Fleiri fréttir

Verðbólgan 8 prósent

Vísitala neysluverðs í síðasta mánuði var 261,9 stig og hækkaði um 1,16 prósent frá maí. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 242,0 stig, hækkaði um 1,0 prósent frá því í maí. Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 2,4 prósent. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs mælst 8 prósent en vísitala neysluverð án húsnæðis um 6 prósent.

Spá 0,8 prósenta hækkun vísitölu

Greiningardeild KB banka spáir 0,8 prósenta hækkun á vísitölu neysluverðs í næsta mánuði og að 12 mánaða verðbólga muni hækka í 7,7 prósent. Í hálf fimm fréttum bankans segir að hækkun á innfluttum varningi og hækkandi húsnæðisverð muni leggja mest til hækkunar á vísitölunni.

Dótturfélög Avion færa út kvíarnar

Star Airlines, dótturfélag Avion Group, hefur fest kaup á franska fyrirtækinu Crystal sem sérhæfir sig í heildsölu ferða á Netinu. Crystal hefur á skömmum tíma skapað sér leiðandi stöðu í Frakklandi, en farþegar félagsins voru 32.000 á síðasta ári.

Minni viðskiptahalli en búist var við

Viðskiptahallinn í Bandaríkunum jókst um 2,5 prósent í apríl og var vöruskiptajöfnuður óhagstæður um 63,4 milljarða Bandaríkadali. Þetta er minni halli en fjármálasérfræðingar spáðu fyrir um en þeir óttuðust að vöruskipti yrðu óhagstæð um 65 milljarða dali.

House of Fraser sagt samþykkja tilboð Baugs

Stjórn House of Fraser hefur staðfest að hún eigi í viðræðum við Baug Group um yfirtöku á félaginu. Viðræður hafa farið fram um að Baugur bjóði 148 pens í hvern hlut en gangi tilboðið eftir er verðmæti House of Fraser um 48 milljarðar króna.

Styður samruna evrópskra kauphalla

Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri Evrópu, er fylgjandi samruna kauphalla í Evrópu og styðjur tilraun þýsku kauphallarinnar, Deutsche Börse, til að sameinast samevrópska hlutabréfamarkaðnum Euronext. Í byrjun mánaðarins var greint frá því að búið væri að samþykkja samruna kauphallarinnar í New York í Bandaríkjunum (NYSE) og Euronext.

Spá minni eftirspurn eftir áli

Verð á áli og öðrum málumum hefur lækkað síðustu mánuði en álverð hefur lækkað um 11 prósent frá 11. maí síðastliðnum. Verð á málmum hefur farið ört hækkandi á síðastliðnum fimm árum, m.a. vegna mikillar eftirspurnar frá stórum hagkerfum á borð við Kína og Indland. Búist er við minni eftirspurn eftir málmum á næstunni vegna hárra vaxta víða um heim.

Star Europe semur við stærstu ferðaþjónustu Þýskalands

Flugfélagið Star Europe, dótturfélag Avion Group, hefur samið við stærsta ferðaþjónustuaðila Þýskalands, T.U.I., um leigu á farþegaflugvél til fimm mánaða yfir sumarið. Star Europe sér um farþegaflug fyrir þýska flugfélagið Germanwings, samkvæmt verkkaupasamningi, og nú einnig fyrir TUI.

Danir hækka stýrivexti

Seðlabanki Danmerkur hefur fylgt fordæmi evrópska seðlabankans og hækkað stýrivexti um 0,25 prósentur. Stýrivextir í Danmörku standa nú í 3 prósentum. Seðlabanki Evrópu hækkaði stýrivexti fyrr í dag um fjórðung úr prósenti og standa þeir nú í 2,75 prósentum.

Stýrivaxtahækkun á evrusvæðinu

Seðlabanki Evrópu hækkaði stýrivexti á evrusvæðinu um 0,25 prósent í dag og standa þeir nú í 2,75 prósentum. Almennt var búist við stýrivaxtahækkuninni en nokkrir bjuggust hins vegar við 0,5 prósenta hækkun.

Olíuverð lækkaði í dag

Olíuverð fór niður fyrir 70 Bandaríkjadali á tunnu í dag í kjölfar fregna um dauða Abus Musab al-Zarqawis, æðsta manns hryðjuverkasamtakanna al-Qaida í Írak. Þá munu fregnir þess efnis að skæruliðar í Nígeríu muni gefa erlendum gíslum sínum frelsi hafa ýtt verðinu niður. Olíuverðið hefur ekki verið lægra í hálfan mánuð.

Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi

Stjórn Englandsbanka ákvað á fundi sínum í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum. Stýrivextir í Bretlandi standa í 4,5 prósentum og hafa þeir haldist óbreyttir undanfarna 10 mánuði.

Nikkei vísitalan ekki lægri í þrjú ár

Nikkei hlutabréfavísitalan í Tókíó hrapaði um þrjú prósent í morgun og hefur ekki verið lægri í hálft ár. Margir verðbréfamiðlar voru smeykir eftir þriðju beinu lækkunina á hlutabréfamarkaðnum á Wall Street og eru japanskir verðbréfamiðlarar nú farnir að búa sig undir hugsanlegan samdrátt á Bandaríkjamarkaði sem gæti dregið úr hagvexti þar og minnkað eftirspurn eftir japönskum útflutningsvörum.

Viðskipti stöðvuð í Kauphöllinni

Alvarleg truflun varð í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands klukkan 14:48 í dag og voru öll viðskipti stöðvuð í kjölfarið. Ekki er nákvæmlega vitað hvað olli truflunninni sem varð í samnorrænu Saxes viðskiptakerfi kauphallarinnar. Kauphallir á Norðurlöndunum nota sama kerfi og kom truflunin upp í kerfi þeirra sömuleiðis.

Eigendur Pennans kaupa hlut í AN Office

Eigendur Pennans hafa fest kaup á 73 prósent hlut í lettneska rekstarvörufyrirtækinu AN Office, (Aigas Nams) sem er þriðja stærsta rekstrarfyrirtækið á Eystrasaltssvæðinu. Velta AN Office var um 1,5 milljarðar íslenskra króna á síðasta ári.

Hlutabréf lækkuðu í Japan

Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð í kauphöllinni í Tókýó í Japan vegna ótta fjárfesta um yfirvofandi hækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum. Gengi bréfanna hefur ekki verið lægra síðan í nóvember á síðasta ári.

Kortanotkun eykst á milli ára

Kreditkortavelta heimilanna var 19,9 prósentum meiri á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs og debetkortavelta jókst um 10,3 prósent frá sama tíma í fyrra.

Viðbragða er þörf

Vaxtaálag á skuldabréf stóru viðskiptabankanna jókst á eftirmörkuðum í Evrópu í gærmorgun eftir að Standard & Poors breytti horfum í lánshæfismati ríkisins. Bankarnir telja áhrifin þó meiri til skemmri tíma þótt búast megi við einhverju bakslagi í umræðu um íslenskt efnahagslíf.

Boðið í breska flugvelli

Stjórn breska fyrirtækisins BAA Group, sem rekur sjö flugvelli í Bretlandi, m.a. Heathrow og Gatwick auk þess sem fyrirtækið hefur starfsemi á nokkrum flugvöllum í öðrum löndum í Evrópu, hefur lýst yfir samþykki við yfirtökutilboð spænska fyrirtækisins Grupo Ferrovial í fyrirtækið. Tilboðið hljóðar upp á 950,25 pens á hlut eða 10,3 milljarða punda, jafnvirði 1.408 milljarða íslenskra króna.

Hagnaður Ryanair umfram væntingar

Hagnaður írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair nam 302 milljónum evra á síðasta rekstrarári, sem lauk í mars, og er það 12 prósentum meiri hagnaður en árið á undan. Þá er hagnaðurinn sjö milljónum evrum meiri en stjórn flugfélagsins hafði búist við.

4 prósentum fleiri gistinætur

Gistinætur á hótelum í apríl voru 80.300 eða 3.000 fleiri en á sama tíma fyrir ári sem jafngildir 4 prósenta aukningu á milli ára. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinætur fóru úr 1.800 í 2.200 milli ára. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði gistinóttum úr 5.800 í 6.500, sem jafngildir 13 prósenta aukningu.

Óbreytt lánshæfismat Glitnis

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor’s tilkynnti í gær að lánshæfismat Glitnis (A-/Stable/A-2) héldist óbreytt þrátt fyrir að lánshæfismatsfyrirtækið hefði breytt horfum fyrir íslenska ríkið í neikvæðar úr stöðugum (Lánshæfiseinkunn íslenska lýðveldisins í erlendri mynt'AA-/A-1+'; í íslenskum krónum 'AA+/A-1+').

Áætlaður kostnaður helmingaður

Fyrirtækið Opin kerfi átti lægsta boð uppsetningu símstöðva og búnaðar sem byggir á internetstöðlum fyrir skrifstofu Landsvirkjunar á Akureyri, í Laxárstöð og Kárahnjúkastöð, tæpar 3,7 milljónir króna.

NYSE og Euronext í eina sæng

Búið er að samþykkja tilboð kauphallarinnar í New York (NYSE) í Bandaríkjunum í samevrópska hlutabréfamarkaðinn Euronext og munu markaðirnir renna saman í einn. Með kaupunum verður til fyrsta kauphöllin sem hefur starfsemi beggja vegna Atlantshafsins.

Breytingar í stjórn Wyndeham

Stjórn breska prentfyrirtækisins Wyndeham, sem er í meirihlutaeigu Dagsbrúnar, hefur látið af störfum og ný stjórn tekin við. Nýir stjórnarmenn eru stjórnarmenn í Dagsbrún.

Lítil fjölgun starfa í Bandaríkjunum

Fjölgun starfa í Bandaríkjunum í síðasta mánuði var sú minnsta í 7 mánuði auk þess sem dró úr launahækkunum á sama tíma. Hvort tveggja var undir væntingum markaðsaðila og hefur í kjölfarið dregið úr verðbólguvæntingum . Þá eru horfur á að stýrivaxtahækkanir séu á næsta leiti í Bandaríkjunum.

Lyfjafyrirtæki berjast um keppinaut

Líkur er sagðar á því að breski lyfjaframleiðandinn GlaxoSmithKline ætli að bjóða rúma 15 milljarða Bandaríkjadali, jafnvirði 1.078 milljarða íslenskra króna , í bandaríska lyfjafyrirtækið Pfizer Inc., sem er eitt það stærsta í heimi. Verði af kaupum GlaxoSmithKline í Pfizer Inc. er talið víst að það muni tryggja stöðu fyrirtækisins á alþjóðavettvangi.

NYSE og Euronext sameinast

Stjórn kauphallarinnar í New York (NYSE) í Bandaríkjunum hefur ákveðið að kaupa samevrópska hlutabréfamarkaðinn Euronext og munu markaðirnir renna saman í einn. Með kaupunum verður til fyrsta kauphöllin sem hefur starfsemi beggja vegna Atlantshafsins. Höfuðstöðvar kauphallarinnar í Bandaríkjunum verður í New York en evrópskar höfuðstöðvar verða í París og Amsterdam.

Laun knattspyrnumanna lækka

Laun knattspyrnumanna í ensku úrvalsdeildinni lækkuðu í fyrsta skipti milli ára, samkvæmt árlegri knattspyrnuskýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte & Touche. Lækkunin nam þremur prósentum en áður höfðu laun hækkað um tuttugu prósent á ári að meðaltali frá stofnun deildarinnar. Skýrslan tók til tímabilsins 2004 til 2005.

Skýrr og Teymi sameinast

Ákveðið hefur verið að Skýrr hf. og Teymi ehf. verði sameinuð undir nafni Skýrr hf. Formlegur sameiningardagur hefur ekki enn verið ákveðinn. Skýrr og Teymi eru dótturfélög Kögunar hf. sem er í meirihlutaeigu Dagsbrúnar hf., en Dagsbrún er skráð í Kauphöll Íslands.

Tap Flögu minnkar

Flaga Group hf. tapaði 877 þúsund Bandaríkjadölum, jafnvirði 63 milljóna íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 228 þúsund dölum eða tæpum 16,4 milljónum krónum minna tap en á sama tímabili fyrir ári. Þá nam tap fyrirtækisins fyrir skatta rúmri 1,1 milljón dala, jafnvirði 79 milljóna króna, sem er 350 þúsund dölum eða 25,1 milljón króna minna tap en fyrir ári.

Starfsemi Samskipa undir einu nafni með haustinu

Samskip veitti í gær tveim nýjum kaupskipum móttöku og lagði hornstein að nýjum höfuð­stöðvum í Rotterdam. Öll flutningastarfsemi Samskipa verður sameinuð undir nafni Samskipa í haust. Hingað til hefur starfsemi flutningafyrirtækjanna Van Dieren Maritime, Seawheel og Geest, sem öll eru í eigu Samskipa, verið rekin undir nafni Geest.

Tíu ára áætlun VÍS lauk á tæpum tveimur árum

Þegar Finnur Ingólfsson kom til starfa hjá VÍS seint árið 2002 var félagið metið á tólf milljarða króna. Virði VÍS eignarhaldsfélags í dag er tæpir 66 milljarðar króna eftir að greint var frá því að Exista hefði eignast félagið að fullu.

Heinz segir upp starfsfólki

Stjórn bandaríska matvælaframleiðandans Heinz, sem þekktastur er fyrir samnefndar tómatsósur, greindi frá því að fyrirtækið ætli að segja upp 2.700 starfsmönnum á næstu tveimur árum. Þetta jafngildir 8 prósentum af starfsliði fyrirtækisins en vonast er til að uppsagnirnar muni spara fyrirtækinu 355 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 25,7 milljarða íslenskra króna.

Góð smásöluverslun í Bandaríkjunum

Smásöluverslun var með besta móti í Bandaríkjunum í maí og fór hún langt fram úr væntingum. Óvíst er með áframhaldandi vöxt smásöluverslunar vegna stöðu efnahagsmála og eru neytendur svartsýnir um hvað næsta hálfa árið beri í skauti sér.

Hlutabréf lækkuðu í Evrópu

Gengi hlutabréfa lækkaði talsvert á mörkuðum í Evrópu í dag í kjölfar ótta fjárfesta við að evrópski seðlabankinn muni hækka stýrivexti á næstunni til að koma í veg fyrir aukna verðbólgu í aðildarríkjum Evrópusambandsins (ESB). Hagvöxtur mældist 0,6 prósent á fyrsta ársfjórðungi innan aðildarríkja ESB og er búist við prósenta aukningu út árið. Samfelldur hagvöxtur sem þessi hefur ekki mælst innan ESB síðan um mitt ár 2000.

Olíuverð lækkaði á helstu mörkuðum

Heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að lækka á helstu mörkuðum í dag í kjöfar þess að Bandaríkjastjórn lýsti yfir vilja í gær til að hefja beinar samningaviðræður við Íransstjórn vegna kjarnorkuáætlunar Írana.

Skýrr og Teymi sameinast

Ákveðið hefur verið að Skýrr hf. og Teymi ehf. verði sameinuð undir nafni Skýrr hf. Formlegur sameiningardagur hefur ekki enn verið ákveðinn. Skýrr og Teymi eru dótturfélög Kögunar hf. sem er í meirihlutaeigu Dagsbrúnar hf., en Dagsbrún er skráð í Kauphöll Íslands.

Sjá næstu 50 fréttir