Fleiri fréttir Mark Webber á Íslandi Ökuþórinn Mark Webber frá Williams Formúlu1 liðinu verður á Íslandi á vegum Baugs Group föstudaginn 11.ágúst. Dagurinn hefst með heimsókn á Barnaspítala Hringsins þar sem Mark mun m.a. gefa leikföng í boði Hagkaupa sem að börnin á spítalanum hafa sérstaklega óskað eftir. 10.8.2006 10:34 Stone veldur deilum Ættingjar þeirra sem létust í árásunum á Tvíburaturnanna eru æfir yfir því hvernig staðið var að frumsýningu kvikmyndarinnar World Trade Center eftir Oliver Stone en Nicholas Cage leikur þar lögreglumann sem var einn þeirra síðustu sem björguðust úr rústunum. 10.8.2006 10:00 Líður að lokum
Sjá næstu 50 fréttir
Mark Webber á Íslandi Ökuþórinn Mark Webber frá Williams Formúlu1 liðinu verður á Íslandi á vegum Baugs Group föstudaginn 11.ágúst. Dagurinn hefst með heimsókn á Barnaspítala Hringsins þar sem Mark mun m.a. gefa leikföng í boði Hagkaupa sem að börnin á spítalanum hafa sérstaklega óskað eftir. 10.8.2006 10:34
Stone veldur deilum Ættingjar þeirra sem létust í árásunum á Tvíburaturnanna eru æfir yfir því hvernig staðið var að frumsýningu kvikmyndarinnar World Trade Center eftir Oliver Stone en Nicholas Cage leikur þar lögreglumann sem var einn þeirra síðustu sem björguðust úr rústunum. 10.8.2006 10:00
Draggkeppnin í Kjallaranum í kvöld Keppt verður um draggdrottningu og draggkóng Íslands í kvöld. Keppnin verður haldin í Þjóðleikhúskjallaranum en ekki á Gauki á Stöng eins og venjan hefur verið, enda var Gauknum lokað á dögunum. Sú breyting hefur einnig verið gerð að keppnin heitir nú Draggkeppni og er rituð með tveimur g-um. Þetta er gert í samráði við Orðabók Háskólans. 9.8.2006 17:00
Ingólfur á krossgötum Það hefur lítið farið fyrir Ingólfi Hannessyni síðustu þrjú árin. Eftir að hafa starfað sem íþróttastjóri Ríkissjónvarpsins ákvað hann að söðla um og hefur búið í Sviss og starfað hjá Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva. Þar hefur hann fengist við samningsgerð og undirbúning fyrir mót í innanhúss- og vetraríþróttum. Um næstu mánaðarmót rennur út þriggja ára starfssamningur Ingólfs hjá EBU og hann stendur því á krossgötum um þessar mundir. 9.8.2006 16:00
Alþýðuleg stjörnuleikkona vekur hrifningu Stórleikkonan Cate Blanchett er stödd hér á landi ásamt eiginmanni sínum, Andrew Upton, og tveimur sonum þeirra. Hún er jafn falleg og í kvikmyndunum, sagði heimildamaður blaðsins á Búðum. Blanchett lét lítið fyrir sér fara og var mörgum ekki ljóst að þarna væri á ferð heimsfræg kvikmyndastjarna en rólegt var á Búðum um helgina enda áttu hvers kyns útihátíðir hug og hjörtu landsmanna. 9.8.2006 15:30
Jodie Foster til varnar Mel Gibson Stóru stjörnurnar í Hollywood hafa komið Mel Gibson til varnar en leikarinn var handtekinn 28. júlí fyrir að hafa verið ölvaður undir stýri. Gibson hefur lengi háð harða baráttu við áfengisdjöfulinn en fjölmiðlar hafa þó gert meira veður úr þeim ummælum sem Gibson lét hafa eftir sér við handtökuna. Þar er hann sagður hafa látið falla niðrandi orð um gyðinga og sagt þá vera ábyrga fyrir öllum styrjöldum í heiminum. Gibson kemur fyrir dómstóla í lok september og gæti átt yfir höfði sér sex mánaða fangelsi vegna ölvunaraksturs. 9.8.2006 15:00
Konur hertaka mýrarboltann Það stefnir í metþátttöku hjá okkur, segir Óli Karlsson, formaður Mýrarboltafélags Íslands, en um næstu helgi fer fram óformlegt Evrópumeistaramót í þessari sérstæðu útfærslu af vinsælustu íþrótt heims í Tungudal á Ísafirði. Ég er reyndar ekki með staðfesta tölu en mér skilst að liðin séu orðin vel yfir tuttugu, bætir Óli við. 9.8.2006 14:00
Bond í Sunspel-nærbuxum Daniel Craig mun klæðast Sunspel-nærbuxum í nýjustu Bond-myndinni, Casino Royale, en frá þessu er greint á fréttavefnum Contactmusic.com. 9.8.2006 13:15
Lokað fyrir Mills Aukin harka virðist vera hlaupin í skilnað Paul McCartney og Heather Mills en fréttavefur BBC greinir frá því að Mills hafi ekki getað komist inní hús þeirra hjóna í London þar sem skipt hafi verið um skrár 9.8.2006 13:00
Lordi í hjónaband Tomi Putaansuu, forsprakki skrímslasveitarinnar Lordi, hefur gengið að eiga æskuást sína, Jóhönnu. Athöfnin fór fram í heimabæ þeirra Rovaniemi og þótti ansi virðuleg miðað við útganginn á hljómsveitinni. Upphaflega ætlaði parið að ganga í það heilaga í maí en frestaði brúðkaupinu enda var hljómsveitin þá á barmi heimsfrægðar eftir að hafa unnið Eurovision, sællar minningar. 9.8.2006 12:45
Magni fékk nýjan Gibson gítar Magni Ásgeirsson söng lagið Dolphin's Cry með hljómsveitinni Live í þættinum Rock Star: Supernova í nótt. Magni var einn á sviðinu og flutti lagið með nýjum Gibson-gítar en þeir tíu þátttakendur sem eftir eru fengu allir gefins slíkt hljóðfæri frá umboðinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins tókst Magna að venju vel upp en Eyrún Huld, unnusta hans, var meðal áhorfenda í salnum. 9.8.2006 12:30
Neitaði Aniston Jennifer Aniston er í sárum eftir að Vince Vaughn neitaði að kvænast henni. Þau hafa verið á föstu í eitt ár og eftir rómantískt frí í Mexíkó vildi Jennifer ræða framtíðina. Það tók Vince ekki í mál og vinir parsins segja hann hafa útilokað það að þau muni nokkurn tímann ganga í hjónaband. „Jen bjóst við svo miklu af þessu sambandi og það særir hana að Vince skuli ekki vilja bindast henni,“ sagði vinur leikkonunnar. 9.8.2006 12:15
Pamela sögð ólétt Þrálátur orðrómur er uppi um að Pamela Anderson eigi von á þriðja barninu. Leikkonan brjóstgóða ýjaði að því í viðtali við bandaríska útvarpsstöð á dögunum að hún væri barnshafandi. 9.8.2006 12:00
Paris í kattarlíki Hótelerfingjann Paris Hilton er nú hægt að kaupa í kattarlíki. Japanskur leikfangaframleiðandi sem selur kattardúkkurnar Hello Kitty hefur hafið sölu á slíkri dúkku sem minnir um margt á Paris. 9.8.2006 11:00
Stílbrögð og töffaraskapur Sjónvarpsþættirnir Miami Vice (1984-1989) eru tengdir „eitís“ tískunni órjúfanlegum böndum og Don Johnson sem fór þar með hlutverk löggunnar Sonny Crockett var aðaltöffari þessara ára, í bleikum stuttermabol með þriggja daga skegg. 9.8.2006 10:00
Traustur Innipúki að vanda Innipúkinn í ár leið að nokkru fyrir það hversu frábær hátíðin var í fyrra. Eitthvað mikið þurfti að gerast til þess að hægt yrði að toppa hátíðina á síðasta ári og eins og við var að búast tókst það ekki. Hátíðin var samt sem áður frábær í alla staði og í raun er hálf ósanngjarnt að miða hátíðina í ár við fyrirrenna sinn. 9.8.2006 09:00
Ævarandi friðarboðskapur Árleg kertafleyting til minningar um fórnarlömb kjarnorkusprenginanna í Hírósíma og Nakasaki fer fram við Reykjavíkurtjörn í kvöld. 9.8.2006 08:00
Bjöllukjóll Bjarkar til sýnis Bjöllukjóllinn sem Björk Guðmundsdóttir klæddist í myndbandinu við lagið Who Is It, af plötunni Medúllu, er til sýnis í Gallerí Humar og frægð/Smekkleysubúðinni Klapparstíg 25. Kjólinn, sem er prýddur ótal mörgum bjöllum, er hannaður af Björk og hinum heimsfærga hönnuði Alexander McQueen. 8.8.2006 18:00
J-Lo leikur ekki Sue Ellen Jennifer Lopez mun ekki leika í fyrirhugaðri kvikmynd sem byggð verður á sápuóperunni um Ewing-fjölskylduna í Dallas. J. Lo átti að leika hina drykkfelldu Sue Ellen en John Travolta átti að leika eiginmann hennar, olíubaróninn JR Ewing. 8.8.2006 17:00
Léttgeggjuð mamma og ungir listamenn Á Skólabraut 35 á Akranesi er hús sem hefur vakið mikla athygli bæjarbúa enda óvenjulegt í meira lagi. Appelsínugult með grænum gluggum og rauðu þaki. 8.8.2006 17:00
Logi ágætlega sáttur við skeggið Fréttamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson sneri aftur á skjáinn í síðustu viku eftir að honum og eiginkonunni Svanhildi Hólm fæddist dóttir fyrir skemmstu. Talsverða athygli vakti að Logi Bergmann skartaði myndarlegu alskeggi þegar hann las fréttirnar á NFS, en hann hefur hingað til jafnan verið snyrtilega rakaður. 8.8.2006 16:00
Leitað að næstu kisu Stúlknasveitin Pussycat Dolls hefur ákveðið að leita eftir nýjum meðlim í þætti sem ber hið frumlega nafn The Search for the Next Pussycat Doll. Sigurganga þessarar sveitar hófst árið 1995 þegar stúlkurnar voru einungis dansarar í myndböndum en á síðasta ári gáfu þær út lögin Dont Cha og Stckwitu sem bæði náðu hæstu hæðum í Bretlandi. 8.8.2006 15:15
Miðar á Patti Smith Miðasala á órafmagnaða tónleika rokkgyðjunnar Patti Smith og félaga hennar Lenny Kaye í Háskólabíói hinn 5. september hefst á fimmtudaginn í verslunum Skífunnar í Reykjavík og verslunum BT á Akureyri, Selfossi og Egilsstöðum og á heimasíðunum midi.is og bravobravo.is. 8.8.2006 15:00
Í mál gegn æskuvini Bruce Willis ætlar í mál við æskufélaga sinn vegna fjárkúgunar. Die Hard-stjarnan hefur höfðað mál gegn Bruce DiMattia þar sem sá síðarnefndi hótaði að skrifa bók um leikarann fengi hann ekki greidda 100 þúsund dollara og bíl. 8.8.2006 13:30
Misjafnir dómar Kvikmyndin World Trade Center eftir Oliver Stone var frumsýnd í New York fyrir skömmu. Myndin segir frá tveimur lögregluþjónum sem taldir eru hafa verið þeir síðustu sem björguðust úr rjúkandi rústum Tvíburaturnanna. Með aðalhlutverkið fer Nicholas Cage en bæði John McLoughlin og William Jimeno sem myndin fjallar um voru mættir á frumsýninguna. Þeir hafa verið töluvert gagnrýndir af ekkjum annarra lögregluþjóna sem létu lífið í árásinni fyrir að vilja græða peninga á ógæfu annarra 8.8.2006 12:45
Blautt stríð í aðsigi Sjónvarpsauglýsingar sem sýna hlaupandi strák eða stelpu flýjandi undan myndavélinni eins og í góðri hryllingsmynd hafa verið tíðir gestir á skjánum. Ekki kemur í ljós hvað er verið að auglýsa en heimasíða er gefinn upp í lokin. Það er heimasíðan www.gegndrepa.is. Við nánari skoðun á síðunni kemur í ljós að um er að ræða leik sem fer af stað á næstunni. Allt er þetta mjög leynilegt og stjórnandi og einráður dómari leiksins nefnir sig Herra X. 8.8.2006 12:45
Sleit sambandinu með smáskilaboðum Ofurfyrirsætan Jill Marie Gulseth er enn í sárum eftir að Kid Rock, unnusti hennar til þriggja mánaða, sagði henni upp með smáskilaboðum. Pamela Anderson og Kid Rock giftu sig sem kunnugt er á skútu við St. Tropez fyrir skömmu. 8.8.2006 12:30
Villa til sölu Hús Brad Pitt og Angelinu Jolie í Namibíu er nú til sölu. Frægt varð þegar parið dvaldi í húsinu á meðan Angelina gekk með dóttur þeirra, Shiloh Nouvel. Húsið var þó ekki í eigu skötuhjúanna, heldur greiddu þau um 150 milljónir króna í leigu fyrir að dveljast þar í 80 daga. Húsið verður selt hæstbjóðanda. 8.8.2006 12:00
Ljósmyndin auglýsing fyrir kókaín Leikkonan Kate Hudson er augljóslega kominn í stríð gegn ljósmyndurum og gulu pressunni. Eins og Fréttablaðið greindi frá hótaði Hudson lögsóknum gegn þeim ljósmyndara sem myndi smella mynd af syni hennar. 8.8.2006 11:00
Vapp í Viðey Í kvöld mun Örlygur Hálfdanarson, bókaútgefandi og Viðeyingur, stýra þriðjudagsgöngu í Viðey. Mun hann leiða gesti um æskuslóðir sínar í rústum þorps Milljónafélagsins á Sundbakka Viðeyjar sem stóð þar á árunum 1907-1943. Tæplega 140 manns bjuggu í þorpinu þegar mest var og var þar rekin mikil útgerð og var Viðeyjarbryggja ein umsvifamesta höfn landsins á tímum Milljónafélagsins. 8.8.2006 11:00
Sumarleg sönglög í kvöld Auður Gunnarsdóttir sópransöngkona og Andrej Hovrin píanóleikari flytja sönglög eftir Alban Berg, Jean Sibelius, Edvard Grieg og Sergei Rachmaninoff á sumartónleikum Listasafns Sigurjóns í kvöld. 8.8.2006 10:00
Myndar íslensku hörkuna og blíðuna Martin Santander er argentínskur ljósmyndari sem ætlar að mynda íslensk andlit og kynnast kvikunni í þjóðarsálinni. 8.8.2006 08:00
Streep talar um Katrínu Meryl Streep mun verða þulur í nýrri heimildarmynd um fellibylinn Katrínu eftir leikstjórann Greg MacGillivray. Katrína olli gríðarlegum skemmdum í New Orleans og Louisiana-ríki og varð fjölda fólks að bana. Myndin verður frumsýnd í New Orleans 29. ágúst en þá verður liðið ár frá því að hörmungarnar dundu yfir. Framleiðandinn Allen Toussaint, blúsarinn Tab Benouit og hin fjórtán ára gamla Amanda Shaw verða einnig í myndinni. Reiknað er með að myndin verði síðan frumsýnd opinberlega um jólin. 8.8.2006 07:00
Þjóðlög fyrir flautu og hörpu Arna Kristín Einarsdóttir flautuleikari og Elísabet Waage hörpuleikari halda tónleika í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði annað kvöld kl. 20.30. Tónleikarnir eru liður í sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar. 8.8.2006 06:00
Arthur Lee látinn Einn af helstu goðsögnum hippatímabilsins, Arthur Lee, lést á sjúkrahúsi í Memphis á fimmtudag. Lee var 61 árs gamall og var banamein hans hvítblæði. Lee var söngvari og aðallagasmiður hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Love frá Los Angeles. Hafði hljómsveitin gríðarleg áhrif á margar samtímahljómsveitir sínar eins og til dæmis The Doors. Plata hljómsveitarinnar, Forever Changes, frá árinu 1967, hefur meðal annars oft og mörgum sinnum ratað inn á lista yfir bestu plötur sögunnar hjá ýmsum tónlistarmiðlum. 5.8.2006 20:00
Fangar á kvikmyndahátíð Fátt hefur vakið jafn mikla reiði í stríði "hinna vestrænnu þjóða" gegn hryðjuverkum og Guantanamo-fangabúðirnar á Kúbu. Þar sitja nú í kringum 460 fangar sem taldir eru tengjast al-Kaída-hryðjuverkasamtökunum og á kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, sem hefst í lok þessa mánaðar, verður kvikmyndin The Road to Guantanamo sýnd en þrír fyrrum fangar úr Guantanamo koma til landsins af því tilefni og sitja fyrir svörum. 5.8.2006 19:00
Hannar nærföt Jessica Simpson ætlar að setja á markað eigin línu af kynæsandi undirfötum. Leikkonan og söngkonan glæsilega fékk hugmyndina þegar hún var sjálf að kaupa sér undirföt. "Jess finnst mjög erfitt að finna brjóstahaldara sem henni líkar við svo hún ákvað að búa þá til sjálf," sagði vinkona hennar. Jessica hefur margoft tjáð sig um líkama sinn og sérstaklega hversu stolt hún er af brjóstum sínum, "Þau er alveg fullkomin. Ég var einu sinni hrædd við að sýna þau en nú finnst mér þau frábær," segir Jessica Simpson. 5.8.2006 18:00
Hriktir í stoðum sambandsins Nýjustu fregnir herma að farið sé að hrikta í stoðum sambands Jennifer Aniston og Vince Vaughn. Sumir fjölmiðlar vestanhafs ganga jafnvel svo langt að fullyrða að sambandi þeirra sé í raun og veru lokið. Samkvæmt miðlunum hefur Jen sótt huggun hjá bestu vinkonum sínum, leikkonunni Courtney Cox, söngkonunni Sheryl Crow og blakkonunni Gabrielle Reece, eftir að hún hætti með Vince. 5.8.2006 17:00
Heimsótti Cruise Penelope Cruz er nýjasta stjarnan til að fá að sjá Suri Cruise, dóttur leikarans Tom Cruise og Katie Holmes. Eins og kunnugt er voru Cruz og Cruise par í þrjú ár. "Ég held að hún sé eitt fallegasta barn sem ég hef séð," sagði Penelope. "Ég er mjög ánægð fyrir hönd foreldranna. Þau eru mjög ánægð og gengur afskaplega vel." Líklegt er talið að Tom Cruise og Katie Holmes gangi í hjónaband í höfuðstöðvum Vísindakirkjunnar í Los Angeles. 5.8.2006 16:00
Kid Rock segir Pamelu ótrúlega í rúminu Rokkarinn Kid Rock kvæntist Strandvarðabombunni vegna þess að hún er ótrúleg í rúminu. Skötuhjúin gengu í það heilaga fyrir viku síðan og Kid Rock hefur talað fjálglega um ástæður þess að hann ákvað að binda sig Pamelu. Það hefur hún líka gert og allt útlit er fyrir að þau eigi hvort annað ágætlega skilið. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að láta sem kynlífið skipti ekki máli. Sumar konur segja að það skipti ekki máli, en það gerir það fyrir mig, sagði Pamela. 5.8.2006 15:30
Ferskir straumar Basso&Brooke er nýtt og ferskt fatamerki hefur látið að sér kveða í tískuheiminum undanfarið. Hönnuðurinn Christopher Brooke lærði hönnun í London, meðal annars í Central Saint Martins, frægasta hönnunarskóla heims samhliða Parsons í New York. Hann var stílisti fyrir stjörnur á borð við Kylie Minogue, Robbie Williams og Pink áður en hann ákvað að stofna sitt eigið merki með brasilíska hönnuðinum Bruno Basso. Mottóið hjá félögunum var að rugla fólk í ríminu með fatnaði sínum. 5.8.2006 14:15
Músík bláa mannsins Ekki er öll vitleysan eins úti í hinum stóra heimi. Hinir þöglu trumbuleikarar og röraþeytarar í The Blue Man Group sem sýnt hafa listir sínar víða um heim við fátíðar vinsælir hafa nú sett á markað einkar flippuð hljóðfæri sem gefa almenningi möguleika á að herma eftir þessum bláu mönnum. 5.8.2006 14:00
Blómlegur fataiðnaður á Akureyri Hvað framleiddi Skinnaverksmiðja Iðunnar? Hvernig litu mokkajakkar Skinnu út? Var virkilega hægt að framleiða fallega skó á Akureyri? Hvaða fyrirtæki unnu að framleiðslu fatnaðar á Akureyri á 20. öldinni? 5.8.2006 14:00
Aftur ólétt Fatahönnuðurinn Stella McCartney á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum Alasdhair Willis en fyrir eiga þau 17 mánaða gamlan son. Faðir Stellu, bítillinn Paul McCartney, er í skýjunum yfir þessum fregnum og verður þetta fjórða barnabarn hans. Eins og kunnugt er gengur hann í gegnum erfiðan skilnað og segir Paul að þetta séu bestu fregnir sem hann hafi fengið lengi. 5.8.2006 13:15