Fleiri fréttir

Paris Hilton komin með nýjan?

Paris Hilton bætti nýjum fola í föruneyti sitt í gær er hún sást spranga á strönd í Malibu ásamt hinum fjallmyndarlega leikara Adrian Grenier. "Vinirnir" léku sér í sandinum og stungu sér til sunds.

Hin eftirsótta Angelina er við það að hverfa

Svo virðist sem ekkert sé að verða eftir af hinni annars stórglæsilegu leikkonu Angelinu Jolie og má velta fyrir sér hvort hin ört stækkandi fjölskylda hennar taki sinn toll. Jolie á nú fjögur ung börn, þau Maddox, Zahara, Pax og Shiloh og eru þau á aldrinum eins til sex ára.

Brad Pitt gerir skyldu sína

Brad Pitt mætti í dómssal í Los Angeles í dag til að sitja í kviðdómi en hann þarf að gera skyldu sína eins og aðrir. Brad var leyft að leggja í starfsmannastæði fyrir utan dómshúsið og var að sögn viðstaddra í hvítum stuttermabol, dökkum gallabuxum og með derhúfu.

Samkeppni um bestu myndina af Díönu prinsessu

Dagblaðið German daily Bild býður lesendum sínum í dag að taka þátt í keppni um bestu andlitsmyndina af Díönu prinsessu. Lesendum er boðið að mála mynd af Díönu og senda hana inn til balaðsins. Það er gert í tilefni þess að í lok mánaðarins verða tíu ár liðin frá andláti hennar en hún lést ásamt unnusta sínum Dodi al-Fayed í bílslysi í París þann 31. ágúst 1997.

Eiginmaður Mel B. ekkert lamb

Hinn nýi eiginmaður Mel B. sem hún giftist á laun í Las Vegas í júní síðastliðinn hefur orðið uppvís að því að leggja hendur á fyrrverandi kærustu sína og barnsmóður. Kvikmyndaframleiðandinn Stephen Belafonte viðurkenndi fyrir dómi árið 2003 að hafa lagt hendur á Nicole Contreras á heimili þeirra í Beverly Hills.

Stórmynd í uppnámi

Eitt stærsta verkefni í norrænum kvikmyndaiðnaði er í uppnámi. Norrænar sjónvarpsstöðvar réðust í það í fyrra að láta gera handrit eftir þríleik sænska rithöfundarins Jan Guillou um þátt norrænna manna í krossferðunum.

Metnaðarfullt sjálfstraust

Vinasveitirnar Hjaltalín og Sprengjuhöllin vinna nú um stundir að frumburðum sínum. Steinþór Helgi Arnsteinsson kíkti í heimsókn til sveitanna þar sem upptökur voru í fullum gangi.

Heima frumsýnd á RIFF

Heima, mynd um tónleikaferð hljómsveitarinnar Sigur Rósar um Ísland, verður frumsýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, 27. september næstkomandi. Þetta kemur fram á Soundgenerator.com.

Ástir í enska boltanum

Það hefur verið dauflegt yfir leiksviðum landsmanna síðustu vikur. Engar sumarsýningar eru í gangi á stærri sviðum landsins og smærri hópar hafa hægt um sig. Gegn þessari deyfð rísa hinir ungu og efnilegu.

Fyrsta útsendingin í fjögur ár

„Mig langaði að prófa að taka í útvarpið aftur og sá þessa möguleika um verslunarmannahelgina. Ég bauð því fram krafta mína,“ segir útvarpsmaðurinn gamalkunni, Sighvatur Jónsson, gjarnan þekktur úr fyrri tíð sem Hvati, en hann settist aftur fyrir framan hljóðnemann á Bylgjunni um helgina

Selt á Franz

Miðasala á tónleika skosku hljóm­sveitarinnar Franz Ferdinand hinn 14. september nk. hefst í dag í verslunum Skífunnar, BT á landsbyggðinni og á vefsíðunni Midi.is. Tónleikarnir fara fram á Nasa og í tilkynningu segir að miðaframboð á tónleikana sé takmarkað.

Mynd fyrir týndu kynslóðina í íslenskri bíómenningu

„Bæði bókin og leikverkið eru algjör snilld," segir handritshöfundurinn Ottó Geir Borg sem í félagi við leikstjórann Gunnar Björn Guðmundsson hefur fengið styrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands til að gera handrit eftir unglingabók Ólafs Hauks Símonarsonar, Gauragangur.

Kunna ekki að skrifa

Sænsku krimmahöfundarnir Liza Marklund og Camilla Lackberg, sem þekktar eru hér á landi af glæpasögum sínum sem ARI útgáfa hefur gefið út hin síðari misseri, hafa á þessu sumri mátt þola nokkurt mótlæti af hendi starfsbræðra sinna.

Revíusýning hjá Slátrinu

Á laugardagskvöldið kl. 20 verður S.L.Á.T.U.R. með sýningu í aðalstöðvum sínum að Hverfisgötu 32 á revíunni ALLT GOTT. Þar með tekur þetta gamla form á sig nýtt sköpulag í faðmi raftónlistarmanna.

Ómar Ragnarsson aftur í Gay Pride

„Ég verð þarna, fremstur í göngunni,“ segir sjónvarpsmaðurinn og stjórnmálamaðurinn Ómar Ragnarsson en hann hyggst aftur taka þátt í Gay Pride-göngunni á laugardaginn.

Skáru út mótorhjól úr tré

„Við vildum gera eitthvað sem sýndi að við værum mestir og bestir. Og svo erum við náttúrulega allir léttruglaðir,“ segir Jón Adolf Steinólfsson, einn af sexmenningunum sem mynda tréskurðarhópinn Einstakir.

Leikstjóri Star Trek til Íslands

Miklar líkur eru á því að næsta Star Trek-mynd verði tekin hér á landi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins berjast Saga Film og Pegasus enn um að fá umsjón með tökunum hér á landi.

Sumarkvöld í Hömrum

Á sunnudagskvöld kl. 20 halda þær Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Sigríður Ragnarsdóttir píanóleikari tónleika í Hömrum, og eru það sjöttu tónleikarnir í sumartónleikaröð Tónlistarfélags Ísafjarðar, Sumar í Hömrum.

Ísland áberandi á tískuviku

Tískuvikan í Kaupmannahöfn hófst á miðvikudag og stendur fram á sunnudag. Samhliða henni er haldinn fjöldi sölusýninga, sem margir íslenskir hönnuðir taka þátt í.

Semur í göngutúrum

Hljómsveitin Vetiver heldur tónleika á Organ í kvöld. Andy Cabric, forsprakki sveitarinnar, er spenntur fyrir tónleikunum.

Draugar Milos Forman

Goya`s Ghost, nýjasta kvikmynd hins tékkneska Milos Forman, verður meðal kvikmynda á Bíódögum Græna ljóssins sem hefjast eftir tæpa viku. Myndin segir frá ævi spænska málarans Francisco Goya og er stjörnum prýdd en meðal leikara eru þau Natalie Portman og Javier Bardem auk Stellan Skarsgaard sem fer með hlutverk Goya.

Þjóðsögur á mynddiskum

Tvíeykið góða úr Stundinni okkar, þau Þóra Sigurðardóttir og Jóhann G. Jóhannsson, hafa nú gefið út DVD-diska sem innihalda þættina Sögurnar okkar. „Þetta eru þættir sem við gerðum fyrir RÚV og voru sýndir í fyrra,“ segir Þóra.

Reykjavík! í 12 Tónum

Hin kröftuga hljómsveit Reykjavík! leikur í 12 Tónum í dag ásamt áströlsku sveitinni Because of Ghosts. Sú síðarnefnda er allþekkt í heimalandinu og er komin hingað til að freista þess að kynnast lifnaðarháttum Íslendinga.

Transformers - þrjár stjörnur

Aðdáendur Transformers hafa beðið spenntir eftir því að sjá hvaða höndum Hollywood myndi fara um þessar ágætu teiknimynda- og leikfangahetjur níunda áratugarins. Vitað var að það yrði erfitt fyrir tölvubrellukarlana að endurskapa geimveruvélmennin á trúverðugan hátt fyrir hvíta tjaldið.

Þóra í Atlanta selur glæsivillu í Kópavogi

Þóra Guðmundsdóttir, einatt kennd við Atlanta, hefur selt fokhelda glæsivillu sína við Asparhvarf í Kópavogi. Villan, sem er tæplega 560 fermetrar að stærð, hefur verið í sölu undanfarna mánuði og var uppsett verð 125 milljónir. Það var Guðmundur Ólason, forstjóri fjárfestingafélagsins Milestone, og kona hans, Bryndís Mjöll Guðmundsdóttir, sem keyptu húsið af Þóru.

Kóngur og drottning krýnd

Þorsteinn Jóhannesson, öðru nafni Blær, bar sigur úr bítum í hinni árlegu dragkeppni Íslands sem haldin var í Loftkastalanum í gær. Hann segir æðislegt að landa loksins sigrinum en hann er búinn að keppa tvisvar áður. Í bæði skiptin lenti hann í öðru sæti.

Fyrrum lífvörður Lindsay opnar sig

Tony Almeida, fyrrum lífvörður Lindsay Lohan, hefur opnað sig um ýmislegt misjafnt í uppvexti leikkonunnar. Hann segir að foreldrar hennar hafi vanrækt hana, beitt hana ofbeldi og notað hana til að græða peninga.

Kim hefur ekkert á móti Siennu Miller

Kim Porter, barnsmóðir rapparans P. Diddy, er ekki í nöp við Siennu Miller sem virðist sífellt nánari rapparanum. Hún staðhæfir að Miller hafi ekki átt nokkurn þátt í sambandsslitum hennar og rapparans. "Þau eru bara vinir og eru ekki ástæða sambandssltianna," segir Kim.

Pavarotti á spítala

Ítalski tenórinn Luciano Pavarotti var fluttur á spítala á Norður-Ítalíu fyrr í vikunni með lungnabólgu. Nýjustu fregnir herma að ástand hans sé stöðugt og von sé á að hann geti farið heim á næstu dögum.Pavarotti greindist með krabbamein í briskirtli í júlí á síðasta ári og þurfti í kjölfarið að fresta fyrirhugaðri kveðjutónleikaferð sinni.

Mel B gengur í það heilaga

Mel B gekk að eiga kvikmyndaframleiðandann Stephen Belafonte á laun í Las vegas fyrir tveimur mánuðum. Samkvæmt hjúskaparvottorði frá Nevada fór athöfnin fram þann 6. júní. Á sama tíma hefur hún verið að berjast fyrir því að kvikmyndaleikarinn Eddie Murphy viðurkenni að hann sé faðir fjögurra mánaða dóttur hennar Angel Iris, sem hann hefur nú gert.

Miðasala á Franz Ferdinand hefst á morgun

Skoska gítarpoppsveitin Franz Ferdinand heldur tónleika á NASA föstudaginn 14. september og hefst miðasala á tónleikana á morgun, föstudag í verslunum Skífunnar, BT og á Midi.is.

Forræðisdeila milli Spears og Federline í uppsiglingu

Lögmaður Kevins Federline hefur nú farið fram á það fyrir hans hönd að hann fái aukið forræði yfir sonum sínum tveimur sem hann á með Britney Spears. Sem stendur deila þau forræðinu jafnt á milli sín en Federline hefur undanfarnar vikur hótað því að fara fram á aukið forræði vegna hegðunar söngkonunnar sem hann er ósáttur við.

Astrópía - Tónlistin úr kvikmyndinni - þrjár stjörnur

Það er sitt lítið af hverju á Astrópíu-kvikmyndaplötunni. Nokkur ný popplög tekin upp sérstaklega fyrir plötuna, ný og nýleg lög af útkomnum eða væntanlegum plötum og kvikmyndatónlistin sjálf sem Þorvaldur Bjarni samdi og sem hljóðrituð var af Sinfóníuhljómsveit Búlgaríu.

Sex manna sýning á Seyðisfirði

Sýningarhöllin í Skaftfelli á Seyðisfirði er öxullinn í sýningarhaldi á Austurlandi. Þar verður opnuð sýning á laugardag á verkum sex myndlistarmanna.

Umbreytingar líta dagsins ljós

Kvikmyndin Transformers eða Umbreytingar var frumsýnd í gær hér á landi en hún þykir ein best heppnaða sumarmyndin. Myndin er byggð á frægum leikföngum frá 7. áratug síðustu aldar sem eiga rætur að rekja til Japans.

Umdeild mynd af Harry prins

Forsíða septemberútgáfu bandaríska tímaritsins Radar hefur valdið mikilli reiði á meðal almennings í Bretlandi en hún sýnir fáklæddan Harry prins sitjandi í hásæti með bjór í hendi.

Elda 120 lítra af fiskisúpu

„Undirbúningurinn er að skríða af stað," segir sjónvarpskonan Svanhildur Hólm Valsdóttir en hún hyggst ásamt eiginmanni sínum, Loga Bergmanni Eiðssyni, taka virkan þátt í Fiskideginum mikla sem haldin verður hátíðlegur á Dalvík um helgina.

Söngskólinn skorar á kóra

Söngskólinn í Reykjavík og menningarnótt hyggjast efna til söngveislu á menningardaginn 18. ágúst, undir yfirskriftinni Syngjum saman við Söngskólann! Stefnt er að því að samfelld söngdagskrá verði í gangi við hús Söngskólans í Reykjavík, að Snorrabraut 54, frá 15 til 18.

Hinsegin dagar hefjast

Hinsegin dagar 2007 hefjast með pompi og prakt í dag. Dagskrá Hinsegin daga er viðamikil í ár, og Gleðigangan, sem er hápunktur hátíðarinnar og fer alla jafna fram á öðrum laugardegi í ágúst, er hápunktur hennar.

Busta Rhymes kærður

Rapparinn Busta Rhymes hefur verið kærður fyrir grófa líkamsárás sem sögð er hafa átt sér stað í fyrrasumar og gæti Rhymes átt yfir höfði sér nokkurra ára fangelsi verði hann fundinn sekur.

Harris leikstýrir

Bandaríski leikarinn Ed Harris hyggst setjast aftur í leikstjórastólinn og að þessu sinni leikstýra alvöru vestra.

Þórhallur ræður sér fulltrúa

"Þetta er ekki aðstoðarmanneskja eins og auðkýfingarnir eru með," segir Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, en nýverið var auglýst eftir starfi fulltrúa dagskrárstjóra í Efsaleiti.

Sjá næstu 50 fréttir