmiðju í Bandaríkjunum Icelandic USA Inc., dótturfélag Icelandic Group hf., ætlar að loka verksmiðju sinni í Cambridge, Maryland fyrir lok næsta árs. Ákvörðunin er tekin í ljósi þess að félagið getur sinnt allri framleiðslu og dreifingu fyrirtækisins í verksmiðju sinni og í nýlegri dreifingarmiðstöð sem í Newport News í Virginíuríki í Bandaríkjunum. 14.12.2006 10:31