Fleiri fréttir

Gladiator sandalar í sumar

Hið umdeilda gladiator skótrend mun ryðja sér rúms í sumar. Slíkir skór voru síðast í tísku árið 2008, eftir að Balenciaga notaði þá í sumarlínu sinni.

Dóttir Lionel Richie er upprennandi tískumógull

Sofia Richie, 14 ára dóttir Lionels Richie, ætlar sér að verða mikil tískudrós ef marka má myndir sem hún setur á instagram síðu sína. Sofia á ekki langt að sækja tískuáhugann, en eins og flestir vita er systir hennar engin önnur en tískufyrirmyndin Nicole Richie. Nicole hefur um árabil verið á mörgum listum yfir best klæddu konur heims, ásamt því að eiga og hanna eigin skartgripalínu. Hér eru nokkar myndir af instagram hjá Sofiu.

Smekkleg hertogaynja

Kate hefur vakið mikla athygli hvert sem hún fer fyrir einstaklega fallegan og dömulegan klæðaburð. Mörgum finnst henni svipa mjög til tengdamóður sinnar heitinar, Díönu prinsessu, en hún var ein helsta tískufyrirmynd seinni ára.

Íslendingur hannar og selur hulstur fyrir iPhone

Rakel Tómasdóttir er mikill fagurkeri og hefur fengist við listsköpun síðan hún man eftir sér, en hún hefur alltaf haft mikinn áhuga á bæði hönnun og myndlist. Eftir að Rakel eignaðist iPhone rak hún sig á hversu erfitt það var að finna falleg hulstur utan um hann. Á endanum fann hún síðu á netinu þar sem hægt var að senda inn eigin mynd og fá hana prentaða á hulstur.

Fann ástina á ný

Leikkonan Jennie Garth, sem er hvað best þekkt úr sjónvarpsþáttunum Beverly Hills, 90210, er búin að finna ástina á ný í örmum tónlistarmannsins Jeremy Salken.

Magnaðar myndir af norðurljósunum

Finnur Andrésson áhugaljósmyndari tók þessar fallegu myndir af norðurljósunum í gærkvöldi á eyðibýli sem heitir Fiskilækur. Eins og sjá má logaði himininn af norðurljósunum á magnaðan hátt.

Stóllinn drepur þig

Hvað getur þú gert í þínu lífi til að halda efnaskiptunum og brennslunni þinni hærri en hún er fyrir, án þess að taka æfingarnar inn í spilið ef þær eru það fyrir?

Gæti keppt í Ungfrú heimi fyrir Filippseyjar

Ásdís Lísa stígur sín fyrstu skref í heimi fegurðarsamkeppna og getur treyst á leiðsögn frá kærastanum sínum, Ólafi Geir Jónssyni, sem var krýndur Herra Ísland árið 2005.

Fölbleikir kjólar á Golden Globe

Sjötugasta árlega Golden Globe verðlaunahátíðin var haldin með pompi og prakt í Los Angeles í gær. Stjörnurnar mættu að sjálfsögðu í sínu fínasta pússi, en það er alltaf mikil spenna í loftinu þegar hulunni er svift af kjólunum á rauða dreglinum. Athygli vakti hversu margar konur klæddust kjólum í fölbleikum lit. Það verður þá líklega það sem koma skal á næstu vikum.

Erfitt að vera ofurfyrirsæta

Kate Moss og Naomi Campbell eru tvær af þekktustu ofurfyrirsætum heims. Þær eru vanar því að klæðast hátískufatnaði, sóla sig á snekkjum og umgangast frægasta fólk í heimi en þær segja þetta módellíf þó ekki vera dans á rósum.

Trúlofuð strippara

Glamúrfyrirsætan Katie Price er fljót að finna sér nýjan unnusta. Hún sleit trúlofun við Leandro Penna fyrir ellefu vikum og er nú trúlofuð fatafellunni Kieran Hayler.

Svart og hvítt í sumar

Í sumar verður afar vinsælt að klæðast svörtu og hvítu saman ef marka má helstu tískuspekúlanta. Þessi samsetning spilaði stórt hlutverk í vor -og sumar sýningum hönnuða á borð við Marc Jacobs, Céline, Alexander Wang og Jil Sander. Það má segja að þetta trend sé nokkur tilbreyting frá fyrri árum, en það er venjan að litadýrð sé við völd í sumartískunni. Skemmtileg tilbreyting í anda sjöunda áratugarins.

Svona hafið þið aldrei séð hana

Ofurfyrirsætan Kate Moss er nánast óþekkjanleg í nýrri auglýsingaherferð fyrir vor- og sumarlínu Versace. Kate er óvenju brún á myndunum úr herferðinni og sannar í eitt sinn fyrir öll að hún er kameljón.

Hætt saman!

Leikkonan Jennifer Lawrence og kærasti hennar til tveggja ára, leikarinn Nicholas Hoult, eru hætt saman. Jennifer hefur í nægu að snúast í leiklistinni og hafði ekki tíma til að sinna ástinni.

Býður mömmu á Óskarinn

Þó að lítið gangi í ástarlífinu hjá sjarmörnum Bradley Cooper þá er leiklistarferill hans á uppleið. Hann hlaut tilnefningu til Óskarsverðlaunanna í vikunni sem besti leikarinn og er löngu búinn að ákveða með hverjum hann fer á verðlaunahátíðina.

Myndar dóttur Jagger fyrir H&M

Tískurisinn H&M mun senda frá sér ,,rokk og ról" línu nú í vor. Fyrirsætan fyrir auglýsingaherferðina er engin önnur en Georgia May Jagger, en hún er dóttir rokkarans Mick Jaggers og ofurfyrirsætunnar Jerry Hall. Stjörnuljósmyndarinn Terry Richardson sá um að taka myndirnar. Georgia , sem er 21 árs, segir rokktónlistina og umhverfið sem hún ólst upp í hafa haft mikil áhrif á sig. Einnig telur hún að tónlist hafi haft mikil áhrif á tísku í gegnum tíðina. Línan verður fáanleg í H&M í með vorinu.

Demi með nýjan – 19 ára aldursmunur

Leikkonan Demi Moore er búin að finna ástina í veitingastaðaeigandanum Harry Morton. Þau hafa farið á fjöldamörg stefnumót síðustu vikur og eru afar hrifin af hvort öðru.

Já, hún var einu sinni ljóshærð

Modern Family-skvísan Sofia Vergara er búin að vera í stuði síðustu daga að rifja upp gamla tíma. Hún birti röð af myndum af sjálfri sér á Twitter síðan hún var að byrja leiklistarferilinn í Kólumbíu og það kom mörgum á óvart að hún var einu sinni ljóshærð.

Íslenskar systur í mest lesna blaði Seattle

Systurnar Kristín Maríella og Áslaug Íris Friðjónsdætur hafa heldur betur slegið í gegn með skartgripalínunni Twin Within sem þær sendu frá sér í nóvember síðastliðnum. Kristín segir viðbrögðin ekki hafa látið á sér standa og þær systur eru í skýjunum yfir velgengninni, en hálsmenin hafa selst eins og heitar lummur.

Slúðurheimur skelfur: Britney á lausu

"Ég mun alltaf dá hann og við verðum áfram frábærir vinir," sagði Britney Spears eins fáránlega og það hljómar en vonandi rætist úr því. "Nú þegar þessi kafli endar hjá okkur þá byrjar glænýr á sama tíma. Ég elska og dýrka drengina hennar og við verðum náin að eilífiu," er haft eftir Jason sem hefur ekki lengur afskipti af málum Britney. Ætli samningslitin við X Factor stjórnendur hafi haft áhrif á sambandsslitin er ekki vitað en hún mun ekki setjast í dómarasætið aftur.

Adele sýnir barnið í fyrsta sinn

Söngkonan Adele lenti í Los Angeles á fimmtudaginn en hún er í borginni til að vera viðstödd verðlaunahátíðina Golden Globes þar sem hún er tilnefnd fyrir lagið Skyfall.

Ólétt eftir sæðisgjafa

Monica Cruz, yngri systir leikkonunnar Penelope Cruz, gengur nú með sitt fyrsta barn. Hún nennti ekki að bíða eftir draumaprinsinum og heimsótti því sæðisbanka til að klára málið.

Baywatch-bomba í basli við kílóin

Nicole Eggert, sem gerði garðinn frægan í sjónvarpsþáttunum Baywatch, er orðin þreytt á fataskápnum sínum og leitar aðstoðar í sjónvarpsþættinum What Not To Wear á sjónvarpsstöðinni TLC.

Pabbi misnotaði mig

Pola Kinski, dóttir leikarans Klaus Kinski heitins, fullyrðir í sjálfsævisögu sinni Kindermund að faðir hennar hafi misnotað hana í fjórtán ár, allt frá því hún var fimm ára.

23 ára með eigin skartgripalínu

Rut Karlsdóttir (23 ára) útskrifaðist af listnámsbraut úr Fjölbrautarskólanum í Garðabæ árið 2009. Tveimur árum seinna fluttist Rut til Barcelona og kláraði þar fyrsta árið í fatahönnun í IED Barcelona.

Eiga von á fyrsta barni

Leikaraparið Evan Rachel Wood og Jamie Bell giftu sig í laumi á síðasta ári og ætla enn og aftur að koma á óvart á því nýja. Þau eiga nefnilega von á sínu fyrsta barni.

Með tvo umboðsmenn í London

Tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir heldur útgáfutónleika í Viðeyjarstofu í Viðey í kvöld. Þar kynnir hún sína fjórðu plötu, Moment, sem kom út fyrir jól.

Ostwald Helgason þótti best

Tískuljósmyndarinn Tommy Ton fór yfir tískuárið 2012 á vefsíðunni Style.com. Honum þótti ýmislegt bera af á árinu og nefndi meðal annars hálfíslenska tískumerkið Ostwald Helgason til nýliða ársins.

Þakklát fyrir að vera leikkona

Tökur eru nýhafnar á nýrri þáttaröð sem nefnist Ástríður. Það er sería númer tvö með því nafni. Ilmur Kristjánsdóttir leikur titilhlutverkið eins og í fyrri seríunni. Hún var tilnefnd til Edduverðlauna 2010 sem leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir frammistöðu sína þá. Því er fyrsta spurning sem leikkonan fær þessi:

Árni tilnefndur til Brit

Árni Hjörvar Árnason og félagar tilnefndir sem besta breska tónleikasveitin ásamt The Rolling Stones, Coldplay, Muse og Mumford and Sons. Brit-verðlaunin verða afhent í London 20. febrúar.

Mætir með tonn af búnaði

Raftónlistarmaðurinn Squarepusher kemur hingað til lands með rúmlega tonn af búnaði vegna tónleika sinna á Sónar-hátíðinni sem verður haldin í Hörpu um miðjan febrúar. Við þennan búnað bætist svo stærsti ljósaskjár sem til er á Íslandi sem verður sérstaklega settur upp í Silfurbergi, enda leggur tónlistarmaðurinn mikið upp úr sjónræna þættinum.

Hættu að finna upp nýjar afsakanir

Ekki reyna að finna endalaust upp nýjar afsakanir fyrir því að komast ekki í ræktina. Ég hef heyrt þær allar og þær virka bara ekki, segir Guðmundur Hafþórsson íþróttafræðingur...

Heitustu afarnir á Íslandi

"Við getum verið sammála um að hæfileikar eru kynþokkafullir burtséð frá aldri," segir í tímaritinu Vikan sem velur heitustu afana á Íslandi. Þeir sem eru á listanum góða yfir heitustu afana eru tónlistarmaðurinn Daníel Ágúst Haraldsson, leikarinn Pálmi Gestsson, söngvarinn Bergþór Pálsson, fjömiðlamaðurinn Þórhallur Gunnarsson, söngvarinn Egill Ólafsson, söngvarinn Björgvin Halldórsson, söngvarinn Garðar Cortes, stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon, leikarinn Arnar Jónsson, umboðsmaður Arnór Guðjóhnsen, söngvarinn Bjartmar Gunnlaugsson, athafnamaðurinn Magnús Scheving, leikarinn Þórhallur Sigurðsson (Laddi) og Guðmundur Týr Þórarinsson (Mummi) í Götusmiðjunni.

Íslenskur íþróttafræðingur meikar það í Dubai

"Helga Marín hefur verið áberandi i Austurlöndum síðastliðið ár og hefur heldur betur haslað sér völl í Dubai sem heilsu og íþróttafræðingur," segir á vefnum Tíska.is sem Helga leyfði að fylgjast með sér í einn dag. Helga hefur komið víða fram í fjölmiðlum í Austurlöndum auk þess hefur hún verið með námskeið fyrir stór fyrirtæki og þekkta einstaklinga í Dubai.

Hverjir taka þátt í Eurovision?

Margir reynsluboltar taka þátt í Söngvakeppninni í ár. Átta af þrettán flytjendum hafa áður keppt í keppninni og tveir unnið hana.

Skosk hátíð á Kexinu

Burns-nótt er haldin ár hvert á afmælisdegi þjóðskáldsins Robert Burns og er fagnað með skoskum mat, drykk, tónlist og að sjálfsögðu ljóðlist Roberts Burns.

Þeim leiddist ekki að vera boðið í börger

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Lebowski bar í gærkvöldi þar sem gestum var boðið upp á börger og bjór á frumsýningu á fyrsta þætti HA? í nýrri þáttaröð á Skjá einum sem sýndur er á föstudagskvöldum. Eins og sjá má lá vel á þáttastjórnendunum Jóa, Sóla, Gunna og Stefáni og gestunum.

Ómáluð og óþekkjanleg

Kántrísöngkonan LeAnn Rimes skottaðist um Los Angeles í vikunni í íþróttafötum og algjörlega ómáluð. Er það skemmtileg tilbreyting því almenningur er vanur því að sjá stjörnurnar uppstrílaðar daginn út og daginn inn.

Á nærbuxunum – aftur

Fótboltastjarnan David Beckham er greinilega orðinn heitasta undirfatafyrirsætan í bransanum – þó knattspyrnukappi sé. Myndir náðust af folanum taka upp nýja auglýsingu fyrir undirföt H&M á götum Beverly Hills.

Sleppir áfengi og umgengst jákvætt fólk

Ása Ottesen eigandi Lakkalakk.is hefur í nægu að snúast. Lífið heyrði stuttlega í Ásu og spurði hana hvernig hún heldur sér í líkamlegu og andlegu formi. Ég er nú ekki mikil heilsufrík en það sem ég geri er: 1. Sund og gufa. 2. Engifer skot og safara á Lifandi markaði. 3. Drekk ekki áfengi. 4. Tabata og spinning í World Class. 5. Umkringja mig jákvæðu fólki sem fær mig til þess að hlæja.

Hin fullkomna eggjakaka

Fjórði þáttur af MasterChef Ísland fer í loftið í kvöld á Stöð 2. Sjö keppendur standa nú eftir og eiga möguleika á því að næla sér í nafnbótina Meistarakokkur Íslands.

Sjá næstu 50 fréttir