Fleiri fréttir

Prúðbúnir gestir á Hótel Volkswagen

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Borgarleikhúsinu síðustu helgi þegar leikritið Hótel Volkswagen eftir Jón Gnarr, í leikstjórn Benedikts Erlingssonar, var frumsýnt á stóra sviðinu...

Beyonce stöðugt mynduð með barnið

Beyonce Knowles, 30 ára, reyndi allt hvað hún gat til að koma í veg fyrir að dóttir hennar og Jay-Z, Blue Ivy, væri mynduð. Hún hélt á stúlkunni og notaði peysuna til að breiða yfir stúlkuna. Skoða má myndirnar, sem teknar voru í New York í gær, af mæðgunum, í myndasafni.

Fílar ekki Facebook

Leikkonan Dakota Fanning, 18 ára, prýðir forsíðu tímaritsins Wonderland. Eins og sjá má á myndunum tekur leikkonan sig vel út...

Vala Matt rær á ný mið

"Ef ég upplifi eitthvað áhugavert er ég yfirleitt viðþolslaus þangað til ég get miðlað því til sem flestra," segir Vala Matt sem tekst nú á við ný verkefni í fjölmiðlaheiminum...

Irglova með tónleika

Tékkneska tónlistarkonan Marketa Irglova er stödd hér á landi ásamt hljómsveit við upptökur. Hún heldur tónleika á Kexi 4. apríl.

Carrie snýr aftur

Leikkonan Chloe Moretz hefur fengið tilboð um að fara með aðalhlutverkið í endurgerðinni á hrollvekjunni Carrie.

Hita upp fyrir Roses

Hljómsveit Liams Gallagher, Beady Eye, Primal Scream og Plan B eru á meðal þeirra sem hita upp fyrir The Stone Roses á þrennum endurkomutónleikum þeirra í Manchester í júní. Einnig hita upp rokkararnir í The Vaccines með bassaleikarann Árna Hjörvar innanborðs. Miðar á tónleikana seldust upp á örskammri stundu eftir að þeir fóru í sölu í fyrra. Síðan þá hafa menn velt vöngum yfir hvaða hljómsveitir munu hita upp fyrir Roses og nú er það loksins komið í ljós.

Appelsínugul vera og svört kómedía

Dr. Seuss-teiknimyndin The Lorax verður frumsýnd um helgina, þar sem stórstjörnurnar Danny DeVito, Zac Efron og Taylor Swift eru meðal þeirra sem ljá persónum myndarinnar rödd sína. The Lorax fjallar um hinn 12 ára gamla Tedda sem þarf að finna tré sem gerir honum kleift að vinna hug og hjarta draumastúlkunnar sinnar, Audrey. Til þess að finna tréð þarf hann þó fyrst að hafa uppi á skógarverðinum Lorax, appelsínugulri veru sem berst fyrir því að vernda heiminn. Myndin er sýnd á íslensku og ensku og í 3D.

Vilja semja við Kutcher

Ashton Kutcher er sagður vera í samningaviðræðum um að leika í nýrri þáttaröð af Two and a Half Men. Leikarinn tók við aðalhlutverki gamanþáttanna af Charlie Sheen í fyrra og hefur leikið milljarðamæringinn Walden Schmidt í fyrstu þáttaröðinni. Áhorfið á þættina hefur minnkað nokkuð eftir að Sheen hvarf á braut en það virðist ekki hafa áhrif á

Sandra Bullock blómstrar í móðurhlutverkinu

Það er ekki annað að sjá en að stjörnuleikkonana, Sandra Bullock njóti sín vel í móðurhluverkinu en hún sást fylgja syni sínum, Louis Bardo Bullock honum í leikskólann í vikunni.

Úrslitakvöldið verður fjölbreytt

"Ég held að úrslitakvöldið á laugardaginn verði mjög skemmtilegt þar sem þetta eru rosalega fjölbreyttar hljómsveitir sem eru að keppa, það eru engar tvær hljómsveitir í sama stílnum,“ segir Einar Indra, umsjónarmaður Músíktilrauna 2012.

Engum leiddist á CCP hátíð í Hörpu

Árleg "Fanfest hátíð“ CCP náði hámarki með tónleikum HAM og GusGus í Hörpu síðasta laugardagskvöld. Eins og sjá má á myndunum og meðfylgjandi myndskeiði leiddist engum. Frá árinu 2004 hefur CCP haldið árlega Fanfest hátíð sína í Reykjavíkurborg. Viðburðurinn hefur vaxið ár frá ári og fór fram í Hörpu í fyrsta sinn. Dagskrá Fanfest var fjölbreytt og samanstóð m.a. af sýningum, fyrirlestrum og óvæntum uppákomum. Fjöldi erlendra gesta sótti hátíðina heim en þeir voru um 300 talsins; spilarar EVE Online, blaðamenn og starfsmenn tölvu- og afþreyingariðnaðarins. Tónleikarnir - Party at the Top of the World Lokahóf Fanfest hátíðarinnar, Party at Top of the World tónleikarnir, fór fram á laugardagskvöldinu þar sem engu var til sparað í hljóði, ljósum og annarri umgjörð.

Í kuldaskóm í tökum

Leikkonan Blake Lively, 24 ára, var mynduð í tökum á sjónvarpsþættinum Gossip Girl í gærdag klædd í fallega tvílita kápu, bleika skó, með túrkislitað veski sem toppaði heildarútlitið. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá að Blake er klædd í kuldaskó og mótleikkona hennar vefur úlpu um sig miðja.

Óhefðbundin tískusýning

Frumsýning á vorlínu hönnuðanna er reka tískuverslunina Kiosk fór fram á Hótel Lind fyrir helgi og þótti óhefðbundin og skemmtileg. Tískusýningin var með óhefðbundnum hætti því fötin voru sýnd á dúkkulísum í raunstærð í stað þess að nota fyrirsætur. Fjölmennt var á sýningunni og nutu gestir bæði veitinga og tískunnar ásamt hönnuðum Kiosk.

Heidi Klum í faðmi fjölskyldunnar

Ofurfyrisætan Heidi Klum eyddi gærdeginum með fjölskyldu sinni en lítið hefur sést af fyrirsætunni eftir að hún skildi við söngvarann Seal.

Bera virðingu fyrir líkamanum

"Markmið samtakana er að stuðla að jákvæðum breytingum á viðhorfum sem tengjast holdafari og útliti fólks,“ segir Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og formaður nýstofnaðra íslenskra baráttusamtaka um líkamsvirðingu.

Síðkjól í dag - leðri í gær

Breska leikkonan Kate Winslet, 36 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum stórglæsileg klædd í svartan Jenny Packham síðkjól með rauðar varir á þrívíddarfrumsýningu kvikmyndarinnar Titanic sem sló í gegn á heimsvísu fyrir 15 árum...

Beyonce með Blue Ivy innanklæða

Beyonce Knowles, 30 ára, yfirgaf skrifstofubyggingu með dóttur sína, Blue Ivy, innanklæða í New York í gær. Með söngkonunni var móðir hennar, Tina Knowles, og lífverðir. Eiginmaður og barnsfaðir Beyonce, Jay-Z, var fjarri góðu gamni í gær en ef marka má slúðurheiminn þá er hann í góður skapi alla daga eins og Beyonce eftir að Blue Ivy kom í heiminn.

Algjört kvikmyndaklúður

Ævintýramyndin John Carter er á góðri leið með að verða mesta kvikmyndaklúður allra tíma. Hún kostaði rúma þrjátíu milljarða króna í framleiðslu. Allt stefnir í að ævintýramyndin John Carter verði mesta kvikmyndaklúður allra tíma. Framleiðandinn Disney býst við því að tapa um 200 milljónum dollara á myndinni, eða ríflega 25 milljörðum króna. Myndin kostaði 250 milljónir dollara í framleiðslu, rúma 30 milljarða króna, enda uppfull af rándýrum tæknibrellum.

Hörð barátta um bestu mottuna

Tom Selleck-mottukeppni fer fram á skemmtistaðnum Boston í kvöld þar sem karlmenn munu keppa um titilinn Flottasta motta landsins. Keppnin er haldin í tengslum við Mottumars Krabbameinsfélagsins og hefur átt miklum vinsældum að fagna undanfarin ár. Ragnar Páll Steinsson, eða Raggi leðja eins og hann er betur þekktur, skipuleggur

Spilar með Vedder

Írski Óskarsverðlaunahafinn Glen Hansard hitar upp fyrir Eddie Vedder á tónleikum hins síðarnefnda í Evrópu í sumar. Hansard, sem spilaði á tónlistarhátíðinni Bræðslunni á Borgarfirði eystri í fyrra, hefur áður hitað upp fyrir Vedder. Það gerði hann á tónleikaferð hans um Bandaríkin í fyrra. Hansard syngur einmitt með Vedder á sólóplötu í Pearl Jam, Ukulele Songs.

Vilja spila með Jimmy Page

Hljómsveitin Red Hot Chili Peppers er að reyna að sannfæra Jimmy Page, fyrrum gítarleikara Led Zeppelin, um að spila með henni þegar hún spilar næst í Englandi.

Stuð á tónleikum í Austurbæ

Arion banki hélt á dögunum mikla veislu í Silfurtunglinu í tilefni nýrrar fríðindaþjónustu sem heitir Hringtorg. Einnig voru haldnir tónleikar í Austurbæ þar sem söngvarinn Jón Jónsson og hljómsveitirnar Valdimar og Jónas og ritvélar framtíðarinnar komu fram. Fjöldi fólks mætti á svæðið og var stemmningin frábær eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni.

Flottir fararstjórar

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá viðtal við flotta fararstjóra...

Manson með nýja plötu

Fjórtán lög verða á áttundu hljóðversplötu rokkarans Marilyn Manson, Born Villain, sem kemur út 30. apríl. Þrjú ár eru liðin síðan sú síðasta, The High End Of Low, kom út.

Heitasta parið í Hollywood

Slúðurheimurinn vestan hafs heldur því fram að söngkonan Rihanna og leikarinn Ashton Kutcher séu heitasta parið í Hollywood um þessar mundir. Sagan segir að Rihanna mætti á miðnætti í vikunni heim til leikarans í fylgd lífvarðar. Ekki er vitað hvenær hún yfirgaf heimili leikarans...

Lopez í skærum litum

Jennifer Lopez, 42 ára, mætti í glæsilegum neon-grænum þröngum kjól í viðtal á brasilískri sjónvarpsstöð þar sem hún kynnti nýja sjónvarpsþáttinn sinn, Q’Viva! The Chosen. Í þættinum leitar hún ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum, Marc Anthony, að hæfileikaríku fólki í suður-Ameríku...

Finnst gaman að hrekkja börnin sín

Juliu Roberts finnst gaman að hrekkja börnin sín, Henry sem er fjögurra ára og tvíburana Hazel og Phinnaeus sem eru sjö ára. "Þegar ég heyri að þau eru á leiðinni og þau vita ekki að ég er í húsinu beygi ég mig niður og þegar þau koma inn í herbergið stekk ég fram," sagði leikkonan í viðtali við Ellen DeGeneres.

Mið-Íslandi meinaður aðgangur að Leifsstöð

"Ég verð eiginlega bara pirraður þegar ég tala um þetta,“ segir Ragnar Hansson, leikstjóri gamanþátta Mið-Íslandhópsins, sem fékk ekki að taka upp í Leifsstöð þegar tökur stóðu yfir síðastliðið haust.

Hestamenn ríða í gegnum miðbæinn

Dagana 29. mars – 1. apríl verða Hestadagar í Reykjavík. Þar fá borgarbúar gott tækifæri til að kynnast íslenska hestinum. Á laugardaginn munu hestar og hestamenn verða áberandi í miðbænum og í við Ráðhúsið í Reykjavík verður margt skemmtilegt í boði fyrir alla fjölskylduna. Boðið verður upp á hestateymingar við Ráðhúsið, fyrirlestra af ýmsum toga um hestinn, sögu hans og atferli. Línudans verður kynntur og gestum og gangandi boðið að læra nokkur spor...

Læðist bakdyramegin

Leikkonan Renee Zellweger, 42 ára, mætti á tískuvikuna í París með uppsett hárið og sólgleraugu á nefinu. Eins og sjá má á myndunum læddist hún bakdyramegin til að komast hjá ljósmyndurum sem biðu hennar. Leikkonan hefur samþykkt að leika Bridget Jones í þriðju myndinni ásamt leikurunum Colin Firht og Hugh Grant sem fara með hlutverk Mark Darcy og Daniel Cleaver.

Framhaldslíf ofbeldismyndbands

Myndband hljómsveitarinnar Moon við lagið My Husband The Corpse hefur flakkað um samskiptasíðuna Facebook undanfarnar vikur. Texti lagsins og myndbandið þykja skuggaleg enda er umfjöllunarefni þess heimilisofbeldi.

Simon og Yasmin Le Bon í bátsferð

Simon Le Bon og eiginkona hans, Yasmin, nutu lífsins í bátsferð nálægt höfninni í Sydney í Ástralíu í gærdag. Eins og sjá má á myndunum skemmtu hjónin sér vel ásamt vinum...

Aldrei aftur saman

Tónlistarmaðurinn Jack White mun ekki endurvekja hljómsveitina The White Stripes og stendur fastur á þeirri skoðun sinni.

Bjartsýn líkt og Kani

Victoria Beckham segist vera bjartsýnismanneskja í eðli sínu og þess vegna líði henni vel í Bandaríkjunum. Beckham segist hafa verið spennt fyrir mögulegum flutningi fjölskyldunnar til Parísar, en á tímabili stóð til að David Beckham færi til Saint-Germain fótboltaliðsins. „Ég er bjartsýnismanneskja, þess vegna líður mér vel í Bandaríkjunum. Það hefði verið gaman að flytja til Parísar, sérstaklega vegna vinnu minnar í tísku, en við ákváðum að dvelja

Hönnun í gamla Sautján húsinu

Meðfylgjandi myndir voru teknar um helgina þegar HönnunarMars stóð sem hæst í verslunarhúsnæðinu á Laugavegi þar sem verslunin Sautján var starfrækt....

Sigurrós setur nýtt lag á Netið - Platan heitir Valtari

Aðdáendur hljómsveitarinnar Sigur Rósar eru himinlifandi eftir að sveitin setti í dag nýtt lag, Ekki múkk, á myndbandasíðurnar Vimeo og YouTube. Einnig eru komnar nánari upplýsingar um nýjustu plötu sveitarinnar, sem hefur hlotið nafnið Valtari.

Gulla arkítekt hannar sviðsmynd RFF

Reykjavik Fashion Festival, RFF, verður haldin hátíðleg næstu helgi. Þar munu ellefu íslenskir hönnuðir sýna næstkomandi haust- og vetrarlínur sínar í Hörpu...

Pabbi rót fylgir The Vintage Caravan til Rúmeníu

„Við verðum vonandi landinu til sóma," segir Óskar Logi Ágústsson, söngvari og gítarleikari The Vintage Caravan. Rokktríóið vann íslensku undankeppni hljómsveitakeppninnar Global Battle of the Bands um helgina og tryggði sér þar með þátttökurétt í lokaúrslitunum sem verða haldin í Rúmeníu í júní.

Skræpóttasta sýning sem sést hefur

"Þetta er skræpóttasta sýning sem ég hef séð og ekkert smá skemmtilegt verkefni," segir Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, teiknari og einn af skipuleggjendum sýningarinnar Phobophobia sem er í gangi í Bíó Paradís um þessa dagana.

Fjórða barnið á leiðinni

Tori Spelling og eiginmaður hennar, Dean McDermott, eiga von á fjórða barninu í lok ársins. Fyrrum 90210 stjarnan bloggaði eftirfarandi á föstudaginn síðasta aðeins fimm mánuðum eftir að þriðja barnið, Hattie, fæddist. „Við erum í skýjunum yfir því að annað lítið McDermott-barn er á leiðinni! Við erum innilega ánægð með að annar engill hefur fundið okkkur,“ skrifaði Tori. Hún og Dean giftu sig árið 2006 en saman eiga þau Liam, 5, Stellu, 3, og fimm mánaða gamla Hattie.

Heldur hátíð í Færeyjum

Fo Tatt Fest fer fram í fyrsta sinn í Færeyjum dagana 18. til 20. maí. Fjölnir Geir Bragason húðflúrlistamaður stendur fyrir hátíðinni og hyggst gera hana að árlegum viðburði.

Sjá næstu 50 fréttir