Fleiri fréttir Eftirsótt erlend fjárfesting Aðalsteinn Leifsson skrifar Ríki um allan heim keppast við að laða til sín erlenda fjárfestingu með markvissum hætti, þar sem ríkur skilningur er á því að slík fjárfesting bætir lífskjör. Þörfin fyrir samstarf við erlenda aðila er sérstaklega mikil í smáum hagkerfum, eins og á Íslandi þar sem atvinnulíf er fremur einhæft og vægi utanríkisviðskipta mikið. Ástæðan er sú að erlend fjárfesting skapar ekki einungis störf heldur getur hún einnig aukið fjölbreytni í atvinnulífi og utanríkisverslun, bætt markaðsaðgang, ýtt undir samkeppni og fært nýja þekkingu inn í atvinnulífið. Erlend fjárfesting hefur líklega aldrei verið mikilvægari fyrir Ísland en einmitt nú eftir efnahagshrun þegar fjárfestingar eru í sögulegu lágmarki og þörf er á að auka fjölbreytni í atvinnulífi og draga úr ófyrirsjáanlegum sveiflum í verðmæti útflutnings. 19.9.2011 10:15 Landlæknisembættið er ógn við heilsu Íslendinga Árni Richard Árnason skrifar Haustið 2007 gekkst ég undir krossbandsaðgerð í Orkuhúsinu með skelfilegri afleiðingum en mig hafði nokkurn tímann órað fyrir. Frá vorinu 2009 hef ég gengist undir níu aðgerðir til að bæta upp fyrir tjón sem ég hef hlotið. Þessar níu aðgerðir voru gerðar í Danmörku og Finnlandi af læknum sem eru virtir prófessorar í bæklunarlæknisfræði. Af sjúkraskrám og samtölum mínum við mína lækna vöknuðu grunsemdir um að ég hafi verið fórnarlamb margvíslegra mistaka í Orkuhúsinu. Þar á meðal var krossbandið rangt staðsett og sjúkraþjálfun var ekki í samræmi við viðurkenndar aðferðir. Það hafi haft í för með sér að nýja endurgerða krossbandið slitnaði og tveir vöðvar í lærinu eyðilögðust. 19.9.2011 10:00 Dýrtíðartabú Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar Var ekki einhvern tímann ódýrt að borða fisk? Það er eins og mig rámi í það. Í það minnsta var fiskur mörgum sinnum í viku í matinn hjá flestum sem ég þekki. Jafnvel svo oft að það var sumum til ama. Í dag heitir það fagnaður ef ekki er grísahakk í kvöldmatinn. 19.9.2011 10:15 Og munnræpan mun ríkja ein Guðmundur Andri Thorsson skrifar Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn hafa með sameiginlegu átaki náð að þróa nýtt lýðræðislegt gereyðingarvopn: málþóf. Slíkt hefur að vísu lengi verið tíðkað, líka af þeim sem nú fara með stjórnartaumana – og engum til sóma sem það hefur iðkað til að hindra framgang lýðræðisins með slíkri misnotkun á göfugasta ræðustól landsins – en nú á þessu septemberþingi keyrði málþófið um þverbak; röflið ríkti eitt, ofar hverri kröfu. 19.9.2011 10:00 Áfram pólitísk óþægindi Ólafur Þ. Stephensen skrifar Hvalveiðar Íslendinga hafa áratugum saman verið þyrnir í augum okkar helztu vina- og samstarfsríkja. Enda fór svo um tíma að þeim var hætt vegna pólitísks þrýstings. Þráðurinn var tekinn upp á nýjan leik 2003 með vísindaveiðum og 2006 hófust aftur hvalveiðar í atvinnuskyni. 19.9.2011 10:00 Bókauppskeran Bergsteinn Sigurðsson skrifar Meðbyr er með íslensku bókmenntalífi þessi dægrin. Reykjavík var á dögunum valin ein af bókmenntaborgum Unesco, en það býður upp á mikla möguleika til grasrótarstarfs; fjöldi merkra rithöfunda lagði leið sína á nýafstaðna Bókmenntahátíð í Reykjavík; fram undan er bókamessan í Frankfurt þar sem Ísland verður heiðursgestur; Gyrðir Elíasson tekur við Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn í nóvember; að ógleymdu hinu árlega jólabókaflóði, en fyrstu bárur þess falla nú þegar að landi. 17.9.2011 11:00 Nú ber Evrópusambandið peninga í áróðurinn Guðni Ágústsson skrifar Eitt stærsta fyrirtæki heims er Coca Cola. Það ver miklum peningum í að selja vöru sína og segir aldrei frá ókostum drykkjarins. Eitt fyrirtæki ver þó hærri upphæð í áróður um eigið ágæti, það er Evrópusambandið sjálft. Halda menn að ESB segi frá vanköntum þess að tilheyra sambandinu? Nei, þar sitja þessi stóru fyrirtæki við sama borð, allt er gott. 17.9.2011 06:00 Tölurnar sem ekki var talað um Þorsteinn Pálsson skrifar Hagtölur eru fáum skemmtiefni. Eigi að síður eru þær nauðsynlegt viðmið fyrir stjórnendur þjóðarbúsins. Um leið eru þær undirstaða pólitískrar umræðu. Eðlilega álykta menn ólíkt eftir því frá hvaða bæjarhellu er horft. Þá getur skipt máli hvaða hagtölur eru valdar til umræðu. Á árunum fyrir hrun krónunnar var helst vitnað í tölur um ríflegan afgang af rekstri ríkissjóðs, tölur um góðan hagvöxt, tölur um vaxandi gildi krónunnar og tölur um stöðuga kaupmáttaraukningu. Þetta voru velsældartölur sem styrktu málflutning þáverandi ríkisstjórnar. Af sjálfu leiddi að stjórnarandstaðan fékk lítið púður í slíkum hagtölum í stríðið gegn ríkisstjórninni. 17.9.2011 06:00 Skálholt – Nýr biskup Úr húmi aldanna rís hugsunin um Skálholt eins og myndin af frelsaranum á altarisveggnum þar, óræð, margsaga en engu að síður með áskorun fyrir ókominn tíma. Hver sem kemur þangað finnur til sín kallað: Hver ert þú förumaður og hvert ætlar þú? Hver er ákvörðunarstaður þinn? Vel væri svarað ef sagt væri: Himinn Guðs, Guðs eilífa borg. 17.9.2011 06:00 Misskilningur skjalaþýðandans Magnús Magnússon skrifar Ellen Ingvadóttir, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi, skrifar töluvert hvassyrta grein í minn garð á bls. 24 í Fréttablaðinu 15. september sl. Þar leggur hún út frá leiðara sem ég skrifaði í Vesturlandsblaðið Skessuhorn 7. september undir yfirskriftinni „Dulin búseta“. Í fyrstu velti ég fyrir mér af hverju hún skrifaði ekki svargrein sína til birtingar í sama blaði, þar hefði birting verið auðsótt. Svarið veit ég svo sem ekki en velti fyrir mér hvort skýringin sé sú að lesendur Fréttablaðsins geta fæstir dæmt um hvað stóð í Skessuhorni og hún hafi af einhverjum ástæðum kosið að þeir vissu ekki of mikið svo hún gæti túlkað orð mín út og suður. 17.9.2011 06:00 Misbeiting hugmyndafræðinnar Davíð Þór Jónsson skrifar Ég er sósíalisti. Ég tel að allir eigi að hafa jafnan rétt til menntunar og heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Ég tel reynsluna hafa sýnt að einkarekstur á grunnþjónustu samfélagsins leiði undantekningalítið til misréttis. Markmið einkafyrirtækja er að skila hagnaði og sumt á að mínum dómi einfaldlega ekki að skila hagnaði. 17.9.2011 06:00 Vissir þú? Vissir þú að yfir 600 milljónir kvenna og stúlkna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki refsivert? Vissir þú að ólögleg sala með fólk er þriðja umfangsmesta glæpastarfssemi í heimi? Vissir þú að ofbeldi dregur jafnmargar konur til dauða og krabbamein ár hvert? Vissir þú að í mörgum löndum kemst nauðgari hjá refsingu með því að giftast fórnarlambi sínu? 17.9.2011 06:00 Halldór 16.09.2011 16.9.2011 16:00 Kalkúnar og fávísar fjölskyldur Rithöfundurinn og tölfræðingurinn Nassim Taleb setti fram áleitna dæmisögu í bók sinni The Black Swan frá árinu 2007. Setjum okkur í spor kalkúns sem verið er að ala upp til slátrunar. Á hverjum degi kemur til kalkúnsins vingjarnlegur bóndi sem gefur honum að borða. Með hverjum deginum sem líður verður kalkúnninn öruggari með tilveru sína og traust hans á bóndanum vex. Þar til svo bóndinn kemur einn daginn og slátrar kalkúninum. Hver er lexían? Jú, það er varasamt að búast við því að framtíðin verði eins og fortíðin. 16.9.2011 06:00 Glamúrviðtöl við gangstera Ólafur Þ. Stephensen skrifar Foreldrar nemenda í Menntaskólanum í Reykjavík kvörtuðu réttilega yfir því að í Menntaskólatíðindum skólafélagsins skyldi birtast viðtal við vitgrannt vöðvatröll, sem komið hefur við sögu eiturlyfjasölu og -neyzlu, handrukkana, líkamsmeiðinga og hótana og er grunað um tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. 16.9.2011 06:00 Sjálfboðaliðar efla samfélagið Það þarf heilt samfélag til þess að ala upp barn. Þar stöndum við á Álftanesi vel og búum við kjöraðstæður. Þar hjálpast allt að, íbúafjöldi, öflug félagasamtök og rík samfélagsvitund. Það fer ekki hátt þegar einstaklingar og félagasamtök í litlum bæjarfélögum veita styrki og gjafir og enn færri vita af sjálfboðnu starfi. Það liggur líka í hlutarins eðli að fólk er ekkert að ræða það sérstaklega þó að það bjóði fram hjálp sína við hin ýmsu viðvik í sínu samfélagi. 16.9.2011 06:00 Útvarpsreglur í netheimi Pawel Bartoszek skrifar Eitt sinn voru jarðir manna taldar ná óendanlega langt upp og niður, frá himnum til heljar. Trjágrein sem óx inn á lóð mátti jarðeigandi höggva. Það sem hann gróf úr jörðu innan lóðarmarka mátti hann eiga. 16.9.2011 06:00 Að meta víðerni Árni Páll Árnason skrifar Kaupsamningur kínversks athafnamanns, Huangs Nobu, við hluta eigenda jarðarinnar Grímsstaða á Fjöllum hefur orðið mörgum umfjöllunarefni á undanförnum vikum. Þar vill hann skapa aðstöðu fyrir gesti til að kynnast fásinninu og hinu stórbrotna og hrjúfa landslagi sem staðurinn býður upp á. 16.9.2011 06:00 Náttúruarfurinn: Úr vörn í sókn Á tyllidögum vitnum við Íslendingar oft með stolti til sögu- og menningararfs þjóðarinnar og fyrir því er ríkuleg innistæða. Sama máli gegnir um náttúruarfinn. Reyndar höfum við gengið óheyrilega á hann bæði að efnislegum og andlegum gæðum. Það lýsir sér e.t.v. best í aldalangri gróður- og jarðvegseyðingu, og í seinni tíð með slakri skipulagningu landnýtingar, þ.m.t. víðtækri uppbyggingu mannvirkja til raforkuframleiðslu á víðernum hálendisins. Það voru vissulega þeir tímar á Íslandi að við lögðum okkur bækur til munns, að við borðuðum menningararfinn. En það var sárafátækt sem rak fólk til þess. Náttúruarfurinn hefur hins vegar átt undir högg að sækja á velmegunartímum, þrátt fyrir síaukna þekkingu okkar á honum og mikilvægi hans. 16.9.2011 06:00 Ríkið misskilur sig Nýlega varð konu það á að segja í yfirheyrslum að hún hefði misskilið sjálfa sig. Þetta orðalag vakti kátínu í netheimum og meðal áhugaheimspekinga. Á heimspekikaffihúsi var varpað fram spurningunni „er hægt að misskilja sjálfan sig?“. Eins og svo oft áður var niðurstaðan sú að svarið væri ansi háð því hvað átt væri við. Kannski má misskilja eða skorta fulla vitneskju um hvað maður átti við í fortíðinni. Þá væri hugsanlegt að misskilningur komi upp á milli mismunandi hluta sjálfsins, eða skilning skorti á eigin eiginleikum. Ef ómeðvitað er lokað fyrir upplýsingar eða þær síaðar gæti það leitt til misskilnings. 16.9.2011 06:00 Staðgöngumæðrun samþykkt af meirihluta heilbrigðisnefndar Alþingis Heilbrigðisnefnd Alþingis hefur samþykkt þingsályktunartillögu um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni með breytingum og lagt fram nefndarálit þar að lútandi. Félagið Staðganga fagnar niðurstöðu heilbrigðisnefndar en hún byggir á öflun gagna og viðtala við hina ýmsu sérfræðinga, þar á meðal Karen Busby, lagaprófessor við Manitoba-háskóla í Kanada, en hún er einn helsti sérfræðingurinn á sviði staðgöngumæðrunar á Vesturlöndum í heiminum í dag. 16.9.2011 06:00 Hvítbók um náttúruvernd Svandís Svavarsdóttir skrifar Um nokkurt skeið hefur þótt ástæða til að styrkja stöðu náttúruverndar með endurskoðun náttúruverndarlaga. Á dögunum birti nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga hvítbók, þar sem gerð er heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi. Að auki eru gerðar tillögur að breytingum á lagaumhverfi og stjórnsýslu náttúruverndarmála. Rauði þráðurinn er að styrkja náttúruverndarsjónarmið og færa þau framar og ofar í keðju ákvarðanatöku, frekar en að litið sé til þeirra seint og um síðir. Þetta er krafa sjálfbærrar þróunar – að ná jafnvægi á milli hinna samfélagslegu, efnahagslegu og umhverfislegu þátta. 15.9.2011 06:00 Halldór 15.09.2011 15.9.2011 16:00 Þjófnaður og þrælahald Ingimar Sveinsson skrifar Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs hefur skýrt frá því að sjóðurinn muni eiga um eða yfir 2.000 íbúðir sem teknar hafa verið eignarnámi. Auk þessa eiga aðrar lánastofnanir nokkurn fjölda íbúða sem þær hafa fengið á sama hátt. Jafnframt var skýrt frá því að líkur væru á að álíka margar íbúðir yrðu teknar eignarnámi á tímabilinu fram að næstu áramótum. 15.9.2011 06:00 Fellibylur hjálpar Óttar Norðfjörð skrifar Heimurinn er ekki lengur sjö heimsálfur. Hann er ein heimsálfa, eitt land. Að mörg þúsund konur eru í bráðri lífshættu í Sómalíu vegna mikilla þurrka er ekki aðeins vandamál Sómala. Það er einnig vandamál okkar Íslendinga. Með vali þínu geturðu hjálpað einni þessara kvenna og þar með börnunum hennar. Valið er einfalt – að styrkja UN Women. 15.9.2011 06:00 Sumarbústaðaeigendur – afætur? Ellen Ingvadóttir skrifar Heldur þykir mér óþekkilegt efnisinnihald leiðara 36. tölublaðs Vesturlandsútgáfunnar, Skessuhorns, en fyrirsögn hans er „dulin búseta“. Ritstjóri þessa annars ágæta vikurits, Magnús Magnússon, fjallar um fólk sem kemur í Borgarbyggð um helgar (sumarbústaðaeigendur), annars vegar, og svo námsmenn, væntanlega á Bifröst og Hvanneyri, hins vegar, en hefur þar ekki lögheimili. 15.9.2011 06:00 Svar: Ananas, eðlur og tímaleysi í Tógó Balema Alou skrifar Ég hef alltaf verið þakklátur Íslendingum sem fara alla leið frá Íslandi til Afríku og sérstaklega til heimalands míns Tógó til að hjálpa munaðarlausum og fátækum börnum. En þegar ég las grein Önnu Svövu Knútsdóttur, "Ananas, eðlur og tímaleysi í Tógó“ varð mér mjög brugðið. Ég fylltist reiði í stað þakklætis. Í þessari grein finnst mér sérstaklega vera vegið að heiðri karlmanna í Tógó og ýmislegt gefa ranga mynd af lífinu þar. Mér finnst ákaflega varasamt að alhæfa um heila þjóð. Sjálfur hef ég verið búsettur í Evrópu til fjölda ára og hef á þessum tíma lært að dæma ekki heilu þjóðirnar. Sérstaklega ekki eftir stutta dvöl í landinu. 15.9.2011 06:00 Kostnaðarsamur leki fyrir þjóðina Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Í Fréttablaðinu mánudaginn 12. september fjallar einn af blaðamönnum blaðsins (innanbúðarmaður úr VG) um fangelsismál. Þar nýtur blaðamaðurinn tengsla sinna við ráðherra fangelsismála og birtir upplýsingar um yfirlýstan kostnað vegna uppbyggingar nýs fangelsi á Hólmsheiði í samanburði við viðbyggingu á Litla-Hrauni. Jafnframt klippir blaðamaðurinn inn í frétt sína stöku setningar einstakra þingmanna (þ.m.t. undirritaðs) úr umræðu um fangelsismál. Þetta gerir blaðamaðurinn án þess að hafa á nokkrum tíma borið þessar upplýsingar undir þingmennina. 15.9.2011 06:00 Viðræður um landbúnað Valgerður Bjarnadóttir skrifar Rýniskýrsla Evrópusambandsins um landbúnaðarmál sem barst utanríkisráðuneytinu í síðustu viku hlýtur að hafa komið einhverjum á óvart. Sérstaklega hlýtur hún að hafa komið þeim á óvart sem hafa haldið því fram að enginn skilningur væri innan Evrópusambandsins á því að Ísland er öðru vísi en löndin sunnar í álfunni. Kannski breytir skýrslan samt engu. 15.9.2011 06:00 Fá, skýr markmið Ólafur Þ. Stephensen skrifar Antti Kuosmanen, sendiherra Finnlands hjá OECD og fyrrverandi samningamaður í aðildarviðræðum landsins við Evrópusambandið, lýsti í Fréttablaðinu í gær þeirri nálgun sem finnsk stjórnvöld beittu í viðræðunum; að leggja mesta áherzlu á fá og skýr lykilatriði. Þessi aðferðafræði nýttist Finnum vel er samið var um ESB-aðild og hefur raunar gert það áfram; sem aðildarríki ESB hefur Finnland lagt áherzlu á fá en skýrt skilgreind hagsmunamál sín til að nýta vel krafta lítillar stjórnsýslu. 15.9.2011 06:00 Stjórnarskrá fólksins Þorvaldur Gylfason skrifar Það hafði ýmsa áþreifanlega kosti í för með sér og enga galla að bjóða fólkinu í landinu til samstarfs um samningu frumvarps Stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár. Fyrir lá, að almenningur hafði hug á málinu, því að annars hefðu 522 frambjóðendur varla gefið kost á sér til setu á Stjórnlagaþingi. 15.9.2011 06:00 Hundsúrar húsmæður Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Börnum þykja feður sínir skemmtilegri en mæður sínar. Þetta er niðurstaða danskrar könnunar sem ég las um hér í blaðinu um daginn. Niðurstöðurnar komu mér ekki beinlínis á óvart. Þær eru í samræmi við það lífseiga lögmál að velferð fjölskyldulífsins sé á ábyrgð móðurinnar, og þá gömlu lummu að stúlkur séu ábyrgðarfullar og drengir þurfi þess ekki. Ég hef löngum öfundað stráka af frelsi hins ábyrgðarlausa og það súrnaði í mér. 15.9.2011 06:00 Fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi. Hvernig er veröldin? Stefán Arnórsson skrifar Kínverjinn Huang Nobu hefur áhuga á því að fá leyfi kínverskra og íslenskra stjórnvalda til að ganga frá kaupum á jörðinni Grímsstaðir á Fjöllum til að reisa þar lúxushótel og reka ferðaþjónustu. Margir Íslendingar telja þetta sjálfsagðan hlut, þar á meðal ýmsir ráðamenn í þjóðfélaginu. Hér er um það að ræða að erlendur aðili fá aðgang að auðlind á Íslandi án þess að nokkuð komi á móti sem er í hendi. Fegurð Íslands og náttúra er auðlind. Náttúran þolir takmarkaðan ágang eigi hún ekki að spillast. 14.9.2011 11:00 Halldór 14.09.2011 14.9.2011 16:00 (G)narrismi Sighvatur Björgvinsson skrifar Í síðustu sveitarstjórnarkosningum urðu til í Reykjavík nýr straumur og ný stefna í íslenskum stjórnmálum, sem menn höfðu ekki áður séð. Það varð þegar enginn gat sagt fyrir um hvort frambjóðandi væri að grínast – narrast – með fólk eða tala við það í alvöru. Dæmi: "Ég ætla að gera allt fyrir aumingja!“ Annað dæmi: "Ég ætla að setja ísbjörn í HÚSDÝRA(!)garðinn.“ Þessum nýja straumi var fjarskavel tekið. Í kjölsogi hans komst minn flokkur víst til áhrifa í höfuðborginni – eða svo er sagt. 14.9.2011 11:00 Konur eru konum bestar Sif Sigmarsdóttir skrifar Snyrtivörur, útlit, líkamsrækt og kynlíf. Þetta eru yfirlýst efnistök skemmtiþáttar sem hefur á göngu sína á Skjá einum í næstu viku og ætlaður er konum. Hafa margar konur gagnrýnt stöðina fyrir að láta svo einstrengingslegar staðalhugmyndir um konur og hugðarefni þeirra liggja til grundvallar gerð dagskrár fyrir þær. Í umræðunni sem fylgt hefur í kjölfarið hefur klisjunum um þessar kvenréttindakonur kyngt niður eins og skæðadrífu. Tvennt ber þar hæst. Annars vegar hefur það þótt grafa undan gagnrýni kvennanna að sumar gangi þær með varalit og séu jafnvel „sætar“. Hins vegar hefur rökum þeirra verið mætt með einum óviðfelldnasta frasa íslenskrar tungu: „Konur eru konum verstar.“ 14.9.2011 06:00 Svikin vara? Ólafur Þ. Stephensen skrifar Ákvörðun hagfræðideildar Háskóla Íslands um að taka upp inntökupróf er skiljanleg og skynsamleg. Daði Már Kristófersson, dósent við deildina, sagði í Fréttablaðinu í gær að of mikið væri um að til náms kæmu nemendur sem stæðust ekki þær kröfur sem gerðar væru. Hann segir að algengt sé að þriðjungur til helmingur skráðra nemenda sjáist aldrei í tímum og drjúgur hluti falli í lok fyrstu annar. 14.9.2011 06:00 Skýrt hlutverk Jón Gnarr skrifar Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, virðist hafa sérkennilegan skilning á hlutverki borgarstjóra og embætti borgarritara sem auglýst var nú um helgina. Mér finnst rétt að leiðrétta þennan misskilning. 13.9.2011 10:41 Halldór 13.09.2011 13.9.2011 16:00 Reiðin Jónína Michaelsdóttir skrifar Reiðin er skrýtin skrúfa, sem bæði getur hert að og losað um tilfinningastreymi. Til eru þeir sem gefa sig henni á vald þegar hún bærir á sér. Aðrir hleypa henni ekki inn. Gera henni ekki svo hátt undir höfði. Hún nýtur reyndar þeirrar virðingar að vera tengd réttlætinu í vitund mannsins, sem styður sig við þá staðreynd þegar skapsmunir fara úr böndum. Þá er sem sagt verið að þjóna réttlætinu. Munnsöfnuður sem að jafnaði er ekki talinn vitna um gáfur og góða siði er tryggur fylgifiskur reiðinnar. Og geri einhver athugasemd við óheflað tungutak, er því svarað með þótta: "Ég var öskureiður, og ekki að ástæðulausu!" Reiðinni eru þannig gefin þau forréttindi, að ávirðingar, yfirgangur og jafnvel ofbeldi er án ábyrgðar, af því að viðkomandi gaf sig reiðinni á vald. Kaus það. Því að hvað sem hver segir, þá hefur maður alltaf val. 13.9.2011 10:15 Fiðrildaáhrif systralags Steinunn Stefánsdóttir skrifar Fiðrildavika UN Women er nú haldin í annað sinn. Markmiðið er að vekja athygli á kjörum kvenna í fátækustu löndum heims. Um leið er þess farið á leit við Íslendinga að ganga í systralag með þessum konum með því að láta fé af hendi rakna til baráttunnar gegn ofbeldi og fátækt. 13.9.2011 10:13 Ósannindi forsætisráðherra Guðmundur Andri Skúlason skrifar Ég fæ mig ekki til að setja út á það að Samtök fjármálafyrirtækja segi lán til heimila hafa verið færð niður um 143,9 milljarða. Það er nefnilega rétt. Þau voru færð niður, megnið reyndar vegna þess að dómari benti á að stærstur hluti þessara lána hafi verið færður upp með ólögmætum hætti. Samtök fjármálafyrirtækja gera því ekki annað en að benda á sanna staðreynd í fréttatilkynningu sinni frá 31. ágúst s.l. 13.9.2011 06:00 Orð og hugtak Hannes Pétursson skrifar Í grein sem ég birti í Fréttablaðinu 20. ágúst síðastliðinn lét ég þess getið að til Goethes mætti rekja hugtakið heimsbókmenntir, "Weltliteratur“. Gauti Kristmannsson dósent er ekki á því máli. Hér í blaðinu (1. september) benti hann á stað í þýzkri bók frá árinu 1773 þar sem þetta orð kemur fyrir, þ.e. um hálfum sjötta áratug fyrr en Goethe tók sér það í munn í frægum samræðum sínum við Eckermann. 13.9.2011 06:00 Hinn óbreytti heimur Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar Mikið hefur verið rætt og ritað um árás hryðjuverkamanna á skotmörk í Bandaríkjunum 11. september 2001. Skyldi engan undra; um hræðilega atburði var að ræða sem haft hafa mikil áhrif á heimsbyggðina. Nú, tíu árum síðar, er hins vegar grátlegast að líta yfir farinn veg og sjá þau tækifæri sem glatast hafa til að gera heiminn sem við öll búum í að betri stað. Þeim var fórnað á altari eigin hagsmuna, hefndarþorsta og gamaldags heimsmyndar. Leiðtoga heimsins skorti áræði og þor til að breyta til hins betra. 13.9.2011 06:00 Halldór 12.09.2011 12.9.2011 16:00 Sjá næstu 50 greinar
Eftirsótt erlend fjárfesting Aðalsteinn Leifsson skrifar Ríki um allan heim keppast við að laða til sín erlenda fjárfestingu með markvissum hætti, þar sem ríkur skilningur er á því að slík fjárfesting bætir lífskjör. Þörfin fyrir samstarf við erlenda aðila er sérstaklega mikil í smáum hagkerfum, eins og á Íslandi þar sem atvinnulíf er fremur einhæft og vægi utanríkisviðskipta mikið. Ástæðan er sú að erlend fjárfesting skapar ekki einungis störf heldur getur hún einnig aukið fjölbreytni í atvinnulífi og utanríkisverslun, bætt markaðsaðgang, ýtt undir samkeppni og fært nýja þekkingu inn í atvinnulífið. Erlend fjárfesting hefur líklega aldrei verið mikilvægari fyrir Ísland en einmitt nú eftir efnahagshrun þegar fjárfestingar eru í sögulegu lágmarki og þörf er á að auka fjölbreytni í atvinnulífi og draga úr ófyrirsjáanlegum sveiflum í verðmæti útflutnings. 19.9.2011 10:15
Landlæknisembættið er ógn við heilsu Íslendinga Árni Richard Árnason skrifar Haustið 2007 gekkst ég undir krossbandsaðgerð í Orkuhúsinu með skelfilegri afleiðingum en mig hafði nokkurn tímann órað fyrir. Frá vorinu 2009 hef ég gengist undir níu aðgerðir til að bæta upp fyrir tjón sem ég hef hlotið. Þessar níu aðgerðir voru gerðar í Danmörku og Finnlandi af læknum sem eru virtir prófessorar í bæklunarlæknisfræði. Af sjúkraskrám og samtölum mínum við mína lækna vöknuðu grunsemdir um að ég hafi verið fórnarlamb margvíslegra mistaka í Orkuhúsinu. Þar á meðal var krossbandið rangt staðsett og sjúkraþjálfun var ekki í samræmi við viðurkenndar aðferðir. Það hafi haft í för með sér að nýja endurgerða krossbandið slitnaði og tveir vöðvar í lærinu eyðilögðust. 19.9.2011 10:00
Dýrtíðartabú Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar Var ekki einhvern tímann ódýrt að borða fisk? Það er eins og mig rámi í það. Í það minnsta var fiskur mörgum sinnum í viku í matinn hjá flestum sem ég þekki. Jafnvel svo oft að það var sumum til ama. Í dag heitir það fagnaður ef ekki er grísahakk í kvöldmatinn. 19.9.2011 10:15
Og munnræpan mun ríkja ein Guðmundur Andri Thorsson skrifar Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn hafa með sameiginlegu átaki náð að þróa nýtt lýðræðislegt gereyðingarvopn: málþóf. Slíkt hefur að vísu lengi verið tíðkað, líka af þeim sem nú fara með stjórnartaumana – og engum til sóma sem það hefur iðkað til að hindra framgang lýðræðisins með slíkri misnotkun á göfugasta ræðustól landsins – en nú á þessu septemberþingi keyrði málþófið um þverbak; röflið ríkti eitt, ofar hverri kröfu. 19.9.2011 10:00
Áfram pólitísk óþægindi Ólafur Þ. Stephensen skrifar Hvalveiðar Íslendinga hafa áratugum saman verið þyrnir í augum okkar helztu vina- og samstarfsríkja. Enda fór svo um tíma að þeim var hætt vegna pólitísks þrýstings. Þráðurinn var tekinn upp á nýjan leik 2003 með vísindaveiðum og 2006 hófust aftur hvalveiðar í atvinnuskyni. 19.9.2011 10:00
Bókauppskeran Bergsteinn Sigurðsson skrifar Meðbyr er með íslensku bókmenntalífi þessi dægrin. Reykjavík var á dögunum valin ein af bókmenntaborgum Unesco, en það býður upp á mikla möguleika til grasrótarstarfs; fjöldi merkra rithöfunda lagði leið sína á nýafstaðna Bókmenntahátíð í Reykjavík; fram undan er bókamessan í Frankfurt þar sem Ísland verður heiðursgestur; Gyrðir Elíasson tekur við Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn í nóvember; að ógleymdu hinu árlega jólabókaflóði, en fyrstu bárur þess falla nú þegar að landi. 17.9.2011 11:00
Nú ber Evrópusambandið peninga í áróðurinn Guðni Ágústsson skrifar Eitt stærsta fyrirtæki heims er Coca Cola. Það ver miklum peningum í að selja vöru sína og segir aldrei frá ókostum drykkjarins. Eitt fyrirtæki ver þó hærri upphæð í áróður um eigið ágæti, það er Evrópusambandið sjálft. Halda menn að ESB segi frá vanköntum þess að tilheyra sambandinu? Nei, þar sitja þessi stóru fyrirtæki við sama borð, allt er gott. 17.9.2011 06:00
Tölurnar sem ekki var talað um Þorsteinn Pálsson skrifar Hagtölur eru fáum skemmtiefni. Eigi að síður eru þær nauðsynlegt viðmið fyrir stjórnendur þjóðarbúsins. Um leið eru þær undirstaða pólitískrar umræðu. Eðlilega álykta menn ólíkt eftir því frá hvaða bæjarhellu er horft. Þá getur skipt máli hvaða hagtölur eru valdar til umræðu. Á árunum fyrir hrun krónunnar var helst vitnað í tölur um ríflegan afgang af rekstri ríkissjóðs, tölur um góðan hagvöxt, tölur um vaxandi gildi krónunnar og tölur um stöðuga kaupmáttaraukningu. Þetta voru velsældartölur sem styrktu málflutning þáverandi ríkisstjórnar. Af sjálfu leiddi að stjórnarandstaðan fékk lítið púður í slíkum hagtölum í stríðið gegn ríkisstjórninni. 17.9.2011 06:00
Skálholt – Nýr biskup Úr húmi aldanna rís hugsunin um Skálholt eins og myndin af frelsaranum á altarisveggnum þar, óræð, margsaga en engu að síður með áskorun fyrir ókominn tíma. Hver sem kemur þangað finnur til sín kallað: Hver ert þú förumaður og hvert ætlar þú? Hver er ákvörðunarstaður þinn? Vel væri svarað ef sagt væri: Himinn Guðs, Guðs eilífa borg. 17.9.2011 06:00
Misskilningur skjalaþýðandans Magnús Magnússon skrifar Ellen Ingvadóttir, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi, skrifar töluvert hvassyrta grein í minn garð á bls. 24 í Fréttablaðinu 15. september sl. Þar leggur hún út frá leiðara sem ég skrifaði í Vesturlandsblaðið Skessuhorn 7. september undir yfirskriftinni „Dulin búseta“. Í fyrstu velti ég fyrir mér af hverju hún skrifaði ekki svargrein sína til birtingar í sama blaði, þar hefði birting verið auðsótt. Svarið veit ég svo sem ekki en velti fyrir mér hvort skýringin sé sú að lesendur Fréttablaðsins geta fæstir dæmt um hvað stóð í Skessuhorni og hún hafi af einhverjum ástæðum kosið að þeir vissu ekki of mikið svo hún gæti túlkað orð mín út og suður. 17.9.2011 06:00
Misbeiting hugmyndafræðinnar Davíð Þór Jónsson skrifar Ég er sósíalisti. Ég tel að allir eigi að hafa jafnan rétt til menntunar og heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Ég tel reynsluna hafa sýnt að einkarekstur á grunnþjónustu samfélagsins leiði undantekningalítið til misréttis. Markmið einkafyrirtækja er að skila hagnaði og sumt á að mínum dómi einfaldlega ekki að skila hagnaði. 17.9.2011 06:00
Vissir þú? Vissir þú að yfir 600 milljónir kvenna og stúlkna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki refsivert? Vissir þú að ólögleg sala með fólk er þriðja umfangsmesta glæpastarfssemi í heimi? Vissir þú að ofbeldi dregur jafnmargar konur til dauða og krabbamein ár hvert? Vissir þú að í mörgum löndum kemst nauðgari hjá refsingu með því að giftast fórnarlambi sínu? 17.9.2011 06:00
Kalkúnar og fávísar fjölskyldur Rithöfundurinn og tölfræðingurinn Nassim Taleb setti fram áleitna dæmisögu í bók sinni The Black Swan frá árinu 2007. Setjum okkur í spor kalkúns sem verið er að ala upp til slátrunar. Á hverjum degi kemur til kalkúnsins vingjarnlegur bóndi sem gefur honum að borða. Með hverjum deginum sem líður verður kalkúnninn öruggari með tilveru sína og traust hans á bóndanum vex. Þar til svo bóndinn kemur einn daginn og slátrar kalkúninum. Hver er lexían? Jú, það er varasamt að búast við því að framtíðin verði eins og fortíðin. 16.9.2011 06:00
Glamúrviðtöl við gangstera Ólafur Þ. Stephensen skrifar Foreldrar nemenda í Menntaskólanum í Reykjavík kvörtuðu réttilega yfir því að í Menntaskólatíðindum skólafélagsins skyldi birtast viðtal við vitgrannt vöðvatröll, sem komið hefur við sögu eiturlyfjasölu og -neyzlu, handrukkana, líkamsmeiðinga og hótana og er grunað um tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. 16.9.2011 06:00
Sjálfboðaliðar efla samfélagið Það þarf heilt samfélag til þess að ala upp barn. Þar stöndum við á Álftanesi vel og búum við kjöraðstæður. Þar hjálpast allt að, íbúafjöldi, öflug félagasamtök og rík samfélagsvitund. Það fer ekki hátt þegar einstaklingar og félagasamtök í litlum bæjarfélögum veita styrki og gjafir og enn færri vita af sjálfboðnu starfi. Það liggur líka í hlutarins eðli að fólk er ekkert að ræða það sérstaklega þó að það bjóði fram hjálp sína við hin ýmsu viðvik í sínu samfélagi. 16.9.2011 06:00
Útvarpsreglur í netheimi Pawel Bartoszek skrifar Eitt sinn voru jarðir manna taldar ná óendanlega langt upp og niður, frá himnum til heljar. Trjágrein sem óx inn á lóð mátti jarðeigandi höggva. Það sem hann gróf úr jörðu innan lóðarmarka mátti hann eiga. 16.9.2011 06:00
Að meta víðerni Árni Páll Árnason skrifar Kaupsamningur kínversks athafnamanns, Huangs Nobu, við hluta eigenda jarðarinnar Grímsstaða á Fjöllum hefur orðið mörgum umfjöllunarefni á undanförnum vikum. Þar vill hann skapa aðstöðu fyrir gesti til að kynnast fásinninu og hinu stórbrotna og hrjúfa landslagi sem staðurinn býður upp á. 16.9.2011 06:00
Náttúruarfurinn: Úr vörn í sókn Á tyllidögum vitnum við Íslendingar oft með stolti til sögu- og menningararfs þjóðarinnar og fyrir því er ríkuleg innistæða. Sama máli gegnir um náttúruarfinn. Reyndar höfum við gengið óheyrilega á hann bæði að efnislegum og andlegum gæðum. Það lýsir sér e.t.v. best í aldalangri gróður- og jarðvegseyðingu, og í seinni tíð með slakri skipulagningu landnýtingar, þ.m.t. víðtækri uppbyggingu mannvirkja til raforkuframleiðslu á víðernum hálendisins. Það voru vissulega þeir tímar á Íslandi að við lögðum okkur bækur til munns, að við borðuðum menningararfinn. En það var sárafátækt sem rak fólk til þess. Náttúruarfurinn hefur hins vegar átt undir högg að sækja á velmegunartímum, þrátt fyrir síaukna þekkingu okkar á honum og mikilvægi hans. 16.9.2011 06:00
Ríkið misskilur sig Nýlega varð konu það á að segja í yfirheyrslum að hún hefði misskilið sjálfa sig. Þetta orðalag vakti kátínu í netheimum og meðal áhugaheimspekinga. Á heimspekikaffihúsi var varpað fram spurningunni „er hægt að misskilja sjálfan sig?“. Eins og svo oft áður var niðurstaðan sú að svarið væri ansi háð því hvað átt væri við. Kannski má misskilja eða skorta fulla vitneskju um hvað maður átti við í fortíðinni. Þá væri hugsanlegt að misskilningur komi upp á milli mismunandi hluta sjálfsins, eða skilning skorti á eigin eiginleikum. Ef ómeðvitað er lokað fyrir upplýsingar eða þær síaðar gæti það leitt til misskilnings. 16.9.2011 06:00
Staðgöngumæðrun samþykkt af meirihluta heilbrigðisnefndar Alþingis Heilbrigðisnefnd Alþingis hefur samþykkt þingsályktunartillögu um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni með breytingum og lagt fram nefndarálit þar að lútandi. Félagið Staðganga fagnar niðurstöðu heilbrigðisnefndar en hún byggir á öflun gagna og viðtala við hina ýmsu sérfræðinga, þar á meðal Karen Busby, lagaprófessor við Manitoba-háskóla í Kanada, en hún er einn helsti sérfræðingurinn á sviði staðgöngumæðrunar á Vesturlöndum í heiminum í dag. 16.9.2011 06:00
Hvítbók um náttúruvernd Svandís Svavarsdóttir skrifar Um nokkurt skeið hefur þótt ástæða til að styrkja stöðu náttúruverndar með endurskoðun náttúruverndarlaga. Á dögunum birti nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga hvítbók, þar sem gerð er heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi. Að auki eru gerðar tillögur að breytingum á lagaumhverfi og stjórnsýslu náttúruverndarmála. Rauði þráðurinn er að styrkja náttúruverndarsjónarmið og færa þau framar og ofar í keðju ákvarðanatöku, frekar en að litið sé til þeirra seint og um síðir. Þetta er krafa sjálfbærrar þróunar – að ná jafnvægi á milli hinna samfélagslegu, efnahagslegu og umhverfislegu þátta. 15.9.2011 06:00
Þjófnaður og þrælahald Ingimar Sveinsson skrifar Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs hefur skýrt frá því að sjóðurinn muni eiga um eða yfir 2.000 íbúðir sem teknar hafa verið eignarnámi. Auk þessa eiga aðrar lánastofnanir nokkurn fjölda íbúða sem þær hafa fengið á sama hátt. Jafnframt var skýrt frá því að líkur væru á að álíka margar íbúðir yrðu teknar eignarnámi á tímabilinu fram að næstu áramótum. 15.9.2011 06:00
Fellibylur hjálpar Óttar Norðfjörð skrifar Heimurinn er ekki lengur sjö heimsálfur. Hann er ein heimsálfa, eitt land. Að mörg þúsund konur eru í bráðri lífshættu í Sómalíu vegna mikilla þurrka er ekki aðeins vandamál Sómala. Það er einnig vandamál okkar Íslendinga. Með vali þínu geturðu hjálpað einni þessara kvenna og þar með börnunum hennar. Valið er einfalt – að styrkja UN Women. 15.9.2011 06:00
Sumarbústaðaeigendur – afætur? Ellen Ingvadóttir skrifar Heldur þykir mér óþekkilegt efnisinnihald leiðara 36. tölublaðs Vesturlandsútgáfunnar, Skessuhorns, en fyrirsögn hans er „dulin búseta“. Ritstjóri þessa annars ágæta vikurits, Magnús Magnússon, fjallar um fólk sem kemur í Borgarbyggð um helgar (sumarbústaðaeigendur), annars vegar, og svo námsmenn, væntanlega á Bifröst og Hvanneyri, hins vegar, en hefur þar ekki lögheimili. 15.9.2011 06:00
Svar: Ananas, eðlur og tímaleysi í Tógó Balema Alou skrifar Ég hef alltaf verið þakklátur Íslendingum sem fara alla leið frá Íslandi til Afríku og sérstaklega til heimalands míns Tógó til að hjálpa munaðarlausum og fátækum börnum. En þegar ég las grein Önnu Svövu Knútsdóttur, "Ananas, eðlur og tímaleysi í Tógó“ varð mér mjög brugðið. Ég fylltist reiði í stað þakklætis. Í þessari grein finnst mér sérstaklega vera vegið að heiðri karlmanna í Tógó og ýmislegt gefa ranga mynd af lífinu þar. Mér finnst ákaflega varasamt að alhæfa um heila þjóð. Sjálfur hef ég verið búsettur í Evrópu til fjölda ára og hef á þessum tíma lært að dæma ekki heilu þjóðirnar. Sérstaklega ekki eftir stutta dvöl í landinu. 15.9.2011 06:00
Kostnaðarsamur leki fyrir þjóðina Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Í Fréttablaðinu mánudaginn 12. september fjallar einn af blaðamönnum blaðsins (innanbúðarmaður úr VG) um fangelsismál. Þar nýtur blaðamaðurinn tengsla sinna við ráðherra fangelsismála og birtir upplýsingar um yfirlýstan kostnað vegna uppbyggingar nýs fangelsi á Hólmsheiði í samanburði við viðbyggingu á Litla-Hrauni. Jafnframt klippir blaðamaðurinn inn í frétt sína stöku setningar einstakra þingmanna (þ.m.t. undirritaðs) úr umræðu um fangelsismál. Þetta gerir blaðamaðurinn án þess að hafa á nokkrum tíma borið þessar upplýsingar undir þingmennina. 15.9.2011 06:00
Viðræður um landbúnað Valgerður Bjarnadóttir skrifar Rýniskýrsla Evrópusambandsins um landbúnaðarmál sem barst utanríkisráðuneytinu í síðustu viku hlýtur að hafa komið einhverjum á óvart. Sérstaklega hlýtur hún að hafa komið þeim á óvart sem hafa haldið því fram að enginn skilningur væri innan Evrópusambandsins á því að Ísland er öðru vísi en löndin sunnar í álfunni. Kannski breytir skýrslan samt engu. 15.9.2011 06:00
Fá, skýr markmið Ólafur Þ. Stephensen skrifar Antti Kuosmanen, sendiherra Finnlands hjá OECD og fyrrverandi samningamaður í aðildarviðræðum landsins við Evrópusambandið, lýsti í Fréttablaðinu í gær þeirri nálgun sem finnsk stjórnvöld beittu í viðræðunum; að leggja mesta áherzlu á fá og skýr lykilatriði. Þessi aðferðafræði nýttist Finnum vel er samið var um ESB-aðild og hefur raunar gert það áfram; sem aðildarríki ESB hefur Finnland lagt áherzlu á fá en skýrt skilgreind hagsmunamál sín til að nýta vel krafta lítillar stjórnsýslu. 15.9.2011 06:00
Stjórnarskrá fólksins Þorvaldur Gylfason skrifar Það hafði ýmsa áþreifanlega kosti í för með sér og enga galla að bjóða fólkinu í landinu til samstarfs um samningu frumvarps Stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár. Fyrir lá, að almenningur hafði hug á málinu, því að annars hefðu 522 frambjóðendur varla gefið kost á sér til setu á Stjórnlagaþingi. 15.9.2011 06:00
Hundsúrar húsmæður Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Börnum þykja feður sínir skemmtilegri en mæður sínar. Þetta er niðurstaða danskrar könnunar sem ég las um hér í blaðinu um daginn. Niðurstöðurnar komu mér ekki beinlínis á óvart. Þær eru í samræmi við það lífseiga lögmál að velferð fjölskyldulífsins sé á ábyrgð móðurinnar, og þá gömlu lummu að stúlkur séu ábyrgðarfullar og drengir þurfi þess ekki. Ég hef löngum öfundað stráka af frelsi hins ábyrgðarlausa og það súrnaði í mér. 15.9.2011 06:00
Fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi. Hvernig er veröldin? Stefán Arnórsson skrifar Kínverjinn Huang Nobu hefur áhuga á því að fá leyfi kínverskra og íslenskra stjórnvalda til að ganga frá kaupum á jörðinni Grímsstaðir á Fjöllum til að reisa þar lúxushótel og reka ferðaþjónustu. Margir Íslendingar telja þetta sjálfsagðan hlut, þar á meðal ýmsir ráðamenn í þjóðfélaginu. Hér er um það að ræða að erlendur aðili fá aðgang að auðlind á Íslandi án þess að nokkuð komi á móti sem er í hendi. Fegurð Íslands og náttúra er auðlind. Náttúran þolir takmarkaðan ágang eigi hún ekki að spillast. 14.9.2011 11:00
(G)narrismi Sighvatur Björgvinsson skrifar Í síðustu sveitarstjórnarkosningum urðu til í Reykjavík nýr straumur og ný stefna í íslenskum stjórnmálum, sem menn höfðu ekki áður séð. Það varð þegar enginn gat sagt fyrir um hvort frambjóðandi væri að grínast – narrast – með fólk eða tala við það í alvöru. Dæmi: "Ég ætla að gera allt fyrir aumingja!“ Annað dæmi: "Ég ætla að setja ísbjörn í HÚSDÝRA(!)garðinn.“ Þessum nýja straumi var fjarskavel tekið. Í kjölsogi hans komst minn flokkur víst til áhrifa í höfuðborginni – eða svo er sagt. 14.9.2011 11:00
Konur eru konum bestar Sif Sigmarsdóttir skrifar Snyrtivörur, útlit, líkamsrækt og kynlíf. Þetta eru yfirlýst efnistök skemmtiþáttar sem hefur á göngu sína á Skjá einum í næstu viku og ætlaður er konum. Hafa margar konur gagnrýnt stöðina fyrir að láta svo einstrengingslegar staðalhugmyndir um konur og hugðarefni þeirra liggja til grundvallar gerð dagskrár fyrir þær. Í umræðunni sem fylgt hefur í kjölfarið hefur klisjunum um þessar kvenréttindakonur kyngt niður eins og skæðadrífu. Tvennt ber þar hæst. Annars vegar hefur það þótt grafa undan gagnrýni kvennanna að sumar gangi þær með varalit og séu jafnvel „sætar“. Hins vegar hefur rökum þeirra verið mætt með einum óviðfelldnasta frasa íslenskrar tungu: „Konur eru konum verstar.“ 14.9.2011 06:00
Svikin vara? Ólafur Þ. Stephensen skrifar Ákvörðun hagfræðideildar Háskóla Íslands um að taka upp inntökupróf er skiljanleg og skynsamleg. Daði Már Kristófersson, dósent við deildina, sagði í Fréttablaðinu í gær að of mikið væri um að til náms kæmu nemendur sem stæðust ekki þær kröfur sem gerðar væru. Hann segir að algengt sé að þriðjungur til helmingur skráðra nemenda sjáist aldrei í tímum og drjúgur hluti falli í lok fyrstu annar. 14.9.2011 06:00
Skýrt hlutverk Jón Gnarr skrifar Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, virðist hafa sérkennilegan skilning á hlutverki borgarstjóra og embætti borgarritara sem auglýst var nú um helgina. Mér finnst rétt að leiðrétta þennan misskilning. 13.9.2011 10:41
Reiðin Jónína Michaelsdóttir skrifar Reiðin er skrýtin skrúfa, sem bæði getur hert að og losað um tilfinningastreymi. Til eru þeir sem gefa sig henni á vald þegar hún bærir á sér. Aðrir hleypa henni ekki inn. Gera henni ekki svo hátt undir höfði. Hún nýtur reyndar þeirrar virðingar að vera tengd réttlætinu í vitund mannsins, sem styður sig við þá staðreynd þegar skapsmunir fara úr böndum. Þá er sem sagt verið að þjóna réttlætinu. Munnsöfnuður sem að jafnaði er ekki talinn vitna um gáfur og góða siði er tryggur fylgifiskur reiðinnar. Og geri einhver athugasemd við óheflað tungutak, er því svarað með þótta: "Ég var öskureiður, og ekki að ástæðulausu!" Reiðinni eru þannig gefin þau forréttindi, að ávirðingar, yfirgangur og jafnvel ofbeldi er án ábyrgðar, af því að viðkomandi gaf sig reiðinni á vald. Kaus það. Því að hvað sem hver segir, þá hefur maður alltaf val. 13.9.2011 10:15
Fiðrildaáhrif systralags Steinunn Stefánsdóttir skrifar Fiðrildavika UN Women er nú haldin í annað sinn. Markmiðið er að vekja athygli á kjörum kvenna í fátækustu löndum heims. Um leið er þess farið á leit við Íslendinga að ganga í systralag með þessum konum með því að láta fé af hendi rakna til baráttunnar gegn ofbeldi og fátækt. 13.9.2011 10:13
Ósannindi forsætisráðherra Guðmundur Andri Skúlason skrifar Ég fæ mig ekki til að setja út á það að Samtök fjármálafyrirtækja segi lán til heimila hafa verið færð niður um 143,9 milljarða. Það er nefnilega rétt. Þau voru færð niður, megnið reyndar vegna þess að dómari benti á að stærstur hluti þessara lána hafi verið færður upp með ólögmætum hætti. Samtök fjármálafyrirtækja gera því ekki annað en að benda á sanna staðreynd í fréttatilkynningu sinni frá 31. ágúst s.l. 13.9.2011 06:00
Orð og hugtak Hannes Pétursson skrifar Í grein sem ég birti í Fréttablaðinu 20. ágúst síðastliðinn lét ég þess getið að til Goethes mætti rekja hugtakið heimsbókmenntir, "Weltliteratur“. Gauti Kristmannsson dósent er ekki á því máli. Hér í blaðinu (1. september) benti hann á stað í þýzkri bók frá árinu 1773 þar sem þetta orð kemur fyrir, þ.e. um hálfum sjötta áratug fyrr en Goethe tók sér það í munn í frægum samræðum sínum við Eckermann. 13.9.2011 06:00
Hinn óbreytti heimur Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar Mikið hefur verið rætt og ritað um árás hryðjuverkamanna á skotmörk í Bandaríkjunum 11. september 2001. Skyldi engan undra; um hræðilega atburði var að ræða sem haft hafa mikil áhrif á heimsbyggðina. Nú, tíu árum síðar, er hins vegar grátlegast að líta yfir farinn veg og sjá þau tækifæri sem glatast hafa til að gera heiminn sem við öll búum í að betri stað. Þeim var fórnað á altari eigin hagsmuna, hefndarþorsta og gamaldags heimsmyndar. Leiðtoga heimsins skorti áræði og þor til að breyta til hins betra. 13.9.2011 06:00
„Elska skaltu náunga þinn“ – gegn rasisma, hatri og sögufölsunum öfga hægrisins Guðrún Ósk Þórudóttir Skoðun