Fleiri fréttir

Zaki verður seldur hæstbjóðanda

Framherjinn Amr Zaki sem spilar sem lánsmaður hjá Wigan í ensku úrvalsdeildinni, verður seldur til hæstbjóðanda þegar samningur hans við Wigan rennur út.

Drogba til rannsóknar vegna peningakasts

Didier Drogba, leikmaður Chelsea, gæti átt yfir höfuð sér kæru frá enska knattspyrnusambandinu eftir atvik sem átti sér stað í leik liðsins gegn Burnley í deildarbikarnum í gær.

Maradona hótar að hætta

Diego Maradona hefur hótað að segja af sér sem landsliðsþjálfari Argentínu ef knattspyrnusambandið í landinu hætti ekki að skipta sér af störfum hans.

Pétur Markan til Vals

Pétur Georg Markan gengur í dag til liðs við Val en þetta staðfesti hann í samtali við Vísi.

Meiðsli Gomes ekki alvarleg

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segir að meiðslin sem Heurelho Gomes markvörður varð fyrir í kvöld séu ekki alvarleg.

Burnley sló út Chelsea

Burnley gerði sér lítið fyrir í kvöld og sló út Chelsea á Stamford Bridge er liðin mættust í ensku deildarbikarkeppninni í kvöld.

Hearts með annan sigur

Hearts vann í kvöld sinn annan sigur í röð í skosku úrvalsdeildinni er liðið vann 1-0 sigur á Hamilton.

Messi tryggði Barcelona sigur

Barcelona vann í kvöld 1-0 sigur á Benidorm í síðari viðureign liðanna í 32-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar. Fyrri leik liðanna lauk einnig með 1-0 sigri Börsunga sem eru komnir áfram í 16-liða úrslitin.

Tottenham fór illa með Liverpool

Tottenham vann í kvöld 4-2 sigur á Liverpool í ensku deildarbikarkeppninni í knattspyrnu. Alls fóru þrír leikir fram í keppninni í kvöld.

Capello vill taka þátt í Ólympíuleikum

Fabio Capello segir að það sé draumur sinn að taka þátt í Ólympíuleikum en samningur hans við enska knattspyrnusambandið rennur út skömmu áður en leikarnir hefjast í Lundúnum árið 2012.

Álasund hélt úrvalsdeildarsætinu

Haraldur Freyr Guðmundsson og félagar í Álasundi héldu í dag sæti sínu í norsku úrvalsdeildinni eftir að hafa unnið Sogndal í umspili um laust sæti í deildinni.

Eiður í byrjunarliði Barcelona

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem mætir Benidorm í 32-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar á heimavelli í kvöld.

Emil skorar alltaf á æfingum

Þjálfari Reggina, Nevio Orlandi, vildi ekki skella skuldinni á Emil Hallfreðsson eftir að liðið tapaði fyrir Udinese í ítölsku bikarkeppninni í dag.

Hughes nýtur stuðnings eiganda City

Eigandi Manchester City segir að Mark Hughes knattspyrnustjóri njóti hans fyllsta stuðnings en Hughes fundaði með stjórn félagsins í Abu Dhabi í dag.

Emil misnotaði tvær vítaspyrnur

Emil Hallfreðsson fór heldur illa að ráði sínu er Reggina mætti Udinese á útivelli í 16-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í dag.

Liverpool er í hefndarhug

Miðjumaðurinn Tom Huddlestone hjá Tottenham gerir fastlega ráð fyrir að Liverpool verði í miklum hefndarhug í kvöld þegar það sækir Tottenham heim í enska deildabikarnum.

Wenger er bjartsýnn fyrir hönd Rosicky

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segist vonast til að miðjumaðurinn Tomas Rosicky verði búinn að ná sér eftir nýjustu aðgerðina sína eftir 6-8 vikur.

Vandræði í varnarleik Real

Bernd Schuster þjálfari Real Madrid segist engin svör hafa við lélegum varnarleik liðsins í undanförnum leikjum. Real var slegið út úr Konungsbikarnum í vikunni þegar það gerði jafntefli við smáliðið Real Union.

Guð sér um Lucio

Brasilíski varnarmaðurinn Lucio hjá Bayern Munchen segir framtíð sína hjá félaginu eftir yfirstandandi tímabil alfarið í höndum Guðs.

Gullit: Þeir voru harðari í gamla daga

Hollenska knattspyrnugoðsögnin Ruud Gullit segir að nútíma knattspyrnumenn séu ekki eins harðir af sér eins og kynslóðin sem hann spilaði með á sínum tíma.

Íslenska landsliðið upp um 21 sæti á lista FIFA

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur hækkað um 21 sæti á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins sem birtur var í morgun. Íslenska liðið er nú í 82. sæti listans, en Spánverjar eru í því efsta sem fyrr.

Óttast að kreppan bíti Liverpool í janúar

Keith Harris, maðurinn sem tekið hefur þátt í að semja um yfirtöku á fimm félögum í ensku úrvalsdeildinni, segist óttast hið versta fyrir hönd Liverpool á næstu mánuðum.

Stutt í samningaviðræður hjá Ronaldo

Umboðsmaður Cristiano Ronaldo hjá Manchester United staðfesti í samtali við Sky í dag að fyrirhugaðar væru viðræður við forráðamenn félagsins um framlengingu á samningi leikmannsins.

Virðingarleysi hjá Wenger

Ray Wilkins, þjálfari hjá Chelsea, segir það virðingarleysi hjá Arsene Wenger að tefla fram unglingum sínum í enska deildarbikarnum.

Vona að Benitez hvíli 10 menn

Harry Redknapp stjóri Tottenham segist vona að kollegi hans Rafa Benitez hjá Liverpool tefli fram veikara liði í viðureign liðanna í deildabikarnum í kvöld en hann gerði í deildarleik liðanna á White Hart Lane í deildinni á dögunum.

Heiðar Helguson á leið til QPR

Landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson sem leikur með Bolton í ensku úrvalsdeildinni er á leið til QPR í Championship deildinni. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Enginn kjúklingaskítur hjá Arsenal

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur haft þann vana á að tefla fram ansi ungu liði í deildabikarnum. Hann hélt sama hætti gegn Wigan og vann öruggan 3-0 sigur sem vel hefði getað verið stærri.

Real Madrid féll úr bikarnum gegn liði í 3. deild

Real Union, sem leikur í 3. deild spænska boltans, náði í kvöld því afreki að slá stórlið Real Madrid út úr Konungsbikarnum. Tvær viðureignir þessara liða enduðu samtals með jafntefli 6-6 en Real Union fer áfram á fleiri mörkum á útivelli.

Guðbjörg fer til Djurgården

Markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir hefur samið við sænska stórliðið Djurgården en þetta var tilkynnt í kvöld. Hún mun formlega skrifa undir samninginn á næstu dögum.

Arsenal og Man Utd áfram í deildabikarnum

Arsenal og Manchester United komust bæði áfram í enska deildabikarnum í kvöld. Arsenal vann öruggan 3-0 sigur á Wigan á meðan Manchester United vann QPR 1-0 á Old Trafford.

Elano þreyttur á að vera í kuldanum

Brasilíski miðjumaðurinn Elano er þreyttur á því hve fá tækifæri hann fær hjá Manchester City eftir að Mark Hughes tók við liðinu. Elano lék lykilhlutverk undir stjórn Sven Göran Eriksson á síðasta tímabili.

Henry vill ekki fara frá Barcelona

Thierry Henry blæs á þær sögusagnir sem orða hann við endurkomu í enska boltann. Hann segist vilja vera áfram hjá Barcelona og hjálpa liðinu að vinna spænska meistaratitilinn.

Gerrard og Keane í fríi á morgun

Rafa Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, ætlar að hvíla þá Steven Gerrard og Robbie Keane þegar liðið mætir Tottenham í enska deildabikarnum á miðvikudagskvöld.

Hargreaves frá út tímabilið

Owen Hargreaves, miðjumaður Manchester United, mun ekki spila meira á þessu tímabili vegna stöðugra meiðsla á hné. Hann fór í aðgerð í síðustu viku og nú er ljóst að hann þarf að gangast undir frekari aðgerðir.

Juventus fylgist með Joaquin

Joaquin, vængmaður Valencia, segist virkilega stoltur af áhuga Juventus á sér. Alessio Secco, yfirmaður íþróttamála, var staddur á Spáni á dögunum til að fylgjast með Joaquin.

Leikmannasamtökin mótmæla hertu lyfjaeftirliti

PFA, samtök atvinnuknattspyrnumanna, hafa mótmælt hugmyndum um hert lyfjaeftirlit. Lyfjaeftirlitið stefnir að því að taka nýjar reglur í gagnið um áramótin og á þá að vera hægt að lyfjaprófa leikmenn hvenær sem er, jafnvel innan veggja heimilis þeirra.

Hughes á leið til Abu Dhabi

Mark Hughes, knattspyrnustjóri Manchester City, er nú að ferðast til Abu Dhabi til fundar við sjeik Mansour Bin Zayed Al Nahyan, eiganda félagsins. Umræður hafa verið um framtíð Hughes í starfi.

Suður-Afríkumennirnir neita áhuga

Suður-Afríska fjárfestingafyrirtækið Central Rand Gold hefur neitað þeim fréttum að það hafi áhuga á að kaupa enska félagið Portsmouth.

Hert lyfjaeftirlit í úrvalsdeildinni

Til stendur að herða lyfjaeftirlit til muna í ensku úrvalsdeildinni frá og með næsta ári þegar hópur leikmanna í deildinni mun gangast undir ströng próf með óreglulegu millibili.

Metgod aðstoðar Adams hjá Portsmouth

Johnny Metgod, fyrrum varnarmaður Real Madrid, hefur sagt upp stöðu sinni sem þjálfari hjá hollenska liðinu Feyenoord til að taka við stöðu þjálfara hjá Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni.

Kristinn dæmir í Meistaradeildinni

Knattspyrnudómarinn Kristinn Jakobsson mun í fyrsta sinn dæma leik í fimmtu umferð Meistaradeildar Evrópu síðar í þessum mánuði. Þetta kom fram í íþróttaþættinum Skjálfanda á X-inu 977 í hádeginu.

Ólafur tilkynnir hóp sinn fyrir Möltuleikinn

Einn nýliði er í landsliðshópi Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjáflara fyrir æfingaleikinn gegn Möltu ytra þann 19. þessa mánaðar. Garðar Jóhannsson frá Fredrikstad í Noregi kemur inn í hópinn í fyrsta sinn.

Sjá næstu 50 fréttir