Leikjavísir

Engin Playstation 4

Playstation 3 er líklega síðasta Playstation-tölvan.
Playstation 3 er líklega síðasta Playstation-tölvan.
Eftir allt braskið við gerð Playstation 3 efast forsvarsmenn Sony um að fjórða tölvan verði gerð. Ljóst er að Playstation 3 og Nintendo Wii verða helstu leikjatölvur ársins og næstu ára og hafa greiningardeildir spáð báðum fyrirtækjum ýmist himinháum gróða eða bullandi tapi. Þær fregnir heyrast nú úr herbúðum Sony að fyrirtækið ætli að feta í fótspor Sega, hætta að gefa út tölvur og einungis gefa út tölvuleiki, en þar ku mesti gróðinn vera. Spekúlantar í tölvuleikjaiðnaðnum eru þessari þróun andvígir og segja Sony- menn of fljóta á sér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×