Fleiri fréttir

Þarna var sko fjör

Brynjur og Útlagar, félög leikara sem lært hafa erlendis, héldu síðbúna Þorragleði um helgina í leikhúsinu Norðurpólnum á Seltjarnarnesi...

Bonham Carter heiðruð

Breska leikkonan Helena Bonham Carter var heiðruð af bresku drottningunni fyrir framlag sitt til leiklistarinnar. Bonham Carter hlaut BAFTA-verðlaun fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni „The King‘s Speech“ og var einnig tilnefnd til Óskarsverðlauna. Leikkonan tók að sögn við orðunni til að heiðra minningu föður síns, sem lést árið 2004. Colin Firth, mótleikari Bonham Carter í „The King‘s Speech“ var heiðraður af Karli Bretaprinsi í síðasta mánuði.

Gerard Butler í meðferð

Íslandsvinurinn Gerard Butler lauk á dögunum þriggja vikna meðferð á Betty Ford-meðferðarstöðinni vegna verkjalyfjafíknar, samkvæmt vefsíðu breska dagblaðsins Daily Mirror. Skoski leikarinn hóf að taka inn verkjalyf árið 2006, þegar hann vann við myndina 300. Hann lenti í alvarlegu brimbrettaslysi í desember síðastliðnum sem á að hafa aukið á vandann.

Dáleiddur af krafti Bloodgroup

Elektrópoppsveitin Bloodgroup fær góða dóma í breska tímaritinu Clash fyrir tónleika sína í ensku borginni Nottingham. Þetta voru síðustu tónleikar hennar á ferðalagi sínu um Evrópu þar sem hún spilaði á 25 tónleikum.

Líst ekkert á Friends í bíó

Jennifer Aniston efast um að kvikmynd byggð á sjónvarpsþáttunum Friends verði nokkurn tímann gerð. „Ég get ekki ímyndað mér hvernig hún yrði, kannski ef hún myndi gerast mörgum árum síðar,“ sagði leikkonan við The Hollywood Reporter.

Seinfeld-leikari reyndi sjálfsmorð

Bandaríski leikarinn Daniel von Bargen, sem er Íslendingum kunnur sem Mr. Kruger úr Seinfeld og liðsforinginn Edwin Spangler úr Malcolm in the Middle, var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa skotið sig í höfuðið síðastliðið miðvikudagskvöld. Leikarinn hringdi sjálfur eftir aðstoð, en hann er sykursjúkur og átti að mæta á sjúkrahús seinna um daginn. Samkvæmt Reuters óttaðist leikarinn sjúkrahúsvistina því hugsanlega þyrfti að fjarlægja nokkrar tær hans vegna sjúkdómsins.

Trúarlegur rappari

Bandaríski rapparinn Dorian Stevens kemur fram á tónleikum sem haldnir verða 9. mars kl. 20 í kastala Hjálpræðishersins í Kirkjustræti 2. Þar stíga einnig á svið Sigurður Ingimar og hljómsveit og færeysku söngkonurnar Dorthea Dam og Guðríður Hansdóttir.

Tökur á Ben Stiller-mynd í apríl

Tökur á gamanmynd Bens Stillers, The Secret Life of Walter Mitty, eiga að hefjast í apríl næstkomandi. Samkvæmt kvikmyndavefnum Imdb.com fara tökurnar fram á Íslandi og í New York. Framleiðslufyrirtækið True North, sem var Ben Stiller til halds og trausts þegar hann kynnti sér tökustaði hér á landi síðasta sumar, vildi ekkert tjá sig um mögulegar tökur hér á landi.

Hnésítt og útvítt í New York

Tíska Tískuvikan í New York fór fram í byrjun febrúar og sýndi okkur hvað verður efst á baugi tískuheimsins komandi haust og vetur samkvæmt hönnuðum þar í borg. Hnésídd í pilsum og kjólum var allsráðandi sem og víðar skálmar og háir kragar.

Adele á Ólympíuleikunum

Fregnir herma að breska söngkonan Adele komi fram á lokahátíð Ólympíuleikanna, sem fram fara í London í sumar. Bresk tónlist verður í hávegum höfð á hátíðinni og The London Symphony Orchestra leikur undir. Þekktir breskir popparar, sem og nýir, verða fengnir til að flytja goðsagnakennda breska popptónlist.

Hreyfing á meðgöngu ekki skaðleg

Meðalerfið eða erfið líkamsrækt á meðgöngu er ekki skaðleg heilsu ófæddra barna samkvæmt nýrri rannsókn sem birtist í marsútgáfu tímaritsins Obstetrics & Gynecology.

Ímark hátíð hafin í Hörpu

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Íslenska markaðsdeginum sem haldinn er hátíðlegur í dag með veglegri ráðstefnu í Hörpu. Viðfangsefnin koma úr ólíkum áttum en fimm erlendir fyrirlesarar eru komnir til landsins til að flytja erindi...

Eignaðist stúlku

Erna Hrönn, söngkona og útvarpskona, eignaðist 15 marka stúlku aðfaranótt fimmtudags klukkan 00.46. Stúlkunni heilsast vel og móður líka. Erna á son og dóttur frá fyrra sambandi en unnusti hennar, Jörundur Kristinsson viðskiptafræðingur, á þrjár dætur fyrir. Lífið óskar stórfjölskyldunni hjartanlega til hamingju með prinsessuna.

Facebook-fíkn Loga hrekur Retro Stefson á Strandir

"Það er nauðsynlegt að fara í smá einangrun þegar maður er að æfa nýtt efni,“ segir Unnsteinn Manuel Stefánsson, forsprakki hljómsveitarinnar Retro Stefson en sveitin heldur vestur í Bjarnarfjörð á Ströndum í æfingabúðir á næstu dögum.

Katrín Júlíusdóttir eignaðist tvíbura - Kristófer og Pétur

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra eignaðist tvíbura, tvo heilbrigða drengi, um klukkan hálf átta í gærkvöldi. Drengirnir voru teknir með keisaraskurði. Þeir hafa þegar fengið nöfn Kristófer Áki og Pétur Logi. Móður og börnum heilsast vel. Lífið óskar Bjarna Bjarnasyn rithöfundi og Katrínu hjartanlega til hamingju með tvíburana.

Tinna eignaðist tvíbura í gær

Leikarahjónin Tinna Hrafnsdóttir og Sveinn Geirsson eignuðust tvíburadrengi í gær. Leikkonan skrifaði á Facebooksíðuna sína eftirfarandi: Tveir hraustir draumaprinsar komu í heiminn í gær, 11 og 14 merkur, 50 og 52 cm. Foreldrarnir eru að rifna úr stollti og öllum líður vel. Lífið er dásamlegt! :))))) Lífið óskar hjónunum innilega til hamingju með drengina.

Rokk í geðveikinni í Crossfit

Gítarleikarinn Arnar Grétarsson lagði bjórinn á hilluna og hellti sér út í Crossfit. Hljómsveitin hans Sign er þó ekki hætt og situr á miklu magni af efni.

Þykir vænst um fyrstu Edduna

Ragna Fossberg á heiðurinn af útliti og gervi ótal þjóðþekktra persóna sem birst hafa íslensku þjóðinni í sjónvarpi og kvikmyndum síðustu áratugi.

Í nýju gervi á Óskarshátíðinni

Sacha Baron Cohen er sagður vilja mæta á Óskarsverðlaunin á sunnudaginn í gervi einræðisherrans sem hann leikur í sinni nýjustu gamanmynd, The Dictator.

Vinkonurnar Victoria og Eva Longoria

Victoria Beckham, 37 ára, var klædd í bláan kjól eftir sjálfa sig þegar hún gerði sér glaðan dag með leikkonunum Kate Beckinsale og Evu Longoria. Þá stilltu stöllurnar sér upp með Edward Menicheschi hjá Vanity Fair tímaritinu. Breska pressan hefur gagnrýnt Victoriu fyrir að vera þreytuleg í útliti en hún svaraði fyrir sig með því að segja að hún ynni eins og skepna samhlíða því að vera með ungabarn.

Vill 62 millur ef hann heldur framhjá

Leikkonan Jessica Biel, 29 ára, heimsótti unnusta sinn sem hún trúlofaðist fyrir skömmu, söngvarann Justin Timberlake, 31 árs, í vinnuna eða með öðrum orðum á tökustað þar sem hann leikur eitt af aðalhlutverkunum í myndinni Inside Llewyn Davis. Eins og sjá má á myndunum var Jessica með gleraugu á nefinu.

Manfred Mann til landsins

„Þetta er ein af mínum uppáhaldshljómsveitum,“ segir tónleikahaldarinn Guðbjartur Finnbjörnsson. Hin sögufræga hljómsveit Manfred Mann"s Earth Band stígur á svið í Háskólabíói 16. maí.

Geggjuð í Givenchy kjól

Leikkonan Michelle Williams, 31 árs, stillti sér upp á rauða dreglinum í Givenchy kjól og YSL hælaskóm í gær. Eins og sjá má er leikkonan með stutta klippingu, sem fer henni afburða vel. Þá má sjá Michelle stilla sér upp með leikaranum Kenneth Branagh í myndasafni.

Marc Jacobs notaði of ungar fyrirsætur

Tíska Fatahönnuðurinn Marc Jacobs gerðist sekur um að nota of ungar fyrirsætur á sýningum sínum á tískuvikunni í New York. Félag fatahönnuða í Bandaríkjunum, CFDA, gaf út ákveðnar reglur fyrir tískuvikuna þar sem hönnuðum var gert að ráða aðeins fyrirsætur sem höfðu náð 16 ára aldri. The New York Times fletti hins vegar ofan af því að tvær fyrirsætur í sýningum Marcs Jacobs á nýafstaðinni tískuviku höfðu verið einungis 15 ára gamlar.

Húmor gegn ótta við tannlækna

Bjartsýni, jákvætt hugarfar og húmor er talið draga úr áhyggjum og streitu einstaklinga sem óttast tannlæknaheimsóknir, samkvæmt nýrri rannsókn. Einnig getur spjall á léttum nótum við starfsfólk tannlæknastofa dreift huganum og skapað þægilegt andrúmsloft.

Gunnar snýr aftur

Leikarinn Gunnar Hansson hóf störf á ný í Borgarleikhúsinu í vikunni, eftir fjögurra ára fjarveru. Gunnar fer með hlutverk í sýningunni Svar við bréfi Helgu, sem er byggt á samnefndri metsöluból eftir Bergsvein Birgisson.

Hasarfull helgi með spennuívafi

Nýjasta mynd leikstjórans Stevens Soderbergh, Haywire, verður frumsýnd á morgun. Myndin fjallar um málaliðann Mallroy Kane sem vinnur ýmis verkefni sem yfirvöld loka augunum fyrir þar sem þau geta ekki heimilað þau, en vilja að þau séu unnin. Þegar Kane er svikin þarf hún að elta uppi þá sem sviku hana og fá þá til að segja sannleikann til að bjarga lífi sínu og fjölskyldu sinnar.

Blunderbluss frá White

Fyrsta sólóplata Jacks White, fyrrum forsprakka The White Stripes, nefnist Blunderbluss og kemur út 24. apríl. Fyrsta smáskífulagið, Love Interruption, er komið út en þar syngur White dúett með söngkonunni Ruby Amanfu sem fæddist í Gana en býr í Nashville. Lagið er lágstemmt og undir áhrifum sveitatónlistar.

Adele sýndi fingurinn í þakkarræðunni

Bresku tónlistarverðlaunin voru afhent í London á þriðjudagskvöldið og var rauða dreglinum rúllað út í tilefni kvöldsins. Eins og búist var við fór söngkonan Adele heim með tvenn verðlaun á hátíðinni við mikla lukku.

Bieber sýnir ljósmyndir

Justin Bieber ætlar að gefa út ljósmyndabók með alls konar myndum úr einkasafni sínu. Popparinn gaf út ævisögu sína fyrir ekki svo löngu en vill núna feta nýjar slóðir.

Minningartónleikar til heiðurs Biogen í kvöld

Í kvöld verða haldnir minningartónleikar til heiðurs tónlistarmanninum Sigurbirni Þorgrímssyni, Bjössa Biogen, sem lést í fyrra. Tónleikarnir verða haldnir á vegum Möller Records í samstarfi við Extreme Chill, Weirdcore og Muhaha Records. Þeir hefjast klukkan 20 á Nýlenduvöruverslun Hemma & Valda og standa til lokunar í kvöld.

Adele í Burberry

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá söngkonuna Adele í svörtum Burberry síðkjól á Brit verðlaunahátíðinni síðustu helgi þar sem hún sankaði að sér verðlaunum. Eins og sjá má fer kjóllinn Adele ótrúlega vel.

Sjá næstu 50 fréttir