Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Velur kjólana sjálf Leikkonan Hilary Swank velur sjálf í hverju hún lætur sjá sig á rauða dreglinum. Hilary sem vekur oftar en ekki athygli fyrir að klæðast glæsilegum kjólum eftir heimsfræga hönnuði segist sjálf velja dressin sem hún klæðist á opinberum vettvangi. Hún viðurkennir að stílistinn Tanya Gill starfar fyrir hana þegar hún á lítinn tíma aflögu en annars sér hún um að máta og velja fötin sjálf. „Ég vil ráða hverju ég klæðist," sagði leikkonan Síðan Hilary flutti frá New York er hún ekki eins meðvituð um hvað er í tisku og hvað ekki að eigin sögn. 15.9.2010 17:15
Backyard frumsýnd í Bíó Paradís Nýjasta kvikmyndahús landsins, Bíó Paradís, opnar dyr sínar fyrir gestum í kvöld. Þar er von á spennandi dagskrá næstu vikurnar eins og sjá má í auglýsingum og á heimasíðu bíósins. 15.9.2010 16:00
Nýtur þess að leika Söngkonan Rihanna, 22 ára, fær mikið út úr því að leika í kvikmyndum að eigin sögn en um þessar mundir fer hún með hlutverk í nýrri kvikmynd sem ber heitið Battleship. Rihanna má ekki tjá sig um hlutverkið eða myndina en hún segist njóta þess að fá að leika. Ég nýt þess að leika og svo eru allir svo almennilegir," sagði Rihanna í viðtali við MTV sjónvarpsstöðina. Á móti Rihönnu leikur True Blood leikarinn, Alexander Skarsgård, sem Rihanna segir að sé afslappaður og þögull. 15.9.2010 15:00
Gerir 200 magaæfingar daglega Kim Kardashian, 29 ára, gerir tvöhundruð magaæfingar á hverjum einasta degi til að halda línunum í lagi. „Uppáhaldið mitt er maginn á mér. Ég hef mikið fyrir því að halda honum sléttum og ég er virkilega ánægð með útkomuna. Ég er mjög stolt af maganum mínum. Ég geri allavegana 200 æfingar á dag - ég einfaldlega verð að gera þessar magaæfingar ef ég ætla að halda þessum líkama stinnum," sagði Kim. Kim er um þessar mundir að reyna eins og hún getur að forðast það að borða ruslfæði eins og pizzur en hún er sjúk í flatbökur. Ég þoli ekki mjaðmirnar á mér. Sama hvað ég hleyp mikið og oft þá minnkar ummálið ekki," sagði hún. Mjaðmirnar eru hluti af mér og ég er að reyna að sætta mig við þær. 15.9.2010 13:45
Frægðin gerir mig sorgmædda Breska söngkonan Lily Allen segir að frægðin geri hana sára og leiða. Fyrr á þessu ári tilkynnti söngkonan að hún ætlaði að hvíla sig á tónlistarbransanum því hún vildi einbeita sér að því að styrkja samband hennar við unnustann Sam Cooper og takast á við nýjar áskoranir. Lily er barnshafandi af sínu fyrsta barni. „Mér líður eins og ég hafi skyndilega hætt í skóla. Fólk heldur að það sé æðislega gaman að vera poppstjarna en á endanum verður maður leiður og missir tengsl við sálina. Frægðin gerir mig sorgmædda. Ég vil gera eitthvað annað en að vera poppsöngkona. Eitthvað sem er gefandi og tengir mig við sjálfa mig," sagði Lily. „Ég er að taka áhættu með því að hætta í tónlistinni því það gekk vel en ég er sátt við hana." 15.9.2010 12:00
Megan eykur sjálfstraust eiginmannsins Brian Austin Green lofar eiginkonu sína, leikkonuna Megan Fox, fyrir að auka sjálfstraustið hans og hvetja hann til að standa sig vel. Brian og Megan byrjuðu saman fyrir sex árum og hafa verið saman og sundur síðan þá. Þau komu mörgum á óvart með því að gifta sig óvænt á Hawaii fyrr á þessu ári en Brian segir að það sé besta ákvörðun sem hann hefur tekið í lífinu til þessa. Megan gerir Brian að betri manni og eflir hann til góðra verka að hans mati. Þegar ég og Megan hittumst var ég nýskilinn við barnsmóður mína og var án sonar míns. Það síðasta sem ég hafði áhuga á að takast á við var nýtt ástarsamband. Síðan þróuðust hlutirnir þannig að ég var hræddur við allt. Hræddur við fjölmiðla, fólk og hélt mig heima við," sagði Brian. Megan hjálpaði mér að takast á við óttann og að fá sjálfstraustið á ný. Við pössum einfaldlega fullkomlega saman," sagði hann. Megan var 18 ára þegar Brian hitti hana og féll fyrir henni. 15.9.2010 10:45
Airwaves í útvarpinu Dagskrá útvarpsþáttarins Straumur á Xinu 977 verður næstu vikurnar tileinkuð Iceland Airwaves-tónlistarhátinni sem fer fram 13. til 17. október. Þátturinn verður alla þriðjudaga klukkan 20 til 22 fram að hátíð og þar verða kynntar flestar af þeim erlendu hljómsveitum sem koma fram á hátíðinni. Viðtöl verða tekin við íslenskar og erlendar hljómsveitir auk þess sem miðar á hátíðina verða gefnir. Á meðal flytjenda á Airwaves í ár eru Robyn, Hurts, Everything Everything, Bombay Bicycle Club, Mugison og Dikta. 15.9.2010 09:45
Fékk styrk til Feneyjafarar „Þetta var frábært,,“ segir framleiðandinn Katrín Ólafsdóttir nýkomin heim frá kvikmyndahátíðinni í Feneyjum þar sem stuttmynd hennar, Líf og dauði Henry Darger, var frumsýnd. Um tíma leit út fyrir að Katrín kæmist ekki út til að kynna myndina eins og Fréttablaðið greindi frá. 15.9.2010 08:30
Dagbókin var sáluhjálparatriði Meðal bóka sem væntanlegar eru í jólabókaflóðinu í ár er ævisaga Gunnars Thoroddsen forsætisráðherra eftir Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing. Við ritun bókarinnar fékk Guðni óheftan aðgang að afar persónulegum dagbókum Gunnars. 15.9.2010 06:45
Sveppi rakar inn seðlum Sverrir Þór Sverrisson er vinsælasta barnastjarna landsins. Það sannaðist rækilega um helgina þegar ellefu þúsund manns borguðu sig inn til að sjá Algjöran Sveppa og dularfulla hótelherbergið í bíó. 15.9.2010 06:00
300. útsending KR-útvarpsins Útvarp KR, FM 98,3, fagnar þeim merka áfanga að senda út sína 300. útsendingu á fimmtudag þegar KR tekur á móti Breiðabliki í Frostaskjóli. 15.9.2010 10:30
Eiga von á barni Talsmaður leikkonunnar Penélope Cruz hefur staðfest að leikkonan og eiginmaður hennar, spænski leikarinn Javier Bardem, eigi von á sínu fyrsta barni í byrjun næsta árs. 15.9.2010 10:00
Ómar sýnir í Eldingu Föstudagskvöldið 1. október mun Ómar Ragnarson sýna þrjár myndir á RIFF, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, um borð í hvalaskoðunarskipinu Eldingu. Fyrst sýnir Ómar myndina One of the Wonders of the World. Hún er um 25 mínútna löng og fjallar um virkjanir og stóriðju á Íslandi. Tónlist Bjarkar Guðmundsdóttur hljómar í myndinni. 15.9.2010 09:00
Ásgrímsmyndir voru fyrir American Express „Það hefur fullt af fólki sett sig í samband við okkur og ég held að sagan á bak við myndirnar sé orðin ljós,“ segir Kristrún Heiða Hauksdóttir, kynningarstýra Forlagsins. 15.9.2010 08:45
Safnbox með Hendrix Safnbox með sjaldheyrðum og óútgefnum lögum með Jimi Hendrix verður gefið út 15. nóvember í tilefni þess að fjörutíu ár eru liðin frá dauða hans. 15.9.2010 08:00
Bíó Paradís opnuð í kvöld Þær hafa verið svefnlausar næturnar hjá aðstandendum Bíó Paradísar: Heimili kvikmyndanna. Í dag rennur svo stóri dagurinn upp þegar hin langþráða kvikmyndamiðstöð verður opnuð. 15.9.2010 07:45
Horn á höfði aftur á svið Barnaleikritið Horn á höfði verður sýnt í Borgarleikhúsinu frá og með 18. september næstkomandi. Sýningin var upphaflega frumsýnd í Grindavík í fyrra en hún var valin Barnasýning ársins 2010 á Grímunni í vor. 15.9.2010 07:30
Sjónvarpslaust og kósí á hverju fimmtudagskvöldi Viðburðurinn Sjónvarpslaus fimmtudagskvöld verður haldinn í fyrsta sinn í Slippsalnum á fimmtudaginn. Fólk er hvatt til að hvíla sig á sjónvarpinu og njóta íslenskrar menningar í kósí stemningu. 15.9.2010 07:00
Ljóð mega vera eins og Andrésblöð Út er komin bókin Með mínu grænu augum, með frumortum ljóðum og þýðingum eftir Sverri Norland. Þetta er önnur ljóðabók Sverris og lokaverkefni hans til BA-prófs í ritlistarnámi við Háskóla Íslands. 15.9.2010 06:30
Fágætar eftirprentanir finnast á lager „Væntanlega kemur þessi mappa með Ásgríms-myndunum frá gamla Helgafells-lagernum þegar Ragnar í Smára var upp á sitt besta,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi. Vel á þriðja tug mappa með eftirprentunum af vatnslitamyndum eftir Ásgrím Jónsson fundust nýlega á lager Forlagsins úti á Fiskislóð. 14.9.2010 18:45
Fallegur dagur í uppáhaldi hjá Bubba „Það eru um tíu þúsund manns búnir að velja," svarar Bubbi Morthens spurður hvernig gengur að velja lögin á á nýju ferliplötuna hans sem kemur út í haust. 14.9.2010 16:00
Pamela passar í bresk undirföt Pamela Anderson, 43 ára, kaupir uppáhalds undirfötin sín í Englandi því þau eru fallegri og þægilegri en undirföt sem fást í öðrum löndum. Fyrrum Baywatch stjarnan segir að undirfötin sem passa vel á hana fást eingöngu í Bretlandi. Hún eyddi nokkrum vikum í London á síðasta ári þar sem hún fór með eitt af aðalhlutverkunum í söngleik um Aladdin en sýningin verður endurtekin í ár sökum vinsælda. Pamelu hlakkar til að heimsækja England á ný því þá ætlar hún að endurnýja öll undirfötin sín. Það verður yndislegt að koma aftur til Englands og kaupa ný undirföt. Ég elska líka að ganga um götur Lundúna, skoða söfn og hitta vini og kunningja," sagði Pamela. Þrátt fyrir ást hennar á breskum undirfatnaði segist hún ekki ætla að sitja fyrir í Playboy tímaritinu aftur því hún sé orðin of gömul fyrir það. Það er kominn tími fyrir aðrar stúlkur að fá athyglina núna, sagði Pamela sem á tvo syni með Tommy Lee, Brandon, 14 ára, og Dylan, 12 ára. 14.9.2010 15:00
Penelope staðfestir óléttuna Leikkonan Penelope Cruz er gengin fjóra mánuði á leið með sitt fyrsta barn. Penelope giftist leikaranum Javier Bardem í júlí á þessu ári en síðan þá hafa sögusagnir um að þau eigi von á borni verið háværar. Leikkonan hefur verið upptekin við að leika í kvikmyndinni Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides þar sem sístækkandi magi hennar hefur vakið athygli nærstaddra. Í dag sendi fjölmiðlafulltrúi Penelope frá sér eftirfarandi tilkynningu: Penelope Cruz is er gengin fjóran og hálfan mánuði með sitt fyrsta barn. Í þessum töluðu orðum er hún á leið til Lundúna þar sem hún vinnur við að leika í Pirates of the Caribbean #4 en tökum á henni líkur innan skamms. Penelope og Javier kynntust árið 2007 en hafa lagt sig fram að halda sambandinu algjörlega út af fyrir sig. 14.9.2010 13:22
Mamma reynir ekki að græða á mér Leikkonan Blake Lively, 23 ára, segir að mamma hennar komi henni stöðugt á óvart því hún reyni ekki að hafa peninga af sér eftir að hún skaust hratt upp á stjörnuhimininn í Hollywood. Blake leikur Serenu Van Der Woodsen í sjónvarpsþáttaröðinni Gossip Girl sem sýnd er á Stöð 2. Umboðsmaður Blake er móðir hennar en hún hefur aldrei misnotað aðstoðu sína gagnvart henni að sögn Blake. „Mamma er mögnuð kona því hún sinnir móðurhlutverkinu vel. Hún vill ekki prósentur af laununum mínum þrátt fyrir að sjá um mín mál." 14.9.2010 13:00
Hollywoodkynslóðin hittist Meðfylgjandi myndir voru teknar á skemmtistaðnum Broadway um helgina þegar Hollywoodkynslóðin svokallaða rifjaði upp skemmtilega tíma. Ljósmyndarinn Thorgeir.com náði að fanga gleðina sem ríkti á meðal gesta staðarins. 14.9.2010 11:30
Gaga með átta MTV-verðlaun MTV-myndbandaverðlaunin voru afhent um helgina í Los Angeles. Lady Gaga hirti flest verðlaun allra. 14.9.2010 10:30
Öskraði eftir erfiðar kynlífssenur Leikkonan Michelle Williams leikur í átakanlegum kynlífssenum á móti leikaranum Ryan Gosling í nýrri kvikmynd sem ber heitið Blue Valentine. Michelle fannst erfitt að leika í kynlífssenunum. Hún hataði hverja einustu sekúndu á meðan á tökunum stóð. Eftir tökurnar, sem tóku nokkra daga, öskraði hún út um bílgluggann á leiðinni heim úr vinnunni til að losa um streituna sem hún upplifði. „Við æfðum senurnar í marga daga í röð og það voru erifðir dagar," sagði Michelle. „Í byrjun gengu tökurnar á létta þægilegar ástarsenur en þegar við lékum kynlífsatriðin var tilfinningin ömurleg. Tökurnar stóðu yfir heila eilífð. Ég keyrði langa vegalengd heim úr vinnunni á hverjum degi og setti höfuðið út um gluggann og öskraði af öllum lífsins sálar kröftum. Þannig tókst ég á við óþægilegheitin," sagði hún. 14.9.2010 09:15
Ljúka tónleikaferð á Íslandi Gítarleikarinn Sigurður Rögnvaldsson, sem er búsettur í Svíþjóð, heldur tvenna tónleika hér á landi annað kvöld og fimmtudagskvöld með hljómsveitinni Defekt. Tónleikarnir verða þeir síðustu í tónleikaferð sveitarinnar um Norðurlönd til að fylgja eftir plötunni Pete’s Game Machine. Tónlistinni má lýsa sem djassi með áhrifum frá rokki, poppi og brimbrettatónlist. 14.9.2010 09:00
Tvö ný andlit í Gettu betur Spyrillinn Edda Hermannsdóttir og stigavörðurinn Marteinn Sindri Jónsson eru ný andlit spurningakeppninnar Gettu betur sem hefur göngu sína í Sjónvarpinu 19. febrúar. Höfundur spurninga verður sá sami og áður, Örn Úlfar Sævarsson. 14.9.2010 07:00
Uppvakningur gleymdist „Við réðumst í miklar endurbætur fyrir hálfu ári og þá kom sér vel að það varð eitthvert smáræði eftir sem við gátum nýtt okkur,“ segir Benedikt Guðmundsson hjá Draugasetrinu á Stokkseyri. 14.9.2010 06:00
Kolsvartur pakki frá XIII Rokksveitin XIII sendir frá sér tvöföldu plötuna Black Box í dag. Þar verða öll bestu lög sveitarinnar ásamt sjö nýjum lögum sem voru tekin upp í sumar. „Við erum búnir að spila mikið undanfarið ár og höfum fundið fyrir miklum áhuga,“ segir forsprakkinn Hallur Ingólfsson. 13.9.2010 20:00
Afþreyingin víkur fyrir Óskarsvænni dramatík Afþreyingarmyndir sumarsins sem hafa tröllriðið kvikmyndahúsum eru að hverfa á braut og eins og venjan er fylla alvarlegri og Óskarsvænni myndir þeirra skörð. 13.9.2010 17:30
Bannað að lyfta lóðum Leikkonan Christina Hendricks hefur verið bannað að lyfta lóðum í líkamsræktinni vegna vinnunnar en hún fer með hlutverk Joan Harris í sjónarpsþáttunum Mad Men, sem sýndur er á Stöð 2, þar sem mikið er lagt upp úr trúverðugleika karakterana. Christina heldur sér í formi með því að hreyfa sig þrisvar í viku en nú hefur henni verið bannað að lyfta lóðum í ræktinni. Handritshöfundur þáttanna, Matthew Weiner, hefur sannfært Christinu um að hætta að lyfta þungum lóðum því hann vill ekki að hún verði stæltari. „Matt myndi klikkast ef hann sæi massaðan handlegg því hann vill ekki að neitt sé í anda ársins 2010," sagði Christina. Christina er stolt af líkama sínum og hefur engan áhuga á að grenna sig, hvað þá létta sig. Foreldrar Christinu kenndu henni að vera stolta af því hvernig hún er vaxin. 13.9.2010 16:30
Sagði börnunum ekki frá krabbameininu Leikkonan Marcia Cross, 48 ára, sagði börnum sínum ekki frá því þegar pabbi þeirra greindist með krabbamein. Desperate Housewives leikkonan á þriggja ára gamlar tvíburadætur, Eden og Savönnuh, með eiginmanni sínum Tom Mahoney. Tom fékk krabbamein á síðasta ári. Í dag lítur allt út fyrir að Tom hafi náð að sigrast á krabbameininu eftir að hafa farið í gegnum lyfjameðferð. Marcia var óttaslegin þegar Tom fékk fréttirnar en upplýsti ekki ungar stúlkurnar sínar því hún vildi ekki hræða þær. Við ákváðum að segja þeim ekki frá því þó við vissum ekki hvernig heilsa Tom yrði," sagði Marcia. Þær njóta tilverunnar áhyggjulausr og pabbi þeirra er hraustur í dag. Veikindin tilheyra fortíðinni og hann vill ekki segja þeim frá því strax," sagið hún. 13.9.2010 15:00
Æfir 5 sinnum í viku Danska leikkonan Brigitte Nielsen, 47 ára, er ánægð með líkama sinn sem er í það góðu formi að hún gæti auðveldlega tekið að sér að leika í spennumynd þar sem útlit og úthald þarf að vera framurskarandi að hennar sögn. Brigitte sem skildi við leikarann Sylvester Stallone árið 1987,hefur æft eins og enginn væri morgundagurinn undanfarin ár. Ég hef lést gríðarlega mikið síðan ég byrjaði að æfa og taka mataræðið íg egn og mér líður frábærlega vel með líkama minn á ný, sagði Brigitte. Hún segir að líkamsræktin taki töluverðan tíma frá annasamri dagskrá en það sé svo sannarlega þess virði því útkoman er frábær. Ég neyðist til að æfa fimm sinnum í viku í klukkutíma sí senn svo ég sjái árangur sem ég er ánægð m eð," sagið hún. 13.9.2010 13:00
Brjóstagjöf lykill að kjörþyngd Mamma brasilísku ofurfyrirsætunnar Gisele Bündchen er hetjan hennar. Gisele, sem á soninn Benjamin fyrir níu mánuðum, með eiginmanni sínum Tom Brady elskar móðurhlutverkið. Mamma hennar, Vânia, er fyrirmyndin í lílfi hennar. Mamma er hetjan mín. Ég kann virkilega að meta allt sem hún hefur gert. Hún ól upp sex börn samhliða vinnunni og nágrannarnir hjálpuðu okkur. Hverfið var eins og ein stór fjölskylda," sagði Gisele. Gisele var mætt aftur í vinnuna aðeins sex vikum eftir að hún eignaðist drenginn en hún þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að grennast aftur. Hún borðaði holla fæðu yfir meðgönguna og heldur því fram að brjóstagjöfin hafi hjálpað til að ná kjörþyngd á ný. Hún tekur drenginn með sér hvert sem hún fer. Ég er svo heppin að geta tekið hann með mér hvert sem ég fer. Ég geri ekkert án hans. Við höfum verið aðskilin í þrjá klukkutíma," sagði Gisele. 13.9.2010 11:30
Troðfullt á súlukeppni Meðfylgjandi myndir voru teknar á Íslandmeistaramótinu í Súluformi sem fram fór Re-Play Sportbar um helgina. „Keppnin gekk afskaplega vel. Stelpurnar sýndu atriðin sín sem voru ekkert smá flott. Húsið var troðið og mögnuð stemming," svaraði Inga Dungal framkvæmdastjóri keppninnar spurð hvernig til tókst. Sólveig Steinunn Pálsdóttir sigraði en hana sjá hér (youtube) og Eva Rut Hjaltadóttir landaði öðru sætinu eins og sjá má hér (youtube). Myndirnar tók Sveinbi ljósmyndari hjá Súperman.is. 13.9.2010 10:15
Tískuvikurnar byrjaðar Nú eru tískuvikur haustsins að fara af stað og er það New York sem reið á vaðið um helgina. Verið er að sýna tískustrauma og stefnur næsta vors og sumars. Stjörnurnar flykkjast til borgarinnar til að sýna sig og sjá aðra sem og að drekka í sig tískuna. 13.9.2010 10:00
Victoria nakin í lyftu Hjónin David og Victoria Beckham leika saman í sjónvarpsauglýsingu fyrir nýtt ilmvatn sem ber nafnið 13.9.2010 09:45
Óútgefin bók Jónínu seld til Þýskalands Þýska forlagið Kiepenheuer und Witsch hefur fest kaup á óútgefinni bók Jónínu Leósdóttur. Bókin kemur út í nóvember hér á landi en Þjóðverjarnir hrifust svo af handritinu að þeir ákváðu að eigna sér það strax. 13.9.2010 14:00
Ófáanlegar gersemar „Okkur finnst þetta vera ófáanlegar gersemar sem eru að koma út. Við teljum þetta vera poppsögulegt innlegg,“ segir Karl Roth úr hljómsveitinni Melchior sem gaf fyrir skömmu út tvöföldu plötuna Um er að ræða 13.9.2010 13:00
Noel frestar plötuútgáfu Noel Gallagher, gáfaða bróðurnum úr Oasis, liggur ekkert á að taka upp nýtt efni fyrir sólóplötu sína. Hann ætlar að einbeita sér að komandi erfingja. Noel yfirgaf Oasis í ágúst á síðasta ári eftir að hafa lent í slag við yngri 13.9.2010 12:00
Jay-Z vill eiga Arsenal Rapparinn Jay-Z hefur mjög mikinn áhuga á að fjárfesta í enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal. Jay-Z, sem er kvæntur söngkonunni Beyoncé Knowles, hefur verið aðdáandi liðsins síðan Frakkinn Thierry Henry lék með því fyrir nokkrum árum. 13.9.2010 10:00
Skólahreysti vettvangur nýrrar bíómyndar Unglingakeppnin Skólahreysti, þar sem grunnskólnemar landsins keppa í allskyns íþróttaþrautum, verður miðpunktur nýrrar íslenskra unglingamyndar sem framleiðslufyrirtækið Saga Film hyggst gera. 13.9.2010 09:00
Hefur ekki sungið í fimmtán ár Jónmundur Grétarsson gerði garðinn frægann fyrir fimmtán árum í leikritinu Bugsy Malone þar sem hann heillaði áhorfendur með sóp í hönd raulandi lagið „Á morgun“. Nú hefur hann ákveðið að dusta rykið af leikaraferlinum og fer með hlutverk Sams Cook í söngleiknum Buddy Holly. „Það hefur alltaf 13.9.2010 08:00