Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sumir voru pirraðir - myndband Eins og myndskeiðið sýnir ákvað ónefndur klæðskiptingur sem kallar sig Hákon Hildibrand dragdrottning skyndilega að hætta að spjalla við okkur í miðju viðtali. 8.6.2010 13:00
Hlustendaverðlaun FM 957 ráðast með nokkrum atkvæðum Enn er hægt að kjósa fyrir Hlustendaverðlaun FM 957. Andrúmsloftið á Nasa á fimmtudag verður án efa rafmagnað þegar þau verða veitt í tíunda skipti. 8.6.2010 12:00
Viðtal: Móðir 3 ára drengs með bráðahvítblæði Við höfðum samband við Eddu Viðarsdóttur móður þriggja ára gamals drengs sem heitir Emil Ágúst Þórisson. Emil greindist með bráðahvítblæði í janúar 2010. Síðan þá hefur hann verið í mjög erfiðri meðferð sem hefur reynt mikið á hann og alla hans fjölskyldu. Til að létta undir með fjölskyldunni hafa nokkrir vinir foreldra Emils, Eddu Viðarsdóttur og Þóris Úlfarssonar, ákveðið að standa fyrir tónleikum þeim til styrktar. Tónleikarnir verða haldnir í Salnum Kópavogi fimmtudaginn 10.júní klukkan 20:00. „Vinir og vandamenn sjá um að halda styrktartónleikana fyrir okkur. Hannes Friðbjarnarsson í Buff á heiðurinn af þessu glæsilega framtaki ásamt mörgum öðrum vinum okkar," segir Edda í upphafi samtals okkar áður en við spyrjum um heilsu Emils. Í aðstæðum sem þessum sér maður hvað vináttan hefur markað djúp spor. Hvernig hefur Emil litli það? „Hann hefur það svona ágætt í dag. Hann er búinn að vera mjög lasinn. Það er misjafnt hvernig börn bregðast við lyfjunum. Hann hefur verið mjög lasinn síðan hann greindist í byrjun janúar á meðan önnur börn þola lyfin aðeins betur. Hann hefur ekki labbað í rúma þrjá mánuði. Aukaverkanirnar sem hann er að fá eru slæmar, hann er voðalega óheppinn hvað það varðar," segir Edda. „Við foreldrar Emils höfum ekkert getað unnið. Ég er heima í fæðingarorlofi. Bróðir hans, Viðar Snær, varð átta mánaða í fyrradag (6. júní). Hann var tveggja mánaða þegar Emil greindist. Ég á tvær eldri dætur og Þórir einn eldri son og svo eigum við þá tvo saman" segir Edda. Eru batahorfur góðar hjá Emil? „Batahorfurnar hjá börnum með ALL tegundina af hvítblæði eins og Emil er með eru um 85% en nær 90% á Íslandi vegna góðrar meðferðar hjá krabbameinsveikum börnum," segir Edda. „Við erum frekar bjartsýn með batahorfur hjá Emil enda vona ég að hann sé komin yfir erfiðasta hjallann en tvö ár eru enn eftir af meðferðinni svo að við erum bara rétt farin að stað og við vonum að Guð verði Emil, litlu hetjunni okkar hliðhollur í þessari miklu baráttu." Meðfylgjandi má sjá myndir af Emil litla. Hér má sjá nánari upplýsingar um styrktartónleikana sem enginn sem vill veita fjölskyldunni hjálparhönd ætti að láta fram hjá sér fara. 8.6.2010 10:45
Herra Hinsegin var 130 kg - myndband „Já ég var tæplega 130 kíló. Í dag er ég eitthvað um 86 kíló," viðurkenndi nýkjörinn Herra Hinsegin, Vilhjálm Þór Davíðsson, frá Ólafsfirði, þegar við spjölluðum við hann í gær. „Ég tók þá ákvörðun þegar ég var rúmlega sautján ára að þetta væri ekki líf sem ég ætlaði að fara í," sagði Villi. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt efst í fréttinni ef þú vilt sjá viðtalið við Villa. 8.6.2010 08:00
Þjóðverjar vilja íslenskan Bankster Guðmundur Óskarsson er kominn á höfundalista þýska forlagsins Frankfurter Verlagsanstalt, sem ætlar að þýða sigurverk Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Bankster. 8.6.2010 15:40
Formið kemur með kynlífi Robbie Williams hefur upplýst hvernig hann heldur sér í svona góðu formi. Fyrir utan að hlaupa nokkra kílómetra á dag og borða hollt þá er lykillinn kynlíf. 8.6.2010 04:00
Claudia Schiffer hneykslar í gervi svartrar fyrirsætu Claudia Schiffer hefur ekki verið þekkt fyrir að ganga fram af fólki heldur þykir fyrirsætan fremur hefðbundin. Samstarf hennar og Karl Lagerfeld gæti þó breytt þeirri ímynd. 8.6.2010 03:00
Útilokar ekki að stofna Besta flokkinn í Hollywood „Bandaríkin og Ísland glíma við sömu vandamálin. Við erum með nokkra ráðandi flokka sem tala alltaf um sömu hlutina og koma engu í verk. Mér finnst Jón Gnarr hafa áhugaverða nálgun," segir bandaríski athafnamaðurinn Jonathan Taplin. 8.6.2010 01:00
Haffi Haff heldur þrenna útgáfutónleika Haffi Haff heldur þrenna útgáfutónleika á NASA á morgun. 8.6.2010 21:37
Sammi hitti átrúnaðargoðið í Noregi „Hann var ferlega flottur," segir Samúel Jón Samúelsson sem hitti eitt af átrúnaðargoðum sínum, nígeríska trommuleikarann Tony Allen, á Nattjazz-tónlistar-hátíðinni í Noregi. Þar spilaði Samúel ásamt Stórsveit sinni deginum á undan Allen við góðar undirtektir. 8.6.2010 05:30
Kallakór Kaffibarsins hefur upp raust sína Nýstofnaður Kallakór Kaffibarsins samanstendur af syngjandi hesta- og bjórdrykkjumönnum sem hafa lengi stundað hinn víðfræga skemmtistað. 8.6.2010 05:00
Óli Palli frumsýnir Þyrlurokksmynd Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás 2, frumsýnir á næstunni heimildarmynd um tónleikana Þyrlurokk sem hann hélt í heimabæ sínum Akranesi fyrir tuttugu árum. 8.6.2010 03:30
Mamma Mia! til Kína Söngleikurinn Mamma Mia! verður fyrsti vestræni söngleikurinn sem settur verður í almennar sýningar í Kína. Mamma Mia! byggir sem kunnugt er á lögum sænsku hljómsveitarinnar Abba en þetta verður þrettánda tungumálið sem söngleikurinn er þýddur á. 8.6.2010 03:15
Tónleikar hjá Nammidegi Hljómsveitin Nammidagur heldur tónleika á Dillon á fimmtudag og á Karamba daginn eftir. 8.6.2010 03:00
Fjármagnar plötu á netinu „Í raun er ég að selja diskinn fyrirfram," segir djasspíanistinn Sunna Gunnlaugsdóttir sem notar síðuna Kickstarter.com til að fjármagna plötu sem hún hljóðritaði í New York í fyrra. Hún ætlar einnig að nota peningana í útvarpsherferð í Bandaríkjunum. 8.6.2010 03:00
Athugasemd frá ráðherra Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur gert athugasemd vegna fréttar í menningu á laugardag um fjárveitingar á síðustu ellefu árum til ýmissa aðila vegna bókaútgáfuverkefna af ýmsu tagi. Segir Katrín að ranghermt sé í fréttinni að fjárveitingar þessar séu af ráðstöfunar-fé menntamálaráðuneytis, heldur komi þær inn í fjárlög ár hvert frá fjárveitinganefnd. 8.6.2010 03:00
22 myndir á Stuttmyndadögum Alls hafa 22 nýjar íslenskar stuttmyndir verið valdar á Stuttmyndadaga í Reykjavík sem haldnir verða í Kringlubíói á miðvikudag. Tæplega fjörutíu myndir bárust en dómnefndin valdi þær 22 bestu. 8.6.2010 02:00
Hafnaði Coke og Pepsi Breska söngkonan M.I.A hefur hafnað tilboðum frá gosdrykkjarisunum Coke og Pepsi um að gerast andlit auglýsingaherferða þeirra. 8.6.2010 01:30
Stúlknakór í Hallgrímskirkju Stúlknakór Kaupmannahafnar kemur fram á tónleikum í Hallgrímskirkju í kvöld kl. 20. 8.6.2010 01:30
Willis auglýsir vodka Leikarinn Bruce Willis hefur að undanförnu birst í auglýsingum á netinu fyrir pólska vodkategund. „Ég er ekki bara fjallmyndarleg hasarmyndahetja með sönghæfileika," grínast Willis í einni auglýsingunni. Willis, sem er 55 ára, á hlut í fyrirtækinu Belvedere SA, sem framleiðir vodkann. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins Willis hafa verið valinn vegna þess að hann væri alvöru náungi 8.6.2010 00:30
Stjörnurnar fagna með MTV Kvikmyndaverðlaun MTV voru veitt um helgina og skærustu stjörnurnar mættu að sjálfsögðu á svæðið. 8.6.2010 00:01
Pacas kemur til bjargar - myndband Í stórafmæli Sigríðar Klingenberg í Nauthólsvík í gærkvöldi urðum við vitni að góðmennsku Pacas þegar hann náði að halda upp klæðskipting sem missteig sig eitthvað í miðjum dansi. Fjöldi klæðskiptinga dansaði eins og myndbandið sýnir fyrir fjölda gesta sem saman voru komnir til að fagna með Sigríði og vinum hennar og fjölskyldu. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið efst í fréttinni ef þú vilt sjá Pacas og umræddan klæðskipting sem leiðist ekki dansinn. 7.6.2010 18:08
Stórstjörnurnar vilja taka þátt í Glee-æðinu Einn vinsælasti þátturinn í heiminum í dag hefur göngu sína aftur í kvöld á Stöð 2. Nýju þættirnir verða að sjálfsögðu uppfullir af þekktum lögum og segir sagan að stærstu poppstjörnur heims sláist um að koma lögum sínum að enda slá þau undantekningarlaust í gegn og seljast í bílförmum, einkum á iTunes-vefnum. 7.6.2010 17:48
Óþekk jólasveinastelpa - myndband „Dráttasníkir!" svaraði Díana Ómel Svavars eins og ekkert væri eðlilegra í gær þegar við spurðum hana út í jólasveinabúninginn sem hún klæddist í 50 ára afmæli Sigríðar Klingenberg. „Svo vil ég endilega senda kveðju til Völu vinkonu upp á sjúkrahúsi..." bætti hún við. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt efst í fréttinni ef þú vilt sjá viðtalið við Díönu. 7.6.2010 16:30
Ástarbréfin streyma til Herra Hinsegin - myndband „Tilboðin reyndar hafa streymt inn síðan á laugardaginn í gegnum Facebook og miðasendingar. Ég hérna er búinn að fá nokkur ástarbréf,“ sagði Vilhjálmur eða Villi eins og hann er kallaður. 7.6.2010 15:15
Húðflúrin á Haffa Haff - myndband Við spurðum tónlistarmanninn Haffa Haff út í húðflúrin sem hann hefur látið setja á líkama sínn í afmælisveislu Sigríðar Klingenberg í gærkvöldi. „Ég gerði þetta í Seattle 2008. Mig langaði að hafa eitthvað jákvætt á líkamanum," sagði Haffi meðal annars í myndskeiðinu. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt efst í fréttinni ef þú vilt sjá viðtalið við Haffa. 7.6.2010 14:30
Fyrrum meðlimur Stereophonics fellur frá Fyrrverandi trommari bresku rokkhljómsveitarinnar Stereophonics, Stuart Cable, sem starfaði sem útvarpsmaður í Bretlandi, fannst látinn á heimili sínu í Wales snemma í morgun. Ekki er vitað hvað olli dauða Stuart ef marka má breska fjölmiðla. 7.6.2010 13:45
Tom Cruise slær í gegn - myndband Í myndskeiðinu hér má sjá leikarann Tom Cruise í hlutverki Les Grossman, ofsafengna Hollywood-framleiðandans úr grínmyndinni Tropic Thunder. Um helgina fór fram árleg MTV kvikmyndaverðlaunahátíð í Bandaríkjunum þar sem Tom Cruise var fenginn til þess að fara aftur í gervi Grossman þar sem hann dansaði af innilfun við Jennifer Lopez. Eiginkona Tom, Katie Holmes, fylgdist kát með atriðinu af fremsta bekk. 7.6.2010 10:30
Hommablað segir Heru hafa verið rænda sigrinum Blaðamaður eins stærsta hommablaðs heims, Gay Times, fullyrðir á bloggi blaðsins að Hera Björk hafi verið rænd sigrinum í Eurovision. Íslenska söngkona sé það besta sem hafi komið fyrir samkynhneigða menningu og tónlist í langan tíma. Íslenska lagið, Je nei se Quai, hafi verið besta lagið í keppninni og það sé næstum óskiljanlegt af hverju hún hafi ekki verið ofar. 7.6.2010 09:30
Pétur Jóhann vill Jón Gnarr í Fjörðinn „Mér líst bara vel á þetta, ég bý náttúrlega í Hafnarfirði þannig að þetta kemur mér í sjálfu sér ekkert við,“ segir Pétur Jóhann Sigfússon. Hann sá það fyrir að Besta flokknum myndi ganga jafnvel og raun bar vitni því það sé einfaldlega í eðli Jóns að gera hlutina af fullum krafti, alltaf. 7.6.2010 08:30
Þetta lið kann sko að skemmta sér - myndir Sigríður Klingenberg spákona hélt hátíðlega upp á 50 ára afmælið sitt í Nauthólsvík í gærkvöldi. Vísir var á staðnum og fylgdist með grímuklæddum vinum Sigríðar fagna með henni með söng og dans fram á rauða nótt. Guðbergur Garðarsson, betur þekktur sem Beggi, veislustjóri sá til þess að allir skemmtu sér konunglega. 7.6.2010 06:15
Systur framleiða stjörnuspil „Fræga fólkinu finnst þetta svakalega sniðugt og við gefum öllum eintak af sínu spili,“ segir Halldóra Jónsdóttir. 7.6.2010 06:00
Fjölbreytt ástarlíf Cheryl Breska söngkonan Cheryl Cole virðist hafa í nógu að snúast. Foreldrar tveggja karlmanna hafa nú lýst því yfir opinberlega að synir þeirra og hún eigi í eldheitu ástarsambandi. 7.6.2010 00:01
Beckham, Snoop og fleiri stjörnur í Star Wars-auglýsingu fyrir HM Beckham, Snoop, Daft Punk, Franz Beckenbauer, Noel Gallagher, Ian Brown, Ciara, grínistinn Jay Baruchel og plötusnúðurinn Neil Armstrong. Adidas sparar ekki stóru nöfnin í nýrri auglýsingu sem gerð var fyrir Heimsmeistaramótið í fótbolta. 6.6.2010 19:00
Eyddi tveimur milljónum í fjögurra ára afmæli sonarins Söngkonan Gwen Stefani telst ekki vera sú ýktasta í eyðslunni í Los Angeles þannig að verðmiðinn á fjögurra ára ára afmæli sonar hennar gefur vísbendingu um hvernig kaupin gerast þar á eyrinni. 6.6.2010 18:00
Sandra Bullock kemur fram í fyrsta skipti eftir skandalinn Leikkonan Sandra Bullock sást í fyrsta skipti opinberlega í gærkvöldi síðan upp komst um framhjáhald eiginmanns hennar. 6.6.2010 17:00
Vilhjálmur valinn Herra Hinsegin Vilhjálmur Þór Davíðsson frá Ólafsfirði var valinn Herra Hinsegin þegar keppnin var í fyrsta skipti haldin í Þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi. 6.6.2010 16:00
Harrison Ford málaði flugvélarnar sínar fimm grænar - og þyrluna líka Leikarinn Harrison Ford Harrison vill ekki vera eins og allir hinir og málaði þess vegna allar flugvélarnar sínar og þyrluna í uppáhaldslitnum sínum. 6.6.2010 15:00
Gunnar og Sölvi elda fyrir Jónínu „Strákarnir í eldhúsinu :-) Góð tilfinning,“ skrifaði athafnakonan Jónína Benediktsdóttir á Facebooksíðuna sína í dag. Hún er stödd í Flórída í brúðkaupsferð en líkt og væntanlega flestir vita gengu hún og Gunnar í Krossinum í það heillaga fyrr á þessu ári. 6.6.2010 13:04
Vala Grand: Á morgun verð ég endurfædd sem kona Á morgun, sunnudag, fær Vala Grand kyn sitt loksins leiðrétt í átta klukkustunda aðgerð sem sænski læknirinn Gunnar Krantz framkvæmir á Landspítalanum í Fossvogi en hann er einn færasta sérfræðingur Norðurlanda á þessu sviði. Aðgerðin sem Vala gengst undir er mun erfiðari og viðameiri en aðrar aðgerðir sem falla undir lýtaaðgerðir. Vala, sem er stödd á Landspítalanum þar sem aðgerðin fer fram, skrifaði eftirfarandi til vina sinna á Facebook síðuna sína fyrir tæpri stundu: „OK svo á morgun verð ég endurfædd sem kona og verður leiðrétt kynið sem ég átti að fæðast i byrjun og mig langar til að óska vinkonu minni Sigríði Klingenberg til hamingu með afmælið. Sorry að eg komst ekki love og ég vill þakka ykkur öllum fyrir stuðning ykkar og skilning um það sem ég er að ganga i gegnum ef ég eitthvað gerist rangt í aðgerðinni þá vil ég bara segja við ykkur öll nice to known u all." 5.6.2010 23:30
Ekkjan vill bætur Ekkja leikarans Davids Carradine hefur krafið franskt kvikmyndafyrirtæki um skaðabætur vegna dauða hans. Fyrirtækið MS2 SA stóð á bak við síðustu mynd Carradines sem var tekin upp í Bangkok í Taílandi. Ekkjan, Anne Carradine, segir að fyrirtækið hafi ekki verndað eiginmann sinn sem skyldi. Hann fannst látinn í fataskáp, nakinn og hangandi í snúru, 72 ára gamall. 5.6.2010 18:15
Sigrún Ósk eignaðist dreng Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fjölmiðlakona eignaðist dreng í gærkvöldi. Um er að ræða fyrsta barn Sigrúnar og unnusta hennar Jóns Þórs. Öllum heilsast vel. Vísir óskar Sigrúnu og Jóni innilega til hamingju með frumburðinn. 5.6.2010 13:15
Varar við svikurum Hótelerfinginn Paris Hilton er vinsæl þegar kemur að því að bjóða í veislur. Sumir skemmtanastjórar eru reiðubúnir til að reiða fram ansi háar fjárhæðir fyrir nærveru hennar, enda dregur Paris að sér her ljósmyndara. En nú hefur Hilton varað við svikurum á egypskum næturklúbbi í höfuðborginni Kairó en þeir auglýsa nú glæsilegt skemmtikvöld með Paris Hilton innanborðs. Sem væri kannski ekkert alvarlegt mál ef ekki væri fyrir þá staðreynd að eigendur klúbbsins selja miðann á þúsund dollara. 5.6.2010 13:00
Bond verður Blomkvist Línur eru smám saman að skýrast með bandarísku endurgerðina af Karlar sem hata konur eftir Stieg Larsson. Brad Pitt virðist ekki ætla að leika rannsóknarblaðamanninn Mikael Blomkvist. 5.6.2010 11:30
Jackson-safn byggt í Gary Safn sem verður tileinkað popparanum sáluga Michael Jackson verður byggt í fæðingarbæ hans Gary í Indiana-fylki á næsta ári. Bæjarstjórinn í Gary telur að safnið muni laða að sér um 750 þúsund gesti á hverju ári og tryggja bænum tugi milljarða í tekjur. 5.6.2010 09:00