Fleiri
Vinnur með hirðljósmyndara dönsku konungsfjölskyldunnar 1.7.2007 04:30 Ingvi Hrafn óttast ekki laxaleysið „Ég hef ekki nokkrar áhyggjur af ástandinu. Ég er sannfærður um að það kemur sprenging á næstunni, spurningin er aðeins hvenær hún verður,“ segir sjónvarps-, laxveiði- og athafnamaðurinn Ingvi Hrafn Jónsson, sem eins og undanfarin ár er við stjórnvölinn í Langá í Borgarfirði í sumar. 1.7.2007 02:30 Paris sökuð um lygar Paris Hilton hefur verið sökuð um að hafa logið að spjallþáttastjórnandum Larry King í viðtali sem tekið var við hótelerfingjann nokkrum dögum eftir að henni hafði verið sleppt úr fangelsi. Í viðtalinu sagðist Paris aðspurð aldrei hafa prófað eiturlyf á sinni ævi en í kjölfarið hafa ýmsir fjölmiðlar ytra rifjað upp gamlar sögur af stúlkunni. 1.7.2007 01:00 Sjá næstu 50 fréttir
Pete Doherty finnst hann ofsóttur af Kate Moss Pete Doherty hætti með Kate Moss en ekki öfugt. Doherty er nefnilega orðinn svo þreyttur á því að ofurfyrirsætan ofsæki sig. Parið lenti í alvarlegum rifrildum eftir að orðrómur komst á kreik um það að Babyshambles söngvarinn hefði haldið framhjá Moss með suður-afrískri fyrisætu. Í einu rifrildanna á Doherty að hafa líkt sambandinu við að búa með geðsjúkum aðdáanda. 4.7.2007 15:25
Nicole Richie ólétt Nicole Richie er ólétt. Að minnsta kosti telja TMZ.com og In Touch Weekly sig hafa staðfest það. ,,Nicole vildi ekki segja neinum frá því fyrr en hún væri komin lengra en þrjá mánuði á leið" sagði vinur stjörnunnar við In Touch ,,Henni tókst að halda þessu leyndu fyrir öllum" 4.7.2007 10:32
Johnny Knoxville sækir um skilnað Jackass stjarnan Johnny Knoxville, sem réttu nafni heitir P.J. Clapp, hefur sótt um skilnað frá eiginkonu sinni til tólf ára. Í skilnaðarpappírunum sem voru lagðir fram í rétti í Los Angeles í dag er ósættanlegum ágreiningi lýst sem ástæðu skilnaðarins. 4.7.2007 10:07
Geri grátbað um fyrirgefningu Geri Halliwell grátbað Victoriu Beckham um fyrirgefningu vegna þess hvernig hún yfirgaf hinar Kryddpíurnar á sínum tíma, sem síðar átti eftir að leiða til upplausnar stúlknasveitarinnar í heild sinni. Afsökunarbeiðnin kom fyrst frá Geri árið 2004 en það var ekki fyrr en nú sem Victoria ákvað að samþykkja hana. Þessar sögulegu sættir urðu til þess að Kryddpíurnar hafa komið saman að nýju. Þessu er haldið fram í enska götublaðinu The Sun í gær. 4.7.2007 10:00
Ólafur flýgur yfir sveitina á 150 milljóna króna þyrlu Ólafur Ólafsson í Samskipum ferðast ekki um á hefðbundnu farartæki þessa dagana, en um er að ræða stóra og mikla þyrlu af gerðinni Eurocopter AS 350 B3. 4.7.2007 09:45
Verslun Apu slær í gegn Markaðssetning Simpsons-kvikmyndarinnar er komin á fullt skrið í Bandaríkjunum og er óhætt að fullyrða að framleiðendur og markaðsmenn fari óhefðbundnar leiðir í þeim efnum. 4.7.2007 09:00
Ólafur sagður sænskur Íslendingar lenda stundum í því að nöfnum þeirra sé snúið á hvolf og farið er með rangt þjóðerni þeirra. Ólafur Jóhannesson er nýjasta fórnarlambið. 4.7.2007 08:30
Notar bara einkavélar Rapparinn og upptökustjórinn Timbaland neitar með öllu að fljúga með almennum flugfélögum þar sem hann óttast sýkla og kvefpestir sem almúgurinn kann að bera. Timbaland ferðast aðeins um í einkaþotum og helst með eins fáum samfarþegum og mögulegt er. 4.7.2007 04:00
Oliver Stone satanískur að sögn Ahmadinejad Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans hefur afþakkað boð leikstjórans Oliver Stone um að gera heimildarmynd um hann, á þeim forsendum að Stone sé hluti af satanísku menningarveldi. 3.7.2007 16:38
Endurnýja ekki samning við Kate Moss Aumingja Kate Moss. Fyrst heldur Pete Doherty framhjá henni með annari fyrirsætu, og núna eru nærfataframleiðendurnir Agent Provocateur að dömpa henni fyrir fimmtán árum yngri brúnettu. 3.7.2007 14:33
Ruslið hennar Parisar Hilton rokselst Tóm dós undan hundamat sem tekin var úr ruslatunnu Parisar Hilton seldist á tæpar nítján þúsund krónur á uppboðsvefnum Ebay. Sölumennirnir, sem voru frá vefsíðunni HollywoodStarTrash.com, voru með ýmsa aðra muni til sölu. 3.7.2007 12:36
Mýrin fær góðar viðtökur erlendra gagnrýnenda Mýrin var frumsýnd á erlendum vettvangi á sunnudagskvöldið þegar hún var sýnd fyrir troðfullu húsi í 1200 manna sal á kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary í Tékklandi. 3.7.2007 11:25
Lögreglan fylgist með klámframleiðslu „Ég stefni á að byrja á miðvikudag. Við ætlum að vera í bílskúr hjá félaga mínum og nýta hann sem sviðsmynd," segir Sigurður Valdimar Steinþórsson, eigandi vefsíðunnar klam.is, hann hyggst hefja framleiðslu á íslensku netklámi. 3.7.2007 10:00
Dívustælar Hermione Harry Potter stjarnan Emma Watson er víst örlítil díva í sér. Hin sextán ára gamla leikkona sem fer með hlutverk Hermione er dugleg við að kvarta undan álagi og þrætir við framleiðendurna. 3.7.2007 09:30
Sprengjuhótun í Moskvu „Það fór aðeins um okkur,“ segir Birgir Þórarinsson liðsmaður Gus Gus, en sveitin varð fyrir heldur óskemmtilegri lífsreynslu í Moskvu um helgina. Hljómsveitin átti að spila í vöruskemmu frammi fyrir sex þúsund manns þegar ljósin í húsinu voru kveikt og rödd bað alla gesti um að fara út. Hafði þá tónleikahöldurum borist sprengjuhótun en ekki er ljóst frá hverjum hún var. 3.7.2007 09:15
Kate Moss hætt með Pete Doherty Kate Moss er flúin til Parísar eftir að hafa fengið fréttir af meintu framhjáhaldi Pete Doherty. Hin þrjátíu og þriggja ára gamla Kate er miður sín en Pete hélt víst framhjá henni með suður-afrískri fyrirsætu að nafni Lindy. Kate náði ekki í Pete í marga daga eftir að hann fór á fyllirí og sást hann kela og knúsast með hinni dökkhærðu Lindy. 3.7.2007 08:30
Tískugúrúinn Ási í útrás Fatahönnuðurinn og stílistinn Ásgrímur Már Friðriksson, sem hefur meðal annars getið sér góðs orðs hér á landi fyrir sköpunarverk sín fyrir Silvíu Nótt, er lagstur í útrás og fluttur til Danmerkur. 3.7.2007 06:45
Kynþokkafyllstu grænmetisæturnar fundnar Idolstjarnan Carrie Underwood var kosin kynþokkafyllsta grænmetisætan í kosningu dýraverndunarsamtakanna PETA. Hún hefur ekki borðað kjöt síðan hún var 13 ára gömul, eða í meira en 11 ár. 2.7.2007 14:52
Heidi Fleiss opnar þvottahús og kyntröllabúgarð Athafnakonan Heidi Fleiss, sem þekktust er fyrir rekstur sinn á kynlífsþjónustu í Hollywood, hyggst nú hasla sér völl í nýjum geira. Hórumamman fyrrverandi er að opna sjálfsala-þvottahús í Pahrump nálægt Las Vegas, á meðan hún vinnur að uppbyggingu á nýju hórkarlahúsi. 2.7.2007 14:20
Hefði ekki fengið hlutverk í Latabæjarsýningunni sjálfur „Þetta var ótrúlega ánægjulegt og eiginlega bara algjör snilld,“ segir Magnús Scheving en hann var viðstaddur áheyrnarprufur á miðvikudag fyrir Latabæjar-leiksýningu sem setja á upp í London í febrúar á næsta ári. 2.7.2007 05:00
Jim Carrey drekkur stíft Gamaleikarinn Jim Carrey ætlar að framleiða og leika aðalhlutverkið í gamanmyndinni Sober Buddies. Fjallar hún um drykkfelldan forstjóra tölvufyrirtækis sem er fyrir rétti dæmdur til að taka með sér félaga á ráðstefnu í Las Vegas sem á að halda honum frá Bakkusi. Þróast málin þannig að félaginn, sem er leikinn af Carrey, missir sjálfur fótana í drykkjunni og lendir í hinum ýmsu vandræðum. 2.7.2007 03:30
Sýking í sjávardýragarðinum á Ísafirði „Fiskarnir fengu sýkingu í augun og þess vegna þurfti ég að tæma búrið,“ segir Lísbet Harðardóttir, sjávardýragarðsstjóri á Ísafirði. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skömmu opnaði Lísbet lítinn sjávardýragarð, sem var í raun eitt 1.800 lítra fiskabúr, utandyra í Neðsta kaupstað á Ísafirði. Sjávardýragarðurinn vakti mikla lukku en nú stendur hann tómur. 2.7.2007 02:30
Örvar með framhaldssögu um fótbolta Tónlistarmaðurinn Örvar Þóreyjarson Smárason úr hljómsveitinni Múm hefur samið framhaldssöguna Kempur í knattspyrnu. Gerist hún í Vestur-Þýskalandi á sjötta áratugnum og fjallar um hinn drykkfellda fótboltakappa, Ottmar Oberfüss. Inga Birgisdóttir, systir Jónsa úr Sigur Rós, myndskreytir söguna. 2.7.2007 02:30
Vilhjálmur aftur í fang Kate Vilhjálmur Bretaprins var kominn aftur í fang kærustu sinnar, Kate Middleton, aðeins fjórum dögum eftir að þau tilkynntu að þau væru hætt saman. Þau hafa haldið sambandi sínu leyndu síðan í apríl. 2.7.2007 02:00
Stella mótmælir á netinu Stella McCartney mun setja á svið fyrstu netmótmæli í heimi gegn pelsum þann 12. júlí næstkomandi. Þá hyggst hún mótmæla notkun á dýrafeldi í tískuheiminum en þetta gerir hún í samvinnu við PETA dýraverndunarsamtökin. 2.7.2007 01:15
Dita strippaði fyrir fræga fólkið Fatafellan Dita von Teese kom nýlega fram á einkasýningu fyrir fólk eins og Jasmine Guiness, Rosario Dawson, Henry Holland, Gareth Pugh og Steven Tyler. Hún er andlit nýs varalits frá MAC sem nefnist Viva Glam og á sýningunni dansaði hún upp á risastórum þriggja metra háum, dökkbleikum Viva Glam varalit. 2.7.2007 01:00
Ingvi Hrafn óttast ekki laxaleysið „Ég hef ekki nokkrar áhyggjur af ástandinu. Ég er sannfærður um að það kemur sprenging á næstunni, spurningin er aðeins hvenær hún verður,“ segir sjónvarps-, laxveiði- og athafnamaðurinn Ingvi Hrafn Jónsson, sem eins og undanfarin ár er við stjórnvölinn í Langá í Borgarfirði í sumar. 1.7.2007 02:30
Paris sökuð um lygar Paris Hilton hefur verið sökuð um að hafa logið að spjallþáttastjórnandum Larry King í viðtali sem tekið var við hótelerfingjann nokkrum dögum eftir að henni hafði verið sleppt úr fangelsi. Í viðtalinu sagðist Paris aðspurð aldrei hafa prófað eiturlyf á sinni ævi en í kjölfarið hafa ýmsir fjölmiðlar ytra rifjað upp gamlar sögur af stúlkunni. 1.7.2007 01:00