Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Framtíð Iceland Airwaves ræðst í lok næstu viku Að öllum líkindum mun það ráðast í lok næstu viku hvort Icelandair og Reykjavíkurborg gera nýjan samstarfssamning við fyrirtækið Hr. Örlyg vegna Iceland Airwaves-tónlistarhátíðarinnar. 12.3.2010 08:00
Fóstbræður á leiksvið Grínhópurinn Fóstbræður hertekur stóra svið Borgarleikhússins í mars á næsta ári þegar ný leiksýning úr smiðju hans verður frumsýnd. Upphaflegi hópurinn kemur að þessari uppfærslu en hann samanstendur af Jóni Gnarr, Benedikt Erlingssyni, Sigurjóni Kjartanssyni, Gunnari Jónssyni, Helgu Brögu og Hilmi Snæ Guðnasyni. Benedikt mun hins vegar láta sér nægja að sitja í leikstjórastólnum. Hópurinn hefur þegar hist á nokkrum fundum og er byrjaður að skrifa handrit að sýningunni. 12.3.2010 07:00
Þungarokk fyrir dómnefnd Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verður haldin á Sódómu Reykjavík á laugardaginn. Sjö hljómsveitir berjast um að komast út til að spila á hátíðinni Wacken Open Air í Þýskalandi og taka þátt í lokakeppni Wacken Metal Battle þar. Til mikils er að vinna, því sigursveitin fær plötusam 12.3.2010 06:00
Tíu stelpur í sleik í myndbandi Elektru „Það er rosalega mikið af fallegum konum í myndbandinu,“ segir Nana Alfreðsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar Elektra. 12.3.2010 05:00
Árshátíð FB og Frumskógarlögmálið Árshátíð FB var haldin í gær og gekk allt mjög vel! Dagurinn byrjaði þó a frumsýningu árshátíðarleikritssins, Frumskógarlögmálið, og var svo farið í árshátíðarmatinn í Súlnasal Hótel Sögu og svo á ballið í Turninum í Kópavogi. 11.3.2010 20:25
Gettu betur: FB - FSu Laugardaginn 27. febrúar, mættu strákarnir okkar í Gettu Betur liði FSu í 8 liða úrslitum spurningakeppninnar. Keppnin fór fram í myndveri Útvarpshússins við Efstaleiti. Liðið okkar skipa þeir Jóhann Andri Kristjánsson, Sigurgeir Örn Sigurgeirsson og Þorvaldur Hauksson en þeir hafa staðið sig eins og hetjur í keppnunum. 11.3.2010 20:05
Josefin sannfærði systur sína um að skilja ekki við Tiger Það var Josefin, mágkona Tigers Woods, sem sannfærður Elínu, systur sína, um að skilja ekki við Tiger. Þetta kemur fram á vefnum Radaronline. Þar segir að Elin hafi ráðið snjallan skilnaðarlögfræðing eftir að hún komst að því að Tiger hefði margsinnis haldið framhjá henni. 11.3.2010 20:17
Clint Eastwood gerir mynd um J. Edgar Hoover Hinn sívinsæli Clint Eastwood er í startholunum fyrir næsta verkefni. Hann ætlar að leikstýra mynd um J. Edgar Hoover, forstjóra FBI til langs tíma. Þetta kemur fram í Hollywood Reporter. 11.3.2010 17:06
Skipti krakkpípunni út fyrir heilsufæði og vítamín Villingurinn Amy Winehouse sást á dögunum í verslunarferð í Lundúnum. Sem væri ekki fréttnæmt í sjálfu sér fyrir utan að hún verslaði heilsufæði og vítamín. 11.3.2010 15:02
Twilight stjarna lögð í einelti Twilight stjarnan og hjartaknúsarinn Robert Pattinson segir að hann hafi verið lagður í einelti þegar hann var unglingur. Ástæðan fyrir eineltinu mun vera sú að hann hafi sagt öllum að hann ætlaði sér að verða leikari og fór það eitthvað í taugarnar á samnemendum hans. 11.3.2010 13:11
Vinir Haim segja að hann hafi ekki tekið of stóran skammt Fyrrverandi unglingastjarnan Corey Haim sem lést í gær tók ekki inn of stóran skammt lyfja að því er vinir hans fullyrða. Þeir segja að Haim hafi verið með flensu dagana áður en hann lést og umboðsmaður hans segir að hann hafi verið hættur að ofnota lyf, en Haim hafði barist við fíkniefnadjöfulinn í fjöldamörg ár. 11.3.2010 10:14
Feldberg í útrás Feldberg-lagið „Dreamin‘„ verður á safnplötunni Kitsuné Maison Compilation 9 sem kemur út í apríl. Þetta er mikill heiður því franska fyrirtækið Kitsune Music, sem gefur plötuna út, er leiðandi í útgáfu á rafvæddri popptónlist, e 11.3.2010 08:00
Barnahátíð í undirbúningi Í gær afhenti borgarstjórinn í Reykjavík ungri stúlku verðlaun í Foldaskóla fyrir merki hátíðar sem haldin verður í borginni í apríl og helguð verður menningu krakka. Nefnist hún Barnamenningarhátíðin og verður haldin 11.3.2010 07:00
Fínn peningur fyrir að selja lag í Grey‘s Anatomy „Ég hef aldrei séð þessa þætti. Ég bara vona að þeir séu ekki hræðilegir,“ segir Sindri Már Sigfússon úr hljómsveitinni Seabear sem á lag í læknaþættinum vinsæla Grey"s Anatomy, sem um 15 milljónir Bandaríkjamanna horfa á í hverri viku. 11.3.2010 07:00
Mikill metnaður í Kimono Kimono heldur útgáfutónleika sína í Íslensku óperunni í kvöld. „Þetta eru „stærstu“ tónleikar okkar miðað við hvað við erum að leggja í þetta,“ segir Gylfi Blöndal, einn meðlima sveitarinnar. „Óperan er stórt hús, einstaklega falleg í sinni upprunalegu mynd og þessir tónleikar verða mikið sjónarspil. Aukaleikarar stíga á svið, gríðarlegt ljósasjó verður sett upp og vi 11.3.2010 06:00
Sömdu fyrir leikrit Skagahljómsveitin Cosmic Call, sem gaf út sína fyrstu EP-plötu í fyrra, semur stóran hluta tónlistarinnar í leikverkinu Karíókí sem var frumsýnt í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á dögunum. 11.3.2010 06:00
Veðja á Lapidus í stað Larsson Sena hefur tryggt sér sýningarréttinn á sænsku spennumyndinni Snabba Cash, sem hefur notið gríðarlegra vinsælda í heimalandi sínu. Myndin er byggð á samnefndri bók Jens Lapidus og vonast forsvarsmenn Senu til að hún fylgi eftir vinsældum myndanna sem eru byggðar á metsölubókum Stiegs Larsson. 11.3.2010 06:00
Auðunn keppir um 400 milljónir Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal tekur þátt í einu stærsta pókermóti heims þegar hann sest við eitt af spilaborðunum í spilavítinu Monte Carlo við Grace-götuna í Mónakó og keppir á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í póker 11.3.2010 06:00
Frægasti kokkur Íra er íslenskur Frægasti sjónvarpskokkur Írlands, Rachel Allen, er íslensk í móðurættina. Þetta kemur fram í viðtali við hana í bandaríska veftímaritinu San Gabriel Valley Tribune. „Ég eldaði ekki mikið heima, mamma sá aðallega um það,“ segir Rachel í viðtalinu. 11.3.2010 06:00
Jökullinn stal yfirleitt senunni Halldór Lárusson hefur haldið úti vefsíðunni trommari.is í meira en eitt ár. Nú hefur umfjöllun um Gunnar Jökul Hákonarson dregið dilk á eftir sér og stefnt er á minningartónleika í haust. 11.3.2010 05:00
GusGus í Fellunum Nýjasta myndband GusGus, við lagið „Thin Ice“, er komið á Netið. Þetta er annað smáskífulag sjöundu breiðskífu sveitarinnar, 24/7, sem kom út í fyrra. 11.3.2010 05:00
Semja tónlist í gegnum Skype „Þetta verður vonandi besta og flottasta gigg sem við höfum spilað, ef allt gengur eftir,“ segir Addi, gítarleikari Sign. 11.3.2010 04:00
Leikur Lombardi Stórleikarinn Robert De Niro hefur tekið að sér aðalhlutverkið í nýrri mynd um hinn þekkta bandaríska ruðningsþjálfara Vince Lombardi. Myndin fjallar um það góða starf sem Lombardi vann hjá Green Bay Packers þegar hann gerði liðið að meisturum. „Það eru fáir leikarar sem geta sýnt jafn vel e 11.3.2010 03:30
Jesus vill eldri konur Jesus Luz, kærasti hinnar sívinsælu Madonnu, játar að vera sérstaklega gefinn fyrir eldri konu. Það þarf kannski ekki að koma á óvart því að 28 ára aldursmunur er á þeim turtildúfunum. 10.3.2010 21:02
Nýtt Aniston ilmvatn væntanlegt á markað Vinsældum Jennifer Aniston, sem má segja að hafi heillað alla heimsbyggðina með þokkafullri hárgreiðslu sinni, virðast engin takmörk sett. Nú er rætt um að setja á markað ilmvatn í hennar nafni. Aniston hefur meira að segja skrifað undir samning við Falic Group, sem setti á markað ilmvatn í nafni Evu Longoriu Parker. Búist er við því að ilmvatnið muni seljast vel. 10.3.2010 17:12
Unglingastjarnan Corey Haim er látinn Ein skærasta unglingastjarnan í Hollywood á níunda áratug síðustu aldar, Corey Haim, lést í morgun 38 ára að aldri. Að sögn lögreglunnar í Los Angeles er talið líklegast að ofneysla eiturlyfja hafi riðið honum að fullu. 10.3.2010 15:00
Chuck Norris sjötugur í dag Kvikmyndaleikstjórinn knái, Chuck Norris, er sjötugur í dag. 10.3.2010 14:00
Ekkert minnst á Förruh Fawcett á Óskarnum Aðstandendur leikkonunnar Förruh Fawcett eru miður sín eftir óskarsverðlaunahátíðina sem haldin var um helgina. Venja er að minnast þeirra leikara sem látist hafa á árinu á hátíðinni og var engin undantekning á því í ár. 10.3.2010 12:57
Demi kennir dóttur sinni súludans Demi Moore sýndi á dögunum að hún hefur engu gleymt í súlufimi frá því hún lék í Stiptease hérna um árið. Á dögunum mætti hún í partí ásamt 21 árs gamalli dóttur sinni, Rumer Willis, sem fram fór á hinu alræmda Chateu Marmont hóteli í Hollywood. 10.3.2010 10:39
Amy og Blake aftur upp að altarinu Amy Winehouse er að plana að giftast gamla kærastanum Blake Fielder-Civil á ný í Las Vegas. Turtildúfurnar voru gefnar saman í Miami árið 2007 en stuttu seinna var Blake handtekinn fyrir líkamsárás og dæmdur í 27 mánaða fangelsi. 10.3.2010 09:43
Tekur sér hlé frá rokkinu vegna gigtarvandamála „Maður er búinn að reyna að spara sig svolítið,“ segir Arnar Geir Ómarsson, einn færasti trommari landsins sem hefur lamið húðir með hljómsveitum á borð við Ham, Egó og Apparati Organ Quartet við góðan orðstír. 10.3.2010 06:45
Nýjasta myndband Gus Gus komið á netið Nýjasta myndband Gus Gus við Thin Ice er komið til sýninga á netinu. Thin Ice er önnur smáskífa hinnar rómuðu sjöundu breiðskífu sveitarinnar, "24/7". Í tilkynningu frá sveitinni segir að myndbandið hafi verið sýnt sérstökum velunnurum sveitarinnar á kósíkvöldi á Kaffibarnum seint í fyrra og voru undirtektir þá mjög hlýlegar. 10.3.2010 04:00
Sandra Bullock best klædd á Óskarnum Sandra Bullock vann ekki einungis Óskarsverðlaun fyrir besta leik í kvenhlutverki. Hún var líka best klædda leikkonan á verðlaununum samkvæmt skoðanakönnun á TVGuide.com. 9.3.2010 19:30
Lohan telur að ímynd sinni hafi verið stolið Hollywoodstjarnan Lindsay Lohan hefur stefnt fyrirtækinu E*Trade. Leikkonan geðþekka segir að mjólkursjúk stúlka sem birtist í auglýsingu á vegum fyrirtækisins sé búin til að fyrirmynd hennar. 9.3.2010 18:30
Guns N' Roses á túr um Suður-Ameríku Rokkararnir í Guns N' Roses eru ekki dottnir úr öllum æðum þrátt fyrir vafasamt líferni í gegnum tíðina. 9.3.2010 17:30
Cowell kallar Sting fábjána Simon Cowell, sem þekktastur er fyrir raunveruleikaþættina American Idol og X Factor kallaði söngvarann Sting fábjána í sjónvarpsþætti vestanhafs um helgina. 9.3.2010 16:30
Næstum 42 milljónir Bandaríkjamanna horfðu á Óskarinn Óskarsverðlaunaafhendingin í ár hlaut mesta áhorf síðan árið 2005, segir fréttastofan BBC. 9.3.2010 15:30
Gekk beint í flasið á lögreglunni Ameríski söngvarinn D'Angelo var handtekinn aðfaranótt sunnudagsins á Manhattan. Hann er sakaður um að hafa ætlað að kaupa sér munngælur. 9.3.2010 14:30
Tarantino sakaður um að hafa stolið Kill Bill Kvikmyndaleikstjóranum Quentin Tarantino hefur verið stefnt fyrir rétti. Ástæðan er sú að hann er sakaður um að hafa stolið kvikmyndahandriti og nýtt sér það við gerð Kill Bill myndarinnar. 9.3.2010 13:19
Britney má ekki tala við Lindsey Pabbi hennar Britney Spears hefur bannað henni að tala við Lindsey Lohan, en þær stöllur hafa skipst á að halda uppi slúðursíðum heimsins síðustu árin. Bandaríska slúðurblaðið The National Enquirer heldur því fram að pabbinn sé ekki par hrifinn af því að Britney hafi endurnýjað kynni sín við Lindsey. 9.3.2010 12:14
Cowell gerði góðverk og trúlofaðist Tónlistarmógullinn og sjónvarpsstjarnan Simon Cowell viðurkenndi það fyrir bandaríska spjallþáttastjórnandanum Jay Leno á dögunum að hann beðið ástkonu sinnar á Valentínusardaginn síðasta. „Góðverk,“ að sögn hins kjaftfora Breta. 9.3.2010 10:30
Sharon Osbourne vill selja sílikonbrjóstin sín á eBay Sharon Osbourne hefur áhuga á því að selja sílikonpúða úr brjóstum sínum á uppboði á eBay. Sharon hefur gengist undir ófáar lýtaaðgerðirnar og hefur nú fengið nú. 9.3.2010 10:17
Rappari hefur afplánun - myndir Rapparinn Lil Wayne hóf í gær afplánun á eins árs fangelsisdómi sem hann fékk fyrir að vera með hlaðna byssu í tónleikarútu sinni. Hann gæti átt von á því að vera sleppt eftir átta mánuði ef hann hagar sér vel. 9.3.2010 10:00
Lady Gaga er alveg gaga - myndir Söngkonan Lady Gaga hefur heldur betur slegið í gegn á undanförnum mánuðum. Hún hefur ekki eingöngu vakið athygli fyrir gríðarlega vinsæla tónlist sína heldur líka afskaplega nýstárlegan klæðaburð. 9.3.2010 09:00
Kreppa heimtar nýtt skipulag Írar standa frammi fyrir miklum niðurskurði á ríkisfjármálum vegna efnahagsþrenginga. Í tillögum stjórnvalda er rík áhersla lögð á hlut menningar í því endur-reisnarstarfi sem fram undan er. Gagnrýnendur hafa mætt þeim tillögum með tortryggni og benda á að stjórnvöld verði að 9.3.2010 08:00