Fleiri fréttir

Vettel 0.104 sekúndu á undan Webber

Sebastain Vettel var enn og aftur á undan liðsfélaga sínum Mark Webber á Red Bull á seinni æfingu keppnisliða á Interlagos brautinni í Brasilíu í dag.

Renault hugsanlega að hætta sem keppnislið

Renault liðið sem vörumerki gæti verið að hætta í Formúlu 1 samkvæmt frétt á autosport.com í dag, en liðið er í meirihlutaeigu sjálfstæðs fyrirtækis sem heitir Genii Capital. Renault virðist ætla útvega liðum vélar á næsta ári, en hætta með keppnislið undir eigin merkjum. Í fréttinni segir að möguleiki sé að Lotus bílaframleiðandinn breski verði styrktaraðili hjá liði sem myndi þá kallast Lotus Renault og nota Renault vélar eins og Red Bull og annað lið sem kallast í dag Lotus. Áhöld er um hvort það lið hefur rétt á notkun nafnsins, en það lið er í eigu malasíkra aðila og liðið kallast Lotus Racing. Þó hefur þetta lið samið við Renault um notkun á vélum fyrirtækisins á næsta ári og í tilkynningu frá Renault í dag, þá kallaði fyrirtækið þetta keppnislið 1 Malaysia Racing Team. Team Lotus var viðfrægt vörumerki í kappakstri á síðustu öld og ef marka má frétt autosport.com, þá virðist Lotus bílaframleiðandinn vilja endurreisa það nafn undir eigin formerkjum með samvinnu við Renault.

Alex vill klára ferilinn hjá Chelsea

Brasilíumaðurinn Alex er ánægður hjá Chelsea og vill vera hjá félaginu þar til að ferli hans lýkur. Hann átti aldrei von á því að fá að spila með svo stóru félagi.

Bale: Maicon er herramaður

Gareth Bale lofaði Brasilíumanninn Maicon sem hann fór illa með í leik Tottenham og Inter í Meistaradeild Evrópu á þriðjudagskvöldið.

Holloway hélt snókermót fyrir leikmenn

Ian Holloway, stjóri Blackpool, brá á það ráð að halda snókermót fyrir leikmenn sína þegar hvassviðri gerði það að verkum að þeir gátu ekki æft.

Cech: Pressan er á Liverpool

Petr Cech, markvörður Chelsea, segir að öll pressan sé á Liverpool fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.

Van der Vaart tæpur fyrir helgina

Rafael van der Vaart er tæpur fyrir leik Tottenham gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni sem fer fram í hádeginu á morgun.

Vettel fljótari en Webber á fyrstu æfingunni

Sebastian Vettel á Red Bull var sneggstur um Interlagos brautina í Brasilíu í dag, en næst síðasta mót ársins fer fram á brautinni á sunnudaginn. Vettel varð tæplega hálfri sekúndu á undan Mark Webber á samskonar bíl.

Baldur Ingimar til Víkings

Víkingar hafa styrkt sig enn frekar fyrir átök næsta sumars í Pepsi-deild karla og fengið Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val.

Red Bull áfram í samtarfi með Renault

Red Bull liðið tilkynnti formlega í dag að það hefur framlengt samning sinn við Renault vélaframleiðandann. Renault hefur séð liðinu fyrir vélum og gerir það áfram árið 2011 og 2012.

Carragher: Gerrard besti leikmaður Liverpool frá upphafi

Jamie Carragher, leikmaður Liverpool, segir að Steven Gerrard sé besti leikmaðurinn í sögu félagsins. Gerrard skoraði öll þrjú mörkin í 3-1 sigri liðsins á Napoli í gær eftir að hafa komið inn á sem varamaður í hálfleik er staðan var 1-0 fyrir Ítalina.

Kuyt gæti spilað um helgina

Svo gæti farið að Dirk Kuyt spili með Liverpool gegn Chelsea þegar að liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Rooney sendur til Bandaríkjanna

Manchester United hefur ákveðið að senda Wayne Rooney til Bandaríkjanna þar sem hann mun gangast undir stífa endurhæfingu vegna ökklameiðsla sinna.

Redknapp vongóður um að halda Bale

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, er vongóður um að halda stórstjörnunni Gareth Bale hjá félaginu þó svo að liðinu myndi ekki takast að tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð.

Webber og Vettel ekki mismunað í titilslagnum

Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðsins segir að Mark Webber og Sebastian Vettel hafi ekki verið mismunað hjá liðinu á keppnistímabilinu og báðir fái fullan stuðning liðsins. Horner segir að ummæli Mark Webber, ef rétt túlkuð í fjölmiðlum gætu sært menn innan liðsins, en Webber lét í veðri vaka í gær að Vettel væri í uppáhaldi hjá liðinu að sögn autosport.com.

Harper meiddist í fagnaðarlátum

Steve Harper, markvörður Newcastle, gerði axlarmeiðsli sín enn verri þegar hann var að fagna einu marka sinna manna í grannaslagnum gegn Sunderland um síðustu helgi.

Mancini ætlar ekki að hætta hjá City

Roberto Mancini segir að það komi ekki til greina hjá honum að hætta sjálfviljugur hjá Manchester City - félagið verði að reka hann vilji það hann burt.

Benitez vill fá Lucas til Inter

Fæstir búast við því að Brasilíumaðurinn Lucas Leiva verði mikið lengur í herbúðum Liverpool en hann hefur engan veginn staðið undir væntingum.

Jóhann Gunnar: Liðið varð gott þegar ég kom

„Það er frábært að vinna meistaraefnin á þeirra heimavelli,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson, leikmaður Fram, eftir sigurinn á FH í kvöld. Framarar unnu frábæran sigur á FH ,33-38, í fimmtu umferð N1 deild-karla í kvöld.

Gerrard: Stjórinn bað mig að hjálpa til

Hetja Liverpool í kvöld, Steven Gerrard, var hógvær eftir sigurinn á Napoli í kvöld þar sem hann skoraði frábæra þrennu í síðari hálfleik og tryggði Liverpool 3-1 sigur.

Einar Andri: Komumst aldrei í takt við leikinn

„Þetta var langt frá því að vera ásættanlegt hjá okkur í kvöld,“ sagði Einar Andri Einarsson, þjálfari FH, eftir tapið gegn Fram í kvöld. FH tapaði 33-38 gegn Fram í fimmtu umferð N1 deild-karla.

Reynir Þór: Við eigum mikið inni

Reynir Þór Reynisson, þjálfari Fram, var að vonum mjög ánægður með leik sinna manna í kvöld en Framarar unnu frábæran sigur á FH-ingum 33-38 í fimmtu umferð N1-deild karla.

Gerrard kom Liverpool til bjargar

Steven Gerrard var hetja Liverpool enn eina ferðina í kvöld er Liverpool lagði Napoli, 3-1, í Evrópudeild UEFA. Gerrard skoraði öll mörk Liverpool í leiknum.

Umfjöllun: Framarar of sterkir fyrir andlausa FH-inga

Framarar unnu frábæran sigur á FH-ingum, 33-38, í fimmtu umferð N1-deildar karla í kvöld en leikurinn fór fram í Kaplakrika. Gestirnir höfðu undirtökin nánast allan leikinn en FH-ingar voru samt alltaf við hæla þeirra.

KR vann auðveldan sigur á Hetti

KR komst auðveldlega áfram í Poweradebikarnum í kvöld er það sótti Hött heim á Egilsstaði. KR betra allan tímann og vann öruggan sigur, 68-101.

Bjarni: Stemningin var eins og í jarðarför

„Við vorum ekki góðir í fyrri hálfleik en það er gott að ná sigri hér, við vorum mjög lélegir í sókninni og náðum engum hraðaupphlaupum. Vörnin hélt hinsvegar og voru mjög góðir í leiknum. Við hins vegar vorum vissir að við myndum ná að klára þetta ef við náðum nokkrum hraðaupphlaupum sem við náðum," sagði Bjarni Fritzson, leikmaður Akureyrar. eftir 23-17 sigur á Val í Vodafone höllinni í kvöld.

Valdimar Þórs: Við gátum eitthvað í þessum leik

„Við erum búnir að fá á okkur allt of mörg mörk í hverjum leik og við erum því ánægðir með hvernig vörnin okkar spilaði. Við héldum þeim lengi vel niðri og þeir voru alltaf í vandræðum í sóknarleiknum sínum, við bara náðum ekki að refsa þeim með hraðaupphlaupum. Þar liggur sigurinn," sagði Valdimar Þórsson leikmaður Vals eftir 23-17 tap gegn Akureyri í Vodafone höllinni.

N1-deild karla: Sigrar hjá Fram og HK

Það gengur ekki sem skildi hjá meistaraefnunum í FH um þessar mundir en liðið tapaði sínum öðrum leik í vetur í kvöld er Fram kom í heimsókn í Krikann. Lokatölur 38-34 fyrir Fram.

Umfjöllun: Njarðvík sló Stjörnuna út úr bikarnum

Njarðvíkingar tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitum Poweradebikars karla í körfubolta með 16 stiga sigri á Stjörnumönnum, 110-94, í Garðabænum í kvöld. Njarðvíkingar hefndu þar með fyrir tíu stig tap í deildinni á sama stað fyrir aðeins tíu dögum.

Umfjöllun: Akureyri stráði salti í sár Valsmanna

Leikur Vals og Akureyringa fór fram í kvöld í Vodafone höllinni og fóru Akureyringar með 23-17 með sigur af hólmi. Með þessu eru þeir enn á topp N1 deildarinnar og hafa unnið alla sína leiki.

Lech Poznan skellti Man. City

Pólska liðið Lech Poznan gerði sér lítið fyrir í kvöld og lagði Man. City í Evrópudeild UEFA, 3-1. Annað mark Poznan var afar skrautlegt. Varnarmaður City skallaði í Arboleda og af honum fór boltinn í netið. Arboleda tognaði síðan við að fagna markinu. Markið kom fimm mínútum fyrir leikslok. Þriðja markið kom síðan í uppbótartíma og það var þrumufleygur af löngu færi.

Gulbrandsen hættir fyrir þrítugt

Norska knattspyrnukonan Solveig Gulbrandsen hefur ákveðið að hætta að spila knattspyrnu þó svo að hún sé ekki nema 29 ára gömul.

Zidane og Materazzi hittust í gær í fyrsta sinn síðan á HM 2006

Viðskipti Frakkans Zinedine Zidane og Ítalans Marco Materazzi í úrslitaleik HM í Þýskalandi 2006 gleymast seint en þau enduðu á því að Zidane stangaði Materazzi í brjóstkassann og fékk rautt spjald að launum. Þeir félagar hittust í fyrsta sinn í gær eftir að allt sauð upp úr á Ólympíuleikvanginum í Berlín 9. júlí 2006.

Kristinn dæmir einvígi Drillo og Trapattoni

Kristinn Jakobsson dómari mun dæma vináttulandsleik á milli Írlands og Noregs, miðvikudaginn 17. nóvember næstkomandi. Þetta er alþjóðlegur leikdagur en sama dag fer íslenska landsliðið til Tel Aviv og spilar við Ísrael.

Sjá næstu 50 fréttir