Fleiri fréttir

Dýrt spaug í Hollywood

Bandaríska gamanmyndin Jack & Jill með Adam Sandler í aðalhlutverki hefur fengið afleita dóma meðal gagnrýnenda, auk þess sem aðsóknin hefur verið langt undir væntingum. Fréttablaðið tók saman lista yfir fimm aðrar misheppnaðar gamanmyndir sem eiga það sameiginlegt að hafa fengið herfilega dóma og tapað svimandi háum fjárhæðum.

Smáskífa í Kanada

Raftónlistarhljómsveitin Reptilicus gaf fyrir skömmu út smáskífu í Kanada. Þar spilaði hún einnig á tónleikum og tók upp efni í hljóðverinu Grant Avenue Studio. Það var stofnað af Lanois-bræðrum en annar þeirra, Daniel, er þekktastur fyrir samstarf sitt við írsku rokkarana í U2. Útgáfutónleikar vegna smáskífunnar, sem er fyrsta útgáfa Reptilicus í þrettán ár, verða haldnir 9. desember á skemmtistaðnum Gauki á Stöng.

Höfundur Disco Frisco gefur út

Stefán S. Stefánsson, fyrrverandi forsprakki hljómsveitarinnar Ljósin í bænum, hefur gefið út plötuna Von.

46 ára og þetta líka svona flott

Leikkonan Sarah Jessica Parker, 46 ára, var glæsileg í hvítu Louis Vuitton dressi á árlegum Unicef dansleik í New York í gærkvöldi eins og sjá má á myndunum...

Súrsætt að hætta

Meðlimir R.E.M. hugsuðu fyrst um endalok hljómsveitarinnar þegar þeir voru á tónleikaferð til að fylgja plötunni Accelerator eftir árið 2008. Þremur árum síðar, eða í september síðastliðnum, lagði sveitin upp laupana. „Okkur fannst við hafa gengið í gegnum mjög dapurt tímabil. Hver og einn okkar vildi ljúka því sem við höfðum verið að gera síðan við urðum fullorðnir. Vildum allir ljúka þessu á réttan hátt, okkar eigin hátt,“ sagði söngvarinn Michael Stipe.

Undarleg sýniþörf vægast sagt

Courtney Love, söngkona hljómsveitarinnar Hole, klæddi sig úr að ofan á tónleikum í Brasilíu eins og sjá má á myndunum...

Í fótspor Madonnu

Leikkonan unga Felicity Jones er nýtt andlit tískuhússins Dolce & Gabbana og fetar þar með í fótspor frægra kvenna á borð við Madonnu og ScarlettJohansson. Jones er frekar lítið þekkt nafn í kvikmyndaheiminum en hlaut mikið lof fyrir leik sinn í myndinni Like Crazy. Bæði myndin og Jones hlutu verðlaun á Sundance-kvikmyndahátíðinni.

Úr skugga White Stripes

Rokkdúóið The Black Keys gefur eftir helgi út sína sjöundu plötu, El Camino. Hún fylgir eftir vinsældum Brothers sem kom út í fyrra.

Kallar Kardashian-fjölskylduna hálfvita

Kardashian-fjölskyldan fær skot úr óvæntri átt, en leikarinn Daniel Craig fer ekki fögrum orðum um raunveruleikaþáttastjörnurnar í nýju viðtali við tímaritið GQ. Þar segir Craig Kardashian-systurnar gera allt fyrir frægð og frama.

Þessi lét hugmynd verða að veruleika

Í meðfylgjandi myndskeiði segir Rakel Sævarsdóttir frá því hvernig hugmynd sem hún fékk eftir að hún lauk BA námi í Listfræði og MA námi í Hagnýtri Menningarmiðlun frá Háskóla Íslandis varð að veruleika. Hugmyndin var Muses.is...

Kardashian fjölgar sér

Von er á fjölgun í Kardashian-fjölskyldunni, en elsta systirin Kourtney tilkynnti í gær að hún ætti von á sínu öðru barni. Kourtney er aðeins komin níu vikur á leið en gat hreinlega ekki beðið með að opinbera gleðifregnirnar.

Útgáfutónleikar Grafíkur í kvöld

Útgáfutónleikar Grafíkur verða haldnir í Austurbæ í kvöld í tilefni af nýrri safnplötu með bestu lögum hljómsveitarinnar og nýrri heimildarmynd.

Langbesta byrjunin hjá Yrsu

„Þetta er langbesta byrjun hennar frá upphafi og þótti þó mörgum nóg um í fyrra,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti og Veröld, um söluna á nýjustu glæpasögu Yrsu Sigurðardóttur, Brakið.

Flest mun fullnað...

Stórvirki frá einu af okkar albestu skáldum, sem slær nýja tóna og kemur á óvart í þessari bók.

Pabbi Brad Pitt

Leikarinn Brad Pitt, 47 ára, fór í bíó á föstudaginn var í Los Angeles ásamt börnum sínum, Pax, Shiloh og Zahara sem saug þumalinn...

Þórunn Antonía flutt á sjúkrahús

Mikið álag getur fylgt því að starfa í sjónvarpi. Því fékk Þórunn Antonía að kynnast en hún var flutt á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi við tökur á nýjasta þætti Týndu kynslóðarinnar.

Hó hó hó! Sumir pósa fáklæddir

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá þegar Vera Pálsdóttir ljósmyndari myndaði fáklædda slökkviliðsmenn í fantaformi fyrir árlegt jóladagatal heimsleikafara slökkviðiliðsmanna...

Framleiðendur vilja meira af Íslandi í Game of Thrones

Framleiðendur Game of Thrones hafa hug á því að taka meira af efni fyrir næstu þáttaraðir hér á landi og jafnvel nýta sér sumarbirtuna og landslagið fyrir smærri tökur. Freyr Gígja Gunnarsson og Vilhelm Gunnarsson heimsóttu tökustað þáttanna við rætur Svínafellsjökuls.

Lifandi jóladagatal byrjar á morgun

Á hverju ári heldur Norræna húsið lifandi Jóladagatal. Á hverjum degi kl. 12.34 frá 1. desember og fram til jóla er nýr gluggi á dagatalinu opnaður og gestir fá að njóta skemmtiatriðis í sal Norræna hússins.

Að fara ekki í jólaköttinn

Jólakötturinn er nýr spilastokkur eftir Stefán Pétur Sólveigarson vöruhönnuð. Spilið miðast við yngstu spilamennina og gengur út á að safna samstæðum jólasveinum og lenda ekki í jólakettinum.

Þrjár konur á ferðalagi

Dansverkið Á eftir Valgerði Rúnarsdóttur verður frumsýnt í Norðurpólnum annað kvöld. Í því segir frá ferðalagi þriggja kvenna.

Bassafeðgar saman á tónleikum

Þrír synir bassaleikarans Jakobs Smára Magnússonar spila með honum á útgáfutónleikum hans á Rósenberg í kvöld í tilefni plötunnar Annar í bassajólum.

Fá poppara til að kokka og syngja

„Þetta verður á léttu nótunum, lifandi og skemmtilegt,“ segir Guðmundur Þór Gunnarsson, annar eigenda Forréttabarsins, sem var opnaður um miðjan október.

Kardashian klanið fjölgar sér

Sjónvarpsraunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian, 32 ára, á von á öðru barni með unnustanum, Scott Disick...

Dýrt og erfitt en samt frábært

Síðrokkbandið For a Minor Reflection gaf fyrir skömmu út stuttskífuna EP sem inniheldur fjögur lög. Af því tilefni verða útgáfutónleikar á Faktorý í kvöld þar sem We Made God og Lockerbie koma einnig fram.

Hættir ekki að reykja

Hin ástsæla söngkona Adele er nú á batavegi eftir að hafa gengist undir aðgerð á raddböndum. Aðgerðin gekk vel og aðdáendur söngkonunnar önduðu léttar þegar þær fréttir bárust, en nú hafa þeir áhyggjur af henni vegna reykingafíknar hennar.

Íslendingar fá ekki nóg af Glæstum vonum

„Þessir þættir eru einfaldlega of vinsælir hérna til að hætta sýningum á þeim,“ segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs Stöðvar 2, um sápuóperuna Bold and the Beautiful.

Hvernig vilt þú fara ofan í jörðina?

Nám í Mótun er tveggja ára tilraunastofa í samstarfi Myndlistaskólans í Reykjavík og Tækniskólans. Unnið er með leir og önnur efni, tengd honum. Námið er leið til BA-gráðu við evrópska samstarfsskóla.

Íslendingar taki lagið saman

„Við þurfum svolítið að fagna saman,“ segir Sigtryggur Baldursson tónlistarmaður. Sigtryggur er einn skipuleggjenda Dags íslenskrar tónlistar sem haldinn verður hátíðlegur á morgun, á sjálfan fullveldisdaginn.

Eins og blómi í eggi

Söngkonan Jessica Simpson, 31 árs, stillti sér upp á rauða dreglinum í Donna Karan kjól og YSL skóm í New York í gær ásamt unnusta sínum, Eric Johnson...

Þorvaldur Davíð andlit nýja ilmsins frá Gyðju

"Það er ómögulegt að segja til um hvaða áhrif þetta hefur á feril minn. En eitt veit ég þó að það er algengt að leikarar, erlendis, eru fengnir til að vera andlit fyrir ilmi og úr,“ segir leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson.

Marni í samstarf við Hennes & Mauritz

Tískuhúsið Marni verður næsti samstarfsaðili sænsku verslanakeðjunnar Hennes & Mauritz og kemur fatalínan í verslanir um allan heim í mars á næsta ári.

Adam Sandler hatar þig!

Sparaðu þér aurinn og settu frekar jalapeño í augað á þér. Af hverju er Adam Sandler svona illa við okkur? Hvað höfum við gert honum? Er hann kannski viljandi að reyna að eyðileggja feril sinn? Af hverju hættir hann ekki þá frekar að leika í kvikmyndum? Og hvernig má það vera að þessi mynd sé búin að hala inn 65 milljónir dollara? Megum við eiga von á framhaldsmynd? Spurningarnar eru margar og þeim er ekki auðsvarað. En þessa mynd skaltu forðast eins og drepsótt.

Innlit til Lukku - Huggulegt hverfi með skuggahlið

Lukka Sigurðardóttir býr ásamt fjölskyldu og gæludýrum í Bústaðahverfinu. Lukka er nemandi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Hún var í hópi myndlistarmanna sem tók þátt í listasýningunni InterMost "Elusive Intimacy" í Gallery K4 í Prag.

100% íslensk hönnun

Ágústa Margrét Arnardóttir, sem er hönnuðurinn á bak við fylgihluta- og fatalínuna Arfleifð, sýnir í meðfylgjandi myndskeiði örlítið brot af hönnunarsýningu hennar á Fosshótel Lind, Rauðarárstíg í Reykjavík, sem er opin almenningi klukkan 11-19 alla daga fram á sunnudag...

Fyrirsætunnar Loulou de la Falaise minnst

Tískuíkonið Loulou de la Falaise lést í byrjun mánaðarins aðeins 63 ára að aldri. Falaise var músa, samstarfskona og ein besta vinkona hönnuðarins Yves Saint Laurent, sem hannaði Le Smoking-kvenjakkafötin fyrir áhrif frá henni.

Tíminn og vatnið

Strengur eftir Tómas R. Einarsson er einstakt verk. Þó að hugmyndin sé frumleg er tónlistin bæði aðgengileg og hljómfögur. Það er vel hægt að njóta hennar án þess að virkja allar þær tengingar sem verkið býður upp á. Mér hefur alltaf fundist hljómur kontrabassans einstaklega fallegur og þessi einfalda, latínskotna tónlist er bæði þægileg og heillandi.

Bloggarar græða á tá og fingri

Vinsældir tískublogga hafa vaxið síðustu ár og nú fylla bloggarar fremstu sætin á tískusýningum stóru tískuhúsanna þar sem áður mátti sjá ritstjóra og leikara. Mörg fyrirtæki hafa greint gróðavon í þessum bloggsíðum og má nú velta fyrir sér hlutleysi þeirra er halda síðunum úti.

Súpermódeli í sólbaði slétt sama

Ofurfyrirsætan Cindy Crawford, 45 ára, sólaði sig ásamt eiginmanni sínum, Rande Gerber, í Mexíkó ásamt börnum þeirra tveimur...

Skemmtikvöld fyrir konur og karla

Ný fatalína Herrafataverzlunar Kormáks & Skjaldar verður frumsýnd í Þjóðleikhúskjallaranum á morgun, miðvikudag. Línan er hönnuð af Guðmundi Jörundssyni, yfirhönnuði verslunarinnar.

Bjartsklíkan fagnaði

Bókaútgefandinn Snæbjörn Arngrímsson fagnaði fimmtugsafmæli sínu um liðna helgi. Snæbjörn var aðalmaðurinn á bak við uppgang bókaútgáfunnar Bjarts á síðasta áratug en seldi hlut sinn í fyrirtækinu fyrir hrun og fluttist til Danmerkur.

Brynja nýr kynnir í Eurovision

„Ég hef alltaf horft á keppnina en ég er enginn Eurovision-fíkill eða heitur aðdáandi,“ segir nýr Eurovision-kynnir, Brynja Þorgeirsdóttir. Hún tekur við af Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur sem hefur gegnt þessu hlutverki síðastliðin ár.

Sjá næstu 50 fréttir