Fleiri fréttir

Gamanleikur með broddi

Í leikritinu Nanna systir koma upp málefni á borð við barnaníðinga, kvótamál, eignahlut í litlum plássum og presta. "Verkið sló í gegn árið 1996 og var einnig sýnt í Þjóðleikhúsinu sama ár. Þetta er skemmtilegt verk sem ég tel eiga erindi við samfélagið í dag," segir Rúnar Guðbrandsson leikstjóri.

Heldur áfram í Borgias

Björn Hlynur Haraldsson er nýkominn til landsins eftir fimm mánaða dvöl erlendis. Þar lék hann í sjónvarpsþáttunum Borgias og mexíkóskri bíómynd.

Kynna Airwaves í París

Hljómsveitirnar Ghostigital og Epic Rain spila í París 31. janúar á tónlistarviðburði sem tengist Iceland Airwaves-hátíðinni.

Sykursætt sambland af poppi og pönki

Hljómsveitin Blondie kemur strax upp í hugann þegar maður hlustar á Gull og vitleysu. Söngrödd Hafdísar Dýrðarsöngkonu er ekki ósvipuð Debbie Harry og lögin eru mörg einföld keyrslurokklög með grípandi viðlögum, eins og hjá Blondie. Dýrðin spilar sykursætt og melódískt pönkpopp.

Tengdir fjölskylduböndum

Kvikmyndirnar Amour og The Intouchables eru framlög Austurríkis og Frakklands til Óskarsverðlaunanna í ár. Aðalleikarar myndanna, Jean-Louis Trintignant og François Cluzet, eru tengdir fjölskylduböndum. Cluzet á soninn Paul með Marie Trintignant, dóttur Jean-Louis. Marie var þekkt leikkona og leikstjóri en lést eftir að kærasti hennar, franski söngvarinn Bertrand Cantat, hafði barið hana ítrekað í höfuðið eftir rifrildi.

Vígalegar í Valentino

Leikkonan og Íslandsvinurinn Noomi Rapace ljómar í þessum græna blúndukjól frá Valentino, enda afar klæðilegur.

Anita skemmti sér á Íslandi um jólin

Leikkonan Anita Briem var stödd hér á landi um jólin til að heimsækja vini og vandamenn. Hún nýtti tækifærið og brá sér út á lífið og sást um síðustu helgi í hópi vinkvenna sinna á skemmtistaðnum B5 við Bankastræti.

Vill ekki vera með sér yngri manni

Fyrirsætan Heidi Klum segist ekki geta hugsað sér að eiga í ástarsambandi við yngri mann. Klum skildi við eiginmann sinn, tónlistarmanninn Seal, í janúar á síðasta ári.

Best klædda bisnessfólkið

Framkvæmdastjórinn Arnar Gauti Sverrisson valdi best klædda bisnessfólkið á Íslandi fyrir Viðskiptablaðið á dögunum. Listinn hefur að skipa fimm einstaklinga sem eru best klæddir í viðskiptalífinu á Íslandi að mati Arnars. Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka trónir á toppnum, þá landaði Skúli Mogensen forstjóri Wow air öðru sætinu. Í þriðja sæti er eina konan á listanum, Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova. Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins er í fjórða sæti og í fimmta sæti er Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone.

Þetta borðar ofurkroppurinn Margrét Gnarr

"Ég borða þessa próteinpönnslu aðallega af því mér finnst hún svo ótrúlega góð og hún er mjög holl," segir Margrét Edda Gnarr fitnessdrottning með meiru spurð...

Þung lóð virka vel

Fyrir tveimur árum var ég komin með nóg af þessu dúlleríi, ég var í engu formi þrátt fyrir að fara í ræktina á hverjum degi. Hljómar mótsagnakennt en ég er fullviss um að mörg ykkar hafa upplifað þetta.

Fótboltakærasta í sjóðheitri myndatöku

Fyrirsætan Irina Shayk, kærasta fótboltamannsins Cristiano Ronaldo, gefur Victoria's Secret-englunum ekkert eftir í myndatöku fyrir kólumbíska sundfatamerkið Agua Bendita.

Eignaðist aðra stúlku

Breska söngkonan Lily Allen, 27 ára, og eiginmaður hennar Sam Cooper eignuðust stúlku sem hefur verið nefnd Marni Rose Cooper. Þau áttu eina stúlku, Ethel, fyrir en hún fæddist í nóvember árið 2011. Meðfylgjandi myndir voru teknar af Lily þegar hún gekk að eiga Sam.

Lesbíur eignast dóttur

Grínistinn Rosie O'Donnell ættleiddi stúlkubarn með eiginkonu sinni Michelle Rounds. Litla hnátan fæddist á laugardaginn var og mæðrum og barni heilsast vel.

Kynlíf er einstök reynsla

Liam Neeson kveðst ekki mundu vilja vera unglingur í dag. Hann telur að samfélagið sé gegnsýrt af klámi og kynlífi og að það hljóti að vera erfitt fyrir unglinga að takast á við þetta áreiti.

Barnið fer ekki í sjónvarpið

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og kærasti hennar Kanye West ætla ekki að leyfa myndavélum að fylgjast með fyrstu mánuðum í lífi ófædds barns þeirra. Þau ætla ekki heldur að selja myndir af því.

Borðaði bara brauð með osti í öll mál

Hildur Halldórsdóttir opnaði síðuna Heilsudrykkir Hildar á Facebook fyrir tæpu ári. Hún gefur okkur einfalda uppskrift af heilsusafa sem er kjörinn í byrjun dags. "Ég var heima í fæðingarorlofi og var komin með leið á mjög svo tilbreytingarlausu og einhæfu fæði. Borðaði bara að mestu brauð með osti í öll mál," svarar Hildur spurð af hverju hún byrjaði með heilsudrykkjasíðuna sem er vinsæl á Facebook. "Ég fór svo að leita að upplýsingum um holla og góða smoothie á íslensku en fann lítið af uppskriftum og líka fannst vanta næringarinnihald í þær sem ég fann en einn smoothie getur verið mjög hitaeiningaríkur. Upphaflega setti ég því síðuna upp fyrir mig til þess að halda utan um uppskriftirnar mínar. Mig óraði aldrei fyrir því að þetta yrði svona vinsæl síða," segir Hildur. Grænn og vænn (304 Kcal) 11,88 gr prótein, 5,8 gr kolvetni, 4,9 gr fita Mjög bragðgóður og mjög grænn drykkur sem hentar vel sem fyrsti drykkur dagsins, um að gera að setja sem mest af spínati, það breytir hitaeiningafjöldanum lítið þar sem að spínat er svo hitaeiningasnautt. 1 frosinn, þroskaður banani 2 dl (40 gr) frosinn ananas 2 dl (40 gr) frosinn mangó 1/2 pakki af Frutein próteini, Revitalizing Green Foods Fullt af spínati, 2-3 góðar lúkur, má vera minna má vera meira. 1 msk (10 gr) hörfræ Smá ferskt, rifið engifer. Vatn eftir þörfum, ca. 3-4 dl. Allt sett í blandarann og blandað þar til silkimjúkt og fallegt. Sjá síðuna hennar Hildar hér.

Djörf á forsíðu GQ

Poppstjarnan Beyonce sýnir ansi mikið hold á forsíðu nýjasta heftis tímaritsins GQ sem kemur í verslanir vestan hafs næsta þriðjudag.

Vinkonur með nákvæmlega eins tattú

Það vakti athygli okkar á Lífinu að vinkonurnar Kolbrún Gígja og Bryndís Jóhannesdóttir eru með nákvæmlega eins húðflúr á líkamanum skrifað á vinstri öxlina með tengiskrift: "You'll never walk alone" . Við höfðum samband við vinkonurnar og spurðum út í gjörninginn.

Öfgarokk í Efstaleitinu

Þrátt fyrir að vinna hjá hinu virðulega Ríkisútvarpi sækja rokkþyrstu fjölmiðlamennirnir Andri Freyr Viðarsson, Helgi Seljan og Sigmar Guðmundsson í harðasta hávaðagargið sem fyrirfinnst í heimi hér.

Amour frumsýnd á Íslandi annað kvöld

Kvikmyndin Amour er fimmta myndin í sögunni sem er bæði tilnefnd sem besta mynd og sem besta erlenda mynd á Óskarsverðlaunahátíðinni. Hún er einnig tilnefnd fyrir leikstjórn, handrit og aðalleikkonu. Hún segir frá Georges, sem þarf að endurmeta framtíð sína þegar eiginkona hans veikist mjög alvarlega.

Frá bollum til bókar

Ég býst við því að þetta sé ekki síðasta bókin sem mun birtast um furðuverurnar í Tulipop, og vonandi mun sú næsta ná betri tökum á hönnun myndabókarinnar.

Keppa í snjóskúlptúrakeppni í BNA

Hálfdan Pedersen og Sara Jónsdóttir eru meðlimir í Snjóhöggvurum Íslands. Þrátt fyrir litla reynslu munu þau taka þátt í snjóskúlptúrakeppni í Colorado.

Missoni-erfingi hvarf með flugvél

Flugvél með Vittorio Missoni, forstjóra og einum af erfingjum Missoni-tískuhússins, eiginkonu hans, Mauriziu Castiglioni, og tveimur öðrum innanborðs hvarf við strönd Venesúela á föstudag. Leit hefur staðið yfir að vélinni frá því á föstudag en hún hefur ekki borið árangur.

Mest spennandi 2013

Nick Cave, Queens of the Stone Age og Yeah Yeah Yeahs gefa út nýjar plötur.

Lincoln með 10 Bafta-tilnefningar - Bond með átta

Lincoln fékk flestar tilnefningar til bresku Bafta-verðlaunanna, eða tíu talsins, þar á meðal fyrir bestu myndina og besta leikarann, Daniel Day-Lewis. Athygli vekur að leikstjóri myndarinnar, Steven Spielberg, hlaut ekki tilnefningu sem besti leikstjórinn.

Forsmekkur fyrir haustið

Hönnuðir senda frá sér millilínur fyrir haustið. Víðar flíkur verða áfram vinsælar.

Einhleyp á ný?

Kántrísöngkonan Taylor Swift og söngvarinn Harry Styles úr strákabandinu One Direction virðast vera hætt saman ef marka má nýjustu fregnir slúðurmiðla. Parið hefur ekki farið leynt með ást sína síðan þau byrjuðu að slá sér upp fyrir tveimur mánuðum. Meðal annars fögnuðu þau nýju ári saman á Times Square í New York og kysstust fyrir framan myndavélarnar.

Dreymir um Óskarinn

Söngkonan Katy Perry gæti unnið til Óskarsverðlaunanna í ár. Lag hennar, Wide Awake, sem hún samdi fyrir tónleikamyndina Katy Perry: Part of Me gæti keppt til verðlaunanna í flokknum besta kvikmyndatónlistin. Alls eru sjötíu og fimm lög sem koma til greina. Þeim verður síðar fækkað niður í fimm.

Leikið með tímann

Tíminn er viðfangsefni sýningarinnar Stundarbrot sem frumsýnd verður á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld. Leifur Þór Þorvaldsson, höfundur og leikstjóri verksins, segir vangaveltur um tímann vekja upp spurningar um líf og dauða.

Er andlitið eitthvað öðruvísi en vanalega?

Nú eru getgátur um að Jennifer Aniston sé pottþétt ólétt því hún á að vera með meiri fyllingu í andlitinu en vanalega. Lífið á erfitt með að sjá að Jennifer sé eitthvað öðruvísi en vanalega í andliti - nema hvað að hún er glöð og greinilega í dúndur formi. Myndir af henni sem teknar voru í desember og í gær má skoða í myndaalbúminu hér að ofan. Sérð þú mun? Skoðaðu myndasafnið og sjáðu hvort eitthvað sé að marka þessa pælingu.

Tilvonandi foreldrar kaupa milljarðahús

Kærustuparið Kim Kardashian og Kanye West eru búin að festa kaup á glæsihýsi í Bel Air í Kaliforníu. Húsið kostaði þau ellefu milljónir dollara, tæpan einn og hálfan milljarð króna.

Á að losna við aukakílóin eftir allar jólakræsingarnar?

"Jákvætt viðhorf á okkur sjálf og raunhæf markmið er allt sem þarf," er það fyrsta sem Freyja Sigurðardóttir þriggja barna móðir og fitnessdrottning með meiru þegar við spyrjum um markmið og ráð hennar til þeirra sem vilja huga vel að líkama og sál en hún starfar sem einkaþjálfari hjá Hreyfingu og Sporthúsinu í Reykjanesbæ. "Æfingastöðvarnar eru að fyllast og flest allir eru með sömu markmið sem eru að losna við "aukakílóin" eftir allar jólakræsingarnar. Þú ætlar að taka laugardaginn og sunnudaginn alveg í átveislu því þú ætlar svoleiðis að byrja í "átaki" á mánudaginn. Kannastu við þetta?" spyr Freyja jafnframt áður en hún þylur upp eftirfarandi ráð: 1. Morgunmatur Það er algjört lykilatriði að byrja daginn á hollum og næringarríkum mat ef þú vilt ná tökum á líkamsþyngdinni og borða svo litlar máltíðir allan daginn á 2-3 tíma fresti til að viðahalda "brennslunni" í líkamanum og að blóðsykurinn haldist í jafnvægi. 2. Raunhæf markmið Ég ætla að vera búin að missa 5-7 kg.og 7% í fitu á einum mánuði. Þetta fæ ég að heyra alltof oft. Fitan rennur ekki af þér frá fyrsta degi á nýju æfingaplani og breyttu mataræði. Það getur tekið líkamann nokkra daga jafnvel vikur að komast í jafnvægi til að brenna fitu. Líkaminn streitist á móti og reynir að halda í allt sem hann getur, og því minna sem þú borðar því þrjóskari verður hann. Raunhæft markmið er allt sem þarf og við þurfum að hætta öllum skyndikúrum og skyndi hitt og þetta. Allt tekur sinn tíma og maður uppsker eins og maður sáir.. Að breyta lífsstíl sínum og skrokk tekur tíma og mörg lítil skref verða að einu stóru skrefi sem verður hið raunverulega markmið. Breytingar eru að eiga sér stað í líkamanum þó við sjáum þær ekki frá degi til dags. 3. Jákæðni Gerðu lífsstílsbreytingu á jákvæðan hátt. Þú einn getur tekið ákvörðun um hvað þú vilt gera og hvernig þú vilt taka þig á. Enginn getur gert þetta fyrir þig þannig að ef ákvörðunin er að breyta lífsstílnum og koma sér í betra líkamlegt og andlegt form þarftu að hefja "átakið" á jákvæðni og þolinmæði. Einfalda leiðin er EKKI að sleppa hinu og þessu heldur að gæta hófs. Borðaðu einn ávöxt og grænmeti sem millimál og vatnsglas er góður ávani. 4. Gættu hófs Þú byrjar af krafti í ræktinni og tekur hrikalega vel á því, svitinn lekur af þér og þú ert afskaplega ánægður með þig. Eftir æfinguna finnst þér þú heldur betur hafa unnið fyrir því að fá þér væna próteinstöng eða álíka hressingu. En ef slík "verðlaun" koma sem viðbót við aðra fæðu sem þú neytir að jafnaði, eru litlar líkur á minnkandi ummáli. Árangursríkasta leiðin til að leggja af er að að auka hreyfinguna jafnhliða því að fækka hitaeiningum að einhverju leyti. 5-6 litlar máltíðir á dag í réttum hlutföllum í öllum fæðutegundum ásamt hreyfingu er lykillinn að bættri heilsu og minni ummáli. 5. Þú ert að gera þetta fyrir þig Til að ná varanlegum árangri í líkamsrækt þarf þú að taka ábyrgð á sjálfum þér. Ef þú ætlar að treysta á vin eða vinkonu til að draga þig alltaf með sér á æfingu og þú situr heima ef hann/hún mætir ekki til að sækja þig, þá er hætt við því að málið falli fljótt um sjálft sig. Það er vissulega besta mál að hafa æfingafélaga. En ekki treysta á að hann í blindni, og ekki ætlast til að maki þinn eða aðrir í kringum þig stoppi þig af ef þú ert að "svindla" í mataræðinu eða líkamsrækt þinni. Þú ert þinn eigin gæfu smiður. Treystu á sjálfan þig. 6. Hófsemi Það er mun auðveldra að komast í kjörþyngd með því að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl smám saman í stað þess að rjúka af stað með reglulegu millibili í strangan megrunarkúr. Ef þú heldur þig við hollt fæði flesta daga er í fínu lagi að láta eftir sér að smakka á uppáhalds óhollustunni öðru hvoru. Það er nauðsynlegt að njóta þess að borða það sem þig langar í en kunna að gæta hófs. Það gefast allir upp ef þeir neita sér um allt sem þá langar í. Besta lausnin er að finna skemmtilega tegund þjálfunar sem kemur þér í gott form og borða holla og fjölbreytta fæðu sem þú nýtur þess að borða, í hóflegu magni. 7. Geðheilsan Líkamsrækt minnkar streitu og kvíða og getur haft fyrirbyggjandi áhrif á þunglyndi. 8. Hreinsaðu til í mataræðinu Hreinsaðu burt allt konfekt, snakk og allt sem ögrar þér í mataræðinu. Það er ósköp einfalt, ef freistingarnar eru til staðar er mjög líklegt að þær muni tefja fyrir því að þú náir settu markmiði. Hugsaðu sem svo; ruslfæði og sætindi henta ekki lengur markmiðum mínum, svo út með þau! Fylltu svo skápana og ísskápinn af fjölbreyttri hollustu. 9. Þú stjórnar ferðinni Þú átt aðeins þennan eina líkama og heilsa þín er dýrmæt. Ekki vanmeta mikilvægi þess að rækta líkamann, hreyfa hann reglulega og velja vandlega næringuna þína. Mundu að þitt er valið, það er ljóst að enginn annar en þú sjálf/ur velur hvað þú borðar og hvort og hve oft þú hreyfir þig. Þitt val, þínar ákvarðanir, þinn árangur!

Í náttslopp á rauða dreglinum

Stórleikarinn Nick Nolte er eilífðartöffari. Það sást best þegar nýjasta mynd hans Gangster Squad var frumsýnd í Hollywood á mánudagskvöldið.

Selur nærfötin á eBay

Khloe Kardashian stofnaði verslun á eBay með eiginmanni sínum Lamar Odom síðasta sumar. Khloe er greinilega orðin söluóð og er meira að segja farin að selja nærfötin sín og sexí undirfatnað.

Með hríðar í 27 tíma

Skrautlega raunveruleikastjarnan Snooki eignaðist soninn Lorenzo í ágúst á síðasta ári og er afar stolt móðir. Fæðingin gekk vel fyrir sig þó aðdragandinn væri langur.

Stokkbólginn ritstjóri

Björk Eiðsdóttir ritstjóri Séð og heyrt fékk aldeilis að finna fyrir því á síðasta ári. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd bólgnuðu varir ritstjórans á örfáum sekúndum en ástæðan var heiftarlegt birkiofnæmi. Atvikið átti sér stað í fyrra sumar en þá er birkifrjóin mjög virk í loftinu hér á landi. Þá verður krossverkun sem leiðir til þess að eplið sem Björk borðaði aðeins nokkrum sekúndum áður en varir hennar bólgnuðu svona mikið framkölluðu þessi viðbrögð sem sjá má á myndinni. Það gengur mikið á hjá Björk þessa dagana. Hún og dóttir hennar Blær berjast eins og hetjur fyrir nafni stúlkunnar. Málið hefur vakið athygli út um allan heim og fjölmiðlar sýnt því gríðarlega mikla athygli.

Forsetinn með afabarnið í Zöru

Viðskiptavinum í versluninni Zöru fannst eflaust vinalegt að standa við hliðina á forseta Íslands við afgreiðslukassann í gær. Þar var Ólafur Ragnar Grímsson með einu af barnabarni sínu í verslunarleiðangri.

Hún er sextug! Trúiði því?

Leikkonan Jane Seymour var stórglæsileg á rauða dreglinum þegar nýjasta mynd hennar Freeloaders var frumsýnd í Los Angeles á mánudagskvöldið.

Sjá næstu 50 fréttir