Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jermaine O´Neal á leið til LA Lakers? Körfuboltasérfræðingurinn Peter Vescey hjá New York Post greinir frá því í dag að LA Lakers og Indiana Pacers séu komin langt með að samþykkja leikmannaskipti sem gætu þýtt að miðherjinn Jermaine O´Neal færi til Los Angeles. Það yrði þá væntanlega í skiptum fyrir Lamar Odom og hugsanlega miðherjann unga Andrew Bynum. 31.5.2007 22:30
Detroit - Cleveland í beinni í kvöld Fimmti leikur Detroit Pistons og Cleveland Cavaliers í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn á miðnætti í nótt. Staðan í einvíginu er jöfn 2-2 eftir að Cleveland lenti undir 2-0 en náði að jafna metin í heimaleikjum sínum tveimur. Það verður því mikið undir þegar liðin mætast í Detroit í kvöld. 31.5.2007 18:13
San Antonio í úrslit NBA deildarinnar San Antonio tryggði sér í nótt sigur í viðureign sinni við Utah Jazz og er þar með komið í úrslit NBA deildarinnar. Leikurinn endaði 109 - 84 Spurs í vil. Tim Duncan og Tony Parker, verðandi eiginmaður Evu Longoriu, settu báðir 21 stig í leiknum. Þetta er í þriðja sinn á síðastliðnum fimm árum sem Spurs kemst í úrslit NBA. Þar mun liðið eiga við annað hvort Detroit Pistons eða Cleveland Cavaliers en staðan í þeirra viðureign er 2 - 2. 31.5.2007 10:55
San Antonio í úrslit San Antonio Spurs tryggði sér í nótt sæti í lokaúrslitum NBA deildarinnar í þriðja sinn á fimm árum með því að rótbursta Utah Jazz 109-84 á heimavelli í fimmta leik liðanna. Heimamenn náðu 23 stiga forystu snemma í öðrum leikhluta og var sigur liðsins aldrei í hættu. San Antonio mætir Detroit eða Cleveland í úrslitaeinvíginu sem hefst í San Antonio þann 7. júní. 31.5.2007 04:18
Williams og Fisher tæpir hjá Utah í nótt San Antonio Spurs getur tryggt sér sæti í úrslitum NBA deildarinnar í kvöld með heimasigri á Utah Jazz í fimmta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar. Leikurinn verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan eitt eftir miðnætti. Tveir af byrjunarliðsmönnum Utah eru tæpir fyrir leikinn. 30.5.2007 19:10
Kobe Bryant vill fara frá LA Lakers Kobe Bryant gaf það út í viðtali við útvarpsstöð ESPN í New York að hann vildi fara frá Los Angeles Lakers. Bryant hefur ekki farið leynt með vonbrigði sín á lélegu gengi liðsins undanfarin ár og segir stjórnendur þess ekki deila metnaði sínum um að gera Lakers að stórveldi á ný. 30.5.2007 17:13
Útlitið dökkt hjá Seattle Viðskiptajöfurinn Clay Bennett, eigandi Seattle Supersonics í NBA deildinni, segir útlitið dekkra en nokkru sinni varðandi framtíð félagsins í Seattle. Hann reiknar fastlega með því að liðið verði flutt til Kansas City eða Oklahoma City eftir næstu leiktíð ef ekki verði róttækar breytingar á stöðu mála. 30.5.2007 16:07
Cleveland jafnar 2 - 2 Cleveland bar í nótt sigur í fjórða leik sínum við Detroit en leikurinn fór fram í Cleveland. Staðan í viðureign þeirra er því jöfn, 2 - 2. LeBron James leiddi heimaliðið í stigaskori og setti 25 stig og þar af komu tvö af vítalínunni þegar aðeins fjórar sekúndur voru eftir af leiknum. Við það bætti hann síðan 11 stoðsendingum, sjö fráköstum og þremur stolnum boltum. 30.5.2007 10:27
Cleveland - Detroit í beinni í kvöld Fjórði leikur Cleveland og Detroit í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn á miðnætti í kvöld. Cleveland getur jafnað metin í 2-2 í einvíginu með sigri á heimavelli í kvöld, en það verður liðið að gera án eins af sínum bestu mönnum. Larry Hughes er meiddur á fæti og verður tæplega með gegn Detroit í kvöld - frekar en í einvígi liðanna í annar umferðinni í fyrra. 29.5.2007 19:21
San Antonio í góðum málum eftir sigur í Salt Lake City San Antonio er nú aðeins einum sigri frá því að tryggja sér sæti í úrslitum NBA í þriðja sinn á fimm árum eftir sigur á Utah Jazz á útivelli í nótt 91-79. Þetta var fyrsti sigur San Antonio í Utah í úrslitakeppni og fyrsta tap Utah á heimavelli í úrslitakeppninni í vor. San Antonio leiðir nú 3-1 í einvíginu og getur klárað dæmið á heimavelli í næsta leik. 29.5.2007 04:02
Deron Williams tæpur vegna magakveisu Óvíst er hvort leikstjórnandinn Deron Williams geti spilað með liði sínu Utah Jazz í nótt þegar liðið mætir San Antonio í fjórða leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA. Williams er með magakveisu og gat ekki æft með liðinu í dag. San Antonio hefur 2-1 forystu í einvíginu en Williams hefur verið besti leikmaður Utah með rúm 30 stig og 9 stoðsendingar að meðaltali í leik. 28.5.2007 18:36
Glæsitroðsla LeBron James (myndband) LeBron James átti stórleik fyrir Cleveland í nótt þegar lið hans vann sigur á Detroit Pistons í úrslitakeppni Austurdeildarinnar. Hann átti líka tilþrif leiksins þegar hann tróð boltanum í andlitið á Rasheed Wallace. Smelltu á spila til að sjá þessi frábæru tilþrif James sem sáust í beinni á Sýn í nótt. 28.5.2007 16:30
LeBron James frábær í sigri Cleveland Ungstirnið LeBron James bar Cleveland á herðum sér í nótt þegar liðið skellti Detroit 88-82 í þriðja leiknum í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA og minnkaði muninn í 2-1 í einvíginu. James skoraði 32 stig, hirti 9 fráköst og gaf 9 stoðsendingar og var allt í öllu í þessum bráðnauðsynlega sigri heimamanna. 28.5.2007 05:37
Kobe Bryant: Náið í West eða ég er farinn Kobe Bryant gaf út sterka yfirlýsingu í samtali við ESPN sjónvarpsstöðina í gær þegar hann var spurður út í framtíð sína með liði LA Lakers. Vitað var að Bryant var orðinn leiður á að sjá lið Lakers drattast í meðalmennsku og nú virðist sem mælirinn sé fullur hjá leikmanninum. 28.5.2007 05:26
Cleveland - Detroit í beinni í kvöld Þriðji leikur Cleveland Cavaliers og Detroit Pistons í úrslitarimmu Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan hálf eitt í nótt. Detroit hefur 2-0 yfir í einvíginu eftir nauma sigra í tveimur fyrstu leikjunum á heimavelli þar sem lokatölur urðu 79-76 í báðum leikjum. Þar hafði Cleveland bullandi tækifæri til að stela sigrinum í bæði skipti og því verður forvitnilegt að sjá hvernig liðinu tekst til á heimavelli í næstu tveimur leikjum. 27.5.2007 17:47
Utah sneri við dæminu á heimavelli Utah Jazz vann í nótt nokkuð öruggan 109-83 sigur á San Antonio í þriðja leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA og minnkaði muninn í einvíginu í 2-1. Sem fyrr voru það Deron Williams og Carlos Boozer sem fóru fyrir liði heimamanna, en þeir fengu meiri hjálp frá félögum sínum en áður í nótt. San Antonio leiddi með fjórum stigum í hálfleik, en Utah kafsigldi andstæðinga sína í þeim síðari. 27.5.2007 03:52
Utah - San Antonio í beinni í nótt Þriðji leikur Utah Jazz og San Antonio Spurs í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan hálf eitt í nótt. Þetta er fyrsti leikur liðanna í Salt Lake City eftir að San Antonio vann fyrstu tvo leikina með afgerandi hætti á heimavelli sínum. 26.5.2007 15:04
Rashard Lewis á lausu í sumar Framherjinn Rashard Lewis hjá Seattle Supersonics hefur ákveðið að nýta ákvæði í samningi sínum við félagið sem gerir honum kleift að vera laus allra mála í sumar. Lewis verður fyrir vikið af 25 milljónum dollara í laun fyrir síðustu tvö árin af samningi sínum, en er nokkuð öruggur með að fá góða launahækkun hjá nýju liði í sumar þar sem hann verður væntanlega eftirsóttasti samningslausi leikmaðurinn á markaðnum. 26.5.2007 14:41
Pálína farin í Keflavík Besti varnarmaður Iceland Express deildar kvenna síðustu þrjú ár er farin frá Haukum og hefur því meistaraliðið misst báða fyrirliða sína fyrir næsta vetur. 26.5.2007 11:00
Groundhog Day í Detroit Detroit Pistons og Cleveland Cavaliers áttust við í annað sinn í nótt. Þó var engu líkara en að leikurinn væri endursýning á fyrsta leik liðanna því hann spilaðist nær eins og lokutölur urðu þær sömu, 79 - 76. 25.5.2007 09:56
Annar leikur Detroit og Cleveland í beinni í kvöld Annar leikur Detroit Pistons og Cleveland Cavaliers í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á Sýn á miðnætti í kvöld. Detroit vann mjög nauman sigur í fyrsta leiknum og Cleveland mun í kvöld freista þess að stela heimavallarréttinum með sigri. Næstu tveir leikir fara fram í Cleveland og verða einnig sýndir beint á Sýn. Á laugardagskvöldið verður svo sýnt beint frá þriðja leik Utah og San Antonio. 24.5.2007 19:07
Roma í undanúrslit Jón Arnór Stefánsson skoraði 12 stig fyrir lið sitt Lottomatica Roma í gær þegar liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum í ítölsku deildinni með 83-58 stórsigri á fyrrum félögum hans í Napoli. Roma vann einvígið 3-0 og mætir toppliði Siena í næstu umferð. 23.5.2007 14:27
Sannfærandi sigur hjá San Antonio San Antonio Spurs er komið í bílstjórasætið í einvígi sínu við Utah Jazz í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA eftir öruggan 105-96 sigur í öðrum leik liðanna í nótt. San Antonio leiðir því einvígið 2-0 en næstu tveir leikir fara fram í Salt Lake City. Annar leikurinn þróaðist mjög líkt og sá fyrsti þar sem heimamenn lögðu grunninn að sigri með frábærum öðrum leikhluta. 23.5.2007 05:20
Portland datt í lukkupottinn NBA-lið Portland Trailblazers datt heldur betur í lukkupottinn í nótt þegar dregið var í lotteríinu fyrir nýliðavalið í sumar. Portland fékk fyrsta valréttinn þrátt fyrir að eiga aðeins 5% líkur á að landa fyrsta valrétti og Seattle fékk annan valréttinn þrátt fyrir að eiga einnig fáar kúlur í lottóvélinni þegar dregið var. Sögufrægt lið Boston þarf að gera sér að góðu fimmta valrétt þrátt fyrir að eiga næstum 50% líkur á að landa einu af tveimur fyrstu valréttunum vegna lélegs árangurs liðsins í deildinni í vetur. 23.5.2007 05:05
Zdravevski semur við KR Íslandsmeistarar KR í körfubolta hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin næsta vetur en félagið hefur náð samkomulagi við Makedóníumanninn Jovan Zdravevski hjá Skallagrími um að leika með liðinu næsta vetur. Í dag framlengdu KR-ingar svo samninga þeirra Fannars Ólafssonar og Pálma Sigurgeirssonar um þrjú ár. 22.5.2007 17:24
San Antonio - Utah í beinni á Sýn í nótt Nú fer að draga til tíðinda í úrslitakeppni NBA deildarinnar þar sem fjögur lið eru eftir í baráttunni um titilinn. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá öllum leikjum næstu vikuna og hátíðin hefst með öðrum leik San Antonio og Utah klukkan 1 í nótt. 22.5.2007 15:58
Adelman að taka við Houston? Fjölmiðlar í Houston eru á einu máli um að Rick Adelman verði tilkynntur sem þjálfari Houston Rockets á morgun. Félagið rak Jeff Van Gundy á föstudaginn og segir Houston Chronicle að Adelman hafi þegar verið búinn að ræða við forráðamenn félagsins áður en það gerðist. Adelman er með hæsta vinningshlutfall allra þjálfara í NBA sem aldrei hafa unnið meistaratitil eða 61%. Hann þjálfaði síðast Sacramento Kings á árunum 1998 til 2006 og fór tvisvar með Portland í úrslit á tíunda áratugnum. 22.5.2007 14:25
Detroit sigraði í fyrsta leik úrslita í austurdeildinni Detroit Pistons unnu nauman sigur á Cleveland Cavaliers í fyrsta leik liðanna í úrslitum austurdeildar í NBA-körfuboltanum. Lokatölur urður 79-76. 22.5.2007 10:17
San Antonio vann fyrsta leikinn San Antonio vann fyrsta leikinn gegn Utah í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í nótt, 108-100. Tim Duncan gegndi lykilhlutverki í sigri San Antonio, en fjölmiðlar vestra segja hann sjaldan eða aldrei hafa spilað betur á sínum ferli. 21.5.2007 09:07
NBA: Undanúrslitin hefjast í nótt Úrslitin í Vesturdeild NBA-deildarinnar hefjast í kvöld þegar San Antonio fær Utah í heimsókn. Sigurvegarinn í rimmu liðanna fer í úrslit deildarinnar þar sem mótherjarnir verða annaðhvort Cleveland eða Detroit. Utah hefur ekki unnið í San Antonio síðan árið 1999 en í leikjum liðanna á núverandi leiktíð skiptu þau sigrunum á milli sín. 20.5.2007 17:00
Wade á batavegi eftir tvær aðgerðir Dwayne Wade, leikmaður Miami Heat í NBA-deildinni, er á góðum batavegi eftir að hafa gengist undir tvær aðgerðir í vikunni, annars vegar á öxl og hins vegar á hné. Wade segist líða vel, bæði líkamlega og andlega, og stefnir á að verða klár í slaginn þegar næsta tímabil í NBA hefst. 19.5.2007 17:05
Van Gundy rekinn frá Houston Jeff Van Gundy var í gær rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Houston Rockets í NBA-deildinni, en lærisveinar hans féllu úr keppni í fyrstu umferð úrslitakeppninnar fyrr í þessum mánuði. Svo slakur árangur var með öllu óviðunandi að mati forráðamanna liðsins, en í liðinu er að finna stjörnuleikmenn á borð við Yao Ming og Tracy McGrady. 19.5.2007 17:00
San Antonio og Cleveland komin áfram San Antonio og Cleveland tryggðu sér í nótt sæti í undanúrslitum NBA-deildarinnar, en San Antonio lagði Phoenix á heimavelli, 114-106, en Cleveland vann New Jersey, 88-72. San Antonio mætir Utah í úrslitum Vesturdeildar en Cleveland tekur á móti Detroit í úrslitum Austurdeildarinnar. 19.5.2007 11:41
Detroit í úrslit Austandeildar NBA Detroit Pistons tryggði sér sæti í úrslitum Austurdeildar NBA-deildarinnar í gærkvöldi. Þá fór fram sjötti leikur Detroit og Chicago Bulls. Richard Hamilton hjá Detroit með 23 stig. Leikurinn endaði 85 - 95 en hann fór fram í Chicago. 18.5.2007 10:49
Chicago - Detroit í beinni á miðnætti Sjötti leikur Chicago Bulls og Detroit Pistons í undanúrslitum Austurdeildar í NBA verður sýndur beint á NBA sjónvarpsrásinni á miðnætti í kvöld. Detroit komst í 3-0 í einvíginu en Chicago getur jafnað metin í 3-3 með sigri á heimavelli í kvöld. Annað kvöld verður svo NBA sannkölluð NBA veisla í sjónvarpinu. 17.5.2007 18:22
Naumur sigur hjá San Antonio San Antonio er komið í vænlega 3-2 stöðu í einvíginu við Phoenix í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA eftir nauman 88-85 sigur á útivelli í nótt. Phoenix liðið var án tveggja lykilmanna sem voru í leikbanni, en hafði undirtökin fram á lokamínúturnar. Cleveland klúðraði á sama tíma möguleika sínum á að komast í úrslit Austurdeildar með því að steinliggja 83-72 á heimavelli fyrir New Jersey. 17.5.2007 14:22
Cleveland getur klárað dæmið í kvöld Cleveland Cavaliers getur tryggt sér sæti í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA með sigri á New Jersey Nets í fimmta leik liðanna sem sýndur verður beint á NBA TV á miðnætti í nótt. Síðar í nótt eigast við Phoenix og San Antonio þar sem staðan er jöfn 2-2 og þrír leikmenn taka út leikbann. 16.5.2007 22:26
Sigur í fyrsta leik hjá Roma Lottomatica Roma á Ítalíu spilaði í kvöld sinn fyrsta leik í 8-liða úrslitum úrvalsdeildiarinnar og þar báru Jón Arnór Stefánsson og félagar í Roma sigurorð af fyrrum félögum hans í Napoli 73-57. Jón Arnór spilaði 13 mínútur í leiknum og skoraði 3 stig. Næsti leikur í einvíginu fer fram í Napoli um helgina og liðið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í næstu umferð. 16.5.2007 22:23
Töp hjá íslensku liðunum í kvöld Norðurlandamót unglinga í körfubolta hófst með látum í Stokkhólmi í Svíþjóð í kvöld. Íslenska kvennalandsliðið U-16 ára steinlá fyrir Finnum í kvöld 78-49 og síðar um kvöldið tapaði U-18 ára karlaliðið fyrir Dönum 87-52. Íslensku liðin leika sex leiki á mótinu á morgun. 16.5.2007 22:13
Utah í úrslit Vesturdeildar Utah Jazz tryggði sér í nótt sæti í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA eftir 100-87 sigur á Golden State í fimmta leik liðanna í Salt Lake City. Chicago heldur enn lífi í einvíginu við Detroit eftir nokkuð óvæntan stórsigur á útivelli í nótt 108-92. 16.5.2007 14:03
NBA: Þrír leikmenn í bann Handalögmál leikmanna Phoenix og San Antonio í leik liðanna í úrslitakeppni NBA í fyrrakvöld höfðu alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir liðin. Robert Horry, leikmaður San Antonio var í kvöld dæmdur í tveggja leikja bann og þeir Amare Stoudemire og Boris Diaw hjá Phoenix í eins leiks bann. 15.5.2007 23:41
Davis og Richardson mega spila í kvöld Þeir Baron Davis og Jason RIchardsson mega báðir leika með liði Golden State Warriors gegn Utah Jazz í úrslitakeppni NBA í kvöld þrátt fyrir að hafa gerst sekir um agabrot í síðasta leik. Fimmti leikur liðanna verður í beinni á NBA TV klukkan hálf þrjú í nótt. 15.5.2007 19:14
Nowitzki tók við verðlaunum sínum í dag Þjóðverjinn Dirk Nowitzki hjá Dallas var í dag formlega sæmdur verðlaunum fyrir að vera valinn verðmætasti leikmaður deildarkeppninnar í NBA, en fréttir þess efnis höfðu löngu lekið í fjölmiðla. Nowitzki er fyrsti Evrópubúinn sem hlýtur þennan heiður, en verður leikmanninum líklega lítil huggun eftir að lið hans var niðurlægt í úrslitakeppninni á dögunum. 15.5.2007 18:31
Gríðarlega mikilvægur sigur hjá Phoenix Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA í nótt. Phoenix vann góðan útisigur á San Antonio 104-98 og jafnaði þar með metin í 2-2 í einvígi liðanna í undanúrslitum Vesturdeildarinnar og Cleveland komst í 3-1 gegn New Jersey með 87-85 sigri á útivelli. 15.5.2007 11:56
Verð áfram í Keflavík Magnús Þór Gunnarsson hefur samið við Keflavík til eins árs en hann skoðaði það einnig vandlega að ganga til liðs við Snæfell. „Ætli Keflavíkurhjartað hafi ekki slegið hraðar en Snæfellshjartað að þessu sinni,“ sagði Magnús við Fréttablaðið. 15.5.2007 00:01