Fleiri fréttir

Leaves spila á Organ

Hljómsveitirnar Leaves og Shadow Parade blása til tónleika á Organ, nýjum tónleikastað í Hafnarstræti. Tónleikarnir fara fram annað kvöld og hefjast kl. 21.

Viðurkenning fyrir japanskt lógó

Oscar Bjarnason, grafískur hönnuður hjá auglýsingastofunni, Fíton hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir lógó sem hann hannaði fyrir vefsvæði sitt. Japanski fataframleiðandinn UNIQLO hefur keypt lógóið í framhaldinu. Verður lógóið notað á boli framleiðandans í verslunum um allan heim..

Justin með flestar MTV tilnefningar

Í gær var tilkynnt um tilnefningar til MTV tónlistarverðlaunanna. Það kom fáum á óvart en hjartaknúsarinn Justin Timerlake hreppti flestar tilnefningar að þessu sinni. Hér fyri neðan má sjá tilnefningar í helstu flokkunum.

Grand Theft Auto veldur vandræðum

Hlutabréf í Take-Two Interactive Software, framleiðanda hins geysivinsæla tölvuleiks Grand Theft Auto, féllu um sextán prósent eftir að út barst að seinkun yrði á nýjustu útgáfu leiksins.

Tveir VIP miðar til Hollywood

Dansþátturinn So you think you can dance hefur slegið í gegn og svo virðist sem hver sem á horfir heillist af þessari fallegu íþrótt. Og spurningin er; hefur dansæði gripið um sig á Íslandi?

Bogi kaupir 150 milljóna glæsivillu

Milljarðamæringurinn Bogi Pálsson, stjórnarformaður Flögu og stjórnarmaður í Exista, hefur fest kaup á glæsilegu 150 milljóna einbýlishúsi á Arnarnesinu.

Samdi texta fyrir Pete

Kate Moss og Pete Doherty eru aftur farin að rugla saman reitum en þó eingöngu á tónlistarsviðinu í þetta sinn. Pete hefur greint tímaritinu Daily Mirror frá því að Kate hafi aðstoðað hann við að skrifa textann í laginu You Talk á síðustu plötu hljómsveitarinnar Babyshambles. Pete segist hafa skrifað lagið á meðan Kate sat í rúminu.

Kristinn kaupir í Skuggahverfi

Kristinn Björnsson var fyrstur til að kaupa íbúð í öðrum áfanga íbúðabygginga í 101 Skuggahverfi. Íbúðin sem hann hefur fest kaup á er á 10. hæð að Lindargötu 37. Hún er 254 fermetrar og þar með er talinn 100 fermetra þakgarður. Íbúðin er með þeim stærri sem boðnar eru út í þessum áfanga og kostar 145 milljónir króna, en er án allra innréttinga.

Pollack dregur sig í hlé vegna veikinda

Hinn 73 ára kvikmyndaleikstjóri Sydney Pollack hefur dregið sig í hlé sem leikstjóri pólitískrar dramamyndar sem hann ætlaði að hefja vinnu við nú í haust. Myndin fjallar um líf fólks sem tók þátt í að endurtelja atkvæðin í Flórída í bandarísku forsetakosningunum árið 2000.

Ættleiðingarferli Madonnu í uppnámi

Ættleiðing söngkonunnar Madonnu á hinum unga David Banda frá Malaví gæti verið í uppnámi eftir að embættismanni sem ætlað var að fylgja ættleiðingunni eftir var bannað að ferðast til Bretlands. Félagsráðgjafinn Penstone Kilebame átti að fylgjast með ættleiðingarferlinu og voru tvær ferðir áætlaðar á heimili Madonnu í London en yfirvöld í Malaví stöðvuðu heimsóknirnar.

Tvöfalt verðmætari en Tom Cruise

Hollywoodleikarinn Matt Damon er sá leikari sem skilar kvikmyndaframleiðendum hvað mestum hagnaði miðað við þau laun sem hann fær greidd, samkvæmt nýrri könnun Forbes tímaritsins.

Tekur laumumyndir

Laumumyndir af fólki er viðfangsefnið á ljósmyndasýningu Ara Sigvaldasonar í galleríinu Fótógrafíu. Yfirsikrft sýningarinnar er Götulíf og vissu fyrirmyndirnar ekki af því að verið væri að taka myndir af þeim.

Hundar Ving Rhames drápu mann

Allt lítur út fyrir að tveir bolabítar í eigu bandaríska kvikmyndaleikarans Ving Rhames hafi drepið fertugan umsjónarmann á heimili leikarans. Maðurinn fannst látinn á lóð heimilis Rhames í Los Angeles. Hann var þakinn hundabitum.

Nýstárleg ljósmyndasýning opnuð á Eskifirði

Sýning á myndum eftir sjö eskfirska ljósmyndara var opnuð á Eskifirði um helgina. Sýningin er sett upp á nýstárlegan hátt, og er ætlað að vera skúlptúr um leið og hún er rammi um sýninguna. Verkið stendur við sundlaugina á Eskifirði.

Gleymda stríðinu veitt athygli

Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að senda 26 þúsund manna friðargæslulið til Darfúr. Borgarastyrjöldin þar hefur staðið í fjögur ár og kostað hundruð þúsunda lífið.

Fann upp orðið „steiktur“

Hann er alnafni afa síns, fyrrum ráðherra og alþingismanns. Birgir Ísleifur hinn yngri hefur þó farið í aðrar áttir, en hljómsveit hans, Motion Boys, hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarið. Sumir hafa gengið svo langt að kalla hana sumar- hljómsveitina í ár, en lagið Hold me Closer to your Heart hefur hlotið mikla spilun á flestum útvarps- stöðvum og komið þeim á poppkort Íslands.

Meira en bara eitthvert krútt

Flestir Íslendingar ættu að kannast við fyrirbærið krútt sem hefur tröllriðið íslensku tónlistarlífi í hartnær áratug. Allir virðast vita hvað er verið að ræða um þegar krútt ber á góma en þegar kemur að því að útskýra hugtakið nánar standa margir á gati.

Í lykilhlutverki í myndinni

Baltasar Kormákur lagði af stað til Flateyjar á Breiðafirði í gær, ásamt fríðum flokki leikara og tökuliðs. Hann ætlar að dveljast í Flatey í mánuð eða svo, á meðan tökur standa yfir á kvikmynd hans, nýrri útgáfu af leikriti Antons Tsjekov, Ivanoff.

Haute Couture-vikan í París

Ævintýraleg fágun og íburður fyrir veturinn frá hönnuðunum Christian Lacroix og Jean-Paul Gaultier

Söng fyrir uppáhaldsliðið sitt

Óperusöngvarinn Garðar Thor Cortes hafði sérstaklega gaman af því að syngja fyrir vináttuleik Manchester United og Inter Milan á Old Trafford á dögunum vegna þess að hann hefur verið aðdáandi United síðan hann var lítill polli.

Latir blaðamenn

Jack White, annar helmingur rokkdúettsins The White Stripes, segir að blaðamenn séu latir og nenni ekki að hafa staðreyndirnar á hreinu áður en þeir taki við sig viðtöl.

Wonder í tónleikaferð

Goðsögnin Stevie Wonder er á leið í sína fyrstu tónleikaferð um Bandaríkin í rúman áratug. Wonder, sem er 57 ára, byrjar ferðalagið í San Diego 23. ágúst og lýkur því í Boston 20. september.

„Einfaldir hlutir“ í Listagili

Brynhildur Kristinsdóttir opnar í dag sýninguna „Einfaldir hlutir, höfuð, stóll og samskipti“ á Karólínu Restaurant í Listagilinu á Akureyri. „Í þessari sýningu mætast gömul og ný verk.

Stjörnufræðingurinn Brian May

Gítarleikari Queen, Brian may, hefur lagt fram doktorsverkefni sitt í stjörnufræði. May hóf doktorsnámið við Imperial College í London fyrir heilum 36 árum en lagði það til hliðar til að einbeita sér að ferli sínum með Queen. Hann hefur nú tekið upp þráðinn að nýju og stefnir ótrauður að doktorsgráðu.

Hvað þarf að hafa með?

Þeir sem ætla á útihátíð um helgina verða hafa margt í huga áður en lagt er af stað. Ísland í dag fór á rúntinn og talaði við þá sem þjónusta ferðalanga - og byrjaði á þeim stað sem er líklega fjölsóttastur fyrir þessa helgi.

Kertasalat Ragga Kjartans

Í næsta þætti af Mat og lífsstíl heimsækir Vala Matt myndlistarhjónin Ragnar Kjartansson og Ásdísi Sif Gunnarsdóttur. "Þau eru að slá í gegn út um allan heim með frumlegum listaverkum sínum og gjörningum, og það má eiginlega segja að heimsóknin til þeirra hafi verið hálfgerður gjörningur,“ sagði Vala og hló.

Lokatónleikar "Tónaregns í Reykjavík"

Í kvöld verða haldnir tónleikar í Dómkirkjunni til styrktar minningarsjóði um Susie Rut Einarsdóttur. Hafdís Vigfúsdóttir og Kristján Karl Bragason mynda dúóið Para-Dís og hafa í sumar unnið hjá Hinu húsinu í Reykjavík að verkefni sem þau nefna "Tónaregn í Reykjavík" og eru tónleikarnir í kvöld lokahluti verkefnisins.

Nicole Richie ER ólétt

Stjarnan smávaxna staðfesti þrálátar sögusagnir um óléttu sína í viðtali við Diane Sawyer sem verður sjónvarpað í Good Morning America þættinum á ABC sjónvarpsstöðinni. Richie er komin fjóra mánuði á leið með fyrsta barn hennar og kærastans Joel Maddens. Í viðtalinu tjáði hún sig einnig um yfirvofandi fangelsisvist sína vegna ölvunaksturs,sem hún sagði vera sína leið til að axla ábyrgð á gjörðum sínum.

Reiði Guðanna vinnur til verðlauna á Stony Brook

Heimildarmyndin ,,Reiði guðanna" eftir Jón Gústafsson vann til verðlauna á Stony Brook kvikmyndahátíðinni í New York um helgina. Myndin fjallar um gerð myndarinnar Bjólfskviðu, þar sem ýmislegt gekk á. Reiði Guðanna hefur gengið vel á hinum ýmsu kvikmyndahátíðum og hefur almennt hlotið betri gagnrýni en umfjöllunarefnið.

Hún er ömurleg en ég elska hana

Rokkróninn Pete Doherty gerði í gær sjarmerandi tilraun til að endurheimta ástir Kate Moss. Leiðin sem hann valdi var viðtal við breska götublaðið Mirror.

Meistari nútímans

Ítalski leikstjórinn Michelangelo Antonioni, sem er þekktastur fyrir kvikmyndirnar Blow-Up og L"Avventure, er látinn. Lést hann á heimili sínu í Róm 94 ára að aldri.

Innipúkar gleðjast

Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í Reykjavík um helgina eins og undanfarin ár. Í þetta skiptið fer hátíðin fram á nýja tónleikastaðnum Organ í Hafnarstræti sem opnar þá með pompi og pragt.

Kryddpíur vantar stílista

Mörgum þótti Kryddpíurnar ekki nógu stílíseraðar þegar þær hittust til að tilkynna um endurkomu sveitarinnar. Þegar maður skoðar myndina er það þó í rauninni aðallega Geri sem stingur í stúf enda eru allar hinar í svörtu og Mel B í svörtu og rauðu. Geri er hins vegar í skósíðum blómakjól sem passar alls ekki inn í heildarmyndina.

Nýtt lag frá Millunum

Milljónamæringarnir hafa sent frá sér nýtt lag sem ber nafnið „Við elskum þig nú samt“. Lagið er eftir Karl Olgeirsson en textinn er eftir Stefán Hilmarsson.

Rétti tíminn runninn upp

Birgitta Haukdal ætlar að gefa út sína fyrstu sólóplötu fyrir næstu jól. Er hún nýbúin að undirrita útgáfusamning við Senu þess efnis.

Ragga Gröndal snýr aftur

Tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal, sem er komin heim eftir söng- og píanónám í Bandaríkjunum, heldur tónleika á Domo í kvöld ásamt hljómsveitinni Black Coffee. Sveitina skipa gítarleikararnir Ásgeir Ásgeirsson og Eðvarð Lárusson, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson kontrabassaleikari og trommarinn Erik Quick.

Hita upp fyrir Eyjar

Rokkstjörnurnar Magni Ásgeirsson og hinn ástralski Toby Rand halda tónleika á Gauki á Stöng í kvöld ásamt hljómsveitinni Á móti sól. Um er að ræða nokkurs konar upphitun fyrir þjóðhátíð í Eyjum, þar sem Á móti sól ætlar að spila um verslunarmannahelgina.

Rignir niður plötum

Tónlistarmaðurinn Rigning heldur útgáfutónleika á Barnum í kvöld í tilefni af útkomu sinnar fimmtu sólóplötu, Askja Pandóru. Aðeins nokkrir mánuðir eru liðnir síðan síðasta sólóplata kappans kom út, þannig að afköst hans eru í miklu hámarki um þessar mundir.

Frá Vibskov til Willhelm

Sara María Skúladóttir er nýsnúin frá Danmörku, þar sem hún vann í stúdíói fatahönnuðarins þekkta, Henrik Vibskov í einn mánuð. Í lok ágústmánaðar heldur hún svo til Parísar, þar sem hún hefur fengið vinnu hjá öðrum þekktum hönnuði, Bernhard Willhelm.

Sjá næstu 50 fréttir