Fleiri fréttir

Fær barnabætur eins og aðrir

Viktoría krónprinsessa af Svíþjóð og Daníel prins, eiginmaður Viktoríu, fá hefðbundnar barnabætur frá sænsku tryggingastofnuninni þegar barn þeirra er komið í heiminn hvort sem þau vilja það eða ekki.

Ásdís Rán: Hjónabandið hefur verið ævintýraríkt, gott og farsælt

Við kveðjum okkar ástkæra samband síðustu 9 ár með umhyggju og virðingu. Hjónabandið okkar hefur verið ævintýraríkt, gott og farsælt þennan tíma en örlögin skilið okkur smá saman af og tími komin til að byrja nýtt líf. Við þökkum fyrir stuðning á þessum erfiðu tímum og byðjum fólk um að sýna þessu virðingu þar sem mörg lítil hjörtu eiga í stað, skrifaði Ásdís Rán á Facebooksíðuna sína í dag. Lífið birti fyrstu fréttir af því snemma í morgun eftir að hún staðfesti skilnaðinn við Garðar Gunnlaugsson eiginmann sinn til níu ára.

Flýgur frá Hollywood til að taka upp nokkrar setningar

"Þetta er án efa lengsta ferðalag sem ég hef lagt í fyrir jafn litla vinnu,“ segir leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson sem er nýkominn til landsins til að taka upp nokkrar setningar í myndinni Svartur á leik.

Sandra Bullock sækir soninn

Leikkonan Sandra Bullock, 47 ára, sótti son sinn, Louis, í leikskólann í Los Angeles í gærdag. Þá má einnig sjá myndir af Söndru á rauða dreglinum áberandi fögur eins og alltaf. Skiptir aldur einhverju máli? Tíminn skiptir engu máli, lét Sandra hafa eftir sér. Skoða má myndir af Söndru og syni hennar í myndasafni.

Óléttuorðrómur um Drew Barrymore

Leikkonan Drew Barrymore trúlofaðist Will Kopelman í janúar á þessu ári og nú segir sagan að leikkonan eigi von á barni...

Gettu betur-krakkarnir óhugnanlega klárir

„Ég verð bara að vera hreinskilin og viðurkenna að ég er frekar kvíðin fyrir sjónvarpsútsendinguna," segir Þórhildur Ólafsdóttir, annar helmingur dómaratvíeykisins í Gettu betur.

Ásdís Rán og Garðar skilin

Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir og Garðar Gunnlaugsson hafa ákveðið að skilja eftir níu ára samband.

Leiðist ekki að pósa

Söngkonan Mariah Carey átti ekki í vandræðum með að stilla sér upp fyrir fjölda ljósmyndara á Time Square fyrir utan ABC upptökuverið eftir að hún...

Þokkalega fleginn en ýkt flottur

Söngkonan Rihanna var glæsileg á Brit verðlaunaafhendingunni í gærkvöldi. Þetta kvöld fór hún heim með verðlaunagrip í flokknum International Female Solo Artist. Í þessum flokki voru stórstjörnurnar Beyonce, Bjork, Feist og Lady Gaga einnig tilnefndar. Síður brúnn kjóllinn, skórnir og hanskarnir við vöktu athygli.

Leikur Liz

Það virðist allt vera á uppleið hjá vandræðagemlingnum Lindsay Lohan.

Kossar og knús í minningu Hemma

"Þetta snýst um að stíga aðeins út fyrir þægindarammann," segir Hörður Ágústsson, versunarmaður í Maclandi. Hermann Valgarðsson lést um aldur fram í nóvember í fyrra. Hann hefði orðið 32 ára í dag og til að heiðra minningu hans halda vinir hans Luv-daginn hátíðlegan, en Hemmi var einmitt þekktur fyrir einstakt lag á því að láta fólki líða vel í kringum sig.

Tjaldstemning á Þýska barnum

„Það verður alvöru þýsk stemning þarna. Hægt verður að fá bjór í lítrakönnum og allt starfsfólk verður klætt í hefðbundinn þýskan klæðnað, dirndl og lederhosen,“ segir Baldvin Arnar Samúelsson, einn eigenda Þýska barsins.

Brjálað gera hjá Kolfinnu

Fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir var heldur betur iðin við kolann á nýafstaðinni tískuviku í London en hún gekk tískupallana fyrir sex hönnuði. Þeir hönnuðir sem föluðust eftir kröftum Kolfinnu voru Topshop Unique, House of Holland, Jonathan Saunders, Acne, Christopher Kane og Giles. Kolfinna, sem er á mála hjá Eskimo fyrirsætuskrifstofunni, er nú flogin á vit ævintýranna í Mílanó og París þar sem hún mun eflaust láta til sín taka á tískupöllunum en hún er vinsælt andlit í tískuheiminum í dag.

10cc stilla upp í tónleikana

Miðasala hefst á hádegi í dag fyrir tónleika bresku hljómsveitarinnar 10cc á midi.is. Hljómsveitin heldur tónleika í Háskólabíói þann 21. apríl næstkomandi. Þótt hljómsveitin sé orðin 40 ára gömul segir Guðbjartur Finnbjörnsson, sem flytur hljómsveitina inn, að hljómsveitarmeðlimir hafi engu gleymt. „Ég er búinn að vera að fylgjast með þeim og þeir eru að fá rosalega góða dóma fyrir hljómleikana, til dæmis á síðasta ári," segir Guðbjartur.

Prinsessan er svo með´etta

Hertogaynjan af Cambridge, Kate Middleton, 30 ára, gaf sér góðan tíma að ræða við börnin í Rose Hill skólanum í dag í Oxford, Englandi, eins og sjá má á myndunum. Prinsinn hennar, Vilhjálmur, var hvergi sjáanlegur eins og undanfarnar vikur þegar Kate lætur sjá sig en hann er upptekinn í flughernum.

Nekt selur

Leikkonan Helen Mirren, 66 ára, og eiginmaður hennar, leikstjórinn Taylor Hackford, stilltu sér upp á rauða dreglinum síðustu helgi. "Hold selur. Fólk vill ekki sjá myndir af kirkjum! fólk vill sjá nakta kroppa,“ lét Helen hafa eftir sér. Sjá myndir af hjónunum í myndasafni.

Enskur texti saminn við Mundu eftir mér

"Enski textinn er til en hann er ekki endanlegur," segir Greta Salóme Stefánsdóttir höfundur og annar flytjandi framlags Íslendinga til Eurovision söngvakeppninnar í Baku í lok maí.

Geggjaðar í gráu

Fyrirsætan Rosie Huntington-Whiteley mætti á tískusýningu Burberry á tískuvikunni í London í gær. Þá vakti uglupeysa leikkonunnar Kate Bosworth athygli á sömu sýningu. Takið eftir gráum jakka Rosie og sömuleiðis gráu pilsi Kate í meðfylgjandi myndasafni.

Jamie Cullum í Eurovision

Breski söngvarinn og lagahöfundurinn Jamie Cullum bar sigur úr bítum í undankeppni Eurovision söngvakeppninnar í Þýskalandi um helgina.

Lést á tískusýningu

Tískuljónið og frumkvöðullinn Zelda Kaplan lést á tískusýningu Joanna Mastroianni á tískuvikunni í New York. Kaplan, sem var 95 ára gömul, sat á fremstu röð á sýningunni er hún missti meðvitund og lést. Tískuheimurinn er í sorg vegna fráfalls Kaplan en hún var fastagestur á fremstu röð á tískuvikum um allan heim.

Vægast sagt sjóðheitur diskógalli

Söngkonan Nicole Scherzinger, 33 ára, mætti í svörtum samfesting á næturklúbbinn Boujis í London eftir að hún hélt tónleika þar í borg. Takk öll fyrir að mæta á tónleikana mína í kvöld og leyfa mér að deila tónlistinni minni með ykkur, skrifaði stjarnan á Twitter síðuna sína.

Leðurklædd Aniston

Leikkonan Jennifer Aniston mætti með unnusta sínum, leikaranum Justin Theroux, í Jimmy Kimmel sjónvarpsþáttinn í Los Angeles. Parið ferðast nú um heiminn að kynna nýju myndina þeirra Wanderlust. „Aðdáendur mínir senda mér ekki nærföt eða neitt í þeim dúr. Ég fæ yfirleitt sendar kökur,“ sagði Jennifer.

Sængaði hjá heilu auglýsingaskilti

Breska leikkonan Minnie Driver segist elska að búa í Californiu. Það fari þó í taugarnar á henni að hvert sem hún fari sé hún minnt á mistök sín eða það sem hún hefur misst af. Hún segir erfitt að þurfa stöðugt að ganga framhjá stórum auglýsingaskiltum með myndum sem hún fékk ekki hlutverk í, eða með fyrrum kærustum sínum.

Lopez leiðist ekki í Ríó

Söngkonunni Jennifer Lopez, 42 ára, leiddist ekki á VIP svæði brasilíska bjórsins Brahma i á karnivalinu í Rio de Janeiro í gær. Hún veifaði á milli þess sem hún fylgdist með skrúðgöngunni...

Whitney Houston kvödd

Heimsbyggðin fylgdist með þegar söngkonan Whitney Houston var borin til grafar í heimabæ sínum Newark á laugardaginn í beinni sjónvarpsútsendingu.

Aðeins það besta fyrir Corea

Eins og komið hefur fram spilar píanósnillingurinn og Grammyverðlaunahafinn Chick Corea í Eldborgarsal Hörpu 24. apríl ásamt Gary Burton en miðasala hefst í dag.

Átta ára gömul bók á toppnum

Svartur á leik eftir Stefán Mána fór beint á toppinn hjá Forlaginu og í annað sætið hjá Eymundsson eftir að hafa verið ófáanleg í mörg ár. "Það er löngu kominn tími á að lesendur fái þessa bók aftur,“ segir Stefán Máni, sem ætlar að hrifsa toppsætið hjá Eymundsson af Jo Nesbö í vikunni. "En þetta er flott á fjórum dögum enda átta ára gömul bók.“

Syrgir Whitney vinkonu sína

Söngkonan Mariah Carey, 41 árs, mætti í minningarathöfn Whitney Houston um helgina klædd í svart. Þá fékk hún sér súpu í Soho hverfinu í New York eftir athöfnina niðurlút með sólgleraugu eins og sjá má á myndunum. "Hjarta mitt er brostið og ég græt yfir því að vinkona mín er dáin,“ skrifaði hún á síðuna sína. Söngkonan söng lagið When You Believe með Whitney árið 1998.

Eftirminnilegt og ævintýralegt upphaf í leikhúsinu

"Þetta er búið að vera hrikalega skemmtilegt og gaman að fá að vera með í þessu," segir leiklistarneminn Sigurður Þór Óskarsson en hann hefur undanfarið fengið góða reynslu af leikhúsheiminum sem afleysingamaður í leikritinu Galdrakarlinn í Oz.

Hópfjármagna Breakbeat-bók

„Ein mynd segir meira en þúsund orð," segir Karl Tryggvason sem ásamt samstarfsfélaga sínum á Breakbeat.is, Gunnari Þór Sigurðssyni, og hönnuðinum Ragnari Frey Pálssyni, stefnir nú á útgáfu bókarinnar Taktabrot.

Nasistamynd vekur athygli

Finnska vísindaskáldsögugrínmyndin Iron Sky hefur vakið mikla athygli á kvikmyndahátíðinni í Berlín. Hún fjallar um hóp nasista sem flýr til tunglsins í lok síðari heimsstyrjaldarinnar og leggur þar á ráðin um að frekari illvirki á jörðinni.

Mel B skottast í form

Mel B, 36 ára, æfir líkt og enginn sé morgundagurinn en hún skokkar daglega. Mel eignaðist stúlkuna Madison Brown í september í fyrra. Madison er fyrsta barn hjónanna. Fyrir á Mel dæturnar Phoenix, 12 ára, og Angel, 4 ára, og Stephen á eina stúlku fyrir, Giselle, 6 ára. Eins og sjá má á myndunum hleypur hún í samfloti við fleiri skokkara. Þá má sjá hana með eiginmanni sínum Stephen Belafonte.

Svaka sætar svo ekki sé meira sagt

Leikkonurnar Nicole Kidman, 44 ára, Cate Blanchett, 42 ára, voru klæddar í svart og hvítt þegar þær settust í dómarasætið á Tropfest stuttmyndahátíðinni sem fram fór í Sydney í Ástralíu í gær, sunnudag. Nicole var klædd í Gucci kjól og Manolo Blahnik skó en Cate var í Hussein Chalayan fötum.

Hver ber ábyrgð á neysluvenjum okkar?

Ég velti mikið fyrir mér hvernig matvöruverslanirnar stjórna kauphegðun okkar með tilboðum og afsláttum. Margir halda að þau séu að gera góð kaup en hugsa minna út í hvaða áhrif matvaran er að hafa á líkama þeirra og heilsu....

Alls ekki lesa þessa frétt á fastandi maga

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Sjávarbarnum um helgina þegar meistarakokkarnir Magnús Ingi Magnússon, Úlfar Finnbjörnsson og Samúel Gíslason göldruðu fram víllibráðarétti...

Björn Hlynur stað Rúnars

Leikarinn og leikstjórinn Björn Hlynur Haraldsson leysir Rúnar Frey Gíslason af hólmi í leikritinu Fanný og Alexander. Rúnar Freyr hverfur á braut um hríð vegna persónulegra ástæðna og hoppar Björn Hlynur því í hlutverk stranga prestsins í sænsku fjölskyldusögunni eftir Ingmar Bergman.

Dyraverðirnir klippa á bindin

"Dyraverðirnir verða með skæri á sér og þeir klippa á bindin,“ segir Arnar Gíslason, einn af eigendum nýs skemmtistaðar sem kemur í stað Olivers á Laugaveginum.

Eftirpartý á Næsta Bar

Edduverðlaunin fóru fram á laugardagskvöldið og mikil gleði í herbúðum kvikmynda- og sjónvarpsfólks. Eftir að verðlaunaafhendingunni lauk í Gamla Bíó skokkuðu flestir yfir götuna á Næsta Bar þar sem gleðin tók völd. Meðal þeirra sem skáluðu á barnum voru félagarnir Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson, en mikill skeggvöxtur þess síðarnefnda vakti athygli viðstaddra. Einnig mátti sjá leikstjórann Ragnar Bragason, stjórnmálamanninn Guðmund Steingrímsson, Þórunni Antóníu og leikstjórann Friðrik Þór Friðriksson. -áp

Fleiri myndir frá Edduverðlaununum

Edduverðlaunin, uppskeruhátíð sjónvarps-og kvikmyndabransans hér á landi, fór fram með pompi og pragt í Gamla Bíó á laugardagskvöldið. Kvikmynd Rúnars Rúnarssonar Eldfjall var sigurvegari kvöldsins með alls fimm verðlaun. Eldfjall var valin kvikmynd ársins, Rúnar Rúnarsson var leikstjóri ársins og skrifaði handrit ársins, Theodór Júlíusson var leikari ársins í aðalhlutverki og Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona ársins í aðalhlutverki en þau leika hjón í myndinni Eldfjall.

Ástfangin af Jackass sprelligosanum

Fyrrverandi kærasta leikarans George Clooney, Elisabetta Canalis, 33 ára, var mynduð ásamt Íslandsvininum Steve-O í Róm á Ítalíu í gærdag. Elisabetta, sem er ítölsk sjónvarpsstjarna, gaf sér tíma til að spjalla við fólk á förnum vegi á milli þess sem hún knúsaði kærastann sinn, Steve-O sem er þekktur sprelligosi úr Jackass.

Sjá næstu 50 fréttir