Fleiri fréttir

Hafnaði í 14. sæti á fyrsta heimsmeistaramóti barna

Hin níu ára gamla Sesselja Sif Óðinsdóttir tók fyrir skemmstu þátt í fyrsta heimsmeistaramóti barna í fitness sem fram fór í Slóvakíu. Sesselja Sif er dóttir Kristínar Kristjánsdóttur, Íslandsmeistara kvenna í fitness, og stjúpdóttir Sigurðar Gestssonar, vaxtarræktarkappa.

Frægir Íslendingar í rassvasabók

„Þessi bók er fræðandi og skemmtileg þó þú sért ekki að nota hana í leiknum Hver er maðurinn? Hún rifjar upp marga aðila sem fólk hefur gleymt en gaman er að muna aftur," segir skopmyndateiknarinn og útgefandinn Hugleikur Dagsson.

Byggir danstónlistarbrú milli Reykjavíkur og Ibiza

Plötusnúðurinn og eigandi Flex Music, Kristinn Bjarnason, lenti í miklu ævintýri á partíeyjunni Ibiza. Komst hann að því að mikill áhugi er þar á Íslandi. Lenti hann á fundi með áhrifamiklum mönnum sem vilja fara með Ibiza til Íslands og flytja Íslendinga út.

Frumburður væntanlegur

„Þetta er í fyrsta sinn sem ég virkilega þrái að eignast börn," er haft eftir Vince.

Kærastarnir vildu ekki athyglina

Kim Kardashian segir að ástarsambönd fortíðar hafi ekki gengið upp hjá henni því elskuhugar hennar hafi ekki kunnað við alla þá athygli sem hún fær. Kim, sem áti í ástarsambandi við íþróttamenn á borð við Reggie Bush, Miles Austin og fyrir ekki alls löngu Cristiano Ronaldo, segir að starf hennar gangi út á að vera stöðugt í sviðsljósinu.

Háð SMS skilaboðum

Leikkonan Leighton Meester, 24 ára, er eins og flest okkar því hún er háð því að senda og taka á móti sms skilaboðum vina og fjölskyldu og að hanga á Facebook þegar hún er ekki upptekin við að leika Blair Waldorf í Gossip Girl sjónvarpsþáttunum. Leighton Meester skrifaði eftirfarand á vefsíðu sjónvarpsþáttarins þar sem hún fer með eitt af aðalhlutverkunum: „Ég er rosalega fljót að skrifa og senda sms skeyti. Ástæðan er sú að ég sendi allt of mörg sms á daginn og næturna. Ég er háð þessu samskiptaformi."

Pamela kærir sig ekki um bótox

Margir muna eftir Pamelu Anderson skokka á ströndinni í Baywatch sjónvarpsþáttunum. Hún segist vilja eldast á náttúrulegan máta þegar kemur að andliti hennar. „Ég hef aldrei farið í bótox því ég er ekki hrifin af því að láta eiga við andlitið á mér. Mér líkar alls ekki við andlitslýtaaðgerðir. Þær hræða mig. Þú sérð fólk sem breytist ekkert með aldrinum og það er skrýtið. Ég ætla ekki að verða þannig," sagði Pamela.

Elskar að svitna

Leikkonan Eva Green, sem sumir vilja meina að hafi verið ein áhugaverðasta Bond-gella sögunnar því að hún hafði persónuleika í myndinni Casino Royale, er hrifin af því að svitna því það lætur henni líða vel. Eva leggur sig fram við að vera í góðu líkamlegu formi og hún viðurkennir að stundum nennir hún ekki í ræktina en þegar hún finnur hvernig líkaminn bregst við eftir átök er hún sannfærð um að æfingarnar gera henni gott. „Þegar ég er í London mætir einkaþjálfarinn minn heim til mín og við lyftum lóðum og hreyfum okkur. Þá svitna ég mikið og líður mjög vel eftir á," sagði Eva. Hún segir að fötin séu algjört aukaatriði þegar hún er í góðu formi.

Kelly Osbourne vill leika mömmu sína

Kelly Osbourne dóttir rokkarans Ozzy Osbourne og Sharon, mun að öllum líkindum leika mömmu sína í væntanlegri kvikmynd um pabba hennar Ozzy og hans skrautlega líferni. Valið stendur á milli Johnny Depp og Colin Farrell fyrir hlutverk Ozzy. „Til stendur að Colin Farrell leiki pabba. Með fullri virðingu fyrir Colin (34 ára) þá er hann allt of gamall fyrir hlutverkið," er haft eftir Kelly. Mamma hennar framleiðir myndina.

Tom Hanks: Leikur sér ennþá með leikföng

Leikarinn Tom Hanks, 54 ára, sem ljáir kúrekanum Vidda rödd sína í Toystory kvikmyndunum um leikföngin, segist elska að leika sér með leikföng. Foreldrar Tom skildu þegar hann var fimm ára. Þá flutti hann til föður síns og í kjölfarið ferðuðust feðgarnir meira og minna og voru síflytandi. „Ég hef mög gaman af að leika mér með leikföng og geri það nánast alltaf þegar ég hef tíma. En ég man ekki eftir að hafa gefið öðrum leikföngin mín. Þau hurfu bara flutningunum," segir Tom. Tom á fjögur börn: Colin, 32, og Elizabeth, 28, frá fyrra hónabandi þegar hann var giftur Samönthu Lewes, og Chester, 19, og Truman, 14 ára, á hann með núverandi eiginkonu sinni Ritu Wilson.

Angelina Jolie sefur ekki út af börnunum

Störnuparið Angelina Jolie, 35 ára, og Brad Pitt, 46 ára, sofa lítið enda eiga þau sex börn, Maddox, 8 ára, Pax, 6 ára, Zahara, 5 ára Shiloh, 4 ára og tveggja ára tvíburana Knox og Vivienne. Angelina segist elska að vera mamma og viðurkennir að hún og Brad hafi áhuga á að stækka fölskylduna enn frekar. „Eldsnemma á morgnana erum við svo þreytt og lítum á hvort annað og hugsum með okkur hvort við eigum ekkert að fá að sofa!" sagði Angelina. Angelina elskar fjölskyldulífið og efast ekki um að hjónabandið verði farsælt.

Feðgarnir Herbert og Svanur með nýtt lag

Feðgarnir Herbert Guðmundsson og Svanur Herbertsson, sem kalla sig Herbertson, hafa sent frá sér lagið Time. Það er fyrsta lagið af væntanlegri plötu þeirra sem er væntanleg með haustinu. Á meðal fleiri sem koma við sögu á plötunni eru Gunnlaugur Briem, Stefán Magnússon, Tryggvi Hübner og Haraldur Þorsteinsson. Í bakröddum eru reynsluboltarnir Magnús og Jóhann.

Kvikmynd um ævintýraför Thors Vilhjálms frumsýnd

Thor Vilhjálmsson gekk um 800 kílómetra til Santiago de Compostela á Spáni árið 2005. Ferðin var kvikmynduð og verður myndin, sem er í fimm hlutum, frumsýnd á næstunni. Thor lenti í ýmsu á ferðalaginu og var ráðlagt að vera með göngustaf til að berja frá sér villihunda.

Valli Sport hættur sem umboðsmaður Haffa Haff

„Þetta er mjög persónulegt mál fyrir mig því mér þykir mjög vænt um Valla. Við störfum enn saman en við höfðum bara mismunandi hugmyndir um framtíðina," segir tónlistarmaðurinn Haffi Haff.

Fríir tónleikar úti á götu stöðva umferð

Lady Gaga stöðvaði alla umferð í New York síðastliðinn föstudag þegar meira en 20.000 aðdáendur söngkonunnar troðfylltu göturnar til að sjá ókeypis tónleika hennar í rigningunni.

Koma fram í kraftgöllum í Noregi

„Við vorum að fá staðfestingu frá Norðmönnum um að við erum bókaðir á Insomnia tónlistarhátíðina næsta haust," segir Hrafnkell Flóki Einarsson sem ásamt Guðlaugi Halldóri Einarssyni skipar raftónlistardúóið Captain Fufanu sem spilar í fyrsta sinn á erlendri grundu í haust.

Beinir sviðsljósinu að London

„Þetta býður upp á marga möguleika, bæði að túra með hljómsveitum og að vinna í stórum leikhúsum,“ segir Einar Ingi Jóhannesson sem er á leiðinni til London í haust til að læra ljósahönnun fyrir leikhús.

Jessica Simpson fallin fyrir giftum manni

Söngkonan Jessica Simpson hefur undanfarnar vikur sést í félagsskap fyrrum fótboltastjörnunnar Erics Johnson. Parið sást nýverið leiðast á túristaeyjunni Capri á Ítalíu og gera fjölmiðlar mikið veður út af þessu þar sem Johnson er tæknilega séð giftur maður.

Pamela hræðist bótox

Fyrirsætan, leikkonan og athafnakonan Pamela Anderson segist aldrei hafa notað yngingarmeðalið bótox og að henni sé í raun illa við það. Pamela, sem hefur ávallt verið ófeimin við að viðra sínar jákvæðu skoðanir á fegrunaraðgerðum, segist ekki vilja sprauta neinu í andlitið á sér. Þykir þessi ákvörðun Anderson koma ansi spánskt fyrir sjónir þar sem hún hefur látið stækka brjóst sín nokkrum sinnum og hefur meðal annars látið hafa það eftir sér í viðtölum að brjóst hennar hafi átt farsælan starfsferil á meðan hún hafi bara fylgt með.

Teiknimynd í efsta sætið

Teiknimyndin Despicable Me fór beint í efsta sætið yfir vinsælustu myndirnar vestanhafs um síðustu helgi.

Fergie er reynslunni ríkari

Söngkonan Fergie er ekki í peningavandræðum um þessar mundir enda er hljómsveitin hennar The Black Eyed Peas eitt heitasta bandið í heiminum. Líf Fergie hefur ekki alltaf verið dans á rósum. Í dag er hún þakklát fyrir velgengnina. Fergie, sem ánetjaðist fíkniefnum eftir að hún yfirgaf kvennahljómsveitina Wild Orchid árið 2001 lét hafa eftir sér: „Í þá daga þurfti ég að flytja aftur heim til mömmu og fara á atvinnuleysisbætur af því að ég hafði eytt öllum laununum mínum í eiturlyf. Ég er reynslunni ríkari í dag og kann að meta allt sem tilveran færir mér."

Haffi Haff og Páll Óskar saman - myndband

Það telst til tíðinda þegar tveir heitustu poppsöngvarar landsins sameinast. „Vitið þið hvað! Um daginn þá skellti ég mér á þá geðsjúkustu útgáfutónleika sem ég hef séð á Íslandi...." segir Páll Óskar Hjálmtýsson í þessu myndbandi. „Ég er með æðislegar fréttir. Sjóvið verður endurtekið hér á Nasa..."

Vilja bjarga hjónabandinu

Leikkonan Kate Winslet og leikstjórinn Sam Mendes ætla að reyna að bjarga hjónabandi sínu með því að fara saman í rómantískt sumarfrí. Þau komust í fréttirnar í mars þegar þau tilkynntu að sjö ára hjónaband þeirra væri á

Sumir eldast fáránlega vel - myndband

„Ja hver hefði trúað því ..." sagði útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson, þegar lag Herberts Guðmundssonar Time var frumflutt á Bylgjunni í morgun. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá Herbert og Ívar. LIVE á Bylgjunni hér (óbirt efni).

Svona slakaðu á og njóttu - myndband

„Ef þú ert fyrir þetta kröftuga þá tvímælalaust..." sagði Hafsteinn Tómas Sverrisson kaffibarþjónn spurður út í kaffidrykkju snemma morguns. „Expresso er rosalega fínt ef þú kannt að drekka hann."

Kennir upprennandi DJ-um

Plötusnúðurinn Guðni Einarsson, eða DJ Impulze, stendur fyrir sérstökum plötusnúðanámskeiðum þar sem hann kennir upprennandi plötusnúðum á öll helstu tónlistarforritin sem notuð eru í dag. Námskeiðin vinnur hann í samstarfi við Hljóðfærahúsið og Tónabúðina.

Málverk í íslenskum hellum

Írski listamaðurinn Philip Gray var staddur hér á landi á dögunum þar sem hann málaði myndir á hinum ýmsu stöðum. Landmannalaugar, Hekla og Silfra á Þingvöllum voru á meðal viðkomustaða.

Kaflar teknir úr nýrri bók

Breski leikarinn Jude Law hefur unnið mál sem hann höfðaði gegn Sadie Frost, fyrrverandi eiginkonu sinni. Law var afar ósáttur við væntanlega bók Frost, Crazy Days. Krafðist hann þess að hún fjarlægði ljósmyndir af börnunum þeirra og tæki út texta sem fjallaði á opinskáan hátt um stormasamt hjónaband þeirra. Samkvæmt kunningja leikarans verða me

Keyrði inn um glugga

Söngvarinn George Michael var handtekinn í London um helgina fyrir að keyra bíl sinn inn í ljósmyndabúð. Kappinn var á leið heim frá hátíðarhöldum í tengslum við Gay Parade í London og mun hafa ekið Range Rover-bifreið sinni beint inn um glugga búðarinnar sem er í sömu götu og hann býr. Mun söngvarinn hafa litið taugaveiklaður út þegar hann steig út úr bílnum að sögn vitna á svæðinu.

Hvílir sig á kvikmyndunum

Leikkonan Drew Barrymore ætlar að taka sér hlé frá kvikmyndabransanum og íhuga sinn gang í lífinu. Hún hefur unnið látlaust undanfarin þrjú ár, leikstýrt sinni fyrstu mynd Whip It! og leikið í myndum á borð við Grey Gardens og He"s Just Not that into You. Núna er hún orðin dauðþreytt og vill taka sér hlé til að ná áttum í lífinu og íhuga næstu skref.

Hljóðupptökunám í Orlando

„Þetta er mjög nútímalegur skóli og það er frábært að vera þarna,“ segir Benedikt Steinar Benediktsson. Hann stundar nám í hljóðupptökutækni við hinn virta háskóla Full Sail í Orlando í Bandaríkjunum. Benedikt er í BA-námi um þessar mundir og hyggur á meistaranám að því loknu.

Vill ekki breytast

Tónlistarmanninum Sting er alveg sama þótt sumum finnist hann falskur og pirrandi vegna þess að fáir vita hver hans raunverulegi persónuleiki er. Sting hefur verið duglegur að koma skoðunum sínum á framfæri í gegnum árin. Hann hefur barist fyrir mannréttindum, gegn eyðingu regnskóganna og reynt að fá maríjúana-eiturlyfið lögleitt. Hann veit að sumt fólk g

Uppgötvuð með ömmu sinni í Húsdýragarðinum

„Ég var með rosalega flott hár og fannst þetta mjög gaman. Ég lærði að gera svona sjálf og ætla að sýna Karólínu systur minni þegar ég kem heim. Við fengum að skipta tvisvar sinnum um föt og við frænkurnar áttum skemmtilegan dag,“ segir hin átta ára gamla Elena Dís Ásgeirsdóttir.

Þarf að sigrast á nikótínfíkninni

Leikkonan Lindsay Lohan þarf að sigrast á sígarettufíkninni þegar hún verður lokuð inni í kvennafangelsi síðar í mánuðinum. Vinir hennar óttast mjög um hana.

Rennandi blaut - myndband

„Ég hef einu sinni farið..." viðurkenndi Heiða Kristín Másdóttir starfsmaður Ylstrandarinnar spurð út í sjósundið sem er vinsælt um þessar mundir þegar við spjölluðum við hana og kollega hennar, Torfa Bryngeirsson fyrr í dag. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá viðtalið. Nautholsvik.is

Laug að foreldrum að kærastan væri blökkumaður - myndband

Við hittum Kristjönu Björk Traustadóttur sem selur skartgripi sem hún bjó til í Kolaportinu í dag og á morgun, sunnudag. „Ég er ekki lærð. Ég er bara sjálflærð. Þetta er úr íslenskri þæfðri ull. Það er undirstaðan," sagði Kristjana spurð út í skartgripina hennar. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá viðtalið við Kristjönu. PELE skart á Facebook.

Steindi jr í stuði - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá Steinda jr og sýslumanninn á Selfossi, Ólaf Helga Kjartansson, skemmta sér í Mosfellsbæ á tónleikum þar sem gömul lög Rolling Stones voru flutt við mikinn fögnuð viðstaddra. Hljómsveitarmeðlimir sem skemmtu gestum voru Bjössi, Bjarni og Krummi og Birgir Ísleifur úr Motion Boys. Af því að sagan segir að sýslumaðurinn hafi neyðist til að fresta komu sinni á ættarmót vegna tónleikanna birtum við umrædda myndasyrpu.

Charlies í partí í Playboy-setrinu

„Við vorum að fá staðfestingu á að okkur er boðið í partí á mánudagskvöldið. Það er sko mikið ferli að komast inn í þessi playboypartí og allir verða að senda mynd og umsókn sem síðan er yfirfarin af starfsmönnum Playboy. Það má því kalla þetta ákveðinn heiður fyrir okkur að komast inn,“ segir Alma, söngkona í hljómsveitinni The Charlies, hlæjandi og viðurkennir að þær séu allar spenntar að berja Playboyhöllina augum en að þetta sé um leið mjög skrýtið og frekar fyndið.

Ólétt Fox?

Leikkonan Megan Fox giftist kærasta sínum, leikaranum Brian Austin Green, við látlausa athöfn á Hawaii fyrir stuttu. Nú vilja fjölmiðlar meina að parið hafi ákveðið að ganga í hið heilaga því Fox eigi von á sér.

Konan hélt framhjá

Gamanleikarinn Kelsey Grammer stendur nú í skilnaði við eiginkonu sína, Camille Grammer, en þau eiga þrettán ára samband að baki. Samkvæmt heimildum eiga hjónin að hafa rifist oft og gjarnan síðustu mánuði bæði vegna fjárhagsörðugleika og vegna meints framhjáhalds Camille.

LungA haldin í tíunda skipti

Listahátíðin LungA hefst á mánudaginn. Á hátíðinni má finna listasmiðjur, kvöldskemmtanir, tónleikaveislur og uppskeruhátíð svo eitthvað sé nefnt. Mánudaginn 12. júlí hefst hin árlega listahátíð LungA sem haldin er á Seyðisfirði. Hátíðin hefst með opnunarathöfn þar munu leiðbeinendur og LungAráð kynna sig ásamt ýmsum listauppákomum. Einnig mun söngkonan Lay Low spila fyrir gesti.

Holmes til Glee

Leikkonan Katie Holmes hefur nú staðfest að hún muni heiðra vinsælu þáttaröðina Glee með nærveru sinni í næstu seríu. Holmes, sem er hvað frægust fyrir að vera gift leikaranum Tom Cruise, mun leika gestahlutverk í fimm þáttum í þessaru sjónvarpsþáttaseríu sem sýndir eru á Stöð 2 hér á landi. Þættirnir eru með söngleikjasniði og mun leikkonan vera byrjuð að æfa sig af krafti til að geta látið ljós sitt skína í söng og dansi.

Úr vöðvabúnti í kryppling

„Ég gæti ekki verið hamingjusamari með þessa skiptingu,“ segir tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Hann leikur krypplinginn Riff Raff í stað hins fullkomna karlmanns Rocky í söngleiknum Rocky Horror sem verður frumsýndur hjá Leikfélagi Akureyrar 10. september.

Syngur um þrá og einlægni

Jónas Sigurðsson, fyrrverandi Sólstrandagæi, sendir frá sér sína aðra plötu í byrjun október og kemur hún út á vegum Cod Music.

Sjá næstu 50 fréttir