Fleiri fréttir

Sofia Coppola gengin út

Sofia Coppola, 40 ára, og franski tónlistarmaðurinn Thomas Mars giftu sig um helgina. Parið var pússað saman á heimili Coppola fjölskyldunnar á suður Ítalíu. Leikstjórinn Francis Ford Coppola var glaður eins og sjá má á myndunum sem teknar voru fyrir utan heimili þeirra stuttu eftir persónulega og fámenna athöfn sem fram fór í garðinum við heimili fjölskyldunnar. George Lucas og Johnny Depp voru á meðal gesta í brúðkaupinu. Sofia og Thomas eiga tvær dætur saman, Romy og Cosima. Þá má einnig sjá Sofiu ásamt dóttur þeirra Cosimu í myndasafni.

Bjóða fram sverð sín og skildi

„Ef kallið kemur þá erum við tilbúnir,“ segir Hafsteinn Pétursson, jarl og forsvarsmaður skylmingafélagsins Rimmugýgjar í Hafnarfirði.

Baksviðs á tískuviku

Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru baksviðs þegar ástralska tískuvikan hófst formlega í Sydney í Ástralíu. Eins og sjá má var stemningin ekki síðri baksviðs en á sýningarpöllunum. Fyrirsæturnar sýndu fatnað eftir fjölda hönnuða.

Krúserfólk í góðum gír

Árlegt mót Krúserklúbbsins var haldið við verslun N1 á Bíldshöfða á dögunum. Bílaáhugafólk lét sig ekki vanta.

Reykjavík Runway hönnuðir láta gott af sér leiða

Forsala á fatnaði hönnuðanna sem kepptu í úrslitum Reykjavik Runway var haldin í Öskju síðastliðið fimmtudagskvöld. Þar gafst gestum kostur á að kaupa flíkur úr sumarlínum hönnuðanna ásamt því að skoða glæsilega Mercedes-Benz bifreiðar. 10% forsölunnar rann til Einstakra barna. Hönnuðirnir eru Eygló Margrét Lárusdóttir með EYGLO, sigurvegari Reykjavík Runway, Harpa Einarsdóttir með ZISKA, Rosa Winther Denison og Bryndís Þorsteinsdóttir með ROSA-BRYNDIS og Sólveig og Edda Guðmundsdætur með Shadow Creatures. Mercedes-Benz á Íslandi var aðalstyrktaraðili keppninnar.

Kjólarnir á MTV-hátíðinni

Söngkonan Beyonce stal senunni á MTV-hátíðinni í gærkvöldi þegar hún tilkynnti heiminum að hún ætti von á sínu fyrsta barni Í meðfylgjandi myndasafni má sjá Beyonce í síðum appelsínugulum kjól frá Lanvin. Þá má sjá fleiri stjörnur eins og Selenu Gomez í Julien Macdonald kjól, Kim Kardashian í silfruðum Kaufman Franco, Katy Perry í Atelier Versace og Britney Spears í Moschino.

Símanördar skrifa tækniblogg

"Við höfum lengi fylgst með tækniumfjöllun á netinu og okkur fannst vanta tækniblogg á íslensku,“ segir Atli Stefán G. Yngvason.

Bono í baðslopp

Meðfylgjandi má sjá Paul David Hewson, eða öllu heldur sjálfan Bono, 51 árs, í hvítum baðslopp fyrir utan lúxusvillu á frönsku rívierunni. Á myndunum sem teknar voru í gær má einnig sjá nokkra fjölskyldumeðlimi hans en hverjir það eru er ekki vitað. Bono á tvær dætur, Memphis Eve og Jordan, og tvo syni, Elijah Bob Patricius Guggi Q og John Abraham.

Verður aldrei FM-afinn

„Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegur tími. Og ég sé ekki fram á að hætta þessu á næstunni,“ segir útvarpsmaðurinn Sigvaldi Kaldalóns, betur þekktur sem Svali á FM 957. Í gær fagnaði Svali merkum tímamótum í sínu lífi því þá voru liðin tuttugu ár frá því að hann fór að vinna fyrir sér sem útvarpsmaður þrátt fyrir að hafa orðið aðeins 37 ára í apríl á þessu ári.

Beyoncé ófrísk

Orðrómur um að söngkona Beyoncé beri barn undir belti var staðfestur þegar stjarnan mætti á MTV-hátíðina í gærkvöldi. Þar lét hún mynda sig á rauða dreglinum og hélt stolt utan um bumbuna á sér.

Bauð Lively í veislu

Leonardo DiCaprio bauð kærustu sinni, leikkonunni Blake Lively, í afmæli Ben Affleck um daginn. Affleck og Lively þekkjast ágætlega því hann leikstýrði og lék móti henni í kvikmyndinni The Town.

Ítalska Vogue sakað um kynþáttahatur

Á vefsíðu tískutímaritsins ítalska Vogue er að finna tískuþátt sem vakið hefur hörð viðbrðgð lesenda. Um er að ræða tískuþátt sem fjallar um nýja tískubylgju í eyrnalokkatísku, eða gullhringi. Höfundur tískuþáttarins ákvað að nota fyrirsögnina „Þrælalokkar“ og í textanum er lögð áhersla á að gullhringir hafi í gegnum tíðina verið mest notaðir af „lituðum konum sem komu til suðurhluta Bandaríkjanna gegnum þrælaverslun“.

Konungar og drottningar Hollywood-hæða

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian gekk í það heilaga fyrir viku. Fréttamiðlar hið vestra halda því fram að körfuboltamaðurinn Kris Humphries hafi þar með kvænst inn í konungsfjölskyldu Hollywood-hæða.

Leggja konum lið

Samtökin UN Women skipuleggja Fiðrildaviku sem fram fer um miðjan september. Markmið átaksins er að hvetja Íslendinga til að standa með „systrum“ sínum í fátækustu löndum heims. Þetta er í annað sinn sem Fiðrildavikan er haldin, en hún fór fyrst fram árið 2008 og söfnuðust þá um hundrað milljónir króna.

María fékk nóg af ónæði frá leikurum

María Sigurðardóttir, hárgreiðslunemi í Reykjavík, er skráð til heimilis á Akureyri og hefur gefist upp á því að vera ruglað saman við nöfnu sína, Maríu Sigurðardóttur, leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akureyrar. Hún brá því á það ráð að setja "ekki leikhússtjóri“ fyrir aftan nafnið sitt á vefsíðunni já.is. Jólakort frá þjóðþekktum leikara gerði útslagið en hann þakkaði Maríu kærlega fyrir samstarfið á árinu sem var að líða.

Njóta sín á Ítalíu

Hin nýgiftu Kim Kardashian og Kris Humphries njóta hveitibrauðsdaganna á Ítalíu en þau gengu í heilagt hjónaband um liðna helgi. Parið segir að ferðalagið verði stutt að þessu sinni því þau ætla að bruna til baka til Los Angeles og vera viðstödd MTV verðlaunahátíðina, sem fer fram á morgun.

Nýtt lag eftir sjö ára hlé

Búdrýgindi hefur gefið út nýtt lag sem heitir Maðkur í mysunni. Þetta er fyrsta lagið sem hljómsveitin gefur út síðan 2004 og er sagt fjalla um siðaskiptin síðari á Íslandi. Búdrýgindi, sem vann Músíktilraunir 2002, ætlar að fylgja laginu eftir með fríum tónleikum á Faktorý hinn 3. september. Sveitin á nóg af nýju efni á lager og hugsanlega kemur út ný plata á næsta ári. Hægt er að fylgjast með hljómsveitinni á facebook-soundcloud-youtube.com/budrygindi.

Manchester og Hafnarfjörður

Skemmtileg plata undir sterkum New Order-áhrifum. Ruddinn hefur greinilega legið yfir smáatriðum í útsetningunum. Sum þessara laga eru stórfín, önnur síðri. Söngur Heiðu gerir mikið fyrir útkomuna og Ruddinn, sem syngur í sjö laganna, skilar sínu vel líka.

O’Connor á Airwaves

Írska söngkonan Sinéad O’Connor kemur fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves um miðjan október. Hún öðlaðist heimsfrægð árið 1990 þegar hún söng eigin útgáfu af lagi Prince, Nothing Compares 2 U. O’Connor vakti fyrst athygli 1987 fyrir sólóplötuna The Lion and the Cobra. Hún hefur á ferli sínum gefið út níu hljóðversplötur og heitir sú nýjasta Home. Hin 44 ára O’Connor hefur stundum verið umdeild, meðal annars vegna trúarskoðana sinna. Síðast vakti hún athygli fyrir að óska eftir karlmanni á bloggsíðu sinni sem væri „nógu blindur til að halda að ég sé stórglæsileg“.

Aniston hyggur á barneignir

Eftir að Jennifer Aniston fór að slá sér upp með Justin Theroux hafa slúðurblöð hið vestra mikið spáð í mögulegum barneignum þeirra hjúa. US Weekly heldur því meira að segja fram á forsíðu sinni að Aniston sé orðin ólétt.

Bieber-sóttin herjar á Tómas

„Það er löngu kominn tími á að menn prófi að gefa út bók um goðið,“ segir Tómas Hermannsson hjá Sögum útgáfu. Komin er út ævisaga popparans Justins Bieber, þýdd af Tómasi og samstarfsfólki hans hjá Sögum.

Viðurkennir bótox notkun

Leikkonan Courteney Cox, sem viðurkennir fúslega að hún hafi látið sprauta bótoxi í andlitið á sér, var mynduð ómáluð í andliti í Hollywood í vikunni. Bótox er æðislegt og hræðilegt líka. Ég meina þeir fundu upp þetta efni sem getur látið þig líta út fyrir að vera brjálaða í skapinu ef þú notar það ekki sparlega. Ég fór einu sinni til læknis og hann sagði: Heyrðu setjum smá hér og hér og líka örlítið hérna og veistu mér leið alveg hræðilega. Ég meina, ég er leikkona og þarf að geta hreyft á mér andlitið. Þegar fólk byrjar að krukka í enninu á sér og getur ekki lyft augabrúnunum þá er mál til komið að endurskoða hlutina. Það er ekki eins og ég hafi ekki prófað bótox - en mér fannst það hræðilegt, sagði Courteney.

Forbes velur áhrifamestu konurnar

Tímaritið Forbes hefur tekið saman lista yfir 100 áhrifamestu konurnar í heiminum. Á listanum er að finna bæði nöfn úr stjórnmálum og skemmtanabransanum.

Portman snýr aftur

Natalie Portman er sögð eiga í viðræðum um að leika í sinni fyrstu kvikmynd síðan hún eignaðist son sinn, Aleph, í júní. Hin þrítuga leikkona er að íhuga að leika aðalhlutverkið í dramanu Adaline.

Upplausn á heimili Smith-hjónanna

Eitt frægasta, og hingað til traustasta, hjónaband Hollywood stendur völtum fótum þessa dagana. Leikaraparið Will Smith og Jada Pinkett Smith er að skilja ef marka má bandaríska miðla og hefur fréttaflutningur af málefnum þeirra tekið á sig nýja mynd undanfarna daga.

Ghostbusters 3 verður gerð

Þriðja Ghostbusters-myndin verður gerð með eða án Bills Murray. Að sögn leikarans Dans Aykroyd er frábært handrit komið á borðið og aðeins á eftir að hefja tökur. Þær eru fyrirhugaðar næsta vor. „Það má ekki gleyma því að Ghostbusters er stærri en allir hlutar hennar, þrátt fyrir að Billy [Murray] hafi áður verið í aðalhlutverki og lagt sitt af mörkum,“ sagði hann. Ghostbusters 3 hefur verið í pípunum í heilan áratug en aldrei hefur myndin litið dagsins ljós. Núna virðist biðin loksins vera á enda, 22 árum eftir að önnur myndin kom út.

Urban Outfitters myndar á Íslandi

„Þau eru alveg heilluð af Íslandi og í skýjunum enda er búið að ganga mjög vel,“ segir Tanja Berglind Hallvarðsdóttir, framleiðandi hjá True North.

Vill giftast Madonnu

Nýr kærasti söngkonunnar Madonnu, Brahim Zaibat, er aðeins tuttugu og fjögurra ára gamall en þrátt fyrir það er hann tilbúinn að ganga í hjónaband með söngkonunni. Þessu heldur tímaritið Enquirer fram.

Einfalt og litríkt

Haustlína Blumarine er einföld og kvenleg. Þá er litagleðin allsráðandi eins og sjá má í myndasafni.

Kossarnir gerast ekki fallegri

Leikkonan Kate Hudson, 32 ára, kyssir unnusta sinn, Matthew Bellamy, innilega á kaffihúsi í London eins og sjá má í myndasafni. Með í för er sonur þeirra, Bingham Hawn Bellamy, sem fæddist 9. júlí síðastliðinn. Þá má einnig sjá mynd sem hún póstaði á Twitter síðuna sína af sér með drenginn í fanginu.

Ballaða frá Jones í boði

Ballaða Alans Jones og Írisar Hólm, Stay With Me, er núna fáanleg á síðunni Tónlist.is en lagið fór í útvarpsspilun fyrr í sumar. Allur ágóðinn rennur til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Myndband við lagið er væntanlegt um miðjan næsta mánuð. Þar verður þemað ást en ekki brúðkaup eins og áður var fyrirhugað. Lagið er eftir Jones, sem er með fleiri járn í eldinum. Hann er að skipuleggja tónleika á Nítjándu hinn 1. desember. Meðal flytjenda verða Jóhanna Guðrún, Haffi Haff og Bryndís Ásmundsdóttir.

Madonna blómstrar með unglambinu

Söngkonan Madonna, 53 ára, blómstrar eins og myndirnar sýna greinilega, með nýja kærastanum, Brahim Zaibat, sem er 28 árum yngri en hún. Myndirnar voru teknar í Frakklandi. Dætur Madonnu, Mercy og Lourdes, voru einnig með í för. Sjá myndir hér.

Einn dagur frumsýndur

Rauða dreglinum var rennt út í London þegar nýjasta kvikmynd leikkonunnar Anne Hathaway, One Day, var frumsýnd. Myndin er byggð á skáldsögu Davids Nicholls og fjallar um tvo vini og lífshlaup þeirra á tuttugu ára tímaskeiði. Vinirnir eru leiknir af Hathaway og Jim Sturgess sem skörtuðu sínu fegursta og stilltu sér glöð upp framan við myndavélarnar í London.

Emma í sambúð

Leikkonan Emma Watson er byrjuð að búa með kærasta sínum Johnny Simmons. Kærustuparið, sem byrjaði saman í sumar, flutti inn í hús föður Watson í London.

Endurskoðandi Forlagsins allur

"Það er mikil sorg á heimilinu enda Breki einstakur köttur,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi. Hann missti í vikunni góðan vin þegar kötturinn Breki andaðist á heimili Jóhanns við Bræðraborgarstíg. Breki gegndi stöðu endurskoðanda hjá Forlaginu en hann var jarðaður í Skorradal á miðvikudag. "Hann varð fyrir nýrnabilun. Við biðum eftir kraftaverki eftir að hann varð veikur og vildum ekki láta svæfa hann en svo gerðist hið óumflýjanlega og við gátum ekki látið dýrið þjást meira.“

Játar ást sína

Gamanleikarinn Jim Carrey setti nýverið á netið myndband þar sem hann játar leikkonunni Emmu Stone ást sína. Töluverður aldursmunur er á þeim og þykir mörgum myndbandið því óviðeigandi.

Erfitt að selja sig

Morgan Spurlock er eilítið sér á báti í bandarískri heimildarmyndagerð. Hann sló fyrst í gegn með Super Size Me og hefur síðan þá verið einn vinsælasti heimildarmyndagerðarmaður heims. Freyr Gígja Gunnarsson settist niður með honum og ræddi við hann um vöruinnsetningar í kvikmyndum og hvernig það er að vera fráskilinn.

Nýkvæntur og lofar góðri hátíð

Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur hefur í nógu að snúast þessa dagana. Um síðustu helgi gekk hann að eiga Líneyju Úlfarsdóttur en þau eiga von á erfingja í nóvember. Hann er einnig að skipuleggja tónlistarhátíðina Melodica Acoustic sem hefst á morgun. Fleira er fram undan hjá trúbadornum knáa. Tveggja vikna tónleikaferð um Evrópu verður farin í september og verða flestir tónleikarnir í Þýskalandi.

Paul Young til Íslands

Enski tónlistarmaðurinn og sálarsöngvarinn Paul Young spilar ásamt hljómsveit sinni í Eldborgarsal Hörpunnar 4. október. Young naut mikilla vinsælda á níunda áratugnum og hefur á ferli sínum átt að minnsta kosti fjórtán lög sem hafa komist inn á vinsældalista. Þar má nefna Everytime You Go Away, Living For the Love of the Common People, Come Back And Stay, Where Ever I Lay My Hat (That"s My Home) og Senza Una Donna. Miðasala á tónleikana hefst 1. september kl. 12 á Harpa.is og í síma 528 5050.

Viltu sléttari maga?

Hot fitness er fyrir konur sem vilja fá langa og fallega vöðva og konur sem vilja læra að þjálfa flata kviðvöðva, segir Anna Eiríksdóttir leikfimikennari í Hreyfingu spurð út í spennandi nýjung fyrir konur þar sem tveir boltar eru notaðir við æfingarnar. Anna sýnir í meðfylgjandi myndskeiði æfingu sem nær að virkja kviðvöðva meðal annars. Sjá meira um Hot fitness hér.

Heimsfrægir afturendar (já þú last rétt)

Pippa Middleton, Eva Longoria, Jennifer Lopez, Coco, Jessica Biel, Rihanna, Scarlett Johansson, Christina Hendricks, Salma Hayek, Eva Mendes, Halle Berry, Beyonce Knowles eru á meðal heimsþekktra kvenna sem hafa fengið gríðarlega mikla umfjöllun í fjölmiðlum beggja vegna Atlantshafsins þegar afturendi þeirra er annars vegar. Þá má nefna Kim Kardashian sem fór í röntgenmyndatöku til að afsanna háværar sögusagnir um að afturendi hennar væri ónáttúrulegur. Shakira er einnig í umræddum hóp en hún lét hafa eftirfarandi eftir sér: Ég vildi óska að ég væri hærri, með lengri lappir, mjórra mitti, minni afturenda og sléttara hár.

Sjá næstu 50 fréttir