Fleiri fréttir

Sölumenn óttans

Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar

Stundum er fullyrt að með hækkandi aldri fylgi ákveðin fríðindi. Þá er ekki verið að vísa í forréttindi ellilífeyrisþega sem fá afslátt í sund og ókeypis rútuferðir í Bónus, heldur sérstaka tegund af sálarró sem kemur ekki sjálfkrafa en eykst samkvæmt kenningunni í réttu hlutfalli við fjölgandi hrukkur.

Dagur án útlendinga

Jón Kaldal skrifar

Greiningardeildir bankanna spá nú hraðari og harðari niðursveiflu í íslensku efnahagslífi en gert var ráð fyrir. Ef þeir spádómar ganga eftir munu afleiðingarnar verða margvíslegar. Sumar kunnuglegar frá fyrri kreppuárum, aðrar nýstárlegar og mögulega sársaukafyllri samfélaginu.

Er í lagi að Mogginn segi ósatt?

Dagur B. Eggertsson skrifar

Morgunblaðið sagði vísvitandi ósatt í leiðara eftir nýjustu meirihlutaskiptin í borgarstjórn og hélt því fram að ég hefði krafið Ólaf F. Magnússon borgarstjóra um vottorð. Þetta hefur ítrekað verið borið til baka af Gunnari Eydal skrifstofustjóra borgarstjórnar og síðast Ólafi F. Magnússyni sjálfum. En aldrei hefur Morgunblaðið leiðrétt rangfærslu sína. Hvað þá beðið hlutaðeigandi afsökunar.

Bæta þarf baklandið

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Í spánnýrri bók sem Margrét Reynisdóttir skrifar og heitir "Þjónusta: Fjöregg viðskiptalífsins“ kemur fram hversu miklu máli skiptir fyrir fyrirtæki að huga að og taka mark á athugasemdum og umkvörtunum viðskiptavina þeirra. Ábendingarnar eru sagðar geta verið uppspretta framfara og sóknar.

Heiðarleiki

Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar

Ég var skínandi ánægð þegar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var kjörinn borgarstjóri á sínum tíma.

Að axla ábyrgð

Svanborg Sigmarsdóttir skrifar

"Ég hef axlað fulla ábyrgð," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ítrekað og telur að í því ljósi geti hann jafnvel orðið aftur borgarstjóri eftir eitt ár og einn mánuð.

Kjallari og bakdyr

Svo er komið fyrir borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins að hann fer ýmist bakdyramegin út af fundi eða út um kjallarann.

Árni bæjarstjóri kvaddur

Hilmar Jónsson skrifar

Nú syrtir í álinn fyrir Árna bæjarstjóra. Hefurðu komið á efri hæð Sparisjóðsins við Tjarnargötu þar sem bæjarskrifstofurnar eru til húsa?

Pólitík þagnarinnar

Ég man ekki til þess í annan tíma að jafn mikil þögn hafi umlukið nokkurt íslenskt stjórnmálaafl og gamla góða Sjálfstæðisflokkinn nú um stundir.

Evrukenning Sigurjóns

Athyglisverð kenning sem Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, setti fram í þætti mínum Mannamáli á Stöð 2 í gærkvöld.

"Vil ekki tjá mig"

Páll Baldvin Baldvinsson skrifar

Þöggun er virkt og máttugt valdatæki í samskiptum fólks. Að þegja málin í hel er alkunn aðferð í mannlegu samfélagi.

Fram og aftur blindgötuna

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Þegar þetta er skrifað á sunnudagsmorgni liggur afsögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar í loftinu. Eftir hundrað daga hlé er nú allt sem áður og ljóst að sjálfstæðismenn áttu eftir að ljúka REI-málinu.

Saklaust gæðablóð?

Þráinn Bertelsson skrifar

Tvisvar hef ég séð stjórnmálaflokka veikjast heiftarlega. Sá fyrri dó drottni sínum í sælli trú á framhaldslíf á bleiku skýi jafnaðarstefnu á rauðum sokkum.

Er vilji til að bæta kjör kennara?

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra lýsti því yfir á Alþingi á dögunum að hækka þyrfti laun kennara.

Skaðinn af REI-málinu

Jakob Frímann Magnússon skrifar

REI-stýrihópurinn hefur skilað langþráðri skýrslu sinni um "skandalinn“ sem skekið hefur íslenskt samfélag mánuðum saman, kostað viðvarandi umrót í borgarstjórn og reynt verulega á þolrif landsmann.

Hryllingurinn á hæðinni

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Fimm hundruð pör sækjast nú eftir því að fá að vera með í íslenskum sjónvarpsþætti, þar sem verkefnið er að innrétta hús innan ákveðins tímafrests.

Auli

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Fyrir skemmstu tók ég mér frí frá vinnu á föstudegi, drakk kaffi á kaffihúsi og vafraði um netið. Ég notaði líka tækifærið til að skrifa útlenskum vini tölvupóst á ensku. Skyndilega tók ég eftir að tölvan var að verða rafmagnslaus.

Löglaust og siðlaust

Þorvaldur Gylfason skrifar

Árin í kringum 1970 vöktu hagfræðingar og aðrir máls á nauðsyn þess að hafa stjórn á fiskveiðum við Ísland, þar eð fiskstofnar þyldu ekki lengur frjálsa sókn á miðin. Lagt var til, að veiðum væri stjórnað með gjaldheimtu, þannig að útgerðir greiddu ríkinu fyrir aðgang að fiskimiðunum. Takmarkaður aðgangur hlaut að kalla á aðgangseyri, veiðigjald.

Stjórnmálaútlitið

Dr. Gunni skrifar

Sá sem fann upp á spekinni um að ekki skuli dæma bókina eftir kápunni var augljóslega að þvaðra út um vitlausan enda.

Gæslan og gæðingarnir

Bergþór Gunnlaugsson og yfirstýrimaður og afleysingarskipstjóri Hrafni GK 111 skrifa

Ein mesta niðurlæging sem ég hef orðið fyrir á mínum sjómannsferli var þegar ég heyrði í fréttum, kvöldið 5.febrúar 2008 að þyrla landhelgisgæslunnar hafi verið send til að leita að hrossum austur í sveitum.

Óbærileg spenna

Ég man vart eftir annarri eins fyrirtíðarspennu vegna forsetakosninganna

Orðrómur deyr

Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar

Hvort sem meðfæddri leti er um að kenna eða áunnu metnaðarleysi, þá sofnar í mér heilinn um leið og farið er að tala um peninga af alvöru og þekkingu.

Kraftur upplýsinga

Óli Kristján Ármannsson skrifar

"Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað“, söng Megas með hljómsveitinni Íkarusi fyrir tæpum aldarfjórðungi og vísaði þar til velþekktrar brellu úr stjórnmálaumræðu.

Konur segja já

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Rúmlega eitt hundrað konur hafa í blaðaauglýsingu, og bréfi sem sent var til fimmtán stærstu fyrirtækja landsins, boðið fram krafta sína til stjórnarsetu í fyrirtækjum. Ástæðan fyrir framtaki þessara kvenna er sú að enn árið 2008 eru innan við 10% þeirra sem sitja í stjórnum stærstu fyrirtækja landsins konur, hundrað árum eftir að fyrsta konan tók sæti í bæjar­stjórn Reykjavíkur og liðlega þrjátíu árum eftir að viður­kennt var í lagasetningu að konur og karlar skyldu hafa jafnan rétt.

Ávallt viðbúin

Jónína Michaelsdóttir skrifar

Í tengslum við borgarstjórnarmálin í Reykjavík hafa margir slegið um sig með ávirðingum og lýsingarorðum sem allajafna eru notuð sparlega, en þegar gripið er til þeirra er dómgreindinni yfirleitt gefið frí.

Elsku Páll

Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar

Þegar ég var tvítug festi ég kaup á forláta sjónvarpi í verslun sem seldi notuð tæki.

Lög og siðræn gildi

Þorsteinn Pálsson skrifar

Lagareglur þurfa stoð í siðrænum gildum. Án slíkra tengsla milli settra lagareglna og almennt viðurkenndra siðferðilegra viðhorfa er hætt við að lagareglurnar þyki einfaldlega óréttlátar eða reynist illframkvæmanlegar.

Að flytja flugvöll

Þráinn Bertelsson skrifar

Með nýjum og yfirveguðum borgarstjóra er í bili búið að skrúfa fyrir hina flóknu umræðu um hvert skuli flytja Reykjavíkurflugvöll – hvort fara skuli með flugvöllinn upp á heiðar eða út í sjó eins og ýmsir stórgáfaðir menn hafa gert að tillögum sínum.

Að borga brúsann

Oddný Sturludóttir skrifar

Nokkrir þingmenn og einn ráðherra Sjálfstæðisflokksins hafa lýst ánægju með skörungsskap nýja meirihlutans í Reykjavíkurborg hvað varðar kaupin á húsunum við Laugaveg 4 og 6.

Að sjá ekki sóma sinn

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Enn hefur Morgunblaðið ekki beðið Dag B. Eggertsson afsökunar á leiðaraskrifum sínum frá laugardeginum 26. janúar.

101 Reykjavík

Davíð Þór Jónsson skrifar

Borgarstjórinn í Reykjavík er með læknisvottorð upp á að hann ráði við starfið sem hann gegnir. Ég veit ekki til þess að aðrir borgarfulltrúar geti státað af því.

Kuldasamur vetur

Svanborg Sigmarsdóttir skrifar

Varaformaður Sjálfstæðisflokksins hafði rétt fyrir sér í gær þegar hún sagði að stjórnmálaflokkar eigi ekki að stjórna starfi sínu í takt við skoðanakannanir.

Ekki bara róló

Gerður Kristný skrifar

Í tíu ár bjó ég á Sólvallagötu. Þegar ég flutti þangað voru fjórar verslanir í nágrenninu; lítil matvörubúð á horni Bræðraborgarstígs og Ásvallagötu og önnur á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu.

Að stökkva eða hrökkva

Páll Baldvin Baldvinsson skrifar

Ný stjórn í Orkuveitu Reykjavíkur kom saman í gær. Kjartan Magnússon fékk sinn stærsta bitling til þessa sem laun fyrir ljósmóðurstörf. Það er köttur í bóli bjarnar: um fætur sjálfstæðismanna í stj"roninni hringar sig Ásta Þorleifsdóttir og þeir hlaupa ekkert með hana.

Þvílík vitleysa

Þórgunnur Oddsdóttir skrifar

Ég er ekki af þeirri kynslóð sem ólst upp í stöðugum ótta við atómbombuna. Þegar ég var í grunnskóla höfðu annarskonar heimsendaspár tekið við og fólk var farið að trúa því að mengun af mannavöldum myndi tortíma öllu lífi innan skamms.

Sjá næstu 50 greinar