Fleiri fréttir

Steik með stökkri parmaskinku

Snorri Viktor Gylfason yfirmatreiðslumaður á ítalska veitingahúsinu La Luna á Rauðarárstíg sýnir í meðfylgjandi myndskeiði hvernig elda má steik með stökkri parmaskinku á auðveldan máta...

Demi neitar að skipta um nafn

Leikkonan Demi Moore þurfti að svara fyrir sig á Twitter á dögunum en aðdáendur hafa furðað sig á því að hún heiti enn þá Mrs. Kutcher á samskiptasíðunni. Moore, sem skildi við Ashton Kutcher á dögunum eftir sex ára hjónaband, skrifaði eftirfarandi skilaboð á Twitter „Það er ekki forgangsatriði hjá mér að skipta um nafn núna. Ég biðst fyrirgefningar ef það truflar ykkur og ég ætti kannski að hætta að skrifa? Skiptir nafn mitt virkilega svona miklu máli?“

Pabbi Beckham

David Beckham, 36 ára, hélt á 5 mánaða gamalli dóttur sinni, Harper, á fótboltaleik í Los Angeles þar sem sonur hans, Romeo, spilaði ásamt félögum sínum...

Ragga og Dísa syngja í Fríkirkjunni

Tvær hæfileikaríkar söngkonur leiða saman hesta sína í Fríkirkjunni á sunnudaginn. Sú þriðja bætist í hópinn þegar líður á kvöldið.

Fékk gullplötu og keypti þvottavél

"Við erum mjög sáttir við þetta. Þetta eru að mínu mati mestu verðlaunin sem hægt er að fá í þessum bransa. Þetta eru verðlaun fólksins,“ segir grínistinn Steindi Jr. Steindi og leikstjórinn Ágúst Bent fengu í gær afhenta gullplötu fyrir sölu á fyrstu þáttaröð Steindans okkar.

Miðbæjarrotta í Eurovision

„Ég var mikill Eurovision-aðdáandi þegar ég var lítil og kunni öll lögin utan að,“ segir Rósa Birgitta Ísfeld, söngkona Feldberg og Sometime.

Rihanna sú vinsælasta á Facebook

Söngkonan Rihanna er efst á lista yfir þá tónlistarmenn sem fengu flest „like“ á Facebook í ár. Hún skýtur þar með reggísöngvaranum sáluga Bob Marley og söngkonunni Avril Lavigne ref fyrir rass, en þau voru í öðru og þriðja sæti, samkvæmt tölum frá Facebook.

Gísli Pálmi í Hörpu

"Þau neyddu mig til að spila þarna, ég þverneitaði fyrst,“ segir rapparinn Gísli Pálmi í léttum dúr.

Sheen birti númerið sitt

Leikarinn Charlie Sheen lenti í smá vandræðum með samskiptasíðuna Twitter á dögunum. Sheen ætlaði að senda einkaskilaboð til Justins Bieber sem innihélt símanúmerið hans, en birti skilaboðin óvart fyrir allra augum.

Lofar betri Bond

Daniel Craig hefur lofað því að Bond-myndin Skyfall verði betri en Quantum of Solace, síðasta Bond-mynd leikarans. Craig hefur verið ansi stóryrtur í viðtölum að undanförnu og sagði meðal annars Kardashian-fjölskylduna vera heimska. Hann dró því ekkert undan þegar hann var spurður um Quantum of Solace en myndin olli talsverðum vonbrigðum eftir að Casino Royale hafði hleypt Bond-myndunum aftur á skeið.

Löggan stoppar Bieber

Poppstjarnan Justin Bieber hemlaði þegar lögreglan í Los Angeles gerði athugasemd við aksturinn í gær...

Allt í rugli bak við tjöldin á Steindanum okkar 2

Eins og gefur að skilja gengur ýmislegt á þegar tekin er upp þáttaröð á borð við Steindan okkar 2. Ekki síst þegar jafnmiklir orkuboltar og Steindi Jr. og leikstjórinn Ágúst Bent eru bakvið tjöldin.

Streep á forsíðu Vogue í fyrsta sinn

Leikkonan Meryl Streep prýðir forsíðu janúarheftis tímaritsins Vogue en þetta er í fyrsta sinn sem hún fær að vera á forsíðu tískublaðsins.

Kammertónlist með sál

Florence and the Machine hefur gefið út plötu ársins að mati tímaritsins Q. Ceremonials fór beint á toppinn í Bretlandi.

Fanga gamla tíma í nýju blaði

„Við fengum þessa hugmynd í sumar og erum búnir að vinna í blaðinu síðan þá,“ segir Guðmundur Jörundsson fatahönnuður um nýtt tímarit herrafataverslunar Kormáks & Skjaldar, Spjátrung.

Talandi íkornar slá í gegn

Þriðja myndin um Alvin og íkornana verður frumsýnd um helgina. Hinar myndirnar tvær hafa slegið í gegn og að þessu sinni eru íkornarnir óstýrilátu og eigandi þeirra á ferðalagi á skemmtiferðaskipi.

Krakkarnir sáu Pollapönk

Hljómsveitin Pollapönk fagnaði útgáfu nýjustu plötu sinnar Aðeins meira Pollapönk með tónleikum í Salnum í Kópavogi á dögunum.

Kátar konur gefa Mæðrastyrksnefnd bækur

Meðfylgjandi myndir voru teknar í húsakynnum Mæðrastyrksnefndar þegar höfundarnir Guðný Ósk Diðriksdóttir, Anna Birna Ragnarsdóttir, Þorbjörg Hafsteinsdóttir, Þóra Sigurðardóttir, Auður I. Konráðsdóttir, Sigríður Klingenberg, Þórgunna Þórarinsdóttir og Dýrleif Skjóldal gáfu bækur eftir sig...

The Girl with the Dragon Tattoo frumsýnd

Bandarísk útgáfa myndarinnar Karlar sem hata konur eftir Stieg Larsson var frumsýnd í London í byrjun vikunnar. Myndin nefnist The Girl with the Dragon Tattoo á ensku og er leikstýrt af David Fincher en hennar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu af aðdáendum Stieg Larsson bókanna.

Kærastinn sjö árum yngri en Cheryl

Breska söngkonan Cheryl Cole er greinilega búin að jafna sig á sambandsslitunum við knattspyrnukappann Ashley Cole, en blaðið The Sun hermir að hún sé byrjuð með upptökustjóranum Patrizio Pigliapoco. Hann er 21 árs gamall og því sjö árum yngri en Cole.

Útilokar ekki frekari barneignir

Angelina Jolie útilokar ekki að eignast fleiri börn og það er því ekki loku fyrir það skotið að börn hennar Maddox, Zahara, Pax, Shiloh, Vivienne og Knox eignist litla systur eða bróður.

Vill engin börn í bíó

Daniel Craig hefur hvatt bíógesti til að fara ekki með börnin sín að sjá nýjustu mynd hans, The Girl with the Dragon Tattoo. Myndin er byggð á samnefndri bók Stiegs Larsson, Karlar sem hata konur, þar sem ofbeldi karla gegn konum er í forgrunninum.

Fanney á flandri um Indland

Þetta var mjög lærdómsrík og eftirminnileg reynsla þótt það hafi vissulega verið skrýtið að vera í þrjátíu stiga hita án allra jólalaga í desember,“ segir Fanney Ingvarsdóttir, Ungfrú Ísland. Hún lenti á Íslandi á þriðjudaginn var eftir að hafa verið á Indlandi í tvær vikur við góðgerðarstörf fyrir samtökin Healthy Kids, Happy Kids. Þetta er í annað sinn á árinu sem Fanney heimsækir landið.

Krúttleg í karrýgulri kápu

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez, 42 ára, mætti í fylgd lífvarðar í vinnuna en American Idol áheyrnarprófin eru hafin fyrir næstu sjónvarpsseríu sem hefst 18. janúar næstkomandi..

Fjallar um eftirköst eldgossins

Þrjár fjölskyldur sem hafa þurft að glíma við eftirköst eldgossins í Eyjafjallajökli eru í forgrunni nýrrar heimildarmyndar sem kvikmyndagerðarmaðurinn Herbert Sveinbjörnsson er með í vinnslu.

Glæpasagnadrottningin veltir kónginum úr sessi

"Ég hélt að ég hefði fengið mitt tækifæri fyrir hálfum mánuði og að ég fengi ekki slíkt aftur þannig að ég er himinlifandi með þetta,“ segir Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur.

Hátíð að hætti Nönnu: Silungstoppar, pörusteik og panna-cotta

Nanna Rögnvaldardóttir matgæðingur eldar alltaf hangikjöt á jóladag. Á aðfangadag eru andabringur að beiðni barnabarnanna en meðlætið breytist ár frá ári. Hún gaf nýverið út matreiðslubókina Jólamatur Nönnu og gefur hér uppskriftir að forrétti, aðalrétti og eftirrétti.

Jónsi á rauða dreglinum

Kvikmyndin We Bought a Zoo í leikstjórn Camerons Crowe var frumsýnd í New York á mánudag. Myndin fjallar um einstæðan föður sem kaupir gamlan dýragarð úti í sveit og skartar þeim Matt Damon og Scarlett Johansson í aðalhlutverkum. Tónlistarmaðurinn Jónsi var að sjálfsögðu mættur á rauða dregilinn en hann sér um tónlistina í myndinni.

Endurminningin merlar æ

Hannes Pétursson skáld er áttræður í dag. Hann sendi jafnframt frá sér á dögunum bókina Jarðlag í tímanum, þar sem hann dregur upp minningarmyndir úr barnæsku sinni norður í Skagafirði. Bergsteinn Sigurðsson hitti skáldið að máli. Þetta eru svo sem engin sérstök tímamót í mínum huga,“ segir Hannes Pétursson skáld, sem er áttræður í dag. "Mér finnst ég betri til heilsunnar en ég var fyrir tíu til fimmtán árum, hausinn er í þokkalegu lagi þótt mér misheyrist stundum og missjáist eins og gengur og gerist með gamla karla. Að öðru leyti plagar mig ekkert og þetta er eins og hver annar dagur.“

Palli með sinaskeiðabólgu eftir áritanir

„Ég hef aldrei fengið svona á ævinni en er núna að éta bólgueyðandi töflur og liðaktín ásamt því að fara í sjúkranudd þrisvar í viku. Ætli ég mæti ekki í næstu áritun með svona lyftingahanska,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson. Jólatörnin er farin að setja mark sitt á poppstjörnuna því hún greindist nýlega með sinaskeiðabólgu.

Rándýr kjóll toppar ekki gallabuxurnar

Leikkonan Jessica Biel, 29 ára, var klædd í dúnvesti, húfu og með sólgleraugu á nefinu í Soho hverfinu í New York í gærdag eins og sjá má á myndunum...

Turin Brakes til Íslands

Breska hljómsveitin Turin Brakes naut talsverðra vinsælda upp úr aldamótum, og hefur stöðugt sent frá sér tónlist síðan þá. Hljómsveitin er á leiðinni til Íslands í janúar og kemur fram í Fríkirkjunni.

Kardashian klanið komið á kreik

Systurnar Kourtney og Khloe Kardashian árituðu nýja bók sem ber yfirskriftina Kardashian Konfidential í bókaverslun Barnes and Noble í Los Angeles...

Vinskapurinn hófst á Airwaves

Írska söngkonan Sinéad O"Connor syngur eigin útgáfu af lagi Johns Grant á væntanlegri plötu sinni sem kemur út í febrúar á næsta ári. Platan kallast How About I Be Me (And You Be You)? og kemur út 20. febrúar.

Annað sjónarhorn

Niðurstaða: Gömul Megasarlög í gjörbreyttum útgáfum.

Mammút á Hressó

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Hressó á tónleikum Mammút. Sveitin vakti fyrst athygli þegar hún vann Músíktilraunir árið 2004, þá aðeins þriggja mánaða gömul...

Gæsalifur og Galette de roi

Björg Björnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Barnaheill – Save the Children á Íslandi, bjó í Frakklandi um margra ára skeið. Hún segir þar mikið lagt upp úr góðum mat, ekki síst kringum jól og áramót, en þó jafnist fátt á við "foie gras“ eða gæsalifur.

Eins og að halda tónleika heima í stofu

"Þetta verða fyrstu alvöru tónleikarnir þar sem við spilum saman svo við hlökkum mikið til," segir Jón Jónsson, tónlistarmaður, sem heldur tónleika ásamt bróður sínum Friðriki Dór á föstudaginn kemur.

Slúðurheimur sjúkur í gellu George

Á meðan leikarinn George Clooney, 50 ára, vinkaði til ljósmyndara í Sydney í Ástralíu rétt áður en hann hélt fyrirlestur á ráðstefnu var kærastan hans, Stacy Keibler, 32 ára, mynduð bak og fyrir...

Sjá næstu 50 fréttir