Fleiri fréttir

Skáld, rappari og draggkóngur

„Ég ákvað að lesa upp úr ljóðabókinni minni sem á að koma út um jólin,“ segir Halldór Jónsson Maack, draggkóngur Íslands 2006. Ljóðabókin ber heitið Ástin/One more time og endurspeglar þannig það sem Halldór er, nefnilega ljóðskáld/rappari.

Spila hvernig sem viðrar

„Við höfum aðeins einu sinni sleppt úr fimmtudegi frá árinu 2001,“ segir Guðjón Árnason, einn liðsmanna félagsskapar sem ber hið mjög svo hógværa nafn Meistarar! en það er hópur góðra félaga sem spila golf á hverjum fimmtudegi á Keilisvellinum í Hafnarfirði.

Af útlokun og innilokun

Hvað má og hvað ekki í íslenskri leiklist? Hvaða vægi hefur hún í samfélaginu og er eitthvað til sem heitir góð eða vond leiklist? Þessar stóru spurningar eru á vörum tveggja leikhúsmanna sem vinna að rannsókn, tilraun og sýningu sem verður frumsýnd á sviðs­listahátíðinni Art Fart í kvöld. Friðgeir Einarsson og Karl Ágúst Þorbergsson eru forsprakkar listahópsins E.L.A og aðstandendur rannsóknarinnar, sem hefur þegar borið ríkulegan ávöxt.

Bæjarstjórinn boðinn velkominn í Ástarvikunni

Ástarvikan í Bolungarvík verður sett á sunnudaginn en þetta er í þriðja sinn sem þessi hátíð er haldin. Að sögn Soffíu Vagnsdóttur, eins af frumkvöðlum þessarar sjóðheitu viku, var hún upphaflega hugsað sem innanbæjargrín og átti að vera hvetjandi fyrir íbúa bæjarins til að fjölga mannkyninu.

Er Brecht úr móð?

Margt bendir til þess að þýski rithöfundurinn og leikskáldið Berthold Brecht eigi lítið upp á pallborðið hjá lesendum í heimalandi hans Þýskalandi en í næstu viku verða fimmtíu ár liðin frá dauða þessa umdeilda manns.

Fá að hitta Suri

Hjónakornin Victoria og David Beckham eru í sjöunda himni eftir að hafa fengið boð frá leikaranum Tom Cruise um að hitta nýfædda dóttur hans, Suri.

Hirðlögfræðingar handa McCartney og Mills

Sir Paul McCartney og lafði Heather Mills hafa ráðið til sín bestu skilnaðarlögfræðinga Bretlands. McCartney hefur fengið Fionu Shackleton sem Karl Bretaprins réð þegar hann skildi við Díönu prinsessu og Mills hefur fengið til liðs við sig lögfræðinginn Anthony Julius en hann sá um mál Díönu prinsessu.

Í samkeppni við Evian

Ég tók þátt í almennri keppni fyrir skólann og lenti í öðru sæti þannig að ég bjóst aldrei við neinum verðlaunum, segir Tinna Pétursdóttir umbúðahönnuður en hönnun hennar á vatnsflösku úr gleri var valin til framleiðslu á Ítalíu af fyrirtækinu Norda sem er stærsta vatnsframleiðsla þar á landi.

Íslandsvinir með nýja plötu

Bandaríska hljómsveitin Ratatat er að fara að senda frá sér sína aðra breiðskífu í mánuðinum en henni hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Steinþór Helgi Arnsteinsson kynnti sér sögu sveitarinnar og efni nýju plötunnar.

Björgvin í Laugardalshöllina

Laugardaginn 23. september kl. 20:00 verður efnt til sannkallaðra stórtónleika í Laugardalshöll þar sem Björgvin Halldórsson flytur úrval laga úr efnisskrá sinni ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands, Fóstbræðrum, Hljómsveit Björgvins, bakröddum og nokkrum landsþekktum gestum.

Lýgur um ástarlífið

Leikkonan unga Lindsay Lohan viðurkennir í viðtali við tískutímaritið Elle að hún hafi logið að slúður­blöðunum um ástalíf sitt. Leikkonan hefur verið orðuð við marga í gegnum tíðina svo sem Jared Leto, leikarann og hjartaknúsarann Colin Farrell og rokkarana Ryan Adams og Jamie Burke.

Magni til Las Vegas

Atkvæðaþáttur í Rock Star: Super­nova fór fram í fyrrinótt og ótvíræður sigurvegari kvöldsins var Magni "okkar“ Ásgeirsson. Hljómsveitarmeðlimir Supernova voru svo hrifnir af flutningi Magna kvöldið áður að þeir báðu hann um að flytja lag sitt aftur, en það var rokkslagarinn The Dolphin's Cry með Live.

Óvæntir félagar

Heróínsjúklingurinn Pete Doherty er búinn að stofna nýja hljómsveit með Mike Skinner, heilanum á bak við The Streets. Doherty hefur verið að taka upp í Shed-stúdíóinu hans Skinner í London og útkoman er ný útgáfa af Prangin Out. Það lag verður væntanlega næsta smáskífa The Streets.

Navarro í klámið

Rokkarinn og yfirdómari í sjónvarpsþættinum vinsæla Rock Star, Dave Navarro, er byrjaður með klámmyndastjörnunni frægu Jennu Jameson. Skötuhjúin eiga það sameiginlegt að vera að ganga í gegnum skilnaði en Navarro var giftur Carmen Electra og Jameson var gift útgefandanum Jay Gardina.

Pussycat Dolls of grófar

Stúlknasveitin Pussycat Dolls hefur verið sektuð um fjórtán hundruð pund eða tvö hundruð þúsund krónur af stjórnvöldum í Malasíu. Kisudúkkurnar eru staddar þar í landi á tónleikaferðalagi sínu og voru yfirvöld ekki par hrifin af kynferðislegum tilburðum þeirra en sveitin þykir ansi djörf í framkomu.

Robin Williams í meðferð

Robin Williams hefur skráð sjálfan sig í meðferð við áfengisfíkn eftir að hafa verið edrú í tuttugu ár. Samkvæmt yfirlýsingu talsmanns leikarans, Mara Buxbaum, vildi Williams sjálfur fara þessa leið eftir að hafa byrjað aftur að daðra við Bakkus fyrir skömmu.

Spila fyrir Clinton

The Rolling Stones ætla að leika á einkatónleikum fyrir Bill Clinton þegar forsetinn fyrrverandi fagnar sextugsafmæli sínu. Clinton á afmæli á laugardaginn í næstu viku og meðal áformaðra atburða af því tilefni eru einkatónleikar með Mick Jagger og félögum.

Brúðkaup

Söngkonan Kylie Minogue og unnusti hennar, franski leikarinn Olivier Martinez, ætla nú loksins að ganga upp að altarinu í september.

Uppskera og handverk sett

Uppskera og Handverk 2006 að Hrafnagili sett í gær með viðhöfnBjarni Kristjánsson sveitarstjóri setti sýninguna og Jón Marinó Jónsson sagði sögu einnar fiðlu. Þar á eftir var frumflutningur á fiðlu Jóns Marinós.

Söngur og orgel í Reykholtskirkju

Fimmtu tónleikarnir af sjö í orgeltónleikröð Reykholtskikrju og FÍO verða haldnir sunnudaginn 13. ág. kl. 17.00. Þá syngur Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir sópransöngkona og Jón Ólafur Sigurðsson, organisti Hjallakirkju í Kópavogi leikur á orgelið. Þetta eru fyrst og fremst söngtónleikar þar sem lögð er áhersla á að sýna orgelið sem undirleikshljóðfæri.

Saman á ný

Rokkarinn og ólátabelgurinn Pete Doherty og ofurfyrirsætan Kate Moss eru byrjuð saman aftur, samkvæmt breska blaðinu Daily ­Mirr­or. Sást til þeirra skötuhjúa á útihátíð í Bretlandi þar sem þau leiddust og dönsuðu saman fyrir allra augum.

Söngmenn framtíðar

Kórskóli Langholtskirkju stendur fyrir vikulöngu söngnámskeiði fyrir drengi frá sex ára aldri. Námskeiðið hefst á mánudaginn og stendur saman af blöndu af söng, raddþjálfun og leikjum.

Frumkvöðull á flutningabíl

Þetta er kallnafnið í vinnunni hjá mér og ég er ekki þekktur undir neinu öðru nafni í þessum geira, segir vörubílstjórinn Jón Ívan Rafnsson, betur þekktur sem Johnny Rock.

Hermir eftir Sesari A

Tónlistarmaðurinn Beck Hansen sendir frá sér nýja plötu í byrjun október. Platan hefur fengið nafnið The Information og upptökustjóri hennar er Nigel Godrich sem frægastur er fyrir að vinna með Radiohead. Þetta verður sjöunda breiðskífa Becks, en hann hefur auk þess gefið út tvær plötur hjá óháðum fyrirtækjum og svo endurvinnsluplötuna Guerolito.

Ljósmyndir í Skotinu

Fimmtudaginn 3. ágúst opnði Hildur Margrétardóttir, myndlistarmaður, sýningu á ljósmyndum í Skotinu, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð. Myndröðinni er varpað úr skjávarpa á vegg og mynda þær lifandi flæði og frásögn.

Eyþór Ingi í Hallgrímskirkju

Tónleikaröðin Alþjóðlegt orgelsumar býður upp á 26 tónleika í Hallgrímskirkju í sumar og síðustu tveir þeirra verða núna um helgina, laugardaginn 12. ágúst kl. 12 og sunnudaginn 13. ágúst kl. 20. Það er Eyþór Ingi Jónsson, annar organisti Akureyrarkirkju sem kemur fram á báðum tónleikunum.

Ekkert sögulegt afrek

Embætti forseta Bandaríkjanna er án nokkurs vafa eitt það valdamesta í heimi og af þeim sökum er fjölmörgum í nöp við þann sem sinnir því hlutverki hverju sinni enda hafa Bandaríkin verið ýmist tákn frelsis eða heimsvaldastefnu í heimssögunni. Öryggisráðstafanir í kringum ferðir forsetans eru þær mestu í heiminum og hann má varla færa sig um set án þess að það sé skipulagt í þaula af þrautþjálfuðum leyniþjónustumönnum. Tryggð við embættið og ríkið er einn helsti máttarstólpi CIA enda ætti svikari auðvelt með að færa hvers kyns óþjóðalýð líf forsetans á silfurfati.

Fiskidagurinn mikli um helgina

Fjölskylduhátíðin "Fiskidagurinn mikli "verður haldinn hátíðlegur í sjötta sinn laugardaginn 12. ágúst á Dalvík. Frá upphafi hefur markmiðið með þessum degi verið að fá fólk til þess að koma saman, hafa gaman, borða fisk og að allt á hátíðarsvæðinu sé frítt, matur skemmtun og afþreying.

Fyrsta flokks flytjendur

Á sumarmánuðum er jafnan mikið um dýrðir í tónlistarlífinu á landsbyggðinni og um helgina er komið að árlegri kammertónlistar­hátíð á Kirkjubæjarklaustri.

Una spilar á Gljúfrasteini

Það er farið að síga á seinnihlutann á fyrstu tónleikaröð Gljúfrasteins sem öruggt er að fullyrða að verður ekki sú síðasta. Enda var tónlist órjúfanlegur hluti heimilislífsins á Gljúfrasteini þegar Halldór Laxness og fjölskylda bjuggu þar.

70 ára afmæli Svifflugfélags Íslands

Fyrir 70 árum var Svifflugfélag Íslands stofnað. Það var Agnar Kofoed Hansen sem stóð að stofnunni ásamt fleiri góðum mönnum. Tilgangur með stofnunninni var að rækta upp innlenda þekkingu á flugi og gera áhugasömum kost á að læra flug á ódýrann og einfaldan hátt.

Ástríkur í Noregi

Félagarnir galvösku Ástríkur og Steinríkur eru mættir til leiks í teiknimyndinni Ástríkur og víkingarnir en þeir hafa ekki látið sjá sig í teiknimynd í fullri lengd í áratug. Þeir hafa þó skotið upp kollinum í bíó í leiknum myndum í tvígang á þessu tímabili við mátulegan fögnuð dyggra aðdáenda sem voru lítt hrifnir af afbökunum á frumtexta Goscinnys.

Sýning í Nýlistasafninu

Laugardaginn 12. ágúst kl:16:00 opna nokkrir listamenn frá ýmsum löndum sýningar sínar í Nýlistasafninu. Pétur Már Gunnarsson frá Íslandi , Johann Maheut frá Frakklandi og Toshinaro Sato frá Japan standa saman að sýningunni Sögur neðan jarðar.

Grasnytjar um hásumar

Hildur Hákonardóttir listamaður og ræktandi mun fræða fólk um grasnytjar í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal, laugardaginn 12. ágúst kl. 11. Hildur hefur langa reynslu af því að nýta íslenskar jurtir til matar.

Gisele Bündchen hætt í fyrirsætubransanum

Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að hún sé endanlega hætt störfum sem fyrirsæta. Þetta mun vera vegna þess að hún segist vera orðin þreytt á óreglulegum lífsstíl sem fylgir fyrirsætustörfunum. „Það er komið nóg. Ég er búin að fá mig fullsadda af því að ganga fram og aftur á tískupöllunum,“ segir Gisele, sem síðustu árin hefur verið eitt heitasta nafnið í fyrirsætubransanum.

Íslendingar á námskeið til London

Helgina 29. september - 2. október 2006 verður haldið í London fjögurra daga ofurnámskeiðið UNLEASH THE POWER WITHIN með Anthony Robbins. Yfir 400 Íslendingar hafa sótt fyrri námskeið og eru allir þátttakendur sammála um að þessi helgi sé nánast ólýsanleg.

Dóttir bæjarfulltrúans skírð Rósa

Stúlkunni sem Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, átti í anddyrinu heima hjá sér fyrir rúmri viku var gefið nafnið Rósa.

Sýning í verslun 12 Tóna

Fimmtudaginn 10. ágúst opnar myndlistarmaðurinn og ljóðskáldið Bjarni Bernharður sýningu í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg. Þetta er fimmta einkasýning Bjarna sem málar ævintýri á striga í litum og formum. Myndirnar er 12, málaðar á árunum 2005 til 2006.

Hádegistónar í Hallgrímskirkju

Orgelleikarinn Kári Þormar heldur hádegistónleika kl. 12 í Hallgrímskirkju í dag. Á sínum tíma var Kári fyrsti nemandinn sem lauk orgelnámi hér heima með tónleikum á hið glæsilega Klais-orgel í Hallgrímskirkju og endurnýjar hann því kynni sín af því merka hljóðfæri. Hann stundaði síðar framhaldsnám í orgelleik og kirkjutónlist í Düsseldorf í Þýskalandi.

Sálin komin á kreik

Sálin hans Jóns míns er komin á kreik aftur, eftir sjö mánaða orlof. Um nýliðna helgi fór sveitin í raun hringferð um landið. Þá flugu Sálverjar til Akureyrar á föstudegi, héldu þar tvenna tónleika, þaðan á Norðfjörð og flugu loks aftur til Reykjavíkur í bítið á mánudaginn.

Sarah Croker og Santiago á Rósenberg í kvöld

Tónlist Sarah Croker er fremur afslöppuð og jafnan byggð í kringum kassagítarinn hennar og söngröddina, en rödd Söruh og túlkun hefur verið líkt við þær mætu söngkonur Sarah McLachlan og Evu Cassidy heitna – sem kom hér við snemma á ferlinum og spilaði á litlu kaffihúsi.

Enginn dauður punktur

Kvikmyndahátíðin IFF verður haldin í annað sinn dagana 30. ágúst til 20. september. Fjölmargar athyglisverðar kvikmyndir verða á dagskrá hátíðarinnar í ár en þar ber hæst hina umdeildu heimildarmynd An Inconvenient Truth þar sem fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, Al Gore, varar við afleiðingum gróður­húsaáhrifanna.

Fönkkóngurinn orðinn fullorðinn

„Ég hef nú alltaf verið tvöfaldur karakter, hef bæði starfað í markaðsmálum og í skemmtanabransanum. En það rétt, nú er ég kominn í PR-ið,“ segir plötusnúðurinn og athafnamaðurinn Baldur Baldursson, sem hóf nýverið störf hjá almannatengslafyrirtækinu Inntaki.

Hinsegin bókmenntaganga

Borgarbókasafnið stendur fyrir „Hinsegin“ bókmenntagöngu í kvöld þar sem Úlfhildur Dagsdóttir og Felix Bergsson, leikari og leikskáld, munu lóðsa áhugasama um söguslóðir miðbæjarins.

Í draumaheimi í LA

Eyrún Huld Haraldsdóttir og Marinó Bjarni Magnason, unnusta og sonur Magna Ásgeirssonar, vöktu mikla athygli áhorfenda sjónvarpsþáttanna Rock Star: Super­nova í fyrrakvöld. Eins og frægt er orðið flugu þau til Los Angeles til að vera með Magna, íslenska keppenda þáttanna, og fylgjast með honum keppa.

Sjá næstu 50 fréttir