Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Carroll: Þetta var frábær dagur Andy Carroll opnaði markareikning sinn hjá Liverpool í kvöld er hann skoraði tvö mörk í góðum 3-0 sigri Liverpool á Man. City. 11.4.2011 23:15
Pavel: Þetta verður ekki svona auðvelt í næsta leik "Þeir eiga eftir að mæta dýrvitlausir í næsta leik,“ sagði Pavel Ermolinskij, leikstjórnandi KR-inga, eftir sigurinn í kvöld, en Bikarmeistararnir unnu fyrstu orrustuna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deild karla í körfubolta. 11.4.2011 22:20
Kjartan: Við vorum bara ekki tilbúnir „Við hreinlega mættum ekki til leiks,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, leikmaður Stjörnunnar, eftir að hafa tapað fyrir KR í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deild karla. 11.4.2011 22:09
Hrafn: Keyrðum yfir þá í síðari hálfleik „Ég bjóst ekki við svona stórum sigri en ég var alveg viss um það að við myndum vinna þennan leik,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir sigurinn í kvöld. KR vann Stjörnuna, 108-78, í DHL-höllinni, en þetta var fyrsti leikur liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. 11.4.2011 22:01
Umfjöllun: KR-ingar tóku Stjörnuna í kennslustund, 108-78 KR-ingar sýndu styrk sinn gegn Stjörnunni í fyrsta leiknum í úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik í kvöld. Stjarnan náði að hanga með KR-ingum í fyrri hálfleik en síðari hálfleik settu KR-ingar allt í gang og keyrðu hreinlega yfir lið Stjörnunnar. Lokatölur 108-78 og staðan er 1-0 fyrir KR en þrjá sigra þarf til þess að vinna þetta einvígi. Næsti leikur fer fram á fimmtudaginn á heimavelli Stjörnunnar. 11.4.2011 20:52
Nani svekktur yfir því að vera ekki tilnefndur sem besti leikmaðurinn Portúgalinn Nani viðurkennir að vera svekktur yfir því að hafa ekki verið tilnefndur sem besti leikmaður ársins af kollegum sínum. 11.4.2011 20:15
Keflavík í viðræðum við Sigurð Ingimundarson Körfuknattleiksdeild Keflavíkur stendur uppi þjálfaralaus í kjölfar þess að Guðjón Skúlason hætti með karlalið félagsins í dag. Áður hafði Jón Halldór Eðvaldsson hætt með kvennaliðið. 11.4.2011 19:30
Guðjón Valur gagnrýnir leikmannastefnu Löwen Guðjón Valur Sigurðsson fer hörðum orðum um leikmannastefnu Rhein-Neckar Löwen í þýskum fjölmiðlum í dag. 11.4.2011 18:45
Fannar spilar líklega ekki með KR í kvöld Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, verður væntanlega ekki með KR í kvöld gegn Stjörnunni er úrslitarimman um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik hefst. 11.4.2011 18:12
Danir gáfu sig og ætla að leyfa keppni á gervigrasi Danska knattspyrnusambandið ætlar að leggja fram tillögu þess efnis í vor að að leikir í efstu deild þar í landi geti farið fram á gervigrasi. Danir hafa rætt þetta mál mjög lengi án þess að komast að niðurstöðu. Allan Hansen forseti danska knattspyrnusambandsins segir í viðtali við BT að hann búist við því að tillaga þess efnis að gervigrasvellir verði löglegir í keppni í efstu deild verði samþykkt á vordögum og komi til framkvæmda tímabilið 2012-2013. 11.4.2011 18:00
Andy Carroll skoraði tvívegis í 3-0 sigri Liverpool Liverpool sýndi góða takta gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld með 3-0 sigri. Andy Carroll skoraði tvívegis fyrir Liverpool og eru þetta fyrstu deildarmörk hans frá því hann kom í lok janúar frá Newcastle. Manchester City virðist í lægð þessa stundina og fátt sem bendir til þess að liðið nái góðum úrslitum á Wembley í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar gegn Manchester United um næstu helgi. Liverpool er í fjórða sæti deildarinnar með 48 stig en Man City er með 56 stig í fjórða sæti. 11.4.2011 17:40
Björn Bergmann efsti Íslendingurinn á lista Verdens Gang Björn Bergmann Sigurðarson hefur farið vel af stað í norsku úrvalsdeildinni með Lilleström en þar er hann að hefja sitt þriðja tímabil. Björn, sem lék með ÍA áður en hann fór til Noregs, verður tvítugur í lok ársins en hann hefur gefið fjórar stoðsendingar í fyrstu þremur umferðunum. 11.4.2011 17:15
Arjen Robben sektaður um 2,5 milljónir kr og fær tveggja leikja bann Þýska knattspyrnusambandið hefur úrskurðað Arjen Robben leikmann Bayern München í tveggja leikja bann eftir að hann fékk rautt spjald á laugardaginn í leik gegn Nürnberg. Að auki þarf hollenski landsliðsmaðurinn að greiða um 2,5 milljónir kr. í sekt eða 15.000 Evrur. 11.4.2011 16:30
Teitur kominn í lokaúrslitin í þrettánda sinn á ferlinum Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, hefur langmestu reynsluna af því að spila um Íslandsmeistaratitilinn af öllum þeim sem taka þátt í úrslitaeinvígi KR og Stjörnunnar. Fyrsti leikur liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla er klukkan 19.15 í DHL-höllinni í kvöld og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. 11.4.2011 15:45
Fannar þekkir ekkert annað en að vinna úrslitaeinvígi Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, er nú kominn í úrslitaeinvígi í fimmta sinn á ferlinum og í hin fjögur skiptin hefur hann unnið Íslandsmeistaratitilinn þar af tvisvar sem fyrirliði KR-liðsins á undanförnum fjórum árum. Fyrsti leikur KR og Stjörnunnar í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla er klukkan 19.15 í DHL-höllinni í kvöld og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. 11.4.2011 15:15
Sunnudagsmessan: Leikmenn deildarinnar þola ekki Nani Í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 í gær var farið yfir leiki helgarinnar samkvæmt venju. Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason ræddu um hvaða leikmenn eru tilnefndir sem leikmenn ársins af leikmannasamtökum ensku úrvalsdeildarinnar. 11.4.2011 15:00
Hrafn: Það er enginn þreyttur eða meiddur "Við erum bara vel stemmdir og allir heilir í okkar liði. Við erum komnir áleiðis á þann stað sem við ætluðum okkur fyrir tímabilið og það er tilhlökkun í okkar liði,“ sagði Hrafn Kristjánsson þjálfari KR við visir.is í dag en í kvöld hefst úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla þegar Stjarnan úr Garðabæ kemur í heimsókn í DHL-höll KR-inga. 11.4.2011 14:15
Horner: Vettel er fullur sjálfstrausts Christian Horner, yfirmaður Red Bull telur að Sebastian Vettel vaxi og þroskist með hverju mótinu sem hann keppir í. Vettel vann sitt annað Formúlu 1 mót á árinu í Malasíu í gær. 11.4.2011 13:53
Zlatan baðst afsökunar á rauða spjaldinu Sænski landsliðsmaðurinn Zlatan Ibrahimovic baðst afsökunar á blaðamannfundi að hafa verið rekinn af leikvelli undir lok leiksins gegn Fiorentina í ítalska fótboltanum í gær. Zlatan, sem leikur með AC Milan, fékk sitt annað gula spjald rétt undir lok leiksins fyrir að mótmæla því að hafa ekki fengið innkast og sagði hann einhver vel valin orð við aðstoðardómarann. 11.4.2011 13:30
Guðjón Skúlason er hættur hjá Keflavík Guðjón Skúlason er hættur sem þjálfari úrvalsdeildarlið s Keflavíku en liðið féll úr keppni í undanúrslitum Iceland Express deildar karla gegn KR s.l. fimmtudag. Á heimasíðu Keflavíkur er greint frá því að Guðjón hafi tekið þessa ákvörðun á eigin forsendum og árangur liðsins á tímabilinu hafi verið ástæðan fyrir því að hann vildi ekki halda áfram með liðið. 11.4.2011 12:24
Masters: Rory McIlroy ætlar að koma sterkari til baka Norður-Írinn Roy McIlroy hefur eflaust átt erfitt með svefn í nótt eftir að hann klúðraði niður fjögurra högga forskoti sínu á lokadegi Mastersmótsins í golfi í gær. McIlroy lék á 80 höggum eða +8 en hann var samtals á -12 eftir þriðja keppnisdaginn og hann var efstur á mótinu í samtals 63 holur af alls 72. McIlroy bar sig vel í gær þrátt fyrir áfallið og hann lofar því að koma sterkari til baka. 11.4.2011 12:00
Fuller gæti fengið leikbann fyrir rifrildi við stuðningsmann Tottenham Richardo Fuller leikmaður Stoke og Vedran Corluka leikmaður Tottenham gætu átt yfir höfði sér leikbann eftir að þeir lentu í orðaskaki við stuðningsmenn á laugardaginn þegar Tottenham og Stoke áttust við á White Hart Lane í London. Fuller greip um hálsinn á einum stuðningsmanni Tottenham undir lok leiksins. 11.4.2011 11:45
Masters: Tiger var svekktur að hafa ekki nýtt tækifærið Tiger Woods sýndi á lokakeppnisdeginum á Mastersmótinu í gær að hann er á réttri leið eftir erfiða 18 mánuði á atvinnumótaröðinni. Woods blandaði sér í baráttuna um sigurinn með því að leika á 67 höggum eða 5 höggum undir pari en bandaríski kylfingurinn var ósáttur við að hafa ekki nýtt tækifærið betur á síðari 9 holunum sem hann lék á pari eftir að hafa leikið fyrri 9 holurnar á 31 höggi. 11.4.2011 11:15
Tíu lið í ensku úrvalsdeildinni eru í eigu útlendinga Í gær bárust fregnir af því að Bandaríkjamaðurinn Stan Kroenke muni á næstunni eignast meirihluta í enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal. Kroenke hefur á undanförnum árum átt 29,9% hlut í félaginu og eftir að hann keypti 1% hlut til viðbótar myndast yfirtökuskylda á öðrum hlutabréfum. Nú er svo komið að helmingur liða í ensku úrvalsdeildinni eru í eigu erlendra aðila. Bandarískir auðjöfrar eru áberandi í þessum hópi en alls eru fimm úrvalsdeildarlið í eigu Bandaríkjamanna. 11.4.2011 10:45
Jose Enrique á leið til Liverpool samkvæmt Phil Thompson Phil Thompson, fyrrverandi aðstoðarþjálfari Liverpool gaf það út í viðtali við norska sjónvarpsstöð að hann hefði heyrt að Jose Enrique, leikmaður Newcastle myndi ganga í raðir Liverpool í sumar. 11.4.2011 10:15
Hamilton tapaði 2 stigum vegna refsingar Úrslitin í Formúlu 1 mótinu í Sepang brautinni í Malasíu í gær breyttust eftir að keppni lauk í gær, þar sem Lewis Hamilton og Fernando Alonso var refsað af dómurum mótsins eftir keppni. Tuttugu sekúndum var bætt við tíma þeirra og Hamilton féll niður um sæti vegna þess. Úr sjöunda í áttunda. 11.4.2011 10:09
Masters: Hver er Charl Schwartzel? Charl Schwartzel frá Suður-Afríku kom mörgum á óvart í gær þegar hann fagnaði sigri á Mastersmótinu í golfi en hinn 25 ára gamli kylfingur fékk fjóra fugla í röð á síðustu fjórum holunum og tryggði sér sigur á -14 samtals. 11.4.2011 09:45
Enski boltinn: Öll mörkin úr leikjum helgarinnar Að venju var mikið um að vera í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina og spennan magnast fyrir lokakaflann. Öll mörkin úr leikjum helgarinnar eru nú aðgengileg á sjónvarpshlutanum á visir.is en Manchester United er efst í deildinni með 69 stig eftir 2-0 sigur gegn Fulham um helgina og Arsenal kemur þar á eftir með 62 stig en á leik til góða á Man Utd. Einn leikur fer fram í kvöld þar sem að Liverpool tekur á móti Manchester City og hefst leikurinn kl.19.00. 11.4.2011 09:00
NBA: Meistaralið Lakers tapaði fimmta leiknum í röð Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gær en deildarkeppninni fer senn að ljúka og verða síðustu leikirnir á miðvikudag. Úslitakeppnin er handan við hornið og liðin sem þangað eru komin keppast nú við að sýna andlegan styrk sinn á lokasprettinum. Chicago lagði Orlando á útivelli i gær 102-99, Miami átti ekki í vandræðum með Boston á heimavelli 100-77, og það vekur kannski mesta athygli að Oklahoma rúllaði meistaraliði Lakers upp á útivelli 120-106 – en þetta er fimmti tapleikur Lakers í röð. 11.4.2011 08:00
Teitur: Skrítið að fara í svona langt frí Stjarnan gerði sér lítið fyrir og sópaði Íslandsmeisturum Snæfells í frí á lokadegi síðasta mánaðar. Síðan þá hafa Teitur Örlygsson og lærisveinar hans fylgst með rimmu KR og Keflavíkur af hliðarlínunni og beðið eftir því að fá að spila á nýjan leik. Biðinni löngu er lokið því KR tekur á móti Stjörnunni klukkan 19.15 í kvöld í fyrsta leik liðanna um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn. 11.4.2011 07:00
Guðný fór á kostum gegn Fram - myndir Guðný Jenný Ásmundsdóttir, markvörður Vals, er á góðri leið með að tryggja sínu liði Íslandsmeistaratitilinn í handbolta en hún hefur farið algjörlega á kostum í fyrstu leikjum úrslitaeinvígisins gegn Fram. 11.4.2011 06:00
Masters: Charl Schwartzel sigraði á ótrúlegum lokadegi Það er óhætt að segja að Mastersmótið 2011 fari í sögubækurnar fyrir einn mest spennandi lokahring sögunnar. Charl Schwartzel frá Suður-Afríku kom öllum á óvart með því að landa sigri á þessu fyrsta risamóti ársins en hann hefur aldrei sigrað á PGA-móti á ferlinum. Lokarhringurinn var ótrúlegur en um tíma virtust 9-10 kylfingar eiga möguleika á því að klæðast græna jakkanum. 10.4.2011 22:50
Nú losar Sky sig við Rooney Vafasöm hegðun Wayne Rooney heldur áfram að draga dilk á eftir sér. Coca-Cola hefur þegar sagt skilið við Rooney og nú hefur Sky-sjónvarpsstöðin gert slíkt hið sama. 10.4.2011 23:30
Milner reifst við umboðsmann Rooney James Milner, vængmaður Man. City, lenti í heiftarlegu rifrildi við Paul Stretford, umboðsmann Wayne Rooney, í þrítugsafmæli Gareth Barry á dögunum. 10.4.2011 22:45
Kroenke að eignast Arsenal Samkvæmt heimildum Sky Sports þá er Bandaríkjamaðurinn Stan Kroenke við það að ná yfirtökum í Arsenal. Kroenke er fyrir stærsti einstaki hluthafi félagsins. Kroenke á 29,9 prósent í félaginu og ef hann kaupir tæpt prósent í viðbót þá hefur myndast yfirtökuskylda. 10.4.2011 22:00
Lilleström gerði jafntefli við meistarana - aftur tap hjá Gautaborg Íslendingaliðið Lilleström gerði jafntefli, 4-4, í mögnuðum leik gegn Noregsmeisturum Rosenborg í kvöld. Lilleström náði 3-1 forskoti en tapaði því niður í 3-4. Liðið kom þó til baka og náði stigi að lokum. 10.4.2011 21:30
Spurs til í að greiða 30 milljónir punda fyrir Cavani Tottenham er sagt ætla að opna veskið í sumar og kaupa framherjann Edinson Cavani frá Napoli. Forráðamenn Spurs láta það hræða sig þó Napoli vilji fá 80 milljónir punda fyrir markamaskínuna. 10.4.2011 21:15
Mikilvægur útisigur hjá Milan AC Milan náði þriggja stiga forskoti í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið vann góðan útisigur á Fiorentina, 1-2. 10.4.2011 20:42
Man. City sagt vera að undirbúa risatilboð í Wilshere Ungstirnið Jack Wilshere hefur heldur betur slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur og enskir fjölmiðlar halda vart vatni yfir leikmanninum. 10.4.2011 19:30
Vettel: Gæti ekki verið hamingjusamari Sebastian Vettel er kampakátur með árangurinn í öðru Formúlu 1 móti ársins, en hann vann sinn annan sigur í röð, þegar hann lauk keppni í fyrsta sæti á Sepang brautinni í dag. 10.4.2011 19:02
Stefán: Höfum ekki unnið eitt né neitt „Að sigra þennan leik var virkilega mikilvægt og við erum komnar í þægilega stöðu,“ sagði Stefán Arnarsson, þjálfari Vals, eftir sigurinn í dag. 10.4.2011 19:00
Einar: Lykilmenn þurfa að stíga upp Fram tapaði, 20-19, í dag gegn Val í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í N1-deild kvenna. Staðan er því 2-0 í einvíginu og útlitið orðið virkilega dökkt fyrir Safamýrastúlkur. 10.4.2011 18:44
Jenný: Þetta er langt frá því að vera búið „Ég er ofboðslega fegin að hafa náð að landa þessu í lokin,“ Guðný Jenný Ásmundsdóttir, markvörður Vals, eftir sigurinn í dag. Guðný gerði sér lítið fyrir og varði 28 skot í leiknum í dag. Valsstúlkur unnu leikinn 20-19 og leiða einvígið um Íslandsmeistaratitilinn 2-0. 10.4.2011 18:32
Abramovich sagður íhuga að selja Torres Fregnir herma að Roman Abramovich, eigandi Chelsea, sjái nú þegar eftir því að hafa keypt spænska framherjann Fernando Torres á 50 milljónir punda og sé til í að selja hann aftur. 10.4.2011 18:00
Fjórar stelpur þreyttu frumraun sína í sænska boltanum Íslenskar knattspyrnukonur komu talsvert við sögu í sænsku úrvalsdeildinni í dag en boltinn byrjaði að rúlla þar um helgina. 10.4.2011 17:59