Fleiri fréttir

Chelsea burstaði Portsmouth og minnkaði forskot United í eitt stig

Chelsea vann öruggan 5-0 útisigur á Portsmouth í ensku úrvalsdeildini í kvöld. Didier Drogba og Florent Malouda skoruðu báðir tvö mörk fyrir Chelsea í leiknum. Manchester City tapaði dýrmætum stigum í baráttunni um fjórða sætið þegar liðið tapaði 0-2 á heimavelli fyrir Everton.

Paul Scholes: Þurfum að vinna rest

Paul Scholes er sannfærður um að Manchester United geti unnið þá sjö leiki sem liðið á eftir í úrvalsdeildinni og varið þar með titil sinn. United er komið í bílstjórasætið eftir sigurinn gegn Liverpool á sunnudag.

Portsmouth má selja utan gluggans

Portsmouth hefur fengið sérstakt leyfi ensku úrvalsdeildarinnar til að selja leikmenn þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður.

Kemur þriðja þrennan í röð hjá Messi í kvöld?

Lionel Messi gæti í kvöld orðið annar knattspyrnumaðurinn í sögu spænsku 1. deildarinnar til að skora þrennu í þremur leikjum í röð. Barcelona mætir þá Osasuna á heimavelli og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport 3.

Bæjarar óttast Wayne Rooney

Franz Beckenbauer, forseti þýska liðsins FC Bayern, segir að hans lið óttist Wayne Rooney í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Bæjarar leika gegn Englandsmeisturum Manchester United.

Ribery vill ekki fara til Englands

Franski vængmaðurinn hjá FC Bayern, Franck Ribery, segir að ekki komi til greina að fara frá félaginu yfir til Englands.

Sama byrjunarlið gegn Mexíkó og Færeyjum

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt sem mætir Mexíkó á miðnætti í kvöld í Charlotte í Bandaríkjunum.

Laudrup og Aragones orðaðir við Sevilla

Slæmt gengi Sevilla að undanförnu hefur gert það að verkum að þjálfari liðsins hefur þurft að taka pokann sinn. Manolo Jimenez hefur ekki náð að landa sigri í síðustu sjö leikjum.

Stjarnan samdi við Marel, Ólaf og Danry

Knattspyrnudeild Stjörnunnar tilkynnti í dag að félagið hefði gengið frá samningum við þá Marel Baldvinsson, Ólaf Karl Finsen og Dennis Danry.

Messi og Mourinho græða mest

Argentínumaðurinn Lionel Messi er búinn að moka David Beckham úr efsta sætinu yfir þá knattspyrnumenn sem fá hæstar tekjur.

Berlusconi vill fá Balotelli til Milan

Silvio Berlusconi, forseti AC Milan, segir að það sé pláss fyrir ungstirnið Mario Balotelli hjá Milan fyrst Inter virðist ekki geta notað hann lengur.

Messi: Ég er engin goðsögn

Menn hafa gengið ansi langt síðustu daga í að hampa Argentínumanninum Lionel Messi. Skal svo sem engan undra þar sem hann er að spila fáranlega vel þessa stundina og hreint ótrúlegt hversu góður hann er. Það gleymist stundum að hann er aðeins 22 ára.

Mancini óttast ekki að verða rekinn

Ítölsku stjórarnir í enska boltanum óttast ekki um störf sín þó svo þeir nái ekki árangri. Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, sagði í gær að hann yrði áfram með Chelsea sama hvað gerðist á þessu tímabili.

Arshavin: Vill fá fleiri stjörnur til Arsenal

Rússinn Andrei Arshavin hefur ekki alveg sömu trú á sínu liði og margir aðrir. Hann óttast að Arsenal skorti breidd í leikmannahópinn til þess að keppa um stóru titlana.

Riera spenntur fyrir Rússlandi

Spænski vandræðapésinn hjá Liverpool, Albert Riera, er hugsanlega á leið til rússneska félagsins CSKA Moskva og þvert á það sem menn héldu þá er hann spenntur fyrir því að fara þangað.

Adolfo Bautista: Síðasta tækifærið mitt er á móti Íslandi

Adolfo Bautista verður í eldlínunni með landsliði Mexíkó í leiknum á móti Íslandi aðra nótt og lítur á þennan leik sem síðasta tækifæri sitt til þess að vinna sér sæti í HM-hópnum. Þetta verður fyrsti landsleikur þessa 30 ára og 186 sm framherja síðan 2008.

Cannavaro ætlar að halda áfram

Umboðsmaður ítalska varnarmannsins Fabio Cannavaro hefur greint frá því að samningaviðræður séu hafnar milli sín og Juventus um nýjan samning.

Heimurinn borgar 608 milljarða fyrir enska boltann næstu þrjú árin

Tekjur vegna sölu á sjónvarpsrétti fyrir ensku úrvalsdeildina nema rúmlega sexhundruð milljörðum króna á næstu þremur árum. Dagblaðið Independent birti í dag tekjutölur fyrir núgildandi samninga sem gilda frá 2010 til 2013. Enska úrvalsdeildin er sýnd í sjónvarpi í 211 löndum.

Úlfarnir fóru illa með West Ham - dagar Zola taldir

West Ham tapaði 1-3 á heimavelli á móti Wolves í algjörum sex stiga leik í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Þetta var fimmta tap West Ham í röð og liðið missti með þessu Úlfanna fjórum stigum fyrir ofan sig.

Lescott gæti misst af restinni af tímabilinu og þar með HM

Joleon Lescott, varnarmaður Manchester City og enska landsliðsins, er að glíma við vöðvatognun aftan í læri og það gæti farið svo að hann spilaði ekki meira með City á þessu tímabili. Það myndi jafnframt þýða að hann missti af HM í Suður-Afríku í sumar.

Erna Björk sleit krossbönd - Mist inn í landsliðið

Erna Björk Sigurðardóttir er með slitin krossbönd og verður ekki með íslenska landsliðinu í leikjunum á móti Serbíu og Króatíu í undankeppni HM. Sigurður Ragnar Eyjólfsson staðfesti þetta og hann hefur valið KR-inginn Mist Edvardsdóttur í landsliðshópinn í staðinn.

Styttist í endurkomu Hjartar hjá ÍA

Íþróttafréttamaðurinn Hjörtur Júlíus Hjartarson er byrjaður að æfa með 1. deildarliði ÍA á nýjan leik og verður líklega í eldlínunni með ÍA er liðið mætir Grindavík þann 10. apríl næstkomandi. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍA.

Matthías og Kolbeinn opnuðu markareikninginn sinn - myndband

Matthías Vilhjálmsson og Kolbeinn Sigþórsson skoruðu sínu fyrstu mörk fyrir A-landsliðið þegar liðið vann 2-0 sigur á Færeyjum í vináttulandsleik í Kórnum síðasta sunnudag. Kolbeinn skoraði í sínum fyrsta leik en Matthías var að leika sinn þriðja landsleik.

Vermaelen sleppur ekki við leikbann - í banni á móti Birmingham

Thomas Vermaelen, varnarmaður Arsenal, verður í leikbanni á móti Birmingham í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi eftir að aganefnd enska knattspyrnusambandsins tók fyrir áfrýjun hans í dag og staðfesti rauða spjaldið sem belgíski miðvörðurinn fékk á móti West Ham um síðustu helgi.

Hnéð á Rooney áhyggjuefni

Svo gæti farið að Sir Alex Ferguson hvíli Wayne Rooney í leiknum gegn Bolton á laugardag. Hnéð á Rooney er ekki gott og hann þarfnast hvíldar.

Valencia ætlar að selja Villa

Chelsea og Man. City eru bæði í startholunum eftir að það kvisaðist út að Valencia ætli sér að selja framherjann David Villa í sumar til þess að rétta fjárhag félagsins af.

Balotelli fór í treyju AC Milan

Ungstirnið Mario Balotelli hjá Inter var ekki að auka vinsældir sínar þegar hann ákvað að klæðast treyju AC Milan. Það gerði hann í sjónvarpsþætti og myndir af uppákomunni eru út um allt á netinu.

Carroll kjálkabraut Taylor á æfingu

Mórallinn er greinilega ekki alveg nógu góður hjá Newcastle því liðsfélagarnir Andy Carroll og Steven Taylor lentu í heiftarlegum slagsmálum á æfingu.

Cole vinnur að tónlist með 50 cent

Ashley Cole leynir á sér á ýmsan hátt og hæfileikar hans á tónlistarsviðinu hafa ekki farið hátt þó svo Cole sé nýbúinn að vinna að tónlist með 50 cent.

Ivanovic frá í mánuð

Það gengur allt á afturfótunum hjá Chelsea þessa dagana og enn ein slæmu tíðindin bárust í dag. Varnarmaðurinn Branislav Ivanovic verður frá í mánuð vegna meiðsla.

Sandro á leið til Spurs

Brasilíska félagið Internacional heldur því að fram að félagið sé búið að nú samkomulagi við Tottenham um að enska félagið kaupi Sandro frá félaginu.

Cole ekki búinn að fá tilboð frá Chelsea

Chelsea er ekki enn búið að gera Joe Cole nýtt samningstilboð þó svo núverandi samningur hans renni út í sumar. Leikmaðurinn vonast þó enn til þess að ganga frá nýjum samningi áður en tímabilinu lýkur.

Valskonur skelltu Blikum á Hlíðarenda í gær - myndasyrpa

Kvennalið Vals og Breiðabliks áttust við í Lengjubikar kvenna á gervigrasvellinum á Hlíðarenda í gær. Valur vann leikinn 5-0 með mörkum frá Kristínu Ýr Bjarnadóttur (2 mörk), Hallberu Guðnýju Gísladóttur, Dóru Maríu Lárusdóttur og Rakel Logadóttur.

Pedro hjá Barcelona: Lionel Messi er betri en Diego Maradona

Pedro Rodriguez, liðsfélagi Lionel Messi hjá Barcelona, sparar ekki hrósið á Argentínumanninn eftir átta mörk hans á síðustu átta dögum. Pedro Rodriguez talaði um félaga sinn í viðtalið við spænska blaðið Marca.

Kristín Ýr með tvö í 5-0 sigri Vals á Blikum

Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði tvö mörk fyrir Val þegar liðið vann 5-0 sigur á Breiðabliki á gervigrasvellinum að Hlíðarenda í kvöld en leikurinn var í A-deild Lengjubikarsins.

Sjá næstu 50 fréttir