Fleiri fréttir

Völva 2013: Enn eitt grínið hjá Jóni Gnarr

Jón Gnarr fer ekki í landspólitíkina. Það er bara eitt af hans gríni að láta fólk halda að hann ætli á Alþingi. Hann verður borgarstjóri út kjörtímabilið og svo hverfur hann úr stjórnmálum sýnist mér til annarra starfa. Breytingar innan kirkjunnar Nýi biskupinn okkar Agnes M. Sigurðardóttir vinnur að ýmsum breytingum innan kirkjunnar sem munu líta dagsins ljós á árinu. Hún vinnur hægt og hljótt og kemur ýmsum góðum málum í framkvæmd og lagar til í sínum ranni.

Völva 2013: Jörð mun skjálfa

Árið 2013 heilsar okkur með heldur aðgerðalitlu veðri, og verður þannig sennilega allan janúarmánuð, en þá breytir um og margar krappar lægðir eiga eftir að lenda hjá okkur í febrúar og mars.

Nammi namm! Súpermódel á Subway

Súpermódel eru þekkt fyrir að beita sig ströngum mataraga en danska fyrirsætan Helena Christensen gefur lítið fyrir fábrotið mataræði.

Jahá! Búin að klófesta nýjan!

Kryddpían Geri Halliwell kom með nýjan, yngri mann upp á arminn þegar hún fór að sjá Viva Forever, söngleikinn sem byggður er á hljómsveitinni Spice Girls.

Ég er með fimm geirvörtur!

Hjartaknúsarinn Bradley Cooper kom gestum í þætti Ellen DeGeneres hressilega á óvart þegar hann sýndi geirvörturnar fimm sem hann er með á líkamanum.

Ungfrú alheimur kosin

Það var hin tuttugu ára gamla Olivia Culpo frá Rhode Island sem var kjörin ungfrú alheimur í Las Vegas í gær.

Claire Danes eignast son

Þau verða svo sannarlega gleðileg jólin hjá Homeland stjörnunni Claire Danes og eiginmanni hennar Hugh Dancy en þau eignuðust sitt fyrsta barn síðastliðinn mánudag.

Völva 2013: Bubbi fjölgar sér og Linda færir út kvíarnar

Linda Pétursdóttir, fyrrverandi fegurðardrottning Íslands, verður áberandi í viðskiptalífinu á næsta ári, að mati Völvu Lífsins, fylgiblaðs Fréttablaðsins. Spá Völvunnar fylgir Lífinu á morgun. Völvan telur að Linda muni halda áfram með Baðhúsið og bæta við sig nýju fyrirtæki. Þar verði hún með heilsuátak fyrir erlenda ferðamenn. Nýja fyrirtækið verður hins vegar vandaðra, að mati Völvunnar, og gerir stormandi lukku og færir mikinn gjaldeyri til landsins. Bubbi Morthens og Hrafnhildur eiginkona hans eignast dreng á árinu en Völvan sér mikla hamingju og vöxt í kringum þau. Þá gerir Völvan ráð fyrir því að leikfélagið Vesturport muni halda áfram að gera garðinn frægan og fara víða með sýningu sem slær í gegn. Einn meðlimurinn muni þó fara út úr grúppunni þar sem kemur til ósætti sem ekki næst að lagfæra. Svo fátt eitt sé nefnt. Þá skoðar Völvan rýnir í þjóðmálin, skoðar landspólitíkina, fylgi flokkanna, eldsumrot á landinu svo fátt eitt sé nefnt.

Aldrei verið svona horuð

Smágerða leikkonan Kate Bosworth fékk sér göngutúr með unnusta sínum Michael Polish í vikunni í Beverly Hills. Eins og sést á meðfylgjandi myndum er Kate allsvakalega grönn.

Tískustjörnuspá fyrir desember

Meðfylgjandi má sjá örlítið brotabrot af skemmtilegri tískuspá stjörnumerkjanna fyrir desembermánuð af Tíska.is. Sigríður Klingenberg spákona skrifar:

Berbrjósta í sólbaði

Fyrirsætan Heidi Klum heldur áfram að deila myndum af sér með aðdáendum sínum. Nýjasta myndin er af henni berbrjósta í sólbaði í framandi löndum.

Kate hraustleg

Kate Middleton sem hefur verið veik eins og heimsbyggðin veit var hraustleg á að líta þegar hún mætti í Buckingham höll í jólahádegisverð í gær. Kate, sem er ekki enn gengin 12 vikur, átti við veikindi að stríða í byrjun meðgöngunnar en núna lítur hún einstaklega vel út eins og sjá má á myndunum.

Síðasta kvöldmáltíðin

21. desember er síðasti dagurinn í dagatali Maya-indíánanna, og hefur því lengi verið haldið fram að þeir hafi vitað af heimsendi þennan dag, og því ekki haft dagatalið lengra.

Stjakarnir mynda fullkomna óreglu

„Mér fannst vanta kertastjaka fyrir há kerti sem væru ekki hringur. Ég er sjálf meira fyrir einfaldleika og beinar línur,“ segir Sonja Björk Ragnarsdóttir, innanhúss- og vöruhönnuður, sem á heiðurinn að kertastjökunum 5 frá So by Sonja.

Skemmtu sér á Mika

Uppselt var á tónleika Mika í Silfurbergi í Hörpu á þriðjudagskvöldið og mikið um fjör eins og meðfylgjandi myndir sína.

Tónlist í jólapakkann

Það var mikið gert grín að dómnefnd Rannsóknarseturs verslunarinnar í fyrra þegar hún valdi spjaldtölvu sem jólagjöf ársins. Í ár vandaði dómnefndin sig greinilega meira og valdi íslenska tónlist sem jólagjöf ársins. Flott val sem auðvelt er að færa góð rök fyrir.

Jólarokk í Austurbæ

Valdimar, Retro Stefson, Lára Rúnars og Pétur Ben eru meðal þeirra listamanna sem koma fram á hinum árlegu X-mas-tónleikum útvarpsstöðvarinnar X977 í kvöld.

Forbes fjallar um EVE Online

Bandaríska tímaritið Forbes fjallar á vefsíðu sinni um gott gengi íslenska tölvuleiksins EVE Online sem Hilmar Veigar Pétursson og félagar hjá CCP hafa á sinni könnu.

Reykir eins og strompur

Fyrirsætan Kate Moss stundaði fyrirsætustörf af kappi í Karabíska hafinu í vikunni en hún hefur líka eytt gæðastundum þar með eiginmanni sínum Jamie Hince.

Best klæddar árið 2012

Þá er komið að því. Búið er að velja þær tólf stjörnur sem þykja hafa skarað fram úr á tískubrautinni á árinu sem er að líða.

Skilin

New Girl-yndið Zooey Deschanel er skilin við tónlistarmanninn Ben Gibbard, tæpu ári eftir að hún sótti um skilnað.

Kardashian-klanið toppar sig í jólakortagerð

Jólakortið sem Kardashian-fjölskyldan sendir frá sér í ár er svo sannarlega upplífgandi. Þar sjást allir fjölskyldumeðlimirnir klæddir í skjannahvít föt, umkringdir silfruðum blöðrum og skrauti.

Kaupir annað glæsihýsi á árinu

Poppsöngkonan Rihanna keypti glænýtt, fimm herbergja hús á Barbados fyrr á árinu og gaf móður sinni, Monicu Braithwaite. Nú er hún búin að kaupa annað glæsihýs – í þetta sinn fyrir sjálfa sig.

Léttklædd í sólbaði korter í jól

Þýska ofurfyrirsætan Heidi Klum, 39 ára, setti mynd af sér á Instagram myndaforritið í vikunni. Eins og sjá má flatmagar fyrirsætan á ónefndri strönd og nýtur lífsins alla leið og það korter í jól. Þá má einnig sjá Heidi fullklædda í sjónvarpsviðtali.

Mæðgur njóta aðventunnar

Söngkonan Pink naut þess að spóka sig um og versla inn fyrir jólin ásmt dóttur sinni Willow Hart í Kaliforníu í vikunni.

Ástandið verra en mig grunaði

"Ég er í nettu sjokki eftir að hafa lesið þessa tölvupósta en ég fer yfir þá alla sjálfur persónulega og í gegnum þá sé ég sársaukann og raunirnar sem fólk hefur eða er að ganga í gegnum. Ástandið verra en mig grunaði," segir Heiðar Austmann útvarpsmaður og dagskrárstjóri FM957 en líkt og síðustu ár hefur útvarpsstöðin FM957 ákveðið að aðstoða fólk sem þarf á aðstoð að halda fyrir jólin.

Best geymda leyndarmál íslenskra kvenna

Farið er afar fögrum orðum um Bláa Lónið á heimasíðu kanadíska Elle þar sem farið er yfir áhugaverða staði í heiminum til að fara í dekur yfir vetrartímann.

Ástfangin Janet Jackson

Söngkonan Janet Jackson, 46 ára, og unnusti hennar, milljónamæringurinn Wissam Al Mana, sáust versla saman á sunnudaginn var. Eins og sjá má fór vel á með parinu og það er ekki laust frá því að það klæði sig í stíl. Þá má einnig sjá Janet á rauða dreglinum glæsilega eins og ávallt.

Logi uppseldur

"Ég átti að árita um helgina en bókin er uppseld," svarar Logi Bergmann höfundur bókarinnar Handbók hrekkjalómsins spurður hvernig honum gengur með bókina. "Þetta er bók um hrekki. Bæði mínar persónulegu sögur og svo er þetta líka fræðibók. Í henni er útlistun á hrekkjum, hvað gerir hrekk hrekk eins og aprílgöbb, íþróttahrekkir og hrekkir sem listgrein," svarar Logi spurður um hvað bókin fjallar. "Nýtt upplag kemur í verslanir í fyrramálið," bætir höfundurinn við áður en hann rýkur af stað. Logi áritar í Hagkaupum næstu helgi. Sjá meira um bókina hans Loga hér - Sena.is.

Rennblautur Tom Cruise

Tom Cruise, 50 ára, mætti í sjónvarpsþáttinn Late Night með Jimmy Fallon í gær. Eins og sjá má átti leikarinn ekki erfitt með að láta eins og kjáni þegar vatnsslagurinn byrjaði fyrir alvöru.

Kynþokkafyllsti maður heims fjölgar sér á næsta ári

„Það er opinbert! Tvær ótrúlega fallegar sálir eru í þann mund að færa aðra fallega sál inn í þennan heim,“ var skrifað á Facebook-síðu kyntröllsins Channings Tatum á mánudagskvöldið og mynd af honum og eignkonu hans Jennu Dewan-Tatum látin fylgja með.

Alvöru Harlem-stemning í Tryggvagötunni

Mikill asi hefur verið við að umbreyta Þýska barnum í nýjan bar, Harlem, sem opnar á morgun. "Við fengum til liðs við okkur á annan tug ungra myndlistarmanna til að skreyta innviði staðarins með fjölbreyttri myndlist. Það gefur honum lifandi blæ og það er virkilega flott að sjá alla þessa ólíku stíla blandast saman,“ segir Steindór Grétar Jónsson.

Þjáðist af morgunógleði

Leikkonan Megan Fox eignaðist sitt fyrsta barn þann 27. september síðastliðinn. Hún segist hafa þjáðst af mikilli morgunógleði fyrstu mánuði meðgöngunnar.

Fólk ekki hrifið af litnum

Kelly Osbourne viðurkennir að fólki þyki háralitur hennar ekki fallegur. Sjónvarpsstjarnan hefur litað hárið á sér í sérstökum fjólugráum lit í nokkurn tíma.

Fjölskyldumaður

Söngvarinn síungi Mick Jagger fagnaði því að hafa lokið tónleikaröð í tilefni af 50 ára afmæli sveitarinnar Rolling Stones með því að taka allsherjar fjölskyldudag í New York.

Romeo Beckham heillar í Burberry-auglýsingu

Í nýjustu auglýsingaherferð breska tískuhússins Burberry stelur ungur herramaður senunni en hann á ekki langt að sækja hæfileikana. Um er að ræða miðson Victoriu og Davids Beckham, Romeo Beckham. Hann er nýjasta andlit Burberry og þykir fara á kostum í herferðinni sem var frumsýnd í vikunni.

Síðustu tónleikar Einars

Tónleikarnir Hátt í Höllinni sem verða haldnir í Laugardalshöll í kvöld með mörgum af vinsælustu flytjendum Íslands verða þeir síðustu sem Einar Bárðarson skipuleggur áður en hann tekur við starfi forstöðumanns Höfuðborgarstofu.

Hollywood bregst við harmleiknum

Hin hörmulega skotárás á Sandy Hook-grunnskólann í Newport, Connecticut í síðustu viku hefur valdið ómældri reiði og sorg um allan heim. Alls liggja 27 manns í valnum eftir hinn tvítuga árásarmann, þar af tuttugu börn, ýmist sex eða sjö ára gömul.

jólalög í vestri

Okkur þótti tímabært að bjóða til jólatónleika og vitum ekki til þess að vísitölufjölskylda að vestan hafi áður haldið tónleika saman,“ segir Theodóra Þorsteinsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Theodóra ætlar að syngja jólalög með eiginmanni sínum Olgeiri Helga Ragnarssyni og dætrunum Sigríði Ástu og Hönnu Ágústu í Borgarneskirkju í kvöld.

Skildi glamúrinn eftir heima

Leikkonan Gwyneth Paltrow mætti á Heathrow-flugvöll í London á sunnudaginn með börnin sín tvö, Moses og Apple. Gwyneth sleppti því alveg að mála sig og var afskaplega venjulega klædd.

Hryllilega horuð

Árið hefur ekki leikið leikkonuna Selmu Blair vel en stutt er síðan hún skildi við barnsföður sinn Jason Bleick. Selma lítur ekkert sérstaklega vel út þessa dagana eins og sést á meðfylgjandi myndum.

Þetta kallar maður flottan rass

Söngkonan Kelly Rowland hefur talað mikið um hve stolt hún er af sínum línum og vinnur ötullega að því að halda sér í góðu formi. Hún kom fram á dívutónleikum VH1 og sögusagnir fóru strax í gang um að hún væri búin að laga afturendann eitthvað til.

Þvílík kroppasýning

Hin íturvaxna Coco Austin sýndi kroppinn svo um munaði á sýningunni, Peepshow í Las Vegas í vikunni en stjarnan verður seint sögð feimin.

Sjá næstu 50 fréttir