Viðskipti erlent

NYSE og Euronext í eina sæng

Euronext Með kaupum NYSE í Euronext verður til fyrsta kauphöllin sem verður með starfsemi beggja vegna Atlantshafsins.
Euronext Með kaupum NYSE í Euronext verður til fyrsta kauphöllin sem verður með starfsemi beggja vegna Atlantshafsins. Mynd/AP

Búið er að samþykkja tilboð kauphallarinnar í New York (NYSE) í Bandaríkjunum í samevrópska hlutabréfamarkaðinn Euronext og munu markaðirnir renna saman í einn. Með kaupunum verður til fyrsta kauphöllin sem hefur starfsemi beggja vegna Atlantshafsins.

Höfuðstöðvar kauphallarinnar í Bandaríkjunum verða í New York en evrópsku höfuðstöðvarnar verða í París og Amsterdam.

Markaðsvirði sameinaðrar kauphallar nemur 20 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði 1.448 milljarða íslenskra króna.

Kauphöllin í New York atti kappi við þýsku kauphöllina, Deutsche Börse, um kaup á Euronext, sem hefur starfsemi í Belgíu, Frakklandi, Hollandi og Portúgal. Bitbeinið stóð hins vegar um höfuðstöðvar markaðarins en stjórn Deutsche Börse krafðist þess að höfuðstöðvar Euronext yrðu færðar til Frankfurt í Þýskalandi.

Meirihluti hluthafa í Euronext ákvað að ganga til samninga við NYSE, sem bauð hluthöfum samevrópska markaðarins 10 milljarða dali, 724 milljarða íslenskra króna, auk hluta í NYSE fyrir Euronext. Einn hlutur í NYSE mun jafngilda einum hlut í sameinaðri kauphöll, sem mun eftirleiðis heita NYSE Euronext.- jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×