Fleiri fréttir

Hólmfríður náði ekki að stoppa Mörtu

Hólmfríður Magnúsdóttir náði ekki að stoppa hina mögnuðu Mörtu frá Brasilíu í stórleik næturinnar í bandarísku atvinnumannadeildinni í knattspyrnu.

Boston getur tryggt sér titilinn annað kvöld

Los Angeles Lakers er lent undir í fyrsta sinn í úrslitakeppninni þetta árið. Það kemur ekki á góðum tíma því Boston Celtics vann frábæran 92-86 sigur í leiknum í nótt og er því komið 3-2 yfir í einvíginu.

Green skellti sér í golf í dag

Markvörðurinn Robert Green segist vera hættur að hugsa um mistökin stóru sem hann gerði gegn Bandaríkjunum í gær. Hann notaði daginn í að spila golf með félögum sínum í enska landsliðinu.

Löw: Getum enn bætt okkur

Joachim Löw varaði við því að Þjóðverjar fyllist of mikilli bjartsýni þrátt fyrir 4-0 sigur á Ástralíu á HM í Suður-Afríku í dag.

Þórarinn Ingi: Njótum þess að spila

„Við erum að njóta þess að spila fótbolta og höfum gaman af því sem við erum að gera. Það er að skila liðinu þessum árangri,“ sagði Þórarinn Ingi Valdimarsson, hetja ÍBV gegn Fylki í dag.

Dormagen í góðri stöðu

Dormagen er í góðri stöðu eftir fjögurra marka sigur, 27-23, gegn Emsdetten á heimavelli sínum í umspili um sæti í þýsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Hamilton: Hamingjusamur og stoltur

Bretinn Lewis Hamilton á McLaren vann sinn annan mótssigur í röð í Montreal í Kanada í dag og Jenson Button fylgdi í kjölfar hans rétt eins og í Tyrklandi á dögunum.

Vidic: Fórum illa með færin

Nemanja Vidic, varnarmaður Serbíu, kennir misnotuðum færum um 1-0 tapið gegn Gana í dag. Vítaspyrna Asamoah Gyan skildi liðin að.

Tvöfaldur McLaren sigur í Montreal

Bretarnir Lewis Hamilton og Jenson Button tryggðu McLaren liðinu tvöfakdan sigur í Formúlu 1 mótinu í Montreal í Kanada í dag. Hamilton varð á undan, en Fernando Alonso tryggði Ferrari þriðja sætið eftir viðburðaríka keppni.

Sigurþór vann á Leirdalsvelli

Allt útlit er fyrir að Sigurþór Jónsson, GK, hafi borið sigur úr býtum á Fitness Sport-mótinu sem fór fram á Leirdalsvelli í dag.

Mistækir markmenn Englands - myndbönd

Á kaffistofum þeirra vinnustaða þar sem unnið er á sunnudögum hefur mikið verið rætt um mistök enska markvarðarins Robert Green gegn Bandaríkjunum.

Hamilton vann í Kanada

McLaren fagnaði góðum sigri í dag en ökuþórar liðsins, þeir Lewis Hamilton og Jenson Button, urðu í tveimur efstu sætunum í kanadíska kappakstrinum í dag.

Enskur almúgi vill Joe Hart í markið

Markvörðurinn Robert Green gerði sig sekan um skelfileg mistök í viðureign Englands og Bandaríkjanna í gær. Margir Englendingar kalla eftir því að Green missi sæti sitt.

Þór/KA vann Stjörnuna

Þór/KA vann í dag góðan 3-1 sigur á Stjörnunni á Akureyrarvelli í Pepsi-deild kvenna.

Ganverjar lögðu tíu Serba - myndband

Serbinn Milovan Rajevac stýrði Gana til sigurs gegn Serbíu í fyrsta leiknum í D-riðli heimsmeistarakeppninnar 1-0. Sigur Gana í leiknum var fyllilega verðskuldaður en Serbar ollu vonbrigðum með bitlausum leikstíl.

Eins og að taka súkkulaði af barni

„Við töluðum um þetta fyrir leikinn að ég vildi að Lionel Messi yrði eins nálægt boltanum og hægt væri," sagði Diego Maradona, þjálfari Argentínu, sem var hæstánægður með Messi í sigurleik Argentínu gegn Nígeríu í gær.

Umfjöllun: Sannfærandi í Eyjum

Eyjamenn eru komnir á topp Pepsi-deildar karla eftir sannfærandi 1-0 sigur á Fylki á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Þórarinn Ingi Valdimarsson skoraði eina mark leiksins í síðari hálfleik.

Iniesta klár í slaginn

Andres Iniesta verður í byrjunarliði Spánverja gegn Sviss á miðvikudaginn þegar liðin mætast í fyrsta leik þeirra á HM í Suður-Afríku.

Lampard hefur trú á að Green komi til baka

Frank Lampard hefur trú á því að mistök Robert Green í leik Englands og Bandaríkjanna í gær muni gera það að verkum að Green rísi upp og verði traustur sem eik það sem eftir lifi HM.

Leysigeisla beint að leikmönnum

FIFA hefur fyrirskipað rannsókn á öryggisgæslu á Ellis Park í Jóhannesarborg þar sem leysigeisla var beint á leikmenn í leik Argentínu og Nígeríu í gær.

Íhuga að banna vuvuzela-lúðrana

Skipuleggjendur heimsmeistarakeppninnar í Suður-Afríku íhuga nú hvort banna eigi vuvuzela-lúðrana á leikjum keppninnar.

King ekki með gegn Alsír

Ledley King verður ekki með enska landsliðinu þegar það mætir Alsír á HM í Suður-Afríku á föstudaginn.

Kobe Bryant: Mér líður ömurlega

Kobe Bryant var ekki kátur á blaðamannafundi á milli fjórða og fimmta leiks Los Angeles Lakers og Boston Celtics í lokaúrslitum NBA-deildarinnar.

Kemur Hjalti í staðinn fyrir Hreggvið hjá ÍR-ingum?

ÍR-ingar eru kannski búnir að finna eftirmann Hreggviðs Magnússonar sem samdi á dögunum við erkifjendurna í KR. Hjalti Friðriksson hefur gert tveggja ára samning við ÍR og mun leika með Breiðhyltingum á næstu leiktíð í Iceland Express deild karla. Þetta kom fyrst fram á karfan.is.

Bielecki meiddist illa á auga með pólska landsliðinu

Ferill pólsku stórskyttunnar Karol Bielecki gæti verið í hættu eftir að hann meiddist illa á auga í landsleik Póllands og Króatíu um helgina. Bielecki er nýbúinn að framlengja samning sinn við Rhein-Neckar Löwen til ársins 2015 en svo alvarleg eru meiðslin að óttast er um að ferill hans sé í hættu.

Norðmenn í fínum málum en meiri spenna hjá Þjóðverjum

Fimm leikir fóru fram í gær í umspili um laus sæti á HM í handbolta sem fer fram í Svíþjóð á næsta ári. Úkraínumenn voru eina liðið sem vann á útivelli en Austurríki, Noregur, Þýskaland og Serbía fara öll með forskot í útileikinn um næstu helgi.

Byrjað upp á nýtt á Fitness Sportmótinu í dag

Fitness Sportmótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi var frestað vegna slæms veðurs í gær og hringurinn sem leikinn var í gær var felldur niður að fullu. Mótið fer fram á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

Dagur kominn með Austurríki hálfa leið á HM í Svíþjóð

Austurríki vann sextán marka stórsigur á Hollandi í dag, 31-15, í fyrri umspilsleik þjóðanna um sæti á HM í Svíþjóð á næsta ári. Leikurinn fór fyrir framan tæplega fjögur þúsund áhorfendur í Dornbirn í Austurríki og lærisveinar Dags Sigurðssonar voru í miklu stuði síðustu 45 mínúturnar í leiknum sem liðið vann 24-8.

Hamilton bensínlaus og sektaður um 1.3 miljónir

Lewis Hamilton náði besta tíma í tímatökum í dag. Eftir tímatökuna fékk hann 1.3 miljónir í sekt fyrir að stöðva ekki bílinn, heldur láta hann rúlla eftir brautinni, eftir að McLaren liðið bað hann að drepa á vélinni. Hann fékk sekt og var áminntur fyrir tiltækið. Autosport.com greinir frá þessu.

Fabio Capello: Allt gott nema úrslitin

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, var sáttur með frammistöðu sinna manna í 1-1 jafnteflinu á móti Bandaríkjunum í kvöld í fyrsta leik enska landsliðsins á HM í Suður-Afríku.

Hvar eru sóknarmennirnir á HM?

Það er búið að skora sjö mörk í fyrstu fimm leikjunum á HM í Suður-Afríku en enginn sóknarmaður er þó enn kominn á blað í keppninni. Fimm miðjumenn og tveir varnarmenn hafa skorað mörkin á HM til þessa.

John Terry og Steven Gerrard: Við munum standa á bak við Robert

Steven Gerrard, fyrirliði enska landsliðsins, og varnarmaðurinn John Terry töluðu báðir um það eftir jafnteflisleikinn á móti Bandaríkjunum í kvöld að allir í liðinu ætli að standa á bak við markvörðinn Robert Green sem gerði hræðileg mistök í jöfnunarmarki Bandaríkjamanna.

Sjá næstu 50 fréttir