Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hiddink vill fá Sneijder til Chelsea Guus Hiddink hefur enn ekki verið ráðinn sem knattspyrnustjóri Chelsea en flest bendir til þess að hann taki við liðinu. Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Hiddink hafi nú þegar óskað eftir því að forráðamenn Chelsea reyni að fá hollenska landsliðsmanninn Wesley Sneijder frá Inter á Ítalíu. Er talið að Chelsea sé tilbúið að greiða um 30 milljónir punda fyrir Sneijder – eða um 5,6 milljarða kr. 7.6.2011 13:30
NBA: Chris Bosh er klár í slaginn gegn Dallas í kvöld Chris Bosh leikmaður Miami Heat er klár í slaginn í kvöld þegar fjórði leikurinn í úrslitum NBA deildarinnar fer fram en Miami er 2-1 yfir gegn Dallas Mavericks. Bosh meiddist í þriðja leiknum þegar hann fékk putta í vinstra augað en hann kláraði samt leikinn og skoraði hann mikilvæga körfu undir lok leiksins sem reyndist vera sigurkarfan í 88-86 sigri liðsins. 7.6.2011 13:00
Íslandsvinurinn Jon Dahl Tomasson leggur skóna á hilluna Hollenskir fjölmiðlar greina frá því að sanski landsliðsframherjinn Jon Dahl Tomasson hafi lagt fótboltaskóna á hilluna og mun Tomasson greina frá ákvörðun sinni á fundi með fréttamönnum í dag. Tomasson á ættir að rekja til Íslands en hann er 34 ára gamall og hefur ekkert leikið með Feyenoord í Hollandi á þessu tímabili vegna meiðsla. 7.6.2011 12:30
Þórir samdi við pólska stórliðið Kielce Þórir Ólafsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur gert tveggja ára samning við Pólska stórliðið Kielce. Þórir sem leikið hefur með þýska 1.deildarliðinu Lübbecke síðastliðin ár er fyrsti Íslendingurinn sem semur við Kielce. 7.6.2011 12:00
Jackson mun þjálfa Golden State Golden State Warriors hefur ráðið Mark Jackson sem þjálfara NBA liðsins en hann hefur aldrei þjálfað NBA lið áður. Jackson lék í 17 ár sem leikstjórnandi í deildinni með New York, Clippers, Indiana, Denver, Toronto, Utah og Houston. Á undanförnum árum hefur hann starfað sem körfubolta sérfræðingur í sjónvarpi. Jackson er þriðji á lista yfir stoðsendingahæstu leikmenn NBA deildarinnar frá upphafi en hann var valinn nýliði ársins vorið 1988. 7.6.2011 11:45
Dunká komin til SVFR Tilboð voru opnuð fyrir fáum dögum í tilboð í Dunká. Alls bárust tilboð frá um 10 aðilum í Dunká sem er tveggja stanga perla þar sem veiðimenn sjá um sig sjálfur en mikil eftirspurn hefur verið eftir leyfum í ár þar sem ekki er skylda á fæði og gistingu. 7.6.2011 11:27
Ashley Young líklega á leiðinni til Man Utd Ashley Young leikmaður Aston Villa mun að öllum líkindum ganga í raðir enska meistaraliðsins Manchester United í sumar. Samkvæmt frétt DailyMail er Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Man Utd tilbúinn að borga 20 milljónir punda fyrir enska landsliðsmanninn eða sem nemur um 3,7 milljarða kr. 7.6.2011 10:15
Zlatan Ibrahimovich með enn eitt gullkornið Zlatan Ibrahimovich, þarf ekki að berja í sig sjálfstraust á hverjum einasta degi, því hann fullyrðir að hann sé besti fótboltamaður heims. Nýjasta útspil sænska landsliðsframherjans hefur vakið mikla athygli og flestir fótboltasérfræðingar hafa einfaldlega hlegið þegar þeir hafa heyrt af þessari skoðun framherjans. 7.6.2011 09:30
Martin Jol tekur við Fulham Enska úrvalsdeildarliðið Fulham sem Eiður Smári Guðjohnsen lék með á síðustu leiktíð hefur ráðið Hollendinginn Martin Jol sem knattspyrnustjóra og tekur hann við af Mark Hughes. Jol gerir tveggja ára samning við Fulham en hann þekkir ensku úrvalsdeildina vel eftir að hafa verið knattspyrnustjóri hjá Tottenham. Jol, sem er 55 ára gamall, gerir tveggja ára samning við félagið. 7.6.2011 09:00
Fylkismenn fögnuðu í Fossvoginum - myndir Fylkismenn menn fara í EM-fríið með tvo sigra í röð á bakinu eftir að þeir unnu 3-1 sigur á Víkingum í Víkinni í gærkvöldi. Fylkir verður því í hópi efstu liða deildarinnar þegar mótið hefst á nýjan leik í lok mánaðarins. 7.6.2011 08:30
Fyrsti sigur Stjörnumanna á teppinu í sumar - myndir Mörk frá Garðari Jóhannssyni og Halldóri Orra Björnssyni með tveggja mínútna millibili í fyrri hálfleik tryggðu Stjörnumönnum 2-1 sigur á Grindavík á teppinu í Garðabænum í gær. 7.6.2011 08:00
Miðstöð Boltavaktarinnar - allt á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Pepsi-deild karla samtímis. 7.6.2011 18:15
Ólafur: Flottur leikur Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis var ákaflega ánægður og stoltur af sínu liðið eftir glæsilegan 3-1 sigur á Víkingum í kvöld á Víkingsvellinum. 6.6.2011 22:46
Jóhann Helgason: Menn stressaðir á boltann Jóhann Helgason var besti leikmaður Grindavíkur í 2-1 tapi gegn Stjörnunni í kvöld. Þrátt fyrir að hafa verið með vindinn í bakið allan síðari hálfleikinn í leit að marki tókst Grindvíkingum ekki að skapa sér nógu góð færi. 6.6.2011 22:45
Andri: Mætum af krafti eftir frí Andri Marteinsson þjálfari Víkings var ekki í neinum vafa um það hver vendipunkturinn í tapinu gegn Fylki í kvöld var. Það var glæsimark Baldurs Bett aðeins mínútu eftir að Víkingar höfðu jafnað metin í upphafi seinni hálfleiks. 6.6.2011 22:44
Daníel Laxdal: Kominn tími á þetta Daníel Laxdal fyrirliði Stjörnunnar fór fyrir sínum mönnum í Garðabænum í kvöld. Hann var sáttur með fyrsta sigurinn á heimavelli í sumar. 6.6.2011 22:35
Staða HK versnar enn eftir tap á Selfossi - markalaust í Ólafsvík Selfyssingar fögnuðu langþráðum heimasigri í kvöld þegar þeir unnu 4-2 sigur á HK í 5. umferð 1. deildar karla. Selfyssingar höfðu ekki fengið stig í fyrstu tveimur heimaleikjum sínum í sumar a móti Fjölni og ÍA en tryggðu sér mikilvægan sigur í kvöld. 6.6.2011 22:19
Stelpurnar unnu stærsta sigurinn í umspilinu Íslenska kvennalandsliðið vann stærsta sigurinn í öllum átta umspilsleikjunum sem fóru fram um helgina í undankeppni HM handbolta kvenna. Úrslitakeppnin fer fram í Brasilíu í desember næstkomandi og aðeins stórslys kemur í veg fyrir að íslenska liðið verði þar eftir 19 marka sigur á Úkraínu. Næststærsti sigurinn var 16 marka sigur Svartfellinga á Tékkum. 6.6.2011 20:30
Geir: Ólafur búinn að læra þessa hegðun af þeim stóru í útlöndum Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, var í viðtali við Ásgeir Erlendsson í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem hann fór yfir gengi íslenska karlalandsliðsins og stöðu Ólafs Jóhannessonar, landsliðsþjálfara. 6.6.2011 19:55
Íranska kvennalandsliðinu meinað að spila vegna keppnisbúnings Möguleikar íranska kvennalandsliðsins í knattspyrnu að spila á ólympíuleikunum í London að ári virðast að litlu orðnir. Gengi liðsins í undankeppninni hefur verið með ágætum en það er keppnisbúningur landsliðsins sem alþjóða knattspyrnusambandið FIFA sættir sig ekki við. 6.6.2011 19:45
Alfreð sektaður um rúmar 400 þúsund krónur og dæmdur í bann Alfreð Gíslason, þjálfari þýska liðsins Kiel, var dæmdur í eins leiks bann og til þess að greiða 2500 evrur í sekt af aganefnd evrópska sambandsins vegna ummæla sinna eftir leik Kiel og Barcelona í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar fyrr í vetur. Sektin nemur um 416 þúsund íslenskum krónum. 6.6.2011 19:15
Umfjöllun: Fylkir áfram á góðri siglingu Fylkir gerði góða ferð á Víkingsvöll í kvöld þar sem liðið lagði heimamenn í Víking sannfærandi 3-1. Fylkir var betra liðið nær allan leikinn og þegar Víkingar komu sér inn í hann með jöfnunarmarki svöruðu gestirnir jafnharðan í tvígang og gerðu út um leikinn. 6.6.2011 19:00
Ancelotti ætlar að læra af öðrum þjálfurum Carlo Ancelotti fyrrverandi þjálfari Chelsea ætlar að taka sér ársleyfi frá þjálfarastörfum. Hann ætlar að nota tímann til þess að heimsækja aðra knattspyrnuþjálfara. 6.6.2011 17:45
O'Hara til Wolves fyrir 5 milljónir punda Enski miðvallarleikmaðurinn Jamie O'Hara hefur gengið til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Wolves frá Tottenham. O'Hara skrifaði undir fjögurra ára samning við Wolves en hann var á láni hjá liðinu í vetur. Kaupverðið er fimm miljónir punda. 6.6.2011 17:15
Ung aflakló með stórfisk úr Þingvallavatni Hún Helga Kristín sendi okkur eftirfarandi veiðifrétt og mynd af ungum veiðimanni sem má klárlega kalla aflakló. 6.6.2011 17:00
Arna Sif skiptir um lið í dönsku deildinni Landsliðslínumaðurinn Arna Sif Pálsdóttir er búin að finna sér nýtt lið í dönsku úrvalsdeildinni en hún er búin að semja við Aalborg DH liðið eftir að hafa spilað með Team Esbjerg á síðasta tímabilið. 6.6.2011 16:30
Veiði að glæðast í Meðalfellsvatni Við fengum þær fréttir frá Einari Sigurðssyni sem var við veiðar á laugardaginn við Meðalfellsvatn að veiðin væri loksins að glæðast. Einar var við veiðar ásamt syni sínum og lönduðu þeir 12 fiskum fyrir hádegið en urðu lítið varir eftir hádegi. 6.6.2011 16:23
Lagt til að alfriða stórlax í veiðiánum sumarið 2011 Líkt og í fyrra, þá leggur Veiðimálastofnun til algjört bann við drápi á stórlaxi í sumar. Stangaveiðimenn og veiðifélög eru hvött til að fylgja þessum tillögum. Á heimasíðu stofnunarinnar segir; 6.6.2011 16:13
Jón Guðni spilar með Fram á morgun "Ég var með nokkur tilboð líka frá Norðurlöndunum en ekkert sem var að heilla mig. Að fara hingað er fínt næsta skref fyrir mig," sagði Jón Guðni Fjóluson sem í dag skrifaði undir samning við belgíska úrvalsdeildarfélagið Germinal Beerschot. 6.6.2011 16:01
Hiddink mun virða samning sinn við Tyrki Umboðsmaður Guus Hiddink, þjálfara tyrkneska landsliðsins í knattspyrnu, segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að þjálfarinn sé á leiðinni til Chelsea. Talsmaður tyrkneska knattspyrnusambandsins, Turker Tozar, er sama sinnis. 6.6.2011 15:52
Vettel nýtur þess að keppa í Montreal Sebastian Vettel hjá Red Bull hefur unnið fimm Formúlu 1 mót af sex á keppnistímabilinu og keppir í Montreal í Kanada um næstu helgi, ásamt liðsfélaga sínum Mark Webber. Vettel vann síðustu keppni, sem fór fram í Mónakó og Webber varð fjórði. 6.6.2011 15:28
Snæfellingar fá svaka frákastara að norðan Akureyringurinn Ólafur Halldór Torfason skrifaði í dag undir samnning við Snæfell og mun spila með liðinu í Iceland Express deild karla á næsta tímabili. Þetta kemur fram á heimasíðu Snæfells. 6.6.2011 15:15
Læknar ákveða hvort Perez fær að keppa Sergio Perez hjá Sauber Formúlu 1 liðinu keppti ekki í Mónakó á dögunum, eftir að hann hlaut heilahristing eftir óhapp í tímatökum. Læknar FIA, alþjóða bílasambandsins munu ákveða í vikunni eftir læknisskoðun hvort Perez fær leyfi til að keppa. Liðsfélagi Perez, Kamui Kobayashi varð í fimmta sæti í mótinu í Mónakó. 6.6.2011 14:41
Bayern vill kaupa Boateng Svo gæti farið að Jerome Boateng snúi aftur í þýska boltann eftir skamma viðveru í enska boltanum hjá Man. City. Forráðamenn FC Bayern eru bjartsýnir á að geta keypt leikmanninn þó svo City sé ekkert allt of æst í að selja. 6.6.2011 14:30
Hreinsunardagur framundan í Elliðaánum Hin árlega hreinsun Elliðaánna fer fram miðvikudaginn 8. júní, en það er Stangaveiðifélag Reykjavíkur sem stendur fyrir hreinsun ánna eins og mörg undanfarin ár. 6.6.2011 13:55
Jón Guðni búinn að semja við lið í Belgíu Framarar urðu fyrir miklu áfalli í dag þegar lykilmaður liðsins, Jón Guðni Fjóluson, skrifaði undir þriggja ára samning við belgíska félagið Germinal Beerschot. Samningurinn gildir frá og með 1. júlí næstkomandi. Jón Guðni mun væntanlega spila með Fram þar til hann fer út. 6.6.2011 13:55
5 laxar úr Norðurá fyrsta daginn Stjórn SVFR hóf veiðitímabilið 2011 með því að taka fyrstu köstin í Norðurá í gærmorgun. Kalt var í veðri en gott vatn í ánni og ágætis aðstæður. Bjarni Júlíusson formaður tók fyrstu köstin á Brotið og varð var við lax en náði ekki að setja í hann. Það var síðan Ásmundur Helgason sem landaði fyrsta laxinum á Stokkhylsbrotinu. Það var falleg 84 cm hrygna sem tók Glaða tvíburann. 6.6.2011 13:48
Button telur McLaren hafa slagkraftinn til að sigra í Kanada Lewis Hamilton hjá McLaren keppir í Formúlu 1 mótinu i Montreal í Kanada um næstu helgi, en Hamilton vann mótið í fyrra, en liðsfélagi hans Jenson Button varð annar. Hamilton vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 í Montreal og mótssvæðið er honum því kært. 6.6.2011 13:32
Umfjöllun: Fyrsti sigur Stjörnunnar í Garðabæ í sumar Stjörnumenn fögnuðu fyrsta heimasigri sínum í sumar þegar þeir unnu 2-1 sigur á Grindavík í 7. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Stjarnan er þar með komið með 11 stig en Stjörnumenn fóru upp í fjórða sætið með því að krækja í þessi þrjú stig. 6.6.2011 13:20
Emerton hugar að heimför Ástralinn Brett Emerton hefur ákveðið að enda feril sinn í heimalandinu. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Blackburn Rovers. Hinn 32 ára gamli Emerton er sterklega orðaður við FC Sydney. 6.6.2011 13:15
Young vill spila með þeim bestu Það er afar fátt sem bendir til þess að vængmaðurinn Ashley Young verði áfram í herbúðum Aston Villa á næstu leiktíð. Young sjálfur segist vilja spila með þeim bestu. 6.6.2011 12:45
Búið að reka þjálfara Pistons Hinn nýi eigandi Detroit Pistons, Tom Gores, var ekki lengi að láta til sín taka hjá félaginu því aðeins fjórum dögum eftir að hann eignaðist félagið var hann búinn að reka þjálfarann, John Kuester. 6.6.2011 12:00
Bjarki lék frábært golf á Hólmsvelli - Guðrún Brá er ósigrandi Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness sýndi frábær tilþrif á öðru stigamóti Golfsambands Íslands á Arion unglingamótaröðinni. Bjarki lék báða hringina á Hólmsvelli í Leiru á 68 höggum eða -4 og samtals var hann á 8 höggum undir pari. Hann sigraði með yfirburðum í keppni 17-18 ára en Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK sigraði í 17-18 ára flokki kvenna og er þetta annað mótið í röð sem hún vinnur á unglingamótaröðinni. Guðrún Brá sigraði einnig á fyrsta stigamótinu í Eimskipsmótaröðinni í fullorðinsflokki á Akranesi á dögunum. 6.6.2011 11:30
Allt annað að sjá Rooney eftir hárígræðsluna Það verður ekki annað sagt um Wayne Rooney en að hann taki á skallavandamálum sínum af auðmýkt. Rooney fór í hárígræðslumeðferð í síðustu viku og skammast sín ekkert fyrir það. 6.6.2011 11:07
Bendtner ætlar að yfirgefa Arsenal Danski framherjinn Nicklas Bendtner hefur staðfest að hann sé meira en tilbúinn að yfirgefa herbúðir Arsenal í sumar. 6.6.2011 10:45
Leik lokið: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum og Víkingar unnu fyrir norðan Íslenski boltinn