Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Torres tryggði Chelsea Asíubikarinn Chelsea sigraði Aston Villa 2-0 í úrslitum Asíubikarsins í dag þar sem Fernando Torres tryggði sigurinn með marki skömmu eftir að hafa komið inná sem varamaður. 30.7.2011 15:41
Eriksson telur að Mourinho sé rétti maðurinn fyrir England Svíinn Sven Göran Eriksson, sem var þjálfari enska landsliðsins í fótbolta, telur að Portúgalinn Jose Mourinho ætti að sækjast eftir því að komast í það starf. Eriksson telur að Mourinho sé rétti maðurinn fyrir England en Ítalinn Fabio Capello er þjálfari liðsins. 30.7.2011 15:30
Andrés Már komin til Haugesund Norska úrvalsdeildarfélagið Haugesund hefur staðfest að Andrés Már Jóhannesson sé orðinn leikmaður félagsins. 30.7.2011 15:09
Vettel sló Hamilton við í tímatökunni Sebastian Vettel náði besta tíma í tímatökum fyrir ungverska Formúlu 1 kappaksturinn sem fer fram á morgun. Hann var 0.162 úr sekúndu fljótari en Lewis Hamilton á McLaren í tímatökunni á Hungaroring brautinni, en Jenson Button var þriðji fljótastur. 30.7.2011 13:45
Guðmundur samdi við ÍBV til tveggja ára Guðmundur Þórarinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV en hann gekk í raðir úrvalsdeildarliðsins fyrir þetta keppnistímabil í Pepsideildinni í fótbolta. Guðmundur er frá Selfossi og er bróðir Ingólfs sem oftast er kenndur við Veðurguðina. 30.7.2011 13:30
Fer Tevez til Inter í skiptum fyrir Eto‘o? Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Manchester City og Inter frá Ítalíu eru í viðræðum um leikmannaskipti samkvæmt heimildum breska dagblaðsins Telegraph. Viðræðurnar snúast um að Argentínumaðurinn Carlos Tevez fari til Inter í skiptum fyrir Samuel Eto‘o, landsliðsframherjann frá Kamerún 30.7.2011 12:30
Steven Gerrard missir af upphafi keppnistímabilsins Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, mun missa af upphafi keppnistímabilsins í ensku úrvalsdeildinni vegna sýkingar í nára. Gerrard, sem er 31 árs gamall, er á sýklalyfjum og dvelur á sjúkrahúsi og er búist við að hann verði þar í nokkra daga. 30.7.2011 11:45
Aston Villa keypti N'Zogbia fyrir um 2 milljarða kr. Enska úrvalsdeildarliðið Aston Villa virðast hafa tröllatrú á miðjumanninum Charles N'Zogbia því hann skrifaði undir fimm ára samning við liðið í gær en hann var áður í herbúðum Wigan. N'Zogbia er 25 ára gamall franskur landsliðsmaður. Hann segir í viðtali á heimasíðu félagsins að hann hafi tekið stórt skref á ferlinum þar sem að Aston Villa sé stórt félag sem ætli sér stóra hluti á næstu árum. 30.7.2011 11:30
Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á slá boltann í sveig frá vinstri til hægri? Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur, er með mörg högg í "pokahorninu“ og í þessu atriði sýnir hann hvernig hann ber sig að þegar hann slær boltann í sveig frá vinstri til hægri. Þetta boltaflug er oftast kallað "feid“ eða "slæs“ á meðal kylfinga. 30.7.2011 11:00
Næturvinna skilaði Vettel besta tíma Tæknimenn Red Bull unnu næturlangt í bíl Sebastian Vettel eftir að hann var ósáttur með gang mála á æfingum í gær. Sú vinna virðist hafa skilað sér á Hungaroring brautinni í Ungverjalandi dag því Vettel náði besta tíma á lokaæfingunni fyrir tímatökuna. 30.7.2011 10:19
Veigar Páll fer til Vålerenga eftir allt saman Norskir fjölmiðlar telja sig hafa sterkar heimildir fyrir því að Veigar Páll Gunnarsson sé á förum til Vålerenga í Osló en hann virtist vera búinn að semja við Noregsmeistaralið Rosenborg í Þrándheimi fyrir nokkrum dögum. Veigar er ein verðmætasta söluvara Stabæk sem er í miklum fjárhagsörðugleikum. 30.7.2011 10:15
WBA fær Foster að láni frá Birmingham Ben Foster fær tækifæri til þess að leika í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð þrátt fyrir að hafa upplifað fall með Birmingham í lokaumferðinn s.l. vor. Markvörðurinn verður lánaður til grannaliðsins WBA sem einnig er staðsett í Birmingham og er lánssamningurinn til eins árs. Birmingham fær Boaz Myhill í staðinn frá WBA. 30.7.2011 10:00
Aron Einar: Byrjaður að vaxa mosi á mér á hótelinu Aron Einar Gunnarsson leikmaður Cardiff tekur ekki þátt í æfingaleik Cardiff gegn Parma á Þúsaldarvellinum í Cardiff á morgun. Malky Mackay knattspyrnustjóri Cardiff vill hvíla Aron sem fékk lítið sumarfrí vegna anna með landsliðum Íslands. 30.7.2011 09:00
Ólíkir draumariðlar hjá Gunnleifi og Aroni Dregið verður í riðla í undankeppni HM 2014 í Brasilíu í kvöld. Draumar landsliðsmannanna Arons Einars Gunnarssonar og Gunnleifs Gunnleifssonar eiga fátt sameiginlegt nema þegar kemur að frændum okkar Færeyingum. 30.7.2011 08:00
Átta ára fótboltagutti með snilldartakta - nýr Messi? Tomy Angel, átta ára gamall fótboltastrákur í Los Angeles í Bandaríkjunum, hefur vakið athygli á undanförnum mánuðum fyrir færni sína og hæfileika. Máltækið; sjaldan fellur eplið langt frá eikinni á vel við við um Tomy því faðir hans er Kólumbíumaðurinn Juan Pablo Angel, fyrrum framherji enska úrvalsdeildarliðsins Aston Villa. 29.7.2011 23:30
Kobe vill fá milljón dollara á mánuði fyrir að spila í Tyrklandi Kobe Bryant hefur verið í viðræðum við tyrkneska liðið Besiktas um að spila þar á meðan NBA-deildinni er í verkfalli en hann vill fá enga smáaura fyrir. Bryant vill fá milljón dollara á mánuði í laun samkvæmt tyrkneskum fjölmiðlum sem eru um 115 milljónir íslenska króna. 29.7.2011 22:45
Enn óvissa með Jósef Kristin - FIFA komið í málið Lítið gengur í deilum Grindvíkingsins Jósefs Kristins Jósefssonar við búlgarska félagið PSFC Chernomorets Burgas. Jósef, sem æft hefur með Grindvíkingum undanfarnar vikur, hefur enn ekki fengið laun greidd frá félaginu sem ennfremur neitar honum um félagaskipti. 29.7.2011 22:00
Wenger gæti róað stuðningsmenn með kaupum á Jagielka og Mata Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur staðið í ströngu í sumar við að reyna að halda sínum bestu leikmönnum, Cesc Fábregas og Samir Nasri, hjá félaginu. Nú lítur út fyrir það að Wenger ætli loksins að fara reyna að styrkja leikmannahópinn fyrir alvöru með því að kaupa tvo sterka leikmenn til félagsins. 29.7.2011 21:15
Villa-Boas vill yngja upp - segir leikmannahóp Chelsea gamlan Knattspyrnustjóri Chelsea, Portúgalinn Andre Villas-Boas, segir að leikmannahópur félagsins sé gamall. Það sé ástæða þess að hann horfi til yngri leikmanna enda vilji hann byggja lið til framtíðar. 29.7.2011 20:30
Enn einn Skotinn til Grindavíkur - ekki séð hann spila Skoski miðjumaðurinn Derek Young hefur gengið til liðs við Grindavík. Þorsteinn Gunnarsson formaður knattspyrnudeildar segir að Grindvíkingar renni að vissu leyti blint í sjóinn hvað Young varðar. Robbie Winters, framherji þeirra, gefi honum þó topp meðmæli. 29.7.2011 19:45
Owen Coyle nær í hægri bakvörð til Bolton - staða Grétars í hættu? Owen Coyle, stjóri Bolton, er búinn að kaupa tvo leikmenn frá Burnley, þá Chris Eagles og Tyrone Mears, sem báðir spiluðu undir stjórn Coyle þegar hann réði ríkjum hjá Burnley. 29.7.2011 19:00
Diaby missir af fyrstu leikjum Arsenal á tímabilinu Abou Diaby, miðjumaður Arsenal, þurfti að fara í aðgerð á ökkla og mun af þeim sökum missa af byrjuninni á tímabilinu. Diaby missir af þremur deildarleikjum og tveimur leikjum í forkeppni Meistaradeildarinnar. 29.7.2011 18:15
Pétur Markan lánaður til BÍ/Bolungarvíkur Knattspyrnumaðurinn Pétur Georg Markan hefur verið lánaður til BÍ/Bolungarvíkur frá Víkingi. Pétur Georg er kominn vestur og mun mæta á sína fyrstu æfingu klukkan 10 í fyrramálið á Ísafirði. 29.7.2011 17:36
Jurgen Klinsmann ráðinn þjálfari bandaríska landsliðsins Þjóðverjinn Jurgen Klinsmann var í dag ráðinn þjálfari bandaríska landsliðsins í fótbolta og mun taka við stöðu Bob Bradley sem var rekinn í gær. Klinsmann hefur verið orðaður við bandaríska landsliðið frá árinu 2006 en skrifaði undir samning í dag. 29.7.2011 17:30
9 kg lax úr Eystri Rangá í morgun Eystri Rangá var í 59 löxum í gærdag og hefur náð að hreinsa sig síðan í byrjun vikunar. Í morgun var búið að skrá 25 laxa í bók og veiðimenn en eftir að skila sér niðri veiðihús. Það má einnig bæta við að 9kg lax veiddist í morgun og er það stærsti lax sumarsins hingað til í Eystri en við fáum því miður ekki mynd af drekanum fyrr en í kvöld eða á morgun. 29.7.2011 16:47
Domenech fær milljón evrur frá franska sambandinu Raymond Domenech, fyrrum þjálfari franska landsliðsins, og franska knattspyrnusambandið hafa sæst á það að leysa skaðabótamál Domenech, utan réttarsalsins. 29.7.2011 16:45
Haukur Ingi til Grindavíkur - vantar karaktera í liðið Knattspyrnumaðurinn Haukur Ingi Guðnason er genginn til liðs við Grindavík. Þorsteinn Gunnarsson formaður knattspyrnudeildar segir vanta karaktera í Grindavíkurliðið og vonar að Haukur geti ekki síður styrkt liðið á því sviði. 29.7.2011 16:15
Heiðar fær samkeppni - QPR að kaupa DJ Campbell frá Blackpool Heiðar Helguson fær meiri samkeppni í framlínu Queens Park Rangers á komandi tímabili því Neil Warnock, stjóri QPR, er við það að kaupa DJ Campbell frá Blackpool. Blackpool er búið að samþykkja tilboð QPR sem er líklega í kringum 1.25 milljónir punda. 29.7.2011 15:45
Sam Hewson skrifar undir tveggja ára samning við Fram Framarar hafa gengið frá samningi við Sam Hewson fyrrum fyrirliða varaliðs Manchester United. Hewson hefur æft með Safamýrarpiltum að undanförnu og hefur þótt standa sig vel. 29.7.2011 15:15
Samningur við Ágúst í höfn - verður með stelpurnar til 2013 Ágúst Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta til ársins 2013 en Handknattleikssamband Íslands hefur á undanförnum vikum verið í samningaviðræðum við Ágúst Jóhannsson um áframhaldandi samstarf er varðar þjálfun kvennalandsliðs Íslands. 29.7.2011 14:45
Semjum aldrei aftur við Íslendinga Forráðamenn sænska knattspyrnufélagsins Jitex eru allt annað en sáttir við markvörðinn Söndru Sigurðardóttur. Varaformaður félagsins hefur lokað dyrunum á íslenskt knattspyrnufólk og segir að brennt barn forðist eldinn og á þar við sænska félagið. 29.7.2011 14:30
Góðir kostir í veiðileyfum um helgina Núna þegar veðurspá helgarinnar liggur fyrir fara margir að hugsa um hvert þeir eigi að fara og veiða. Það eru margir spennandi kostir í boði og það þarf ekki að kosta mikið. Við tókum saman nokkra veiðileyfasala og skoðunum hvaða spennandi kostir eru í boði um helgina, og þá sér í lagi það sem kostar ekki mikið 29.7.2011 14:28
Klaus Frimor bætir við flugukastnámskeiðum Klaus Frimor bætir við nokkrum flugukastnámskeiðum á Rauðavatni í ágúst. Það komust færri að en vildu á námskeiðin í vor og nú bætir hann við einhendunámskeiðum 18 og 20 ágúst og tvíhendunámskeiði 19 ágúst. 29.7.2011 14:23
Pétur Georg hættur hjá Víkingum - spilar hugsanlega með BÍ/Bolungarvík Knattspyrnumaðurinn Pétur Georg Markan hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Víking í bili. Pétur hefur tekið við kennslustöðu við grunnskólann í Súðavík og komist að samkomulagi við knattspyrnudeild Víkings um að hann spili ekki meira fyrir Fossvogsliðið í sumar. 29.7.2011 13:49
Fimm ökumenn í þéttum hóp, en Hamilton enn sneggstur Hamilton endurtók leikinn frá fyrri æfingunni á seinni æfingu Formúlu 1 liða í Ungverjalandi í dag. Hann náði besta tíma á McLaren rétt eins og á fyrri æfingunni í morgun. Fernando Alonso varð í öðru sæti á Ferrari og var 0.241 úr sekúndu á eftir Hamilton. 29.7.2011 13:45
Alejandro Sabella tekur við Messi og félögum Alejandro Sabella tekur við þjálfun landslið Argentínu en Sergio Batista var rekinn eftir að liðið náði sér ekki á strik í Copa America. José Luis Meiszner formaður knattspyrnusambands Argentínu hefur staðfest við fjölmiðla þar í landi að Sabella verði næsti þjálfari liðsins. 29.7.2011 13:30
Knattspyrnusamband Malasíu biðst afsökunar en þó með fyrirvara Knattspyrnusamband Malasíu hefur beðið enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea afsökunar eftir að hrópað var að Ísraelsmanninum Yossi Benayoun í vináttuleik í síðustu viku. Leikurinn fór fram á þjóðarleikvanginum í Kuala Lumpur í Malasíu og voru forsvarsmenn Chelsea ósáttir við hegðun heimamanna. 29.7.2011 13:00
Vettel: Afsaknir eru tilgangslausar Sebastian Vettel hjá Red Bull telur að lið sitt verði að svara velgengni McLaren og Ferrari í síðustu mótum með góðum árangri um helgina. Fernando Alonso vann á dögunum á Silverstone brautinni í Bretlandi og Lewis Hamilton á McLaren kom fyrstur í mark á Nürburgring brautinni í Þýskalandi á sunnudaginn. 29.7.2011 12:31
Lögfræðingur vill Pato á bak við lás og slá Brasilíski fótboltamaðurinn Pato, sem hefur leikið með AC Milan á Ítalíu undanfarin misseri, stendur í ströngu utan vallar. Lögfræðingur fyrrum eiginkonu hans hefur nú farið fram á að Pato verði dæmdur í fangelsi. 29.7.2011 12:30
Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á að undirbúa sig fyrir höggið? Birgir Leifur Hafþórsson segir hér frá því hvernig hann skiptir undirbúningnum fyrir hvert högg í tvo þætti. Atvinnukylfingurinn útskýrir hugtökin "play box“ og "think box“ en Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari er með Birgi í þessu innslagi úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. 29.7.2011 12:00
Fylkir og Haugesund í viðræðum um Andrés Má Fylkismaðurinn Andrés Már Jóhannesson gæti verið á förum til norska knattspyrnufélagsins Haugesund. Norska félagið hefur gert tilboð í miðjumanninn og viðræður standa yfir milli félaganna. Kjartan Daníelsson formaður knattspyrnudeildar Fylkis staðfesti þetta við Vísi í dag. 29.7.2011 11:07
ÍBV og Örebro komast að samkomulagi um kaupverð á Eiði Aroni ÍBV og sænska knattspyrnufélagið Örebro hafa komist að samkomulagi um kaupverðið á varnarmanninum Eiði Aroni Sigurbjörnssyni. ÍBV hafnaði tveimur tilboðum frá sænska liðinu og sendu Örebro gagntilboð sem Svíarnir samþykktu. Rúv greindi frá þessu í gærkvöldi. 29.7.2011 10:45
Hamilton fljótastur í Ungverjalandi Sigurvegari síðustu Formúlu 1 keppni, Lewis Hamilton á McLaren var fljótastur á fyrstu æfingu keppnisliða á Hungaroring brautinni í Ungverjalandi í morgun. Hann var 0.204 úr sekúndu sneggri um brautina en meistarinn Sebastian Vettel á Red Bull, en Fernando Alsono á Ferrari varð þriðji. 29.7.2011 10:27
Fréttir frá veiðisvæðunum í Borgarfirði Holl sem lauk veiðum á aðalsvæði Hítarár þann 27/7 hjó nærri veiðimeti árinnar því 81 lax veiddist í hollinu. Mjög góður gangur er í ánum á Vesturlandi. 29.7.2011 10:03
Tiger Woods mætir til leiks á ný eftir 3 mánaða hvíld Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods tilkynnti í gær að hann ætlaði sér að vera með á Bridgestone meistaramótinu sem hefst á fimmtudaginn í næstu viku. Woods hefur ekkert keppt í golfi undanfarnar 11 vikur vegna meiðsla í hné og hásin. Á þessum tíma hefur hann misst af tveimur stórmótum, opna bandaríska meistaramótinu og opna breska. 29.7.2011 10:00