Lífið

Konungar og drottningar Hollywood-hæða

Náin Laurence Olivier og Vivien Leigh kynntust við tökur á kvikmyndinni Fire Over England. Parið giftist árið 1940 og entist hjónabandið í tuttugu ár. Olivier og Leigh voru þó nánir vinir allt til dauðadags hans.nordicphotos/getty
Náin Laurence Olivier og Vivien Leigh kynntust við tökur á kvikmyndinni Fire Over England. Parið giftist árið 1940 og entist hjónabandið í tuttugu ár. Olivier og Leigh voru þó nánir vinir allt til dauðadags hans.nordicphotos/getty
Prinsessa Leikkonan Grace Kelly er eina leikkonan sem með sanni hefur gifst inn í konungsfjölskyldu. Hún giftist Rainier fursta og varð þar með alvöru prinsessa.
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian gekk í það heilaga fyrir viku. Fréttamiðlar hið vestra halda því fram að körfuboltamaðurinn Kris Humphries hafi þar með kvænst inn í konungsfjölskyldu Hollywood-hæða.

Sitt sýnist hverjum um hvort við hæfi sé að líkja Kardashian-fjölskyldunni við konungsfjölskyldu og er forvitnilegt að líta yfir farinn veg og bera Kim og Kris saman við ofurpör fyrri tíma.

Eilíf ást Leikararnir Paul Newman og Joanne Woodward þykja einsdæmi í Hollywood en þau voru gift í hálfa öld, allt til dauða Newmans. Parinu var mjög umhugað um einkalíf sitt og hélt sig fjarri sviðsljósinu alla tíð.
Myndarleg Leikarinn Johnny Depp og ofurfyrirsætan Kate Moss áttu í eldheitu fjögurra ára sambandi. Þau þóttu bæði einstaklega flott og fögur og fengu því mikla fjölmiðlaathygli.
Vinsæll Hjónaband Brad Pitt og Jennifer Aniston vakti mikla athygli og voru þau gjarnan nefnd óskapar Bandaríkjanna. Hjónabandið endaði þó með skilnaði árið 2005 og stuttu síðar tók hann saman við Angelinu Jolie. Pitt og Jolie fengu gælunafnið Brangelina og hafa slúðurblöðin einstaklega mikinn áhuga á fjölskyldulífi þeirra.
Blind ást Humphrey Bogart og Lauren Bacall kynntust við tökur á myndinni To Have and Have Not árið 1944. Bogart var þá 45 ára gamall og kvæntur leikkonunni Mayo Methot á meðan Bacall var aðeins 19 ára gömul. Bogart skildi við eiginkonuna og giftist Bacall stuttu síðar. Hjónabandið entist í tíu ár, allt til dauða Bogarts.
Nýgift Skiptar skoðanir eru á því hvort kalla má Kardashian-fjölskylduna konungsfjölskyldu Hollywood. Kim Kardashian giftist körfuboltamanninum Kris Humphries í síðustu viku.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×