Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jólahús SVFR föstudaginn 2. des Fyrsta "Opna hús" vetrarins verður haldið föstudaginn 2. desember í sal SVFR að Háaleitisbraut 68. Húsið opnar klukkan 20.00. Það fjölbreytt dagskrá hjá SVFR á aðventunni. Líkt og undanfarna áratugi mun séra Pálmi Matthíasson mæta með sína árlegu jólahugvekju. 30.11.2011 16:20
Veiðikortið 2012 er komið í sölu hjá SVFR Veiðikortið 2012 er nú fáanlegt á skrifstofu SVFR. Veiðikortið mun standa félagsmönnum í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur til boða á aðeins 4.000 krónur. Aðeins verður selt eitt kort á hverja kennitölu. Þeir félagsmenn sem hafa hug á að nota kortið til að gleðja vini og vandamenn geta hins vegar keypt fleiri umframkort á 4.800.- krónur. Almennt verð fyrir Veiðikortið er 6.000 krónur og hækkar ekki á milli ára. 29.11.2011 13:04
Veiðum sjálfhætt á silungasvæði Andakílsár Ákveðið hefur verið að hætta sölu veiðileyfa á silungasvæðið í Andakílsá og vorveiði í Hítará á Mýrum. Veiðin hefur ekki staðið undir væntingum. 29.11.2011 13:01
Fæðisskylda afnumin eftir 15. júlí í Laxá Stjórn SVFR hefur ákveðið að eftir 15. júlí næsta sumar verði ekki gistiskylda á urriðasvæðunum norðan heiða. Því velja menn um hvort gist er eður ei. 29.11.2011 09:22
Upptaka af erindi um lax og virkjanir Fjöldi manns sótti fyrirlestur dr. Margaret J. Filardo, forstöðumanns Fish Passage Center í Oregon-fylki í Bandaríkjunum, um lífsskilyrði laxastofna í virkjuðum ám. Fyrirlesturinn fór fram í Háskólabíói 3.11.2011. 28.11.2011 11:58
Efri svæðin í Elliðánum voru léleg á liðnu sumri Það er alltaf skemmtilegt að glugga í ársskýrslu SVFR. Margt fréttnæmt og forvitnilegt þar að finna, t.d. í skýrslum árnefnda, en þar má stundum sjá athyglisverða þróun mála í einstökum ár og vötnum. 28.11.2011 10:50
Ný stjórn SVFR Á aðalfundi SVFR sem er nýlokið var kosið til stjórnar félagsins. Sitjandi stjórnarmenn héldu sæti sínu auk þess sem að Hörður Birgir Hafsteinsson hlaut kosningu. 28.11.2011 09:55
VSK á veiðileyfi? Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor skrifaði grein í fréttablaðið sl. föstudag sem vakið hefur mikla athygli. Víkur hann að skattlagningu á lax- og silungsveiðileyfi. 28.11.2011 09:51
Síðasta rjúpnahelgin framundan Nú er síðasta rjúpnahelgin framundan og einhverjir veiðimenn sem eiga ennþá eftir að ná sér í jólamatinn, en flestir af þeim sem við höfum heyrt í eru komnir með sitt. 24.11.2011 13:19
Fiskvegur um Steinbogann í Jöklu Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir lagningu fiskvegar framhjá steinboganum í Jökulsá á Dal. Svæðið er á náttúruminjaskrá. Forseti bæjarstjórnar greiddi einn atkvæði gegn leyfinu. Hann vill frekari rannsóknir á að fiskvegurinn skili tilætluðum árangri til að réttlætanlegt sé að framkvæma við náttúruundrið. 23.11.2011 09:23
Utanfundar kosning SVFR hafin Kosning utan kjörfundar til stjórnar SVFR hefst í dag. Kosið verður daglega fram til föstudags frá klukkan 11.00-15.00 á skrifstofu félagsins. 23.11.2011 09:22
Norðmenn fyrirmynd í laxeldi? Merkilegur fréttaflutningur átti sér stað í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkveldi. Þar var fjallað um laxeldi hérlendis en því miður með mjög einhliða hætti. 18.11.2011 13:17
Kynning á frambjóðendum SVFR Fyrir þá sem vilja kynna sér frambjóðendur til stjórnar SVFR þá eru upplýsingar um frambjóðendur að birtast þessa dagana á vefnum hjá Stangó. 17.11.2011 16:16
Aðeins um 100 laxar úr Hvannadalsá í sumar Hvannadalsá var töluvert undir væntingum í sumar, eins og svo margar aðrar ár, þó var gott hlutfall stórlaxa í ánni. Samkvæmt okkar bókum komu rétt rúmlega 100 laxar úr ánni í sumar sem er töluvert fall frá 465 löxum í fyrra. Hluti af skýringunni er eflaust sá að í sumar var einungis leyð fluguveiði í fyrsta skipti og reynslan sýnir okkur að fyrsta ár í fluguveiði skilar alltaf lægri heildartölu en vanalega. 17.11.2011 10:13
Rivers of Iceland í Íslenskri þýðingu Bók Róberts Neil Stewart um íslenskar laxveiðiár (Rivers of Iceland) frá árinu 1950 hefur nú verið endurútgefin í þýðingu Einars Fals Ingólfssonar. 17.11.2011 10:08
Bókin Stórlaxar komin út Gunnar Bender og Þór Jónsson voru nýlega að gefa út bókina Stórlaxar. Þar er að finna viðtöl við þekkta veiðimenn sem og frásagnir þeirra af skemmtilegum veiðitúrum. 16.11.2011 09:22
Rjúpnahelgi framundan Nú styttist í þriðju helgina í rjúpu og veðurspáin er víst alveg með ágætum víðast hvar um landið alla helgina. Reikna má með mikilli umferðveiðimanna víðast hvar og eru menn hvattir til að sýna tillitsemi og hófsemi við veiðarnar. 15.11.2011 13:52
SVFR framlengir í dölunum Um helgina voru framlengdir leigusamningar SVFR við Laxá í Dölum og Fáskrúð. Að sögn Bjarna Júlíussonar formanns SVFR er mikil ánægja meðal stjórnar félagsins með þessa nýju samninga. 15.11.2011 13:36
Miðsvæðin í Blöndu Svæði 2 og 3 í Blöndu voru nokkuð góð í sumar, alls komu um 400 laxar á land. Að vísu eru allnokkrar stangir á svæðunum eða 9 stangir í allt – en fátítt var að það væru allar bókaðar. Einnig verður að líta til þess að veiðin á sér nánast öll stað fyrir mánaðarmót júlí og ágúst, dagveiðin er því nokkuð góð á því tímabili, sérstaklega eftir 10 júlí. 14.11.2011 09:22
Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Fimmta framboðið til stjórnar SVFR hefur borist skrifstofu og er frá Eiríki St. Eiríkssyni félagsmanni númer 605. Því er nokkuð ljóst að fimm frambjóðendur eru í þrjú stjórnarsæti á aðalfundi félagsins þann 26. nóvember næstkomandi, því harla ólíklegt er að framboð berist í bréfpósti. 14.11.2011 09:17
Leitin að stórlaxinum - Bók og DVD Út er kominn pakki um stórlaxaveiðar á Íslandi sem inniheldur bæði bók og kvikmynd! Betra verður það einfaldlega ekki! Þessi magnaði veiðipakki er eftir bræðurnar Gunnar og Ásmund Helgasyni og ber heitið Leitin að stórlaxinum. Nú þegar er hafin forsala á www.veidiflugur.is en pakkinn fer í almenna dreifingu 21. nóvember næstkomandi. 11.11.2011 11:53
Mikil aukning í sleppingum fyrir norðan Frá því að SVFR kom að leigutöku á urriðasvæðunum í Laxá í Laxárdal og Mývatnssveit hefur hlutfall slepptra silunga margfaldast, en 58% af urriðanum í sumar var sleppt. 11.11.2011 11:09
Veiðin í Reykjadalsá 2011 Veiðin í Reykjadalsá í Borgarfirði þetta árið einnkenndist af miklum vatnsskorti þar sem lítið sem ekkert rigndi í Borgarfirðinum allan veiðitímann. Laxinn var mættur í ána um mánaðamótin júní/júlí og var þó nokkuð af fiski í ánni þótt vatnsskorturinn hefði þau áhrif að fiskurinn tók frekar illa og faldi sig víða undir bökkum og slýi. Undantekningin frá þessu ástandi voru miklar rigningar í lokunarhollinu með tilheyrandi vatnavöxtum. Þótt lítið sem ekkert væri hægt að veiða frá Rauðsgili, sem er veiðstaður nr. 22, og niður úr sökum aurburðar þá náðust á land 23 laxar. Fullt var af fiski á þeim stöðum þar sem hægt var að kasta. 10.11.2011 09:07
Lokatölur úr ánum og vangaveltur Eins og fram hefur komið þá var laxasumarið 2011 það sjötta besta frá upphafi skráninga skv bráðabirgðatölum frá VMSt. VoV hefur tekið saman allar þær lokatölur sem komist hefur verið yfir. Ekki tæmandi listi, en hér kennir margra grasa. 10.11.2011 09:03
Nýtt framboð til stjórnar SVFR Í gærkveldi barst skrifstofu SVFR framboð frá Herði Birgi Hafsteinssyni félaga nr. 2127 til stjórnar á aðalfundi félagsins þann 26. nóvember. 10.11.2011 09:00
Breytingar framundan í Hítará á Mýrum Uppi eru hugmyndur um að breyta svæðaskiptingum við Hítará á Mýrum. Ef þær ganga eftir nær aðalsvæði árinnar upp að Hítarvatni. 9.11.2011 11:45
Engin rjúpnaveiði næstu helgi Eins og flestir veiðimenn eiga að vita þá er rjúpnaveiði bönnuð næstu helgi samkvæmt úrskurði Umhverfisráðherra en veiðin heldur áfram næstu tvær helgar þar á eftir áður en tímabilinu þetta árið lýkur. 8.11.2011 10:08
Víðidalsá - Uppgjör 2011 Veiði lauk í Víðidalsá þann 24 september og var lokatala úr ánni 747 laxar á land. Oft hafa sést hærri tölur úr þessari rómuðu stóralaxaá en hlutfall stórlaxa var sem fyrr afar hátt. 8.11.2011 09:59
Fimmta tölublað Veiðislóðar komið út Fimmta tölublað vef-tímaritsins Veiðislóð er komið út. Eitt blað eftir af tilraun þeirra félaga á www.votnogveidi.is og verður fróðlegt að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér með framhald á þessu tímariti. 8.11.2011 09:57
Sagan endurtekur sig Árið 1999 skrifaði Hilmar Hansson þáverandi formaður Landssambands Stangaveiðifélaga grein í Morgunblaðið um glórulaust laxeldi hérlendis. Greinina mætti nú birta aftur - og það óbreytta. Hana má í það minnsta lesa hér að neðan, og gæti hún allt eins verið rituð nú í morgun: 8.11.2011 09:52
Ágætis rjúpnaveiði en skilyrðin erfið Það voru vægast sagt erfiðar aðstæður til rjúpnaveiða í Breiðdal og á Jöklusvæðinu sl. helgi er veiðar hófust. Engin snjór og nánast sumarhiti niður í dölunum á föstudag og lítið um rjúpu á hefbundnum svæðum. En það var eins gott að nýja svæðið upp á Jökuldalsheiði var með því þar var nægur snjór og rjúpa líka! 7.11.2011 13:04
Sitjandi stjórnarmenn hafa allir gefið kost á sér Skrifstofa félagsins hefur í dag móttekið framboð Árna Friðleifssonar, Bernhards A. Petersen og Hilmars Jónssonar til stjórnar SVFR. Ljóst er því að þeir munu óska eftir áframhaldandi umboði til starfa fyrir félagið næstu tvö árin. 7.11.2011 09:35
Fyrsta fluguveiðisumarið í Eldvatnsbotnum Í sumar var í fyrsta sinn var aðeins leyfð fluguveiði í Eldvatnsbotnum í Meðallandi. Það virðist ekki hafa haft áhrif á veiðitölur á svæðinu. Eldvatnsbotnar fara ekki varhluta af bannsettri Steinsugunni, því mikill meirihluti sjóbirtingsins er bitinn og særður. Sérstaklega á þetta við um stærri birtinginn sem virðist, líkt og í Tungufljóti, einfaldlega allur vera soginn. 7.11.2011 09:29
Dýrasti dagurinn á 450.000 í Laxá í Ásum? Miðað við þau útboð sem hafa verið síðustu mánuði og vikur er ljóst að einhverjar ár muni hækka næsta sumar og sumar mikið. Nýlegt 111 milljóna tilboð í Þverá kemur þannig út að meðalverð á stöngina er um 100.000 kr, þ.e.a.s. kostnaðarverð leigutaka. Hvernig þetta skilar sér svo í verðum til veiðimanna er ekki útséð ennþá. 7.11.2011 09:19
Laxveiðisumarið 2011: Haffjarðará og Selá gáfu mest Veiðisumrinu lauk formlega á mánudaginn þegar veiði í Ytri-Rangá var hætt. Þar komu flestir laxar á land eða alls 4.961. Næst flestir laxar veiddust í Eystri-Rangá. Í Haffjarðará og Selá veiddust hins vegar flestir laxar á stöng. Veiðin í Elliðaánum var líka mjög góð. 4.11.2011 18:00
Fáskrúð var fín á liðnu sumri Veiðitölur eru loks komnar í hús úr Fáskrúð í Dölum frá því í sumar. Veiðin í ánni var með ágætum í sumar þó langur vegur sé frá metveiði fyrra árs. Sumarveiðin hljóðar upp á 247 laxar en veitt er ýmisst á tvær til þrjár dagsstangir. Í fyrra var veiðin hins vegar 523 laxar sem er einhver mesta veiði sem um getur úr Fáskrúð. 4.11.2011 10:00
Grálúsugir laxar í lok október Hvort sem það stafaði af síðbúnum göngum vegna vor- og snemmsumarskulda eða öðru, þá bar talsvert á sannkölluðum nýgengnum haustlöxum að þessu sinni. Fjórir slíkir í Miðfjarðará toppuðu þó allt. 4.11.2011 10:00
Með 47 rjúpur um opnunarhelgina Núna er það helgi númer tvö í rjúpunni og spáin heldur rysjótt nema þá helst á norður og austurlandi. Við erum ennþá að fá fréttir af veiðimönnum sem héldu til veiða síðustu helgi og nokkrir hafa gert það ágætt en aðrir fengið minna. 3.11.2011 12:55
Bjarni gefur kost á sér áfram til formennsku SVFR Skrifstofu SVFR hefur borist tilkynning frá Bjarna Júlíussyni formanni SVFR um að hann gefi áframkost á sér til formennsku í SVFR 3.11.2011 10:00
Metsumar í Stóru Laxá - 795 laxar á land Stóra Laxá í Hreppum endaði í 795 löxum í sumar og er það metveiði í Stóru. Sumarið í ár byrjaði hægt og virtist aldrei ætla í gang eins og á mörgum öðrum ám þetta sumarið en hrökk í gang í lok ágúst með mikillri veiði og gekk þannig langt fram í september. Til að myndar voru nokkur tveggja daga holl sem náðu 100 laxa veiði á svæði I&II. Í sumar var í fyrsta skipti innleitt veiða og sleppa reglur í Stóru en á svæðum1-3 má hirða 1 lax en öllu sleppt á svæði 4. 3.11.2011 09:58
Nær Hróarslækur sér á strik 2012 Engum blöðum er um það að fletta að Hróarslækur var lélegur í sumar og langt undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Sér í lagi þar sem sleppingar í fyrra voru í fullu samræmi við fyrri sleppingar samkvæmt okkar heimildum. 3.11.2011 09:55
Umhverfisvæn skot í Vesturröst Vesturröst er farin að bjóða uppá umhverfisvænni skot frá Hull. Það þekkist mjög víða í heiminum að skot með blýhöglum er bönnuð sökum mengunar sem þau kunna að valda. Hull hefur þess vegna framleitt skot skot með stálhöglum sem ryðga og eyðast í náttúrunni og púður framleitt úr sykrum sem er líka umhverfisvænna. 2.11.2011 10:17
Nú er kominn tími til að grafa lax - uppskrift Nú þegar veiðitímabilinu er lokið er um að gera að elda lax, fara með í reyk og síðast en ekki síst að grafa lax. Þetta er svo einfalt að það geta allir gert þetta og það skemmtielga er að finna sitt eigið bragð í kryddblöndunni. En til að fara öruggur af stað þá er hér uppskrift sem er ættuð frá Veislunni á Seltjarnarnesi. 2.11.2011 09:22
Óstofnað félag með hæsta boð í Þverá/Kjarrá Samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum, þá eru þrír einstaklingar, Halldór Hafsteinsson, Davíð Másson og Ingólfur Ásgeirsson með hæsta tilboð í Þverá/Kjarrá „fyrir hönd óstofnaðs félags“ eins og það er orðað. Upphæðin er 111.700.000 krónur, en áin leigist frá og með 2013 til fimm ára, eða til og með 2017. 2.11.2011 09:18
111.7 milljóna tilboð á borðinu í Þverá/Kjarrá Við fengum símtal rétt eftir hádegi frá manni sem var viðstaddur þegar tilboðin voru opnuð í Þverá/Kjarrá, en ansi lítið bar á milli tveggja tilboða. Tilboðsgjafarnir voru meðal annars Lax-Á, Davíð Másson, Arnór Diego og SVFR sem var með lægsta tilboðið. 1.11.2011 15:07