Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Portland valdi Oden í nýliðavali NBA Nýliðavalið í NBA körfuboltanum fór fram í gærkvöldi sem er það sterkasta í mörg ár. Portland Trail Blazers, sem höfðu fyrsta valrétt, veðjuðu á miðherjann Greg Oden sem var valinn besti varnarleikmaðurinn í háskólakörfuboltanum í vetur. Hann er sagður besti stóri maðurinn til að koma inn í NBA deildina síðan Tim Duncan árið 1997. 29.6.2007 12:36
Frábær árangur hjá skylmingamönnum Íslensku keppendurnir á Norðurlandamótinu í skylmingum hafa nú lokið keppni á mótinu og er árangurinn frábær. Íslenska liðið sigraði í dag í liðakeppni í skylmingum með höggsverði og vann alls til níu gullverðlauna á mótinu. 35 íslenskir keppendur tóku þátt í mótinu og sigruðu þeir í 8 af 11 flokkum í keppni einstaklinga. 28.6.2007 18:24
Portland ætlar að velja Greg Oden ESPN sjónvarpsstöðin greinir frá því í dag að hún hafi heimildir fyrir því að Portland Trailblazers ætli að nota fyrsta valrétt sinn í nýliðavali NBA í nótt til að velja miðherjann Greg Oden frá Ohio State háskólanum. Fastlega er reiknað með því að Seattle Supersonics muni þá taka Kevin Durant frá Texas með öðrum valrétti sínum. 28.6.2007 11:28
Garbajosa í hópi Spánverja Framherjinn Jorge Garbajosa hjá Toronto Raptors hefur verið kallaður inn í 15 manna hóp Pepu Hernandez landsliðsþjálfara Spánverja sem eru nú að undirbúa sig fyrir EM í körfubolta sem fram fer í Madrid í september. 27.6.2007 18:00
James ætlar að spila með landsliðinu Körfuboltastjarnan LeBron James hjá Cleveland Cavaliers hefur nú tilkynnt að hann ætli að gefa kost á sér í að spila með bandaríska landsliðinu í komandi verkefnum, en hann hafði áður sagt að aðeins helmingslíkur væru á því að hann tæki þátt. 27.6.2007 15:45
Wallace með lausa samninga Framherjinn Gerald Wallace hjá Charlotte Bobcats verður með lausa samninga hjá liðinu á sunnudaginn eftir að hann ákvað í dag að afsala sér síðasta árinu af samningi sínum við félagið. Wallace verður væntanlega eftirsóttur á næstu dögum eftir frábært tímabil í fyrra. 26.6.2007 22:00
Chauncey Billups á markaðnum Leikstjórnandinn Chauncey Billups hjá Detroit Pistons kaus í dag að afsala sér síðasta árinu af samningi sínum við Detroit Pistons í NBA deildinni og verður því með lausa samninga um mánaðarmótin. Tvö lið eru talin hafa mikinn áhuga á að fá Billups í sínar raðir en Detroit er í bestu aðstöðunni til að bjóða honum góðan samning. 25.6.2007 16:43
Real Madrid Spánarmeistari í körfubolta Real Madrid tryggði sér í gærkvöld Spánarmeistaratitilinn í körfubolta með góðum útisigri á erkifjendunum í Barcelona 82-71. Real Madrid vann úrslitaeinvígið 3-1 og með því varð Joan Plaza aðeins þriðji þjálfarinn í sögu deildarinnar til að vinna titil á sínu fyrsta ári sem þjálfari. Það er því ekki ónýt stemming í Madrid þessa dagana eftir að körfuboltaliðið fetaði í fótspor knattspyrnuliðsins og tryggði sér titilinn. 25.6.2007 08:59
Kirilenko beðinn að taka sig saman í andlitinu Larry Miller, eigandi Utah Jazz í NBA deildinni, hefur farið þess á leit við framherjann Andrei Kirilenko að hann hætti að væla og fari að spila eins og maður. Kirilenko olli miklum vonbrigðum á síðasta tímabili og Miller upplýsti áhugaverða hluti um Rússann í útvarpsviðtali á dögunum. 23.6.2007 20:15
Garnett sagði nei við Boston Celtics ESPN sjónvarpsstöðin í Bandaríkjunum hefur eftir heimildamanni sínum í nótt að Boston Celtics og Minnesota Timberwolves hafi verið komin að samkomulagi um leikmannaskipti sem hefðu þýtt að stórstjarnan Kevin Garnett hefði farið til Boston. Ekkert varð þó af skiptunum því Garnett sagði nei takk. Minnesota er nú sagt í viðræðum við Phoenix um að taka við Garnett, en þangað er hann sagður vilja fara ofar öllu. 22.6.2007 00:58
Leikmaður Grindavíkur féll á lyfjaprófi Eftur viðureign Grindavíkur og Skallagríms þann 16. mars síðastliðinn í úrslitum Íslandsmótsins voru tekin lyfjapróf af fjórum leikmönnum liðanna. Einn þeirra, Sigurður F. Gunnarsson, leikmaður Grindavíkur, féll á lyfjaprófinu en hann viðurkenndi að hafa reykt kannabis sex dögum fyrir umræddan leik. 21.6.2007 19:30
Reggie Theus tekur við Sacramento Kings NBA lið Sacramento Kings hefur ráðið fyrrum leikmann liðsins Reggie Theus sem næsta þjálfara félagsins. Theus spilaði með Kings þegar liðið var í Kansas City á sínum tíma en er nú að taka við þjálfun NBA liðs í fyrsta sinn á ferlinum. Hann var áður þjálfari New Mexico State í Háskólaboltanum og leysir Eric Musselman af hólmi eftir að hann vann aðeins 33 leiki með Sacramento í vetur. 20.6.2007 13:48
Baron Davis er liðtækur rappari Þeir eru ekki ófáir NBA-leikmennirnir sem hafa reynt fyrir sér í rappinu með misgóðum árangri. Menn á borð við Shaquille O´Neal, Allen Iverson, Tony Parker og Ron Artest hafa sent frá sér lög og skífur sem hafa fengið vægast sagt misjafna dóma. Í myndbandinu sem sjá má með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan má heyra framlag Baron Davis til rappsins, en þar er hann að ríma með vini sínum Mr Drastick. 19.6.2007 12:45
Jackson á ekki von á að Bryant fari frá Lakers Engin frétt hefur stolið senunni jafn rækilega í NBA deildinni síðustu vikur eins og yfirlýsing Kobe Bryant um að hann vilji fara frá liði LA Lakers. Bryant virðist harður á því að vilja fara frá félaginu, en þjálfari hans Phil Jackson á ekki von á því að liðið verði án hans þegar keppni hefst á ný í deildinni í haust. 19.6.2007 10:52
Kominn í KR Joshua Helm gert samning um að spila með Íslandsmeisturum KR næsta vetur. Hann var valinn besti erlendi leikmaður úrvalsdeildarinnar þegar hann lék með KFÍ fyrir tveimur árum þar sem hann skoraði 37,2 stig að meðaltali í leik. Tyson Pattersson verður ekki áfram hjá KR en auk Joshua hefur Jovan Zdravevski samið við KR. 16.6.2007 02:00
Formsatriði - San Antonio NBA meistari 2007 San Antonio tryggði sér í nótt fjórða NBA titil félagsins síðan árið 1999 þegar liðið lagði Cleveland 83-82 á útivelli og vann því úrslitaeinvígið örugglega 4-0. Franski leikstjórnandinn Tony Parker var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna eftir að hafa verið óstöðvandi í einvíginu. 15.6.2007 04:18
San Antonio getur orðið NBA meistari í nótt Fjórði leikur Cleveland og San Antonio í úrslitaeinvíginu í NBA deildinni fer fram klukkan eitt í nótt og verður sýndur beint á Sýn. Þar getur San Antonio orðið meistari í þriðja sinn á fimm árum með sigri þar sem liðið er með 3-0 forystu í einvíginu. 14.6.2007 20:34
Kobe Bryant mætti á æfingu hjá Barcelona Körfuboltastjarnan Kobe Bryant er nú í sumarfríi í Evrópu og í dag lét hann gamlan draum rætast þegar hann fékk að fylgjast með æfingu hjá spænska stórliðinu Barcelona. Bryant ólst upp á Ítalíu og var Frank Rijkaard þjálfari Barcelona uppáhaldsleikmaður hans á sínum tíma. 14.6.2007 18:48
Grant Hill til Phoenix eða San Antonio? Framherjinn Grant Hill sem leikið hefur með Orlando Magic undanfarin ár hallast að því að ganga í raðir San Antonio eða Phoenix á næsta tímabili. Hann er með lausa samninga og langar mikið að ganga í raðir liðs sem hefur möguleika á að vinna meistaratitilinn næsta sumar. Hill segir sjálfur að það myndi líklega henta sínum leikstíl best að ganga í raðir Phoenix. 14.6.2007 18:00
Houston og Minnesota að skipta á leikmönnum ESPN sjónvarpsstöðin greindi frá því í gærkvöld að Houston Rockets og Minnesota Timberwolves væru búin að samþykkja skipti á leikmönnum sem færu væntanlega fram á næstu dögum. Minnesota mun senda bakvörðinn Mike James til Houston í skiptum fyrir hinn reynda framherja Juwan Howard. Til greina kemur að fleiri leikmenn skipti um heimilisfang í viðskiptunum þegar að þeim kemur. 14.6.2007 17:00
LeBron James orðinn faðir á ný Stórstjarnan LeBron James hjá Cleveland Cavaliers í NBA deildinni hefur ekki haft mikla ástæðu til að fagna undanfarna daga þar sem lið hans er undir 3-0 í úrslitaeinvíginu við San Antonio Spurs. Hann gat þó leyft sér að brosa í nótt þegar kona hans ól honum sitt annað barn. Nafnið sem strákurinn fékk er ekki af ódýrari gerðinni frekar en nafn frumburðarins. 14.6.2007 15:47
Viðtöl eftir þriðja leik Cleveland og San Antonio San Antonio náði afgerandi 3-0 forystu gegn Cleveland í úrslitaeinvíginu í NBA deildinni í nótt. Í myndbrotinu sem fylgir þessari frétt má sjá þjálfarar og leikmenn liðanna svara spurningum á blaðamannafundinum eftir leikinn, þar sem LeBron James var spurður hvort brotið hefði verið á honum í þriggja stiga skoti um leið og lokaflautið gall. 13.6.2007 15:10
San Antonio með aðra höndina á titlinum San Antonio Spurs er komið í afar vænlega stöðu í úrslitaeinvíginu gegn Cleveland Cavaliers í NBA deildinni eftir 75-72 sigur í þriðja leik liðanna í Cleveland í nótt. San Antonio leiðir nú 3-0 í einvíginu og Cleveland verður að gera nokkuð sem engu liði í sögunni hefur tekist ef það á að hampa titlinum. 13.6.2007 05:25
37 ára bið Cleveland á enda Gamall draumur stuðningsmanna Cleveland Cavaliers verður að veruleika í nótt þegar liðið spilar sinn fyrsta leik á heimavelli í lokaúrslitum NBA deildarinnar í 37 ára sögu félagsins. Ljóst er að heimamenn þurfa á einhverju sérstöku að halda í kvöld þegar þeir taka á móti San Antonio í þriðja leik liðanna, enda undir 2-0 í einvíginu. Leikurinn í nótt verður sýndur beint á Sýn klukkan eitt eftir miðnætti. 12.6.2007 19:06
Viðtöl eftir annan leik San Antonio og Cleveland Mike Brown, þjálfari Cleveland, átti fá svör við lélegum leik sinna manna í nótt þegar liðið steinlá öðru sinni fyrir San Antonio í lokaúrslitum NBA deildarinnar. Cleveland lenti mest um 30 stigum undir í leiknum en náði að bjarga andlitinu með góðri rispu í lokin. San Antonio sigraði 103-92 og hefur 2-0 forystu í einvíginu. Smelltu á spila til að sjá viðbrögð þjálfara og leikmanna í nótt. 11.6.2007 15:58
Cleveland tekið í aðra kennslustund í Texas San Antonio tók Cleveland í aðra kennslustundina á nokkrum dögum í nótt þegar liðin mættust öðru sinni í úrslitaeinvíginu í NBA deildinni. San Antonio vann öruggan 103-92 sigur á heimavelli og leiðir 2-0 í einvíginu. Næstu þrír leikir fara fram í Cleveland, en óvíst er hvort San Antonio þarf að spila fleiri leiki á heimavelli ef svo fer sem horfir. 11.6.2007 04:23
Ég hef aldrei séð annað eins Friðrik Ingi Rúnarsson, framkvæmdastjóri KKÍ, varð vitni að uppþotinu sem varð undir lok leiks Íslands og Kýpur á Smáþjóðaleikunum í dag. Völlurinn logaði í slagsmálum í góðan tíma áður en lögregla náði að skakka leikinn og réðist einn leikmanna Kýpur að dómaranum, tók hann hálstaki og henti honum í gólfið. Friðrik segist aldrei hafa orðið vitni að öðru eins. 9.6.2007 18:15
Ísland sigraði eftir slagsmálaleik Íslenska körfuboltalandsliðið fór með sigur af hólmi á Smáþjóðaleikunum í Mónakó og tryggði sér endanlega sigurinn með sigri á Kýpur í dag. Lið Kýpur var yfir í leiknum þegar skammt var til leiksloka, en þá misstu leikmenn liðsins stjórn á skapi sínu og kom til slagsmála í lokin. Íslenska liðinu var dæmdur 20-0 sigur í leiknum og vann því alla leiki sína í mótinu. 9.6.2007 17:54
Ísland leikur til úrslita gegn Kýpur Íslenska körfuboltalandsliðið leikur til úrslita gegn Kýpur á Smáþjóðaleikunum í Mónakó. Þetta varð ljóst í dag þegar íslenska liðið vann fjórða leik sinn í röð á leikunum með því að leggja San Marino 92-81. San Marino var 12 stigum yfir í hálfleik en íslenska liðið tryggði sér sigurinn með góðri rispu í fjórða leikhluta. 8.6.2007 18:39
Viðtöl eftir fyrsta leik San Antonio og Cleveland Varnarleikurinn var helsta umræðuefni þjálfara og leikmanna San Antonio og Cleveland í nótt eftir fyrsta leik liðanna í lokaúrslitunum í NBA. Í myndbandinu með þessari frétt má sjá viðbrögð þeirra Gregg Popovich, Mike Brown, Tim Duncan og LeBron James eftir leikinn sem San Antonio vann örugglega 86-76. 8.6.2007 16:05
Cleveland tekið í kennslustund í San Antonio San Antonio tók í nótt 1-0 forystu í einvíginu um NBA titilinn með öruggum 85-76 sigri á Cleveland á heimavelli sínum. Varnaráætlun heimamanna gekk fullkomlega upp og skoraði LeBron James aðeins 14 stig og misnotaði 12 af 16 skotum sínum. Tony Parker og Tim Duncan voru í miklu stuði hjá San Antonio. 8.6.2007 04:18
Úrslitin í NBA hefjast í nótt - James í sviðsljósinu Fyrsti leikur San Antonio Spurs og Cleveland Cavaliers í lokaúrslitum NBA deildarinnar er á dagskrá í nótt klukkan eitt og verður sýndur beint á Sýn. Einvígið hefur verið teiknað upp sem einvígi reynslu og hungurs. Þrefaldir NBA meistarar San Antonio falla algjörlega í skuggann af ofurstjörnunni LeBron James í umfjöllun fjölmiðla í Bandaríkjunum. 7.6.2007 17:36
Auðveldur sigur á Mónakó Íslenska landsliðið í körfuknattleik vann í kvöld þriðja sigur sinn í röð á Smáþjóðaleiknum í Mónakó þegar það skellti liði heimamanna 86-65. Brenton Birmingham skoraði 19 stig á aðeins 22 mínútum fyrir íslenska liðið og Páll Axel Vilbergsson hitti úr 5 af 8 þristum sínum og skoraði 17 stig. Sigur íslenska liðsins var aldrei í hættu eftir að það náði 21-0 rispu í fyrsta leikhlutanum. 7.6.2007 21:04
Aldrei fleiri útlendingar í úrslitum NBA Úrslitaeinvígið í NBA deildinni hefst með látum klukkan eitt eftir miðnætti í nótt þegar San Antonio tekur á móti Cleveland Cavaliers. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn. Aldrei hafa fleiri útlendingar verið í liðunum tveimur sem spila til úrslita og verður leikjunum lýst beint í 205 löndum á 46 tungumálum. 7.6.2007 19:02
Stan Van Gundy tekur við Orlando Stan Van Gundy hefur verið ráðinn þjálfari Orlando Magic í NBA deildinni. Van Gundy var síðast þjálfari Miami Heat í tvö ár en sagði af sér árið 2006. Hann hafði einnig verið í viðræðum við Sacramento Kings, en skrifaði undir hjá Orlando um leið og félagið náði að losa sig út úr samningnum sem það gerði við Billy Donovan á dögunum. 7.6.2007 14:25
Auðveldur sigur á Lúxemburg Íslenska landsliðið í körfuknattleik burstaði Lúxemburg 92-63 í öðrum leik sínum á smáþjóðaleikunum í Mónakó í dag. Þetta var annar stórsigur liðsins í röð á mótinu en það mætir heimamönnum á morgun. Íslenska liðið stakk af um miðjan fyrsta leikhlutann í leiknum í dag og eftir það var sigurinn aldrei í hættu. 6.6.2007 19:12
James gæti misst af fæðingu sonar síns Ofurstjarnan LeBron James hjá Cleveland Cavaliers í NBA deildinni hefur í nægu að snúast þessa dagana. Lið hans mætir San Antonio Spurs í fyrsta leik lokaúrslitanna annað kvöld, en þar að auki eiga hann og kona hans von á barni á þjóðhátíðardag Íslendinga. 6.6.2007 16:37
Milljón fyrir miða á leik með Cleveland Það er ekki tekið út með sældinni að vera stuðningsmaður Cleveland Cavaliers þessa dagana ef marka má fréttir af miðasölu fyrir heimaleiki liðsins gegn San Antonio í lokaúrslitum NBA sem hefjast annað kvöld. Dýrustu miðarnir á leikina í Cleveland kosta 940,000 krónur. 6.6.2007 11:48
Saunders verður áfram með Detroit Pistons Flip Saunders verður áfram þjálfari Detroit Pistons í NBA deildinni á næsta keppnistímabili þrátt fyrir að liðið hafi fallið úr keppni fyrir Cleveland Cavaliers í úrslitum Austurdeildarinnar á dögunum. Margir höfðu spáð því að hlutirnir yrðu stokkaðir upp í herbúðum liðsins í sumar, en þjálfarinn segir framtíð sína aldrei hafa verið í vafa. 5.6.2007 22:45
Ísland burstaði Andorra Íslenska karlalandsliðið í körfubolta byrjar vel á smáþjóðaleikunum í Mónakó. Liðið burstaði Andorra 94-65 í dag eftir að hafa verið aðeins 5 stigum yfir í hálfleik 47-42 í hálfleik. Brenton Birmingham skoraði 17 stig fyrir Íslenska liðið og þeir Páll Axel Vilbergsson og Helgi Már Magnússon 15 hvor. 5.6.2007 16:17
Ísland - Andorra í Mónakó Íslenska landsliðið í körfubolta keppir sinn fyrsta leik á smáþjóðaleikunum í Mónakó í dag. Leikurinn er gegn Andorra og hefst hann klukkan 13:30. Þjóðirnar hafa mæst átta sinnum og Ísland hefur unnið sjö sinnum. 5.6.2007 11:04
Jón Arnór með 6 stig í tapleik Jón Arnór Stefánsson skoraði sex stig fyrir Lottomatica Roma gegn deildarmeisturunum í Montepaschi Siena. Jón Arnór og félagar töpuðu leiknum 76-84. Jón Arnór spilaði í 12 mínútur og skoraði sex stig, þar af tvö úr vítaskotum. 3.6.2007 14:13
Cleveland í úrslit NBA Cleveland tryggði sér í nótt rétt til að leika í úrslitum NBA í fyrsta sinn í sögu félagsins. Cleveland vann sjöttu viðureignina gegn Detroit Pistons í nótt og vann þar með einvígið 4-2. 3.6.2007 13:10
Sýning hjá LeBron James - Úrslitin í augsýn hjá Cleveland Undrabarnið LeBron setti á svið sannkallaða sýningu í nótt þegar hann skoraði 48 stig í 109-107 sigri Cleveland á Detroit í tvíframlengdum fimmta leik liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA. James skoraði 25 síðustu stig Cleveland í leiknum, í frammistöðu sem fer á spjöld sögunnar. Cleveland leiðir nú 3-2 í einvíginu eftir tap í fyrstu tveimur leikjunum og getur tryggt sér sæti í lokaúrslitum með sigri á heimavelli á laugardagskvöldið. 1.6.2007 05:33
Þrjú lið í NBA ráða þjálfara Miklar hræringar hafa verið í þjálfaramálum í NBA deildinni á síðustu dögum og í gær staðfestu þrjú félög í deildinni nýja þjálfara til starfa. Þá bárust þær fréttir í nótt að Steve Kerr hafi náð samkomulagi við Phoenix Suns um að gerast forseti og framkvæmdastjóri félagsins. 1.6.2007 04:41