Starfsemi IG í Maryland lögð af 15. desember 2006 06:00 Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandic Group Verksmiðju Icelandic USA í Cambridge í Maryland verður lokað á næsta ári.
Icelandic USA, dótturfélag Icelandic Group, ætlar að loka verksmiðju sinni í Cambridge í Maryland. Í verksmiðjunni fara á milli þrjátíu og fjörutíu prósent af framleiðslu Icelandic. USA fram og þar starfa um það bil fjögur hundruð manns. Ekki stendur til að bæta við nýrri verksmiðju þar sem félagið getur sinnt allri framleiðslu og dreifingu fyrirtækisins í verksmiðju sinni í Newport News í Virginíu og í nýlegri dreifingarmiðstöð á sömu slóðum. Smám saman verður dregið úr starfseminni í Cambridge þar til henni verður alfarið hætt í árslok 2007. Lokunin mun, samkvæmt tilkynningu frá Icelandic Group, fela í sér 0,8 milljarða króna virðisrýrnun sem mun gjaldfærast á fjórða ársfjórðungi 2006. Þar að auki muni falla til um 0,4 milljarða króna kostnaður vegna endurskipulagningar á sama ársfjórðungi. Í Morgunkorni Glitnis segir að með þessu sé ljóst að rekstrarmarkmið félagsins, um 55 milljóna evra EBITDA-framlegð, sem eru um fimm milljarðar króna, fyrir árið í heild muni ekki nást. Allt stefni í að árið verði litað af slökum rekstrarárangri og mikilli endurskipulagningu eins og árið 2005. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandic Group, segir að nú sjái brátt fyrir endann á mikilli endurskipulagningu innan samstæðunnar. „Þær miklu breytingar sem hafa verið keyrðar í gegn á árinu munu skila sér í mun betri rekstrarárangri í ár en í fyrra, þótt enn megi gera betur. Lokun verksmiðjunnar í Cambridge mun hafa í för með sér betri rekstrarniðurstöðu þar sem nýting verksmiðju okkar í Newport News verður betri og rekstur hennar fyrir vikið hagkvæmari.“
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira