Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hljómsveitin Skriðurnar Hljómsveitin Grjóthrun í Bolungarvík hefur lengi talist fremsta sveit bæjarfélagsins. Meðlimir hafa æft í bílskúr einum góðum í ró og næði. En nú hefur orðið breyting þar á. Góður hópur kvenna hafði um nokkurt skeið hist í heimahúsi, ekki til að borða kökur og sauma út, heldur semja lög og texta og nú deila þær bílskúrnum með Grjóthruni. 15.8.2007 23:48
Myndin um Sigur Rós Sigur Rós - Heima - er nafn kvikmyndar um hljómsveitina Sigur Rós og tónleikaferð hennar um landið fyrir nokkrum misserum. Hljómsveitin lék þá á ólíklegustu stöðum og öll herlegheitin voru fest á filmu. Eftir rúman mánuð verður heimsfrumsýning á myndinni á kvikmyndahátíð í Reykjavík. 15.8.2007 23:43
Gott að vita af giftingarhringnum í Súðavíkurhöfn Birgitta Birgisdóttir leikkona og Örvar Smárason í Múm giftu sig í Súðavíkurkirkju um helgina. Að athöfn lokinni fór brúðguminn niður í Súðavíkurhöfn að veiða í soðið en ekki vildi betur til en svo að hringurinn sem Birgitta hafði rétt lokið við að koma upp á fingur hans rann af og út í sjó. 15.8.2007 17:11
Lisa Marie og Elvis í dúett Myndband þar sem Lisa Marie Presley syngur lagið "In the Ghetto" ásamt föður sínum verður birt á heimasíðunni Spinner.com á föstudaginn. Rödd Lísu er bætt við upprunalegu útgáfuna frá 1969."Ég hef aldrei grátið þegar ég hef gert eitthvað en ég missti mig gjörsamlega þegar ég heyrði lagið," 15.8.2007 16:22
Ný plata með Jagúar kemur út á menningarnótt Nýjasta hljómplata hljómsveitarinnar Jagúar, Shake It Good, kemur út laugardaginn 18. ágúst. Þetta er fjórða hlóðversplata sveitarinnar sem fagnar 9 ára afmæli sínu.Til að halda upp á útgáfu plötunnar býður Jagúar í útgáfu- og afmælispartý á nýja tónleikastaðnum Organ í Hafnarstræti. 15.8.2007 15:32
Kántrýdagar á Skagaströnd um helgina Kántrýdagar verða haldnir á Skagaströnd dagana 17.-19. ágúst næstkomandi þar sem fjölbreyttur hópur listamanna kemur fram. Meðal þess sem í boði verður má nefna kántrýtónlist, gospelsöng, íslenskt rokk og afrískan trumbuslátt. 15.8.2007 15:05
Victoria Beckham bætir á sig Von er á því að smásmíðin Victoria Beckham sjáist brátt með allnokkur aukakíló á skjánum. Glamúrgellan mun leika sjálfa sig í sjónvarpsþættinum Ugly Betty en í hlutverkinu á hún að hafa bætt á sig nokkrum kílóum. 15.8.2007 14:42
Óli Palli ánægður með tveggja daga tónlistarveislu Ólafur Páll Gunnarsson sem skipuleggur tónleika Rásar 2 á Menningarnótt í samstarfi við Landsbankann segir frábært að Íslendingum verði boðið upp á tveggja daga samfellda tónlistarveislu um helgina. Hann stendur fyrir tónleikum á Miklatúni á Menningarnótt og Kaupþing heldur afmælistónleika á Laugardalsvelli á föstudag. 15.8.2007 12:22
Amy Winehouse í meðferð Rokkarinn Amy Winehouse, sem einmitt er þekktust fyrir lag sitt ,,Rehab", eða ,,meðferð" hefur séð ljósið og skráð sig í eina slíka í Essex á Bretlandi. Söngkonan var lögð inn á spítala í síðustu viku, þegar hún missti meðvitund í samkvæmi heima hjá sér eftir þriggja daga vöku undir áhrifum flestra eiturlyfja sem þekkjast. 15.8.2007 12:02
Sienna Miller komin á fast Leikkonan Sienna Miller virðist loksins vera búin að finna draumaprinsinn. Sá heppni er leikarinn Matthew Rhys og kynntist parið við tökur á myndinni ,,The edge of love". Að sögn breska blaðsins The Sun vann Keira Knightley, vinkona Miller, að því hörðum höndum að koma parinu saman. Þau fóru svo á fyrsta stefnumótið í Maí, eftir að hún hætti með fyrisætunni James Burke. 15.8.2007 11:36
Sólóplötur Lennons á iTunes Nú er hægt að hala niður sextán sólóplötum með John Lennon á iTunes í fyrsta skipti eftir að samningar náðust við Yoko Ono ekkju bítilsins. Plöturnar hafa verið til sölu á öðrum stafrænum miðlum en hafa ekki fyrr fengist hjá Apple. 15.8.2007 09:19
Fimmta barn Brad og Angelinu Ofurstjörnuhjónin Brad Pitt og Angelina Jolie eru samkvæmt breska blaðinu Daily Mail á leiðinni til Eþíópíu en þar ætla þau að ættleiða sitt fjórða barn. 15.8.2007 06:15
Myndinni frestað Útgáfu heimildarmyndar Martin Scorsese um hljómsveitina The Rolling Stones hefur verið frestað þar til í apríl á næsta ári af markaðsástæðum. Myndin, sem heitir Shine a Light, átti upphaflega að koma út í september og hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. 15.8.2007 06:00
Fjölnir og Unnur saman á HM „Þetta var voðalega gaman, myndin er nú tekin í einhverjum fíflagangi þegar B-úrslitin voru að klárast,“ segir Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fyrrverandi alheimsfegurðardrottning og hestamanneskja með meiru. 15.8.2007 05:45
Krafturinn á Klais í kvöld Þeir sem til þekkja segja að Klais-orgelið í Hallgrímskirkju sé Rolls í heimi kirkjuorgela. Svo mikið er víst að Kirkjulistahátíð lofar flugeldasýningu í kirkjuskipinu á Skólavörðuholti í kvöld þegar breski orgelleikarinn Christopher Herrick flytur glæsileg verk á gripinn. 15.8.2007 05:45
Nordisk Panorama nálgast Norræna heimildar- og stuttmyndahátíðin, Nordisk Panorama, fer fram í Oulo í Finnlandi í síðustu viku september. Hátíðin fer sem kunnugt er milli nokkurra borga á Norðurlöndunum, var haldin í Árósum í fyrra og þar áður í Bergen. 15.8.2007 05:15
Herðubreið á bók Í síðustu viku var haldinn blaðamannafundur í Vatnasafninu í Stykkishólmi og kynnt ný bók eftir Roni Horn sem geymir ljósmyndir hennar af íslenskum heimilum. 15.8.2007 04:15
Verk Kristjáns í Gallerí Fold á menningarnótt Gallerí Fold opnar sali sína upp á gátt á menningarnótt: þrjár ólíkar sýningar verða á Rauðarárstígnum og að vanda verður dagskrá allan daginn og hið vinsæla happadrætti en vinningar þetta árið eru verk eftir tvo þeirra sem sýna: Kristján Davíðsson og Harald Bilson. 15.8.2007 04:00
Kolefnisjafnaðir rokkarar Hljómsveitin Jan Mayen hefur gefið út sína aðra breiðskífu sem nefnist So Much Better Than Your Normal Life. Freyr Bjarnason átti umhverfisvænt símaspjall við gítarleikarann Ágúst Bogason. 15.8.2007 04:00
Sjálfsvígsbrúin Golden Gate Golden Gate brúin við San Fransisco er sá staður í Bandaríkjunum sem flestir fyrirfara sér. Í annarri hverri viku að meðaltali stekkur einhver fram af. Heimildarmyndin The Bridge, sem verður sýnd á Bíódögum Græna ljóssins sem hefjast í dag, fjallar um sjálfsvígin á brúnni. 15.8.2007 04:00
Sá heitasti í Bretlandi Leikarinn Orlando Bloom hefur verið kjörinn heitasti piparsveinn Bretlands í könnun á vegum tímaritsins Cosmopolitan. Alls tóku eitt þúsund breskar konur þátt í könnuninni. 15.8.2007 03:15
Syngur 30 Presley-lög Tvennir minningartónleikar um Elvis Presley verða haldnir í Salnum í Kópavogi á morgun en þá verða þrjátíu ár liðin síðan hann lést. 15.8.2007 02:00
Aniston í leikstjórastól Stuttmynd í leikstjórn leikkonunnar Jennifer Aniston verður frumsýnd á alþjóðlegri stuttmyndahátíð í Kaliforníu sem hefst 23. ágúst. Myndin, sem hún leikstýrði ásamt Andrea Buchanan, heitir Room 10. Fjallar hún ástarsamband hjúkrunarkonu sem leikin er af Robin Wright Penn og manns sem Kris Kristofferson leikur. 15.8.2007 01:30
Yfirmaður óskast Mannaskipti verða hjá Nordisk Filmkontakt um næstu áramót þegar ráða á nýjan framkvæmdastjóra samtakanna. Karolina Lidin sem hefur gegnt starfinu um árabil hættir og rennur umsóknarfrestur fyrir starfið út 17. ágúst. Karolina er mjög virt í heimi kynningar, dreifingar og fjármögnunar á heimildar- og stuttmyndum og hefur staðið sig afar vel í starfi. 15.8.2007 01:30
Magnús Scheving leggur búningi Íþróttaálfsins „Nei, ég er kannski ekki hættur en ég á eftir að gera minna af því að fara í einkennisbúning Íþróttaálfsins,“ segir Magnús Scheving, forstjóri Latabæjar. Orðrómur hefur verið á kreiki um að Magnús væri að hætta að leika Íþróttaálfinn, eða Sportacus eins og hann heitir á ensku. 15.8.2007 00:45
Harma ritskoðun Fjarskiptafyrirtækið AT&T harmar að hafa ritskoðað texta bandarísku rokksveitarinnar Pearl Jam þar sem skotið var föstum skotum að forseta Bandaríkjanna, George W. Bush. 15.8.2007 00:30
Birgitta lét drauminn rætast Fullt var út úr dyrum í Súðavíkurkirkju á laugardaginn þegar leikkonan Birgitta Birgisdóttir og Örvar Smárason, liðsmaður hljómsveitarinnar Múm, gengu í heilagt hjónaband. Yfir 120 manns voru samankomnir í hinni litlu Súðavíkurkirkju og fylgdust með Séra Valdimari Hreiðarssyni gefa skötuhjúin saman. 15.8.2007 00:15
Franskt rokk í kvöld Franska rokksveitin Daitro heldur tvenna tónleika hérlendis í kvöld og annað kvöld. Daitro kemur frá borginni Lyon og hefur starfað saman í tæp sex ár. Hljómsveitin er oft nefnd konungur screamo-senunnar og á stóran aðdáendahóp þótt hún sé grasrótarhljómsveit. Spilar sveitin hráa, harða, en tilfinningaríka tónlist. 15.8.2007 06:00
Allt í flækju í máli Phil Spector Enn eykst óvissan í réttarhöldunum yfir tónlistarframleiðandinn Phil Spector, en honum er gefið að sök að hafa myrt leikkonuna Lönu Clarkson. Phil hefur frá upphafi haldið fram sakleysi sínu. Móðir leikkonunnar látnu bar vitni í málinu á dögunum. 14.8.2007 20:52
Pavarotti laus af sjúkrahúsi Stórtenórinn Luciano Pavarotti hefur fengið leyfi lækna til að yfirgefa sjúkrahúsið á Norður-Ítalíu sem hann var lagður inná með háan hita og lungnabólgu á dögunum. 14.8.2007 17:05
Rifrildi innan fjölskyldunnar opnaði augu Amy Jazzdívan Amy Winehouse og eiginmaður hennar Blake Fielder-Civil hafa loks gefið eftir og ákveðið að fara í meðferð. Söngkonan varð miður sín í kjölfar heiftarlegs rifrildis sem upp kom á milli föðurs hennar og tengdaföðurs vegna neyslu þeirra hjóna. 14.8.2007 16:59
Van Halen sameinuð á ný Fornfræga rokksveitin Van Halen hefur endurheimt upprunalega söngvara sinn, David Lee Roth, og er á leið í tónleikaferð. Lee Roth hefur ekki sungið með bandinu í 22 ár. Tónleikaferð sveitarinnar um Norður-Ameríku hefst í september, en hún hefur dregist örlítið vegna áfengis-, og vímuefnameðferðar gítarleikarans, sjálfs Eddie Van Halen. 14.8.2007 16:44
Afmælistónleikar Kaupþings kosta yfir þrjátíu milljónir Afmælistónleikar Kaupþings verða haldnir á Laugardalsvelli á föstudagskvöldið næstkomandi og er engu til sparað við að gera þá sem glæsilegasta úr garði. Heimildir Vísis herma að herlegheitin kosti yfir þrjátíu milljónir en Benedikt Sigurðsson upplýsingafulltrúi Kaupþings vill ekkert gefa upp um kostnaðinn. 14.8.2007 15:38
David Schwimmer vantar konu Friendsleikarinn David Schwimmer hefur ákveðið að taka sér frí frá störfum. Oft er það önnur leið leikara til að segja að þeir hafi ekkert að gera en Schwimmer segir aðra ástæðu liggja að baki. Hann hefur ákveðið að taka sér sex mánaða leyfi til að verða sér úti um eiginkonu. 14.8.2007 14:39
Jennifer Aniston leikstýrir Aðdáendur leikkonunnar Jennifer Aniston geta brátt séð afraksturinn af frumraun hennar í kvikmyndaleikstjórn en hún hefur leikstýrt rómantískri stuttmynd sem heitir Room 10. Myndin verður sýnd á stuttmyndahátíðinni Palm Springs Festival ,ásamt 350 öðrum myndum, en hún verður haldin í Californiu í lok þessa mánaðar. 14.8.2007 13:44
Þorstreinn J. með nýjan menningarþátt Nýr menningarþáttur hefur göngu sína í Ríkissjónvarpinu með haustinu og mun hann eingöngu fjalla um leikhús og kvikmyndir. Þorsteinn J. Vilhjálmsson mun stýra þættinum en honum til halds og trausts verða Andrea Róbertsdóttir, Elsa María Jakobsdóttir og Ásgrímur Sverrisson. 14.8.2007 13:23
Heimildarmynd Sigur Rósar frumsýnd 27. september Heimildamynd um tónleikaferð Sigur Rósar um Ísland í fyrra verður frumsýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík fimmtudaginn 27. september. Tónleikaferðalagið sveitarinnar var allt kvikmyndað og fá aðdáendur nú að njóta afraksturins í mynd um ferðalagið sem hlotið hefur nafnið Sigur Rós - Heima. 14.8.2007 12:42
Morðsaga Simpsons verður gefin út Hin umdeilda bók O.J. Simpsons "Ef ég hefði gert það" sem heitir á frummálinu "If I Did It" mun verða gefin út. Þessu greinir umboðsmaður fjölskyldu hinnar myrtu eiginkonu Simpsons frá í dag en hann hefur samið um útgáfu bókarinnar. 14.8.2007 12:12
Bubbi og Hrafnhildur selja á Nesinu Bubbi Morthens og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir eru búin að setja íbúð sína að Skerjabraut á Seltjarnarnesi á sölu. Íbúðin er ekki nema rúmlega 70 fermetrar og má því ætla að nokkuð þröngt hafi verið í búi. Hún er þó öll nýuppgerð og smekklega innréttuð. 14.8.2007 09:40
Hrædd við hrukkur Stjörnuparið David og Victoria Beckham hafa nú sagt slæmri húð stríð á hendur og eru í strangri húðmeðferð. Ætlunin er að vernda húð þeirra frá sterkri sólu Los Angeles. 14.8.2007 06:00
Gael García Bernal í sýningu Gísla Stórstjarnan Gael García Bernal er á meðal þeirra erlendu leikara sem leika í sviðsuppsetningu Gísla Arnar Garðarssonar á kvikmynd Lukas Moodysson, Tillsammans. 14.8.2007 05:45
Bergmansþing í kvöld Rannsóknahópurinn Deus ex cinema stendur fyrir málþingi í kvöld sem ber yfirskriftina Guð á hvíta tjaldinu um trúarleg minni í verkum sænska leikstjórans Ingmars Bergman sem lést í júlí og fleiri stórskálda kvikmyndanna. 14.8.2007 05:00
Topshop sakað um þrælahald Harðar ásakanir á hendur Topshop eru settar fram í breska blaðinu The Sunday Times. Tískuföt fyrirtækisins eru sögð framleidd í þrælakistum. Philip Green, eigandi Topshop, segist taka ásakanirnar alvarlega. 14.8.2007 04:45
Latabæjarsýning fyrir hlaup Gunnar Helgason leikstýrir stuttu Latabæjarleikriti sem sett verður upp fyrir Latabæjarhlaupið en það verður haldið á menningarnótt. 14.8.2007 04:15
Umbreytt Britney í nýrri auglýsingu Söngkonan Britney Spears þykir líta frábærlega út í nýrri auglýsingu fyrir ilmvatn sitt, Believe. 14.8.2007 03:45