Fleiri fréttir

Wilshere verður ekki klár með Arsenal í fyrstu umferð

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að Jack Wilshere leikmaður liðsins verði jafnvel ekki klár í slaginn með liðinu fyrr en í október. Enski landsliðsmaðurinn var frá allt síðasta keppnistímabil vegna meiðsla og hann fór nýlega í hnéaðgerð sem framkvæmd var af sérfræðingum í Svíþjóð.

Man Utd færist nær því að semja við Lucas Moura

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að félagið sé ekki langt frá því að ganga frá samningum við Lucas Moura. Brasilíski miðjumaðurinn er aðeins 19 ára gamall og hefur hann leikið með Sao Paulo í heimalandinu og hefur félagið hafnað 27 milljón punda tilboði frá Man Utd – eða sem nemur 5,2 milljarða kr.

Rafael van der Vaart hefur samúð með Modric

Rafael van der Vaart, fyrrum leikmaður Real Madrid og núverandi leikmaður Tottenham segist hafa samúð með samherja sínum, Luka Modric, vegna þeirrar pattstöðu sem upp er komin varðandi vistarskipti Modric frá Tottenham til Real. Luka Modric hefur ítrekað lýst áhuga sínum á að ganga til liðs við Spánarmeistarana en félögin virðast ekki ná að koma sér saman um kaupverðið.

Piazon tryggði Chelsea jafntefli gegn PSG

Franska stórliðið PSG og enska úrvalsdeildarliðið Chelsea áttust við í æfingaleik í New York í Bandaríkjunum í gær. Lucas Piazon jafnaði fyrir Chelsea átta mínútum fyrir leikslok. Leikurinn fór fram á hinum sögufræga Yankee Stadium. Brasilíumennirnir Piazon og Ramires voru mennirnir á bak við markið en Ramires lagði það upp fyrir landa sinn. Nene skoraði mark PSG snemma í fyrri hálfleik. Sænski landsliðsframherjinn Zlatan Ibrahimovic var ekki í leikmannahóp PSG.

Villas-Boas ósáttur við Modric

Líkurnar á því að Luka Modric hafi leikið sinn síðasta leik fyrir Tottenham halda áfram að aukast. André Villas-Boas, stjóri Tottenham, hefur gagnrýnt Modric harðlega fyrir að ferðast ekki með liðinu til Bandaríkjanna þar sem liðið er í æfingaferð.

Aftur meiðist Smalling | Missir af upphafi tímabilsins

Chris Smalling, varnarmaður Manchester United, verður frá knattspyrnuiðkun næstu tíu vikurnar. Kappinn gekkst undir uppskurð vegna meiðsla á fæti en Smalling missti af síðustu vikum liðins tímabils vegna nárameiðsla.

Engin uppgjöf hjá Darren Fletcher

Darren Fletcher, hinn 28 ára miðjumaður Manchester United, gefur lítið fyrir þann orðróm að hann muni þurfa að leggja skóna á hilluna langt fyrir aldur fram. Fletcher hefur glímt við sáraristilbólgu og kom aðeins tíu sinnum við sögu hjá United á síðustu leiktíð.

Oscar búinn með læknisskoðun hjá Chelsea

Brasilíski miðjumaðurinn Oscar hefur greint frá því að hann hafi farið í læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea. Hann ætlar þó ekki að taka ákvörðun um framtíð sína fyrr en að loknum Ólympíuleikunum.

Bebe bjargaði United | Myndband

Portúgalinn Bebe var hetja Manchester United í 1-1 jafntefli gegn Ajax Cape Town í æfingaleik í Suður-Afríku í dag.

Juventus vill tefla fram van Persie og Suarez

Ítalska knattspyrnufélagið Juventus hefur tjáð Robin van Persie að það vilji að Hollendingurinn spili í framlínu liðsins við hlið Luis Suarez, framherja Liverpool. BBC greinir frá þessu.

Manchesterliðin vilja borga 3 milljarða kr. fyrir Robin van Persie

Dailymail greinir frá því að Manchester City og Manchester United hafi lagt fram tilboð í hollenska landsliðsframherjann Robin van Persie. Ítalska meistaraliðið Juventus hefur einnig sýnt Arsenal-leikmanninum áhuga. Manchesterliðin vilja kaupa leikmanninn á 15 milljónir punda eða sem nemur 3 milljörðum kr.

Ferguson: Dalglish missti starfið útaf Suarez málinu

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Kenny Dalglish hafi misst starf sitt sem knattspyrnustjóri hjá Liverpool vegna þess að hann hafi tekið ranga ákvörðun í "Suarez-Evra“ málinu á síðustu leiktíð.

Tottenham vill fá 7 milljarða kr. fyrir Modric

Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham, segir að Luka Modric verði aðeins seldur ef rétt fæst fyrir króatíska landsliðsmanninn. Tottenham vill fá 35 milljónir punda eða sem nemur 7 milljörðum ísl. kr. Þrjú lið sem hafa áhuga á Modric hafa rætt með formlegum hætti við Tottenham en talið er að þau séu Real Madrid, Manchester United og PSG í Frakklandi.

Chelsea hefur áhuga á fá Moses frá Wigan

Roberto Di Matteo, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur staðfest að félagið hafi áhuga á að fá sóknamanninn Victor Moses sem leikur með Wigan í ensku úrvalsdeildinni. Dave Whelan, eigandi Wigan, er ekki sáttur við það verð sem Chelsea vill greiða fyrir hinn 21 árs gamla Moses og hefur Wigan hafnað þremur tilboðum frá Chelsea í leikmanninn.

Ledley King leggur skóna á hilluna

Ledley King, fyrirliði enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham, hefur lagt skóna á hilluna en hann er aðeins 31 árs gamall. King hefur glímt við meiðslí mörg ár og var greint frá ákvörðun hans á heimasíðu félagsins.

Ferguson yrði glaður ef Berbatov færi ekki frá Man Utd

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að hann yrði glaður ef Dimitar Berbatov tæki þá ákvörðun að vera áfram í herbúðum liðsins. Búlgarski framherjinn hefur ekki verið í aðalhlutverki hjá Manchester United frá því hann var ekki valinn í leikmannahóp Man Utd fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 2010. Berbatov hefur lýst því yfir að hann hafi hug á því að finna sér nýtt lið en hann er samningsbundinn Man Utd og félagið vill fá eitthvað fyrir leikmanninn.

Suarez: Man Utd er með pólítíska valdið í enska boltanum

Luis Suarez er er ekki með Liverpool liðinu í Bandaríkjunum þar sem hann undirbýr sig fyrir þáttöku á Ólympíuleikunum með landsliði Úrúgvæ. Suarez opnaði sig fyrir sjónvarpsstöð í heimalandinu og talaði um átta leikja bannið sem hann fékk fyrir kynþáttaníð í garð Patrice Evra hjá Manchester United.

Fulham neitar því að Dempsey sé á förum til Liverpool

Fulham neitar því að félagið hafi komist að samkomulagi við Liverpool um sölu á bandaríska framherjanum Clint Dempsey fyrir tíu milljónir punda en hávær orðrómur er um að Dempsey sé á leiðinni til Bítlaborgarinnar. Leikmenn Liverpool eru í Boston í Bandaríkjunum og leika þrjá leiki gegn ítölsku liðununm Toronto og Roma. Fulham mun einnig mæta enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham í þessu ferðalagi.

Rafael van der Vaart er ekki á förum frá Tottenham

Rafael van der Vaart hefur ekki hug á því að fara frá enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham. Hinn 29 ára gamli hollenski landsliðsmaður hefur verið sterklega orðaður við mörg félög í Evrópu en hann segir sjálfur að hann vilji vera áfram í herbúðum Tottenham.

Lokomotiv frá Moskvu hefur áhuga á Adebayor

Rússneska knattspyrnuliðið Lokomotiv frá Moskvu hefur áhuga á að fá Emmanuel Adebayor í sínar raðir samkvæmt frétt Telegraph á Englandi. Adebayor lék sem lánsmaður hjá Tottenham á síðustu leiktíð en hann er enn samningsbundinn Englandsmeistaraliði Manchester City.

Óvíst hvort Robin van Persie fari með Arsenal til Asíu

Robin van Persie mun á næstu dögum ræða formlega við forráðamenn Arsenal um framtíð hans hjá félaginu. Hollenski landsliðsframherjinn hefur ekki viljað skrifað undir samning við félagið en núverandi samningur hans rennur út í lok næsta keppnistímabils sem hefst um miðjan ágúst.

Manchester United er verðmætasta íþróttafélag heims

Enska knattspyrnufélagið Manchester United er verðmætasta íþróttafélag heims samkvæmt lista sem birtur er í bandaríska Forbes tímaritinu. Félagið er metið á um 290 milljarða kr. Spænska knattspyrnuliðið Real Madrid er í öðr sæti á þessum lista. Bandarísku atvinnumannaliðin New York Yankees og Dallas Cowboys deila þriðja sætinu.

West Ham vill fá Dimitar Berbatov

Forráðamenn nýliða West Ham hafa áhuga á því að klófesta búlgarska sóknarmanninn Dimitar Berbatov og styrkja þar með liðið fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni. West Ham hafði áður sýnt því áhuga á að fá Andy Carroll framherja Liverpool í sínar raðir en framtíð hans hjá Liverpool virðist vera afar óljós.

Ferguson segir að Vidic verði klár í slaginn með Man Utd

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, staðfesti í gær að serbneski landsliðsmaðurinn Nemanja Vidic verði klár í slaginn með liðinu þegar keppnistímabilið í ensku úrvaslsdeildinni hefst í ágúst. Vidic, sem var fyrirliði Man Utd á síðustu leiktíð, slasaðist illa á hné í leik í Meistaradeildinni gegn Basel í sviss en leikurinn fór fram í desember.

Berbatov vill fá svör um framtíð sína hjá Man Utd

Dimitar Berbatov er ekki sáttur við stöðu sína hjá enska úrvalsdeildarliðinu Manchester United og hann vill komast frá liðinu. Hinn 31 árs gamli framherji frá Búlgaríu var í algjöru aukahlutverki hjá Man United á síðustu leiktíð og hann segir í færslu á fésbókarsíðu sinni að það væri best fyrir alla aðila ef hann færi frá félaginu.

Real Madrid og Tottenham nálgast samkomulag um Modric

Spænska meistaraliðið Real Madrid og króatíski landsliðsmaðurinn Luka Modric er skrefi nær því að leikmaðurinn gangi í raðir félagsins frá Tottenham á Englandi. Daily Mail greinir frá því að Tottenham muni fá allt að 30 milljónir punda fyrir leikmanninn eða sem nemur um 6 milljörðum ísl. kr. Hinn 26 ára gamli miðvallarleikmaður hefur einnig verið orðaður við Chelsea á Englandi og PSG í Frakklandi.

Liverpool ætlar ekki að lána Carroll til Newcastle

Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool ætla ekki að taka tilboði Newcastle í enska landsliðsframherjann Andy Carroll. Newcastle hafði áhuga á að fá fyrrum leikmann liðsins að láni út næstu leiktíð og taka þátt í því að greiða laun leikmannsins sem er með um 16 milljónir kr. í laun á viku eða 80.000 pund.

Coloccini: Síðasta tímabil var enginn heppni

Fabricio Coloccini, fyrirliði enska knattspyrnuliðsins Newcastle, vill meina að síðasta tímabil hafi ekki verið heppni og félagið verði aftur í baráttu um Evrópusæti í ár.

Villas-Boas treystir á Van der Vaart

Andre Villas-Boas, stjóri Tottenham, hefur nú loksins tjáð sig um Rafael van der Vaart sem hefur verið orðaður við brottför frá Tottenham í allt sumar.

Cole mun ekki kvarta yfir vafasömu tísti Rios

Rio Ferdinand, varnarmaður Man. Utd, var duglegur að tjá sig á Twitter meðal réttarhöldin yfir John Terry stóðu yfir. Þau snérust um hvort Terry hefði verið með kynþáttaníð í garð bróður Rios, Anton.

Powell mætti á æfingu á Vauxhall Corsa

Nýi og óþekkti leikmaður Man. Utd, Nick Powell, vakti mikla athygli er hann mætti á sína fyrstu æfingu. Það var reyndar bíllinn hans sem stal athyglinni.

Borini kominn til Liverpool | Maxi farinn

Liverpool er búið að ganga frá kaupum á ítalska framherjanum Fabio Borini. Hann kemur til félagsins frá AS Roma. Maxi Rodriguez er að sama skapi farinn frá félaginu.

Sjá næstu 50 fréttir