Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Veiðiflugur með kastnámskeið Veiðiflugur héldu í vor kastnámskeið með Klaus Frimor sem hittu í mark hjá viðskiptavinum okkar og nú ætlum við að auka þjónustuna ennþá meira. Hilmar Hansson eigandi veiðiflugna verður með kastkennslu alla fimmtudaga í sumar á túninu fyrir neðan Langholtsskóla fyrir okkar viðskiptavini. 21.7.2011 10:32
Nýjar tölur úr laxveiðiánum, veiðin greinilega á uppleið Nú hafa nýjar tölur verið settar inná www.angling.is og það er athyglisvert að sjá hver veiðin hefur verið í þessari viku sem leið. Norðurá er ennþá efst og er fyrst ánna til að fara yfir 1000 laxa en það styttist í að Blanda og Þverá rjúfi þann múr líka. Veiðin greinilega farin af stað í Þverá og Blanda er líka á góðri siglingu. 21.7.2011 10:16
Plankað við bakkann Allt "plank" æðið hefur ekki farið framhjá neinum sem er tengdur við rafmagn síðustu vikurnar og veiðimenn hafa greinilega ekki farið varhluta af því. Við fengum þessa mynd lánaða frá Jón Þór Júlíussyni hjá Hreggnasa þar sem hann plankar við óþekktan veiðistað. 20.7.2011 15:23
Rétt um 30 löxum landað í Svalbarðsá í morgun Gott skot hefur komið í Svalbarðsá í morgun og það má því ætla að áin sé að vakna. Það virðist sem straumurinn síðast liðinn laugardag hafi gert sitt því fréttir eru að berast víða að um auknar laxagöngur og það verður gaman að sjá munin á veiðinni milli vikna. Það verða birtar nýjar tölur á morgun og þá sést best hvaða ár eru að skila sínu hingað til. 20.7.2011 15:10
Stórlaxarnir láta á sér kræla fyrir norðan Í fyrradag 24 punda lax á Nesveiðum í Aðaldal. Talsvert er af laxi en hann er ákaflega tregur til töku og virðist köld norðanáttin hamla því að meira veiðist. 20.7.2011 14:45
Mokveiði í Mývatnssveit Þrátt fyrir norðanátt er mokveiði í Laxá í Laxárdal og í Mývatnssveit. Meðalþungi silungsins er einnig með besta móti. 20.7.2011 14:43
Flottur lax úr Svartá "Það var með eftirvæntingu sem ég fór í Svartá þar sem ég tók Maríulaxin minn á flugu fyrir hartnær 10 árum. Þessi á sem er svo falleg og krefjandi en alltaf skemmtileg og gefandi tók á móti okkur í glaða sólskyni og fallegu veðri en fáum fiskum hafði hugnast að ganga ennþá. 20.7.2011 11:15
Norðurá komin yfir 1000 laxa og góður gangur í Langá Langá á Mýrum er hrokkin í gang og hefur veiðst mjög vel þar síðustu daga. Í gærmorgun kom 31 lax á land þar og var það besti morgunn í ánni í sumar. Nítján laxar náðust á miðsvæðinu, tíu á neðsta svæðinu og tveir á fjallinu. Þar með var Langáin komin í 410 laxa það sem af er sumri. Staðarhaldarinn Ólafur Finnbogason segir fiskinn í góðu ástandi, miklar göngur og vatnið í ánni mjög gott. 19.7.2011 15:37
Ytri Rangá að detta í gang Það var fínn dagur í Ytri Rangá í gær en 30 löxum var landað. Helgin var í meðallagi en hún gaf 31 lax þar sem flestir komu á sunnudeginum, eða 23. Lax var að veiðast á nær öllum svæðum í gær en sterkustu staðirnir síðustu daga hafa verið Staurinn, Borg, Klöppin og Rángarflúðirnar. 19.7.2011 14:07
Góður dagur í Eystri Rangá Besti dagur sumarsins var í gær í Eystri Rangá enda í fyrsta sinn í sumar sem áin er veiðanlega allan daginn. Morgunvaktin gaf 18 laxa og kvöldvaktin 26, alls 44 laxar á land. 19.7.2011 14:05
Góð vika í veiðivötnum og veiðin að aukast Aðstæður í Veiðivötnum hafa lagast mikið síðustu vikuna, vötnin að hitna og flugan að minnka. Veiðin hefur tekið kipp upp á við samhliða því. Í 4. viku komu 2743 fiskar á land, sem er mjög gott miðað við sama tíma undanfarin ár. 19.7.2011 12:00
Kröfurnar miklar eftir góðærið Það eru stórlaxar að skjóta upp kollinum út um allt, nú síðast höfðum við spurnir af einum 101 cm í Hofsá, þar sem veiði hefur gengið alveg bærilega. 19.7.2011 10:14
Hvar er laxinn sem á að vera mættur í Leirvogsá Það er ótrúlegt þegar maður ber saman veiðina í nágrenni Reykjavíkur að sjá hvað vel gengur í Elliðaánum, sjá þó eitthvað af laxi í Korpu en að Leirvogsá sé ennþá ekki svipur hjá sjón miðað við "venjuleg" ár í ánni. 18.7.2011 13:50
Góð veiði á Arnarvatns- og Skagaheiði Við heyrðum í nokkrum félögum sem voru að koma úr helgarferð þar sem einn dagur var tekinn á Arnarvatnsheiði og annar á Skagaheiði. Þeir lögðu af stað eldsnemma frá Blönduós á laugardagsmorgninum og byrjuðu á Arnarvatnsheiðinni. 18.7.2011 10:27
Fréttir úr Krossá á Bitru Þau hjá Lax-á heyrðu í Jóhannesi Bárðarssyni og fjölskyldu sem var við veiðar í Krossá í Bitru fyrir helgi. Veðrið var gott og frekar lítið vatn í ánni en tveir laxar náðust á land, níu og tíu pund. 18.7.2011 10:25
Fnjóská að detta í þriggja stafa tölu Fnjóská hefur verið mjög vatnsmikil það sem af er veiðisumrinu. Talsverður lax hefur verið að ganga undanfarið og hefur að mestu safnast fyrir á svæði 1. 18.7.2011 09:19
Góð veiði í Breiðdalsá og Jökla að fara í gang Veiðin bara eykst í Breiðdalsá og í gær komu 25 laxar á land og mikið af laxi að ganga, megnið stórlax en þó eitthvað af vænum smálaxi með. 18.7.2011 09:15
11 punda, spikfeitur og silfurgljáandi urriði úr Mjósundi í Laxá í Mývatnssveit Það hefur verið kalt í veðri á urriðasvæðunum fyrir norðan nú að undanförnu. VoV talaði við Bjarna Höskuldsson umsjónarmann veiðanna þar og sagði hann hitann vera í eins stafs tölu. 18.7.2011 09:09
Hreindýraveiðar hófust í dag Veiðar á hreindýrum hófust í dag en eingöngu á tarfa. Veiðin á kúnum hefst 1. ágúst og í ár eins og í fyrra eru kálfarnir friðaðir. Frést hefur af einum felldum tarf á svæði 7 í Búlandsdal en erfitt hefur verið að finna dýrin sökum lélegra veiðiskilyrða. 15.7.2011 15:24
Góður kippur í veiðina í Ytri Rangá Ytri Rangá er í ágætis málum þessa daganna. 23 laxar komu á land í gær sem er með betri dögum sumarsins en 5 laxar komnir á land í morgun. Stefán sölustjóri hjá Laxá var við veiðar í gærkvöldi og sagði ánna líta vel út og sá nokkuð af laxi að ganga í gegnum í ánna. 15.7.2011 15:02
Veiðin í Stóru Laxá að fara í gang Það voru góðar féttir sem bárust af svæði 1-2 í Stóru lax-á í Hreppum seint í gærkveldi en veiðimaður sem þar var að landaði 3 grálúsugum smálöxum á um 20 mínútna kafla. Taldi hann sig hafa séð nokkuð af laxi straua upp eftir ánni en hann var við veiðar á neðri svæðunum. 15.7.2011 11:08
54 laxar úr síðasta holli í Víðidalsá Víðidalsá er í góðum málum þessa daganna en laxinn virðist vera að láta sjá sig af meira mæli. Síðasta holl kláraði í 54 löxum en það er talsvert meira en hollið á undan sem kláraði í 3 löxum. 14.7.2011 16:18
Mjög gott í Straumunum og Norðurá Síðasta tveggja daga holl í Straumunum fékk 37 laxa á tvær stangir. Þeir sem tóku við létu sitt ekki eftir liggja og voru komnir með sextán laxa í morgun. 14.7.2011 14:58
Mikið líf í Elliðaánum Líflegt er við Elliðaárnar þessa dagana en áin er komin í 317 laxa og tala bara hækkar á hverjum degi. Mikið líf er á flestum stöðum neðan stíflu og eitthvað af laxi farið að veiðast fyrir ofan stífluna líka. Hefðbundnir veiðistaðir uppfrá eins og Hraun og Hundasteinar skila gjarnan góðri veiði á þessum tíma en eins er töluvert að laxi í Breiðholtsstrengjunum. 14.7.2011 14:33
Veiðin á heiðunum farin að glæðast við hlýindin Af þeim veiðimönnum sem Veiðivísir hefur haft spurnir af á hálendinu eru menn sammála um að veiðin sé núna loksins að fara almennilega af stað. Um síðustu helgi fréttum við af mönnum við Baulárvatn, Hraunsfjarðarvatn og Hraunsfjarðarlón sem voru búnir að veiða ágætlega þrátt fyrir glampandi sól, en mesta veiðin var þó á morgnana og seinni partinn. 14.7.2011 13:43
Norðurá efst með 810 laxa Á vef LV www.angling.is má sjá nýjar uppfærðar veiðitölur úr ám landsins. Þar er Norðurá efst á listanum með 810 laxa sem er í alla staði prýðisgóð veiði. Blanda er í öðru sæti komin með 569 laxa og veiðin þar síðustu daga hefur verið góð og er að glæðast mikið á efri svæðunum. 14.7.2011 11:52
Fluguveiðinámskeið á Þingvöllum Veiðikortið, Veiðiheimur og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum standa að fluguveiðinámskeiði á Þingvöllum 17. júlí næstkomandi á milli kl. 9-14. Að auki er boðið upp á leiðsögn um vatnið. 14.7.2011 09:11
Blanda að ná 400 löxum Frá Blöndubökkum og Lax-Á mönnum er það að frétta að þeir heyrðu í Þórði leiðsögumanni í Blöndu núna rétt fyrir tíu í morgun. Hans veiðimenn voru búnir að landa sjö löxum á flugu á Breiðunni á svæði 1 og taldi hann aðra sem voru við veiðar í morgun með aðra eins tölu. Laxarnir voru allir í góðri stærð en þeir stærstu 91 cm, annar 88 cm og 83 cm. Greinilega líf að færast yfir Blöndu í dag. 13.7.2011 14:37
Góður gangur í Korpu Ottó Markússon og félagar voru við veiðar í Korpu í blíðunni föstudaginn 8. Júlí. Fengu þeir kvótann eða 8 laxa, fjóra á maðk og fjóra á flugu. Laxana fengu þeir í Holunni, Efri rennum, Blika, Breiðunni og Símastreng. Að sögn Ottós eru fiskar komir upp ánna og í stíflunni hafa sést fiskar. 13.7.2011 13:06
Mikið af 2 ára laxi í Eystri Rangá Nú eru rúmlega 100 laxar komnir á land úr Eystri Rangá sem er meira en hefur verið á svipuðum tíma undanfarin ár. En það sem vekur sérstaka athygli er að hlutfall 2 ára laxa er alveg með ólíkindum! Af þessum 100 löxum er 6 laxar sem má flokka sem dæmigerða 1 árs laxa. Allt hitt er stórlax. 13.7.2011 09:51
Veiðisaga úr Hólsá Af Agn.is fengum við þessa frétt: Við fengum þennan skemmtilega póst ásamt myndum frá Tomma í Veiðiportinu en hann gerði athyglisverða veiði í Hólsánni um helgina. Rétt að taka strax fram að Tommi kvartaði einnig undan umgengni þeirra sem höfðu verið í veiðihúsinu á undan honum. 13.7.2011 09:20
Ytri að bæta sig á hverjum degi Ytri Rangá er að skila sínu þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Í morgun voru tíu laxar komnir á land í sterkri austanátt en allt veiddist á efri svæðunum, en við þessar aðstæður er erfitt að veiða á neðri hluta árinnar. 13.7.2011 09:16
Langá loksins að fá stóru göngurnar? Um 250 laxar hafa veiðst í Langá það sem af er. Svo virðist sem að auknar göngur séu þessa stundina og veiðitölur hafa tekið kipp. 13.7.2011 09:13
Rólegt í Veiðivötnum Áfram var frekar rólegt í 3. viku. Aðeins komu 2042 fiskar á land. Það þarf að fara fjögur ár aftur í tímann til að sjá álíka veiði. Mest veiddist í Litlasjó, 340 fiskar. Smábleikjuvötnin Langavatn, Eskivatn, Kvíslarvatn og Nýjavatn gáfu góða veiði. Hástökkvari vikunnar var Litla Skálavatn. Þar veiddust 226 urriðar, allt að 8,5 pd þungir. 12.7.2011 15:38
Lifnar yfir Syðri Brú Við heyrðum í Búa Gíslasyni veiðimanni sem var við veiðar í Syðri Brú í morgun ásamt veiðifélaga. Þeir félagarnir voru búnir að setja í tvo laxa um 6-7 pundið og báðir grálúsugir. 12.7.2011 14:39
17 laxar úr Víðidalsá í gær Góðar fréttir bárust úr Víðidalsá í dag en veiðimenn settu í 17 laxa í gær og þar af var góður hluti af því smálax. Hitch-ið hefur verið að gefa meirihlutann af laxinum í sumar og var enginn breyting á því í gær. 12.7.2011 14:30
243 laxar komnir á land í Selá Ein af þeim ám sem er að koma öllum á óvart þessa dagana er Selá í Vopnafirði. Á góðu ári hefur áin verið að skila rétt yfir hundrað löxum fyrstu tvær vikurnar en núna eru laxarnir orðnir 243! Það er frábær veiði þegar við tökum það inní myndina að aðeins er veitt á 4 stangir á þessum tíma. 12.7.2011 13:15
103 sm stórlax af Hrauni Á föstudaginn sl. veiddist fyrsti lax sumarsins á Hrauni, 103 cm lúsugur hængur. Þetta var þykkur og fallegur lax eins og myndin sýnir en hann veiddist við Engey sem er neðst á svæðinu. Laxinn gæti því hugsanlega vegið 23 til 24 pund en honum var auðvitað sleppt. Hraun og hin svæðin neðan virkjunar voru mikil stórlaxasvæði hér í den en á því varð breyting upp úr 1980. 12.7.2011 09:59
Ánægjulegur veiðitúr í Hvannadalsá Árni Eggertsson sendi okkur línu eftir skemmtilegan veiðitúr í Hvannadalsá 7-9 júlí en þetta var í fyrsta skiptið sem þeir félagar reyndu við ánna. Aðstæður voru erfiðar fyrsta daginn þar sem mikið vatn var í ánni en það fór minnkandi næstu daga á eftir. 12.7.2011 09:55
Góð urriðaveiði fyrir norðan Það hefur verið líflegt á urriðasvæðunum eftir að sumarið gekk í garð nyrðra. Þurrfluguveiðimenn eru komnir á stjá í kjölfar hlýindanna síðustu daga. 12.7.2011 09:51
Fréttir úr Ytri Rangá Ytri Rangá skilaði 13 löxum á sunnudag og tveir í viðbót veiddust í Hólsá. Að sögn Matta veiðivarðar í ánni var einhver reitingur í morgun og misstu veiðimenn meðal annars vænan lax, líklegast um 80 cm langan, á veiðistaðnum Djúpós. 11.7.2011 16:15
Fréttabréf Landssambands Veiðifélaga er komið út Fréttabréf Landssambands Veiðifélaga er komið út. Í fréttabréfinu er meðal annars fjallað um aðalfund Landssambands veiðifélaga sem var haldinn dagana 10. - 11. júní sl. 11.7.2011 15:42
Federal skotin loksins fáanleg aftur á Íslandi Vesturröst hefurtryggt sér umboð fyrir Federal ,CCI og American Eagle skot og hafa þeir fengið nýja sendingu af þeim og ein nákvæmustu verksmiðju hlöðnu skot sem hægt er að fá í dag Federal Premium í nokkrum caliberum. 11.7.2011 15:38
Stórlaxarnir bíða þín fyrir norðan Veiðimenn sem eru á leið í Laxá í Aðaldal á næstunni ættu að líta í nýjustu Veiðifréttir SVFR en þar er að finna ítarlegt viðtal við Guðlaug Lárusson, stórveiðimann. Laxá í Aðaldal er hans heimavöllur og þar hefur hann dregið þá marga stóra í gegnum tíðina. 11.7.2011 15:19
Um 40 laxar komnir úr Korpu Korpa var komin í um 40 laxa í morgun þegar Veiðivísi bar þar að garði. Einn lax var tekinn strax um klukkan sjö í morgun í Berghyl og var það eini laxinn sem sást til á neðstu stöðunum. 11.7.2011 10:43