Fleiri fréttir

Heillaðist af alíslensku hráefninu

Hráefnið kveikti í mér og þetta var ekkert smá skemmtilegt verkefni,? segir iðnhönnuðurinn Sigríður Heimisdóttir sem hefur hannað fylgihluta-, fata- og heimilislínu úr mokkaskinni fyrir íslenska fyrirtækið Varma.

Redford framleiðir Aldingarð Ólafs

Hollywoodleikarinn, leikstjórinn og framleiðandinn Robert Redford undirbýr sjónvarpsþætti byggða á smásagnasafni Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Aldingarðinum. Erlendir miðlar fara mikinn í umfjöllun sinni um væntanlega þætti enda Redford ákveðinn gæðastimpill á verkefninu en hann er titlaður framleiðandi. Þættirnir bera heitið Valentines og verða sýndir á Sundance-sjónvarpsstöðinni. Ásamt Redford er Fred Berner framleiðandi en hann er meðal annars með myndir á borð við Pollock og sjónvarpsþættina Law and Order á ferilskránni.

Valdamiklar systur

Systurnar Jessica og Ashlee Simpson brostu sínu blíðasta í versluninni Macy's í Costa Mesa í Kaliforníu á laugardaginn.

30+ í tísku

Eins og sagði frá í helgarblaði Fréttarblaðsins spiluðu Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna á balli á laugardaginn þar sem aldurstakmarkið var 30 ár. Þetta var í fyrsta skipti sem þeir spila á balli með svo háu aldurstakmarki. Helgi og félagar voru þó ekki þeir einu sem fetuðu þessa braut á laugardaginn því poppkóngurinn Páll Óskar hélt álíka ball í Stapanum í Reykjanesbæ á sama tíma.

Ætla að rífa þakið af Hofi

Guðrún Dalía Salómonsdóttir og Jón Svavar Jósefsson halda tónleika í Hofi á Akureyri á fimmtudagskvöld. Jón Svavar er söngvari og Guðrún Dalía píanóleikari og ætla þau að flytja vitfirrt íslensk sönglög.

Erfitt að þyngjast

Leikkonan þaulreynda Sally Field þurfti að leggja ýmislegt á sig til að landa hlutverki í nýjustu kvikmynd Stevens Spielbergs, Lincoln.

Hvaða pía er þetta?

Leikarinn Jake Gyllenhaal sást leiða dularfulla stúlku í New York um helgina. Þau fengu sér góðan göngutúr og skemmtu sér konunglega í félagsskap hvors annars.

Ekki taka myndir af mér!

Ungstirnið Selena Gomez var ekki í sínu besta skapi þegar hún fór í flug frá LAX-flugvelli í Los Angeles daginn eftir að staðfest var að hún og Justin Bieber væru hætt saman.

Ekkert á milli mín og Bieber

Nítján ára Victoria's Secret fyrirsætan, Barbara Palvin, neitar alfarið að hún og söngvarinn Justin Bieber, 18 ára, eigi í rómantísku ástarsambandi. Eftir að ljósmynd af henni og Justin sem hún lét taka af sér með honum birtist á netinu og Selena Gomez sagði Justin upp fóru hávarar sögusagnir af stað um að Barbara og Justin væru skotin í hvort öðru. Barbara sagði fylgendum sínum á Twitter hinsvegar að slaka á því alls ekkert væri á milli þeirra - eina sem hún gerði var að taka mynd af sér með honum.

Treysta á veðurguðina

"Ég verð nú að viðurkenna að veðrið er búið að vera helst til skrautlegt þarna fyrir norðan og því gæti allt farið í tóma vitleysu," segir Þóra Sigurðardóttir en hún og eiginmaður hennar, Völundur Snær, eru þessa dagana á fullu að undirbúa jólahlaðborð í hinu fornfræga félagsheimili Ýdölum í Aðaldal.

Sumir eru í betra formi en aðrir

Ifitness.is og Magnús Samúelsson halda pósunámskeið tvisvar á ári fyrir keppendur í vaxtarrækt, fitness og módelfitness. Að þessu sinni tóku tæplega 50 manns þátt sem er mettþátttaka. Í tilefni af því að einungist vika er í bikarmót IFBB sem haldið verður í Háskólabíó 16.-17. nóvember var haldin nokkurs konar general prufa þar sem líkt var eftir stemningunni sem myndasat á sviðinu í keppni. Alls mættu keppendur með hárið uppsett, förðun og keppnislit (brúnkukrem).

Baksviðs með Rebel

Meðfylgjandi myndir voru teknar rétt áður en danshópurinn Rebel mætti í sjónvarpsþáttinn Dans dans dans þáttinn á föstudagskvöldið. Danshópurinn fór ekki áfram en ekki er öll von úti enn. Nokkur sæti eru eftir í pottinum. Sólveig Birna, Friðrika Edda og Rebekka ýr förðuðu dansarana í Air brush & make up school NYX cosmetics í Bæjarlind.

Ofurkroppur leikur í auglýsingu

Ofurkroppurinn og kryddpían Mel B sem hefur slegið í gegn með líkamsræktarmyndböndum sínum lék í auglýsingu í Ástralíu um helgina fyrir Jenny Craig, megrunarvörurnar.

Þetta var sko hressandi

Meðfylgjandi myndir voru teknar í útgáfuhófi Sigríðar Klinbenberg þegar nýja bókin hennar...

Svona býr sjónvarpsstjarna

CSI og West Wing stjarnan Emily Procter - opnaði heimili sitt á dögunum fyrir ljósmyndurum en hún býr einstaklega fallega í borg englanna L.A.

Systur sigra heiminn

Já þær virðast óstöðvandi systurnar, þær Kim Kardashian, Kourtney Kardashian og Khloe Kardashian en þær kynntu nýju fatalínuna sína í Dorothy Perkins versluninni í London um helgina við gríðarlega góðar undirtektir. Það lá einstaklega vel á systrunum sem sýndu ljósmyndurum brot af línunni og sögðu áhugasömum blaðamönnum frá henni. Sjá má systurnar við opnunina í meðfylgjandi myndasafni.

Þvílíkur stjörnufans

Alicia Keys, Lana Del Ray,Taylor Swift, Gwen Stefani og fleiri stórstjörnur komu saman í Þýskalandi í gær á evrópsku MTV verðlaunahátíðinni.

Þessar voru glæsilegastar

Cameron Diaz, Keira Knightley, Taylor Swift, Jessica Alba og Kristen Stewart eru án efa best klæddu konur vikunnar.

Uppseld í útgáfuhófi

Meðfylgjandi myndir voru teknar í útgáfuteiti fyrir Gleðigjafa, bók sem inniheldur tæplega 30 frásagnir foreldra barna sem eru einstök á einhvern hátt. Um 200 manns mættu sem er met hjá Eymundsson. Bókin seldist upp í útgáfuhófinu sem er einsdæmi.

Sport Elítan: Vertu sterk/ur og æfðu létt!

Sport Elítan er hópur rúmlega 20 einstaklinga sem að hefur það að markmiði að bæta heilsu Íslendinga og hjálpa íþróttamönnum að ná lengra með því að bjóða uppá fjarþjálfun fyrir einstaklinga. Allir pistlar og hugleiðingar hópsins birtast á Vísi og í dag gefur Stefán Sölvi Pétursson góð ráð sem snúa að lyftingaæfingum.

Bjargaði Stiller úr sjónum

"Ég er með fínan díalóg og er í nokkrum senum, meðal annars einni tveggja manna með Ben Stiller," segir Ari Matthíasson.

John Grant snarar Ásgeiri Trausta yfir á ensku

Tónlistarmaðurinn John Grant er þessa dagana upptekinn við að snara textum laga Ásgeirs Trausta, af plötunni Dýrð í dauðaþögn, yfir á ensku. Grant ljóstrar þessu upp á Facebook-síðu sinni.

Hryllilega horaður

Matthew McConaughey er svo sannarlega sjarmör mikill og er þekktur fyrir að rífa sig úr að ofan til að sýna tónaðan líkamann.

Er hann að djóka með þennan bíl?

Knattspyrnukappinn Mario Balotelli er þekktur fyrir ærslalæti og sérstakan fatasmekk. Manchester City-leikmaðurinn virðist líka hafa undarlegan bifreiðasmekk.

Leikkona selur fötin sín

"Ég er að selja gömul og ný föt. Fullt af kjólum og pils of fleira. Þetta eru safngripir. Svo er mamma e rmeð méren hún svo mikil prjónakona. Hún er að selja vettlinga, húfur og sjöl. Þetta er hræódýrt 500 upp í 2000 kall. Ég er á bás B 16," segir Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona spurð hvað hún er að selja í Kolaportinu í dag.

Selur lúxusvilluna

Leikkonan Sharon Stone er loksins búin að selja glæsihýsi sitt í Beverly Hills fyrir 6,57 milljónir dollara, tæplega 850 milljónir króna.

Koma heim yfir jólin

„Ég hlakka mikið til að koma til Íslands og vera í alveg fjórar vikur," segir Svala Björgvins en hún er á leiðinni heim yfir jólin.

Fyrstu myndir eftir brúðkaupið

Paparassarnir voru himinlifandi þegar þeir náðu myndum af hinni nýgiftu Jessicu Biel um helgina en þetta eru fyrstu myndirnar sem náðst hafa af stúlkunni síðan hún sneri aftur úr brúðkaupsferð um Afríku með eiginmanni sínum Justin Timberlake.

Innlit til Egils Ólafs

Sindri Sindrason bankaði upp á hjá Agli Ólafssyni tónlistarmanni, sem býr í fallegu, gömlu húsi í miðbæ Reykjavíkur, í sjónvarpsþættinum Heimsókn sem er á dagskrá Stöðvar 2 á laugardagskvöldum. Fjölskylda Egils flutti í húsið fyrir rúmum þrjátíu árum en þá átti að rífa það enda talið ónýtt. Sem betur fer var það ekki gert enda meðal fallegustu húsa í bænum.

Hætt saman – í alvörunni!

Ungstirnin Justin Bieber og Selena Gomez eru hætt saman eftir tveggja ára ástarsamband. Voru þau víst of upptekin til að geta haldið neistanum logandi.

Sigga Kling gefur út bók í dag

Þar sem ég er B mínus týpan vakna ég upp úr klukkan tíu. Ég vakna alls ekki við klukku því þá fá frumurnar mínar, þessi 70 billjón stykki, sjokk. Síðan fer ég yfir drauma næturinnar því draumarnir eru oft að vara mann við næstu dögum.

Töff tískulið á tískusýningu

Það var margt manninn á tískusýningu Ýrar Þrastardóttur fatahönnuðar og skartgripahönnuðarins Orra Finnbogasonar á Kexi hosteli á fimmtudagskvöldið. Tískuspekúlantar fjölmenntu til að berja fatnaðinn og fylgihlutina augum og flestum virtist líka vel.

Búið hjá Bieber

Söngvarinn Justin Bieber er hættur með kærustunni sinni leik- og söngkonunni Selenu Gomez. Fréttirnar hafa farið um internetið eins og eldur í sinu undanfarið eftir að drengurinn daðraði við flestar fyrirsæturnar á Victoria's Secret undirfatasýningunni sem fram fór í New York á miðvikudaginn var. Hann endaði með því að bjóða ungversku fyrirsætunni Barbara Palvin með sér á söngleikinn Lion King á Broadway.

Býður mömmu í mat

Leikkonan Katherine Heigl bauð móður sinni Nancy í hádegismat á veitingastaðnum Katsuya í Los Angeles. Þær mæðgur eru ekki aðeins bestu vinkonur heldur er Nancy líka umboðsmaður dóttur sinnar.

Alltaf í ræktinni

Söngkonan Pink tók vel á því með einkaþjálfara sínum í Venice í Kaliforníu en söngstjarnan er afar dugleg að fara í ræktina.

Vertu með - þú gætir unnið

Lífið ætlar að gefa lesendum sínum fjölda vinninga fram að jólum á Facebooksíðu Lífsins. Á þriðjudaginn gefur Lífið einum heppnum lesanda 5 tíma Trimform-kort að andvirði 14.000.- krónur hjá Trimformi Berglindar - sjá nánar hér: htp://www.Trimform.is. Þar sem einkunnarorðin eru “Hjá okkur nærðu árangri.” Fylgstu með okkur á Facebook.

Svona færðu frábært hár á tveimur mínútum

Íris Sveinsdóttir hefur um árabil kennt hárgreiðslu hér á landi sem erlendis. Nú hefur hún sett saman glæsilega hárgreiðslubók þar sem hún kennir auðveldar greiðslur í nokkrum þrepum

Britney í sínu besta formi

Söngkonan Britney Spears stal svo sannarlega senunni í þættinum X Factor í vikunni en hún er dómari í raunveruleikaþættinum.

Mér var sagt að ég gæti ekki eignast börn

Stjörnubarnið og fyrirsætan Peaches Geldof er stolt móðir sonarins Astala sem hún eignaðist með eiginmanni sínum Tom Cohen. Astala kom í heiminn fyrir sex mánuðum en áður en Peaches varð ólétt var henni sagt að hún gæti ekki eignast börn.

Í Hollywood er ég feit leikkona

Hunger Games-stjarnan Jennifer Lawrence er stórglæsileg á forsíðu bandaríska Elle. Jennifer er aðeins 22ja ára, hefur náð mjög langt og segir útlitsdýrkunina í Hollywood vera algjört bull.

Ástríðufull leikkona Elva Ósk

Lífið hitti Elvu Ósk Ólafsdóttur leikkonu yfir kaffibolla og komst að því að hún er veiðimaður í húð og hár sem nýtur lífsins að fullu, er sátt og sannarlega ástríðufull þegar kemur að leiklistinni.

Sjá næstu 50 fréttir