Fleiri fréttir

Wii-tölvan uppseld

Nýjasta leikjatölvan frá Nintendo, Wii, rauk hraðar út en heitar lummur þegar fyrsta sendingin kom til landsins á fimmtudag í síðustu viku. Fjöldi manns hafði lagt inn pöntun fyrir tölvunni en þar sem færri leikjatölvur bárust til landsins en vonir stóðu til varð að draga úr hatti hverjir fengju eintak.

Tónleikar fyrir krabbabeinssjúk börn

Það er orðinn árviss viðburður að framvarðasveit íslenskrar popptónlistar komi saman við áramót í Háskólabíói við Hagatorg og stilli saman strengi til styrktar SKB. Árið í ár er engin undantekning og hefur dagskráin sjaldan eða aldrei verið eins glæsileg

Árviss viðburður hér eftir

Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur í dag. Dagurinn hefur verið haldinn nokkrum sinnum á undanförnum árum en nú stendur til að festa einn dag á ári í sessi. Til þess að ræða framtíð þessa dags og efla samstöðuna í kringum hann verður haldinn hádegisverðarfundur á Hótel Borg í dag.

Clint og Drottningin verðlaunuð

Kvikmyndin Letters From Iwo Jima eftir Clint Eastwood var valin kvikmynd ársins af Samtökum gagnrýnenda í Los Angeles, en þeirra árlega verðlaunaafhending fór fram um helgina.

Eberg með lag í The O.C.

Lag með íslenska tónlistarmanninum Eberg var spilað í sjónvarpsþættinum vinsæla The O.C. í Bandaríkjunum síðastliðinn fimmtudag. Fetar hann þar með í fótspor Emilíönu Torrini sem hefur átt fjögur lög í þættinum Grey"s Anatomy.

Fiskur og franskar í Tryggvagötu

Fyrrverandi fjölmiðlakonan Erna Kaaber opnaði nýja veitingastaðinn sinn, Icelandic Fish'n Chips, með formlegum hætti fyrir helgina.

Furðuleg ástríða fyrir enska boltanum

Leikstjórinn Róbert Douglas er nú að vinna að því að gera heimildarmynd um hina merkilegu ástríðu íslenskra knattspyrnuáhugamanna á enska boltanum sem mörgum þykir alveg séríslenskt fyrirbæri.

Hátíðleikinn í Langholtskirkju í kvöld

Söngsveitin Fílharmónía heldur síðari aðventutónleika sína í Langholtskirkju í kvöld kl. 20. Á efnisskránni eru tónverk tileinkuð Maríu mey ásamt jólalögum frá ýmsum löndum, meðal annars frá öllum Norðurlöndunum. Einnig verður frumflutt nýtt verk eftir stjórnanda kórsins, Magnús Ragnarsson.

Heim frá Japan

Benni Hemm Hemm heldur útgáfutónleika í Tjarnarbíói föstudagskvöldið 15. desember. Fagnar hljómsveitin þá útgáfu annarrar plötu sinnar, Kajak, sem hefur fengið góðar viðtökur. Var hún nýverið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem besta poppplatan.

Tölum ekki niður til barnanna

„Latibær slær nýtt met í hverri viku," segir Máni Svavarsson, lagahöfundur sjónvarpsþáttanna um Íþróttaálfinn og vini hans. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hafnaði smáskífan Bing Bang í fjórða sæti breska smáskífulistans en engum íslenskum tónlistarmanni hefur tekist að koma hugarsmíð sinni svona hátt í fyrstu vikunni.

Var dónaleg við tengdó

Eins og kunnugt er fékk kryddpían Mel B á dögunum sömu meðferð og Minnie Driver mátti sæta hér um árið, þegar henni var sagt upp í beinni útsendingu eða því sem næst.

Sjáumst aftur

Kór Glerárkirkju hefur sent frá sér geisladiskinn Sjáumst aftur en á honum flytur kórinn lög úr ýmsum áttum.

Margt um manninn hjá Hemma

Hemmi Gunn hélt upp á sextugsafmæli sitt með veglegri veislu á Broadway á sunnudag. Þar var samankominn stór hópur velunnara, enda hefur Hemmi sett mark sitt á ófáan manninn í gegnum árin.

Mont og efasemdir

Rottweilerhundur er fyrsta sólóplata Ágústs Bents, en hann á að baki tvær plötur sem meðlimur í XXX Rottweilerhundum og plötuna Góða ferð sem hann gerði með 7berg.

Rithöfundar með jólahroll

Það verður jólahrollur í Þjóðmenningarhúsinu fram að jólum en þar verður boðið upp á samnefnda upplestrardagskrá. Tólf rithöfundar eða staðgenglar þeirra munu kveðja sér hljóðs þar líkt og jólasveinarnir sem tínast nú til byggða einn af öðrum, og lesa úr nýjum spennusögum.

Söfnun á Akureyri

Umfangsmikil söfnun til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar stendur yfir til laugardagsins 16. desember á vegum Voice 987 og Hljóðkerfi.com á Akureyri.

Þýðingarnar reifaðar

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttir gengst fyrir stuttri fyrirlestraröð um þýðingar nú fyrir jólin. Í dag halda þýðendurnir Guðni Kolbeinsson og Guðlaugur Bergmundsson erindi í Lögbergi, stofu 101.

Upplestur í boði Bjarts

Klukkan tvö á sunnudaginn 10. desember, verður lesið upp úr nýjum Bjartsbókum í bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18.

Kóngur fékk humaruppskrift

Feðgarnir Eyjólfur Elíasson og Elías Einarsson hafa nýlega sent frá sér Matreiðslubók íslenska lýðveldisins, sem samanstendur af matseðlum sem þeir hafa borið á borð fyrir fyrirmenni landsins og tigna gesti þeirra.

Engin Playstation 4

Eftir allt braskið við gerð Playstation 3 efast forsvarsmenn Sony um að fjórða tölvan verði gerð. Ljóst er að Playstation 3 og Nintendo Wii verða helstu leikjatölvur ársins og næstu ára og hafa greiningardeildir spáð báðum fyrirtækjum ýmist himinháum gróða eða bullandi tapi.

Nýtt ilmvatn undir nafni Gwen Stefani

Gwen Stefani er nýjasta stjarnan til þess að gera samning við ilmvatnsframleiðandann Coty sem framleiðir ilmvötn fyrir Jennifer Lopez og Söru Jessicu Parker. Það er ekki enn vitað hvaða ilm vökvinn mun leysa úr læðingi en hugsanlegt að rósrauðar varir hennar komi þar við sögu.

Jólin með Bach

Aðventu- og jólasálmar og sálmaforleikir eftir Johann Sebastian Bach úr Litlu orgelbókinni hljóma á tónleikum Björns Steinars Sólbergssonar og kammerkórsins Schola cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar í Hallgrímskirkju sunnudaginn 10. desember kl. 17.

Tveir nýir Manager-leikir

Nýir Football Manager-leikir eru komnir út fyrir Xbox 360 og á Playstation Portable. Leikurinn á PSP nefnist Football Manager Handheld en í honum er að finna fjöldann allan af nýjum möguleikum sem gera leikmönnum auðveldara að stýra leiknum.

Lay Low er tilnefnd til fernra verðlauna

Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Lay Low, fær fjórar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna þetta árið. Annar nýliði, Pétur Ben, fær þrjár tilnefningar. Bubbi, Björgvin Halldórsson og Baggalútur eru auk þess áberandi.

Kristjáns Eldjárns minnst

Í dag eru 90 ár liðin frá fæðingu dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrverandi þjóðminjavarðar og forseta Íslands. Í tilefni af því er efnt til hátíðadagskrár í Þjóðminjasafni Íslands sem hefst á hádegi í fyrirlestrarsal safnsins.

Nintendo með forskot á PS3

Japanski leikjatölvuframleiðandinn Nintendo seldi rúmlega 600.000 eintök af nýjustu tölvu fyrirtækisins, Nintendo Wii, rúmri viku eftir að tölvan kom á markað í Bandaríkjunum 19. nóvember síðastliðinn.

Jólaskógurinn verður opinn næstu helgar

Skógræktarfélag Reykjavíkur býður öllum að koma í Heiðmörk og sækja sér jólatré. Skógurinn er allur opinn en þar vex stafafura sem er barrheldið og fallegt tré sem ilmar vel. Fólk velur sér sitt eigið tré sem passar í stofuna og er sama verð á trjánum óháð stærð.

Hátíðardagskrá og opið hús á afmæli Kristjáns Eldjárns

Miðvikudaginn 6. desember næstkomandi verða 90 ár liðin frá fæðingu dr. Kristjáns Eldjárns fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands. Í tilefni af því er efnt til hátíðardagskrár í Þjóðminjasafni Íslands sem hefst klukkan 12 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins.

Sálmar jólanna

Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju heldur áfram fimmtudaginn 7. desember kl. 20 þegar Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson flytja spuna um þekkt jólalög og Jólasálmar á saxófón og orgel.

Bent sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu

Út er kominn nýr diskur frá Bent og ber hann heitið Rottweilerhundur. Um er að ræða fjórðu plötu rapparans Ágústs Bents en Rottweilerhundur er hans fyrsta sólóplata. Áður hefur hann gefið út tvær plötur með xxx Rottweilerhundum og svo Góða ferð með Bent & 7berg.

Mig langar að læra

12 Tónar hafa gefið út geisladiskinn Barnalög, Mig langar að læra, en hann er ætlaður fyrir yngstu börnin heimilinu.

Silver í Salnum

Þann 16. desember næstkomandi verður hátíðarstemming í Salnum í Kópavogi en þá ætla þau Védís Hervör og Seth Sharp í Silver að troða upp.

Tvennir jólatónleikar í Norræna húsinu

Á aðventunni verða tvennir jólatónleikar í Norræna Húsinu VOX BOREALIS – “Raddir norðan vindsins” halda tónleika í anddyrinu á fimmtudaginn 7. desember. Á Sunnudaginn 17. desember í sal Norræna hússins verða jólatónleikar 15:15 hópsins “Það besta við jólin”.

Barnabókadagar á Amtsbókasafninu

Í tilefni af sérstökum barnabókadögum á Amtsbókasafninu á Akureyri munu eftirfarandi höfundar koma á bókasafnið og lesa upp úr bókum sínum.

Það vantar spýtur

12 Tónar hafa gefið út geisladiskinn Það vantar spýtur, safn bestu barnalaga Ólafs Hauks Símonarsonar. Á disknum er að finna 14 lög af plötunum Eniga meniga, Hattur og Fattur komnir á kreik og Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir.

U2 í Japan

Írska hljómsveitin U2 hélt sína fyrstu tónleika í Japan í átta ár á dögunum. Spilaði sveitin fyrir framan tuttugu þúsund aðdáendur í Satiama Super Arena-höllinni skammt frá Tókýó.

Trúlofaðist Tony Parker

Eva Longoria, sem leikur í þáttunum Desperate Housewifes, hefur trúlofast franska körfuboltakappanum Tony Parker.

Tónlistin lifir Kastró af

Tómas R. Einarsson hafði dreymt um að koma til Kúbu frá því hann var í menntaskóla og las málgagn byltingarmanna frá eyjunni spjaldanna á milli. Fyrir sex árum lét Tómas drauminn rætast og hefur varla vaknað af þeim væra blundi. Hann er nýkominn frá Kúbu.

Syngur poppdúetta

Tenórinn Jóhann Friðgeir hefur sent frá sér á vegum Frost dúettaplötuna Jóhann Friðgeir og vinir þar sem hann syngur m.a. með Stefáni Hilmarssyni, Björgvini Halldórssyni, KK og Diddú.

Sviðin jörð á Grandrokki

Útgáfutónleikar vegna plötunnar „Lög til að skjóta sig við“ með Sviðinni jörð verða haldnir á Grandrokki á þriðjudagskvöld.

Spila í Texas

Hljómsveitinni Mammút hefur verið boðið að koma fram á hinni virtu tónlistarhátíð South By South West í Austin, Texas í Bandaríkjunum sem fer fram í mars 2007.

Setið um stjörnurnar

Fólk sem situr um fræga einstaklinga er því miður frekar algengt fyrirbæri. Er þetta fólk jafnan haldið þeim ranghugmyndum að það tengist fólkinu á einhvern hátt og getur sú þráhyggja endað í alls kyns vitleysu.

Reykjavík! gerist víðförul

Hljómsveitinni Reykjavík! hefur verið boðið að spila á þremur stórum hátíðum í byrjun næsta árs. Fyrst er það Eurosonic í Hollandi, því næst By:Larm í Noregi, og síðast en ekki síst hin veglega South by Southwest-hátíð í Texas í mars.

Sjá næstu 50 fréttir