Fleiri fréttir

Tom og Katie sögð eiga von á öðru barni

Hjónakornin Katie Holmes og Tom Cruise sáust á dögunum kaupa barnahúsgögn fyrir tugþúsundir dollara í West Hollywood. Húsögnin voru þó varla ætluð Suri, dóttur hjónanna, því þau voru greinilega ætluð strákum.

Árangurslítil meðferð

Lindsay Lohan, sem er nýkomin úr meðferð, hefur snúið aftur til fyrri starfa. Leikkonan hefur lítið dregið úr ferðum sínum á skemmtistaðina í Englaborginni og þykir mörgum nóg um.

Illugi sigraði Bryndísi

Bryndís Sveinsdóttir, blaðamaður og nemi, var Illuga Jökulssyni, hinu þekkta spurningaljóni, engin fyrirstaða í fjórða þætti Meistarans á Stöð 2 sem var í gærkvöldi. Illugi náði forystu snemma í þættinum og hélt henni allt til enda. Og sigraði með miklum yfirburðum eða 25 gegn 8 stigum Bryndísar.

Robbie heim til mömmu

Söngvarinnar Robbie Williams skráði sjálfan sig af meðferðarheimili þrátt fyrir að eiga enn eftir viku af fjögurra vikna dagskrá. Hundsaði söngvarinn ráð lækna um að halda áfram og flaug rakleiðis heim til Englands þar sem hann vildi vera með móður sinni, Jan. Robbie Williams skráði sig í meðferð hinn 13. febrúar, á afmælisdaginn sinn, en hann var orðinn háður svefn- og þunglyndislyfjum, auk þess sem koffínneysla hans var komin úr böndunum.

Samheldni og stolt

Mikið verður um dýrðir í Breiðholtinu um helgina þegar Íþróttafélag Reykjavíkur, ÍR, fagnar aldarafmæli sínu með pomp og prakt. Hörður Heiðar Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri félagins, hvetur núverandi og framtíðar ÍR-inga til þess að fjölmenna og samfagna á þessum miklu tímamótum.

Valentino þeytir skífum í afmæli

Slóvenski plötusnúðurinn Valentino Kanzyani þeytir skífum á Nasa í kvöld í tilefni af tveggja ára afmæli techno.is. Valentino kemur fram með þrjá plötuspilara og spilar það ferskasta í danstónlistinni um þessar mundir. Einnig koma fram Exos og Plugged, sem áttu toppsæti árslista techno.is árið 2006 með endurhljóðblöndun sinni af laginu Kokaloca með Dr. Mister and Mr. Handsome.

X-Faktor sýndur í Færeyjum

Færeyingurinn Jógvan Hansen hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í X-Faktor og eins og Fréttablaðið hefur áður sagt frá ríkir sannkallað Jógvans-æði í Færeyjum. Vinsældir hans í heimalandinu hafa nú náð nýjum hæðum því færeyska ríkisjónvarpið hefur keypt sýningarréttinn á þeim sex þáttum sem eftir eru.

Mills vill milljón á dag

Heather Mills hefur sett fram kröfur um háar greiðslur úr búi fyrrum eiginmanns síns, Pauls McCartney. Málið er í hnút því Paul neitar öllum slíkum tilboðum.

Illugi snýr aftur og tekur enga sénsa

IIllugi Jökulsson byrjaði keppni í Meistaranum fyrr í kvöld með viðlíka krafti og í fyrra þegar hann tók einnig þátt í þessum vinsæla spurningaþætti sem sýndur er á Stöð 2 á fimmtudagskvöldum.

Pierce Brosnan sannur Bond?

Leikarinn Pierce Brosnan, sem hvað þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem njósnarinn James Bond, er ekki jafn mikill Bond í raunveruleikanum og á hvíta tjaldinu. Hann var á leið frá Kauai til Los Angeles með United Airlines þegar vélin þurfti skyndilega að millilenda í Honolulu vegna veikinda eins farþegans. NY Post greinir frá þessu.

Rachael Ray bitin af hundi

Sjónvarpskonan geðþekka, Rachael Ray, varð fyrir árás hunds í Union Square garðinum á laugardag þar sem hún varð að reyna að verja litla hundinn sinn, Isaboo.

Sært stollt Jareds Letos

Leikarinn og rokkarinn Jared Leto slasaði sig á tónleikum sem hljómsveitin hans 30 Seconds to Mars hélt í Texas á fimmtudagskvöld. Hann slasaðist á andliti og fæti en það var ekki bara líkaminn sem særðist, heldur stoltið líka.

Tom Cruise fylgir Katie á tökustað

Leikkonan Katie Holmes, sem gift er leikaranum fræga Tom Cruise, hefur tekið að sér hlutverk í kvikmyndinni Mad Money. Er um að ræða gamanmynd sem fjallar um þrjár konur sem skipuleggja milljóna dollara rán. Queen Latifah og Diane Keaton munu leika á móti Katie í myndinni.

Hassið átti ekki við Ingibjörgu Sólrúnu

Formenn stjórnmálaflokkana eru teknir í yfirheyrslu í nýju Mannlífi. Þar kemur meðal annars fram að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur prófað að reykja hass og þrír formannanna segjast ekki vita hvað BDSM er. „Ég prófaði hass fyrir meira en 30 árum og ákvað að láta það alveg eiga sig. Það er mun skaðlegra en margir vilja vera láta,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir aðspurð hvort hún hafi prófað fíkniefni.

Frú Kolbeins klagar Smáralind fyrir klám

„Undirrituð og eiginmaður hennar hafa sent Umboðsmanni barna erindi vegna forsíðunnar á fermingabæklingi Smáralindar," segir Guðbjörg Hildur Kolbeins, doktor í fjölmiðlafræði og lektor í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands á póstlista Femínistafélagsins. Og vill fá fram viðbrögð femínista við forsíðu bæklingsins.

Nýtt barn á mettíma

Félagsmálayfirvöld í Vietnam segja að það ætti ekki að taka meira en þrjá mánuði að ganga frá ættleiðingu hjónanna Brads Pitt og Angelinu Jolie, á vietnömskum dreng. Brad og Angelina hafa þegar ættleitt tvö börn, og eignast eitt sjálf.

Britney að brotna í meðferðinni

Veröld Britney Spears virðist að hruni komin. Tilraun poppprinsessunnar til að koma röð og reglu á líf sitt á meðferðarheimilinu Promises í Malibu virðist vera að fara út um þúfur og fjölskylda hennar hefur miklar áhyggjur af líðan hennar. Þetta upplýsir bandaríska glanstímaritið Us Weekly og hefur eftir nánum vinum Spears-fjölskyldunnar að hún óttist að Britney muni ekki halda út meðferðartímann.

Svefndrukkinn Ari Matt klessti bílinn

„Ég var búinn að vera vakandi alla nóttina og var á leiðinni í vinnuna. Kom út af mölinni og á malbik en gerði mér enga grein fyrir hálkunni og keyrði út af,“ segir Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri SÁÁ. En hann varð fyrir því óláni að keyra Renault-bifreið út af skammt frá Kaldárseli. Bíllinn var allur beyglaður og brotinn en Ara varð ekki meint af. Hann gat keyrt bifreiðina í bæinn þar sem hún bíður nú viðgerðar.

Ferðast um Indland

Breska leikkonan Elizabeth Hurley og eiginmaður hennar, Arun Naya, eru um þessar mundir stödd í Mumbai á Indlandi í brúðkaupsferð sinni. Hurley og Naya giftu sig í kastala í Englandi síðastliðinn föstudag og var fjöldi stjarna viðstaddur.

Robbie Williams kominn úr meðferð

Söngvarinn Robbie Williams hefur dvalið í meðferð í Arizona síðustu þrjár vikur en er nú útskrifaður. Var hann í meðferð vegna fíknar sinnar í lyfseðilskyld lyf. Talsmaður söngvarans hefur staðfest þetta og segir hann nú gangast undir eftirmeðferð í Los Angeles.

Kevin rakar af sér hárið til stuðnings Britney

Kevin Federline, fyrrum eiginmaður Britney Spears, hefur rakað af sér allt hárið. Gerði hann það til að sýna Britney stuðning samkvæmt heimildum The Sun. Kevin var í partýi í Las Vegas þegar hann sagði vinum sínum ástæðuna.

Veslings Borat

Hinn heimsfrægi fréttamaður Borat, frá Kazakstan, er óvænt orðinn fórnarlamb mannréttindabrota. Í mannréttindaskýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, er kafli þar sem Kazakstan er gagnrýnt óvægilega fyrir ritskoðun og önnur alvarleg mannréttindabrot.

Yoko stöðvaði heimildarmynd um Lennon

Yoko Ono stöðvaði sýningu á tveggja klukkustunda heimildarmynd um fyrrverandi eiginmann sinn John Lennon við Berwick háskólann í Maine, í Bandaríkjunum. Hún segist eiga allan rétt á efninu.

Alltaf hægt að klifra eitthvað

Íslenska alpafélagið verður þrjátíu ára næstkomandi sunnudag. Í tilefni af afmælinu stendur félagið fyrir ýmsum viðburðum á þessu ári. Á föstudag kemur hingað til lands einn áhrifamesti fjallgöngumaður af sinni kynslóð, Steve House, og mun hann dvelja hér í tæpa viku.

Íslensk Anna Nicole braut fánalög

Miss Hawaiian-Tropic keppnin var haldin á Nasa á laugardaginn en þar kepptu tíu stúlkur um hylli dómnefndar. Bikiní eins keppandans vakti athygli enda skrýddist hún íslenska fánanum.

Lindsay á djamminu

Lindsay Lohan fór út að skemmta sér í Los Angeles um helgina, aðeins nokkrum vikum eftir að hún kom úr meðferð. Leikkonan unga þótti líta fremur tuskulega út, var óvenju grönn og var með risastór sólgleraugu til að hylja andlit sitt. Til Lindsay sást á hóteli í LA eftir að hún kom af skemmtistaðnum Teddy‘s sem hún stundar reglulega. „Hún leit ekki vel út en ég veit ekki hvort hún var að drekka,“ sagði einn hótelgestanna.

Nýyrði tileinkað dr. Hannesi Hólmsteini

Þeir sem horfðu á fréttaskýringaþáttinn 60 mínútur á sunnudagskvöld hjuggu margir hverjir eftir nýyrði í innslagi um þáttastjórnandann umdeilda Bill O`Reilly, þar sem hugtakinu "right conservative", eða hægrisinnaður íhaldsmaður, var snarað yfir á hið ástkæra ylhýra sem "hólmsteinska".

Stjáni stuð aftur á öldur ljósvakans

"Mér líst æðislega á þetta. Ég verð með svipaðan þátt og ég var með, leiki og skemmtilegheit," segir Kristján Þórðarson útvarpsmaður, eða Stjáni stuð eins og hann er jafnan kallaður. Stjáni mun stjórna helgarþætti á nýrri útvarpsstöð þeirra Capone-bræðra, Búa Bendtsen og Andra Freys Viðarssonar. Stöðin kallast Reykjavík FM og fer í loftið á allra næstu dögum. Tíðni nýju stöðvarinnar verður að líkindum 105.

Tók Ísland framyfir Alaska

Mikil leynd hvílir yfir komu stórleikarans Leonardo DiCaprio hingað til lands í myndatöku fyrir tímaritið Vanity Fair. Fréttablaðið greindi frá því að von væri á DiCaprio í gær og var upphaflega reiknað með honum síðdegis. Talsverðar breytingar hafa þó átt sér stað á ferðatilhögun DiCaprio, en áður en blaðið fór í prentun var talið líklegt að leikarinn myndi lenda að næturlagi til að forðast óþarfa áreiti.

Naomi Campbell skúrar vöruhússgólf

Ofurfyrirsætan Naomi Campbell hefur verið dæmd til að sinna samfélagsþjónustu í fimm daga fyrir að henda farsíma í höfuðið á þjónustustúlku á heimili sínu. Campbell játaði sekt sína og gat því samið um refsingu við saksóknara glæpadómstólsins á Manhattan í New York. Hún verður látin skúra gólf í vöruhúsi í eigu borgarinnar. Campbell baðst afsökunnar á hegðun sinni við dómsuppkvaðninguna en þetta er í fjórða skipti sem hún gerist uppvís af slíkri hegðun. Hún hefur samþykkt að fara á reiðistjórnunarnámskeið sem verður þá hluti af refsingu hennar.

Paris Hilton í samkeppni við Jessicu Simpson

Paris Hilton er ein þeirra fjölmörgu Hollywood stjarna sem er með hárlengingar allt árið um kring. Hún virðist ætla að nýta sér þekkingu sína á þessu sviði með því að koma með eigin hárlínu undir nafninu DreamCatchers. Var hún í Chicago um helgina til að undirbúa framleiðsluna.

P. Diddy kærður fyrir líkamsárás

Rapparinn Sean Combs, betur þekktur sem P. Diddy, hefur verið kærður fyrir líkamsárás. Það var óbreyttur borgari, Gerard Rechnitzer, sem lagði fram kæruna. Í henni kemur fram að P. Diddy hafi ráðist á Gerard og kýlt hann í andlitið fyrir utan skemmtistað í Hollywood 25. febrúar síðastliðinn.

Hasselhoff hefur engu gleymt

Strandvörðurinn þýski, David Hasselhoff, var úti að skemmta sér í Las Vegas um helgina. Sást til hans á næturklúbb þar sem hann átti í heitum dansi við konu, sem ku vera gömul kærasta hjartaknúsarans. Það virðist því ljóst að lengi lifir í gömlum glæðum.

París vinnur alltaf

Það er nokkuð útbreidd skoðun að París Hilton sé fræg fyrir að vera fræg. Og hún er fjölmiðlamatur á hverjum einasta degi. Associated Press fréttastofan ákvað að athuga hvað gerðist ef hún hætti, í eina viku, að minnast á stúlkuna einu einasta orði.

DiCaprio í myndatöku fyrir Vanity Fair á Íslandi

Bandaríski stórleikarinn Leonardo DiCaprio lendir á Íslandi í dag ásamt ljósmyndara og starfsfólki frá bandaríska glanstímaritinu Vanity Fair. Ætlunin er að taka myndir af leikaranum fyrir forsíðuviðtal sem birtist við DiCaprio á síðum blaðsins. Skammt er því á milli komu stórstjarna hingað enda ekki langt síðan Jude Law hreiðraði um sig á 101 hótel ásamt fjölskyldu sinni.

Handtekin fyrir læti

Söngkonan Kelis var handtekin á föstudag á Miami-ströndinni í Flórída eftir að hafa haft uppi kynþáttafordóma gegn tveimur kvenkyns lögregluþjónum sem voru í gervi vændiskvenna. Að sögn viðstaddra þurfti að halda aftur af söngkonunni svo hún léti af látunum og umferð stöðvaðist í nágrenninu. Kelis, sem er gift rapparanum Nas, var kærð fyrir að valda ófriði og mótþróa við handtöku.

Hjalti Már sigraði

Hjalti Már Svavarsson bar sigur úr býtum í smjörátskeppni sem var haldin á veitinga- og kúrekastaðnum Tony"s County um síðustu helgi. Höfðu keppendur fimmtán mínútur til að háma í sig eitt kíló af smjöri.

Íslendingar skilja ekki teppi

„Að Íslendingar skilji ekki teppi? Nei, þeir gera það nú sennilega ekki. Og svo sem enginn móðgaður yfir því. En þau fóru langt undir matsverði,“ segir Tryggi Páll Friðriksson í Galleríi Fold.

Bubbi Morthens þjarmar að tónlist.is

Spennusagan Hringur Tankados er komin út í kilju hjá forlaginu Bjarti í þýðingu Önnu Maríu Hilmarsdóttur. Bókin er eftir metsöluhöfundinn Dan Brown og sameinar hún forvitnilegt sögusvið og magnaða framvindu.

Sex daga brúðkaup Elizabethar og Aruns

Leikkonan og fyrirsætan breska, Elizabeth Hurley og maður hennar, indverski kaupsýslumaðurinn Arun Nayar, giftu sig í Bretlandi síðastliðinn föstudag. Þau eru nú komin til Indlands þar sem fram munu fara sex daga hátíðarhöld í tilefni brúðkaupsins. Hjónin dvelja nú í tvo daga á Taj Mahal hótelinu í suðurhluta Mumbai en foreldrar Aruns búa þar nálægt.

Jessica Biel fagnar afmæli sínu í París

Leikkonan Jessica Biel, sem skotið hefur upp á stjörnuhimininn síðustu misseri, varð 25 ára síðasta laugardag. Hún fagnaði afmæli sínu í Frakklandi en hún er stödd í París ásamt tveimur vinkonum sínum. Jessica skemmti sér í VIP herbergi Salon France Ameriques skemmtistaðarins og sötraði hvítvín með vinkonunum. Það var síðan klukkan hálf tvö eftir miðnætti sem afmæliskaka sem á stóð ,,Til hamingju með afmælið Jessica” var borin fram.

Michael Jackson vinsæll í Japan

Konungur poppsins, Michael Jackson, kom til Japans í gær. Michael þykir ennþá afar vinsæll þarlendis og aðdáendur bíða í röðum eftir að fá að hitta hann. Eru sumir tilbúnir að greiða allt að 3500 dollara fyrir að taka í höndina á honum og spjalla við hann í 30 sekúntur.

Klipparinn fylgir Beckham fjölskyldunni

Hárskeri Beckham fjölskyldunnar hefur ákveðið að flytja með þeim til Hollywood. Ben Cooke hefur verið hárgreiðslumaður Viktoríu Beckham í sjö ár sér einnig um aðra fjölskyldumeðlimi. Hann er meðal annars ábyrgur fyrir skrautlegri klippingu knattspyrnuhetjunnar. Auk þess að skera hár fjölskyldunnar er Ben orðinn góður vinur hennar og hefur ferðast með hjónunum um heiminn þveran og endilangan, til þess að passa upp á útlitið.

Pamela aftur á ströndina

Aðdáendur Pamelu Anderson geta glaðst yfir því að stúlkan er aftur á leiðinni á ströndina, og mun klæða sig í samræmi við það. Pamela gerði Baywatch þættina að einni vinsælustu þáttaröð allra tíma. Að þeim loknum reyndi hún við nýtt hlutverk, þar sem hún lék afgreiðslukonu í bókabúð. Það gekk ekki upp og var því kennt um að afgreiðslufólk í bókabúðum er sjaldnast í bikini.

Britney reyndi að hengja sig

Bandarískir fjölmiðlar velta sér mikið upp úr því hvort Britney Spears og Kevin Federline hafi ákveðið að takast á við vandamál sín og reyna einu sinni enn. News of the World greinir frá því að þau íhugi jafnvel að endurnýja hjónabandsheitin þegar söngkonan hefur lokið afvötnun sinni í Malibu.

Sjá næstu 50 fréttir