Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Solskjær kemur United yfir Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær kom Manchester United yfir 3-2 í byrjun síðari hálfleiks gegn Celtic á Old Trafford. Louis Saha átti fast skot að markinu sem var varið, en Solskjær fylgdi vel eftir. Arsenal er komið í 2-0 gegn Hamburg, þar sem Tomas Rosicky skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið með frábærum þrumufleyg. Lyon er að yfirspila Real Madrid gjörsamlega og hefur enn yfir 2-0. 13.9.2006 20:00
Frábær fyrri hálfleikur á Old Trafford Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í meistaradeild Evrópu. Mesta fjörið hefur klárlega verið á Old Trafford, þar sem staðan í leik heimamanna Manchester United og Celtic er jöfn 2-2 eftir stórkostlegan fyrri hálfleik - allt í beinni á Sýn. 13.9.2006 19:32
Saha jafnar fyrir United Franski sóknarmaðurinn Louis Saha er búinn að jafna metin fyrir Manchester United gegn Celtic á 30. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Markvörður Celtic var sakaður um að hafa brugðið Ryan Giggs í teignum og Lubos Michel dæmdi vítaspyrnu, en í endursýningu mátti sjá að dómurinn var út í hött. Leikurinn er engu að síður í hæsta gæðaflokki og hefur United sótt án afláts síðan liðið lenti undir. 13.9.2006 19:14
Celtic komið yfir á Old Trafford Hollendingurinn Jan Vennegoor of Hesselink hefur komið skoska liðinu Glasgow Celtic yfir gegn Manchester United á Old Trafford í leik liðanna í meistaradeildinni sem sýndur er beint á Sýn. Markið kom eftir skyndisókn skoska liðsins og ekki laust við að Rio Ferdinand hafi farið illa að ráði sínu í vörninni þegar hann lét Hollendinginn leika á sig. 13.9.2006 19:06
Arsenal komið yfir gegn Hamburg Nú er aðeins liðinn um stundarfjórðungur af leikjum kvöldsins í meistaradeild Evrópu, en þar er strax farið að draga til tíðinda. Arsenal hefur yfir 1-0 gegn Hamburg í Þýskalandi, þar sem markverði þýska liðsins var vikið af leikvelli eftir brot á Robin Van Persie og Gilberto skoraði mark Arsenal úr víti í kjölfarið. Fred hefur komið Lyon yfir gegn Real Madrid og Inzaghi hefur komið AC Milan yfir gegn AEK. Hægt er að fylgjast með gangi mála á Boltavaktinni hér neðar á síðunni. 13.9.2006 19:01
Byrjunarlið Arsenal gegn Hamburg Leikur Hamburg og Arsenal í meistaradeild Evrópu er nú hafinn á Sýn Extra 2 og byrjunarlið Arsenal má sjá hér fyrir neðan. Fyrirliði enska liðsins, Thierry Henry, er ekki með liðinu í Þýskalandi í kvöld vegna meiðsla. 13.9.2006 18:44
Man Utd - Celtic að hefjast "Baráttan um Bretland" eins og leikur Manchester United og Celtic hefur verið kallaður, er nú senn að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Byrjunarliðin eru klár og þar ber hæst að þeir Paul Scholes og Wayne Rooney koma inn í lið Manchester United eftir leikbann. 13.9.2006 18:20
Ferrari hafði ekkert með ákvörðun mína að gera Michael Schumacher blæs á sögusagnir sem hafa verið í gangi í dag um að forráðamenn Ferrari hafi þröngvað honum út í að hætta keppni í lok tímabils. Schumacher segir þvert á móti að Ferrari hafi veitt sér góðan stuðning alla tíð. 13.9.2006 17:45
Finnar lögðu Georgíu Finnar eru komnir í efsta sætið í C-riðli okkar Íslendingar í B-deild Evrópumótsins í körfuknattleik eftir góðan 91-81 sigur á Georgíumönnum á heimavelli nú síðdegis. Petri Virtanen skoraði 27 stig fyrir Finna og Teemu Rannikko 20, en Zaza Pachulia fór hamförum hjá Georgíu og skoraði 36 stig og hirti 13 fráköst. Finnar hafa því unnið sigur í öllum þremur leikjum sínum í riðlinum, en Georgía hefur unnið þrjá af fjórum leikjum. 13.9.2006 17:08
Ísland - Lúxemburg í Keflavík í kvöld Íslenska landsliðið í körfuknattleik tekur á móti Lúxemburg í þriðja leik sínum í riðlakeppni B-deildar Evrópumótsins í körfuknattleik í kvöld. Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu í Keflavík og hefst klukkan 20. Rétt er að skora á alla sem vettlingi geta valdið að mæta og styðja við bakið á íslenska liðinu, sem verður að vinna leikinn ef það ætlar að eiga möguleika á að komast í A-deildina. 13.9.2006 16:39
Veislan heldur áfram í kvöld Knattspyrnuveislan sem fylgir meistaradeild Evrópu heldur áfram á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld, þegar áskrifendur geta valið um þrjá stórleiki til að fylgjast með í beinni útsendingu. "Baráttan um Bretland" - leikur Manchester United og Celtic, verður sýndur beint á Sýn. Leikur Lyon og Real Madrid er sýndur beint á Sýn Extra og þá verður slagur Hamburg og Arsenal í beinni á Sýn Extra 2. Útsending frá öllum leikjunum hefst klukkan 18:30. 13.9.2006 15:55
Líkir Gravesen við Kaka Gordon Strachan, stjóri Glasgow Celtic, gat ekki farið leynt með hrifningu sína á danska landsliðsmanninum Thomas Gravesen eftir að hann spilaði sinn fyrsta leik með skoska liðinu um helgina. 13.9.2006 15:15
Tony Kukoc íhugar að hætta Króatíski framherjinn Tony Kukoc sem leikið hefur með Milwaukee Bucks undanfarin fjögur ár, segir að hann muni líklega leggja skóna á hilluna á næstu dögum eða vikum. Kukoc er 38 ára gamall og er líklega þekktastur fyrir að leika með gullaldarliði Chicago Bulls sem vann titilinn á árunum 1996-98. 13.9.2006 14:45
Verðum að vera þolinmóðir í kvöld Arsene Wenger segir að þolinmæði verði lykillinn að góðum úrslitum í kvöld þegar hans menn fá það erfiða verkefni að sækja þýska liðið Hamburg heim í meistaradeild Evrópu, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra og hefst útsending klukkan 18:30. 13.9.2006 13:56
Talar frjálslega um peningamál leikmanna Valsliðsins Á heimasíðu Vals má enn finna nokkur bréf skrifuð af Rieg og Fréttablaðið hefur einnig undir höndum spjallþráð sem hefur verið eytt af síðunni en í honum fer Rieg mikinn. Við skulum byrja á að draga út nokkur ummæli í þræðinum sem var eytt en Rieg stofnaði hann 23. maí 2006, skömmu eftir að Ernir Hrafn Arnarsson hafði gengið í raðir Vals. Fram var eitt þeirra liða sem vildi fá Ernir í sínar raðir. 13.9.2006 00:01
Þetta er ekki málefni Fram Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær hefur Geir Sveinsson, fyrrum landsliðsfyrirliði, sakað Hjálmar Vilhjálmsson, varaformann handknattleiksdeildar Fram, um að fara huldu höfði á spjallborði Valsmanna þar sem hann hafi reynt að skapa óróa með ummælum sínum og hafi einnig haldið því fram að hann væri gallharður Valsari. Sumt af því sem Hjálmar er ásakaður um að hafa skrifað á síðunni er það gróft að Valsmenn urðu að fjarlægja það af síðunni. 13.9.2006 00:01
Ánægður með markalaust jafntefli Rafa Benitez var mjög ánægður með að ná markalausu jafntefli á útivelli gegn hollenska liðinu PSV Eindhoven í meistaradeildinni í kvöld og varði ákvörðun sína um að hafa marga af lykilmönnum sína á varamannabekknum með því að segja að þeir hefðu einfaldlega ekki úthald í að spila alla þá leiki sem á dagskránni væru. 12.9.2006 22:21
Ánægður með sigur á sterku liði Bremen Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var mjög ánægður með sigur sinna manna á Werder Bremen í meistaradeildinni í kvöld, en viðurkenndi að þýska liðið hefði verið betri aðilinn á köflum. 12.9.2006 22:05
Meistararnir byrja með tilþrifum Evrópumeistarar Barcelona hófu titilvörn sína með tilþrifum í kvöld þegar liðið valtaði yfir Levski Sofia 5-0 á Nou Camp. Börsungar létu úrhellisregn ekki hafa áhrif á sig á heimavelli sínum og var sigur liðsins aldrei í hættu eftir að það náði forystu strax í upphafi. Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðasta hálftímann með Barcelona en náði ekki að setja mark sitt á leikinn. 12.9.2006 20:36
Eiður kominn inn í lið Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen er kominn inn í lið Barcelona sem varamaður eftir um klukkustundar leik á Nou Camp, en Börsungar eru að valta yfir Levski Sofia 4-0. Úrhellisrigning hefur sett svip sinn á leikinn, en þeir Puyol og Eto´o skoruðu þriðja og fjórða mark liðsins í síðari hálfleik eftir að staðan var 2-0 í leikhléi. 12.9.2006 20:08
Tveir leikir í kvöld Tveir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Hjálmar Jónsson var í liði IFK frá Gautaborg sem vann góðan 4-1 útisigur á Häcken og Emil Hallfreðsson spilaði síðasta hálftímann þegar lið hans Malmö tapaði 3-1 á útivelli fyrir Helsingborg. IFK Gautaborg er í þriðja sæti deildarinnar með 30 stig, en Malmö er í því fjórða með 28 stig. 12.9.2006 20:00
Barcelona yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í meistaradeild Evrópu. Barcelona er að eiga náðugt kvöld í rigningunni á Nou Camp og hefur yfir 2-0 gegn Levski Sofia, Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Werder Bremen og markalaust er hjá PSV og Liverpool í Hollandi. 12.9.2006 19:33
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti búlgörsku meisturunum Levski Sofia á Nou Camp í meistaradeildinni í kvöld. Leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra, PSV - Liverpool er sýndur beint á Sýn og viðureign Chelsea og Werder Bremen er sýndur beint á Sýn Extra 2. 12.9.2006 18:34
Lætur Schumacher heyra það Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segir að Michael Schumacher hjá Ferrari sé óíþróttamannslegasti ökuþór í sögu Formúlu eitt og hlakkar til að losna við hann úr keppni á næsta ári eftir að Þjóðverjinn tilkynnti að hann ætlaði að hætta eftir yfirstandandi keppnistímabil. 12.9.2006 15:48
Veislan hefst í kvöld Hin árlega veisla knattspyrnuáhugamanna hefst í kvöld þegar riðlakeppni meistaradeildarinnar hefst með látum. Sjónvarpsstöðin Sýn lætur sitt ekki eftir liggja á þeim bænum frekar en venjulega og verður með þrjár beinar útsendingar frá keppninni í kvöld. Þá verða þeir Guðni Bergs og Heimir Karls að sjálfssögðu á sínum stað og fara yfir stöðu mála í leikjum kvöldsins. 12.9.2006 14:45
Henry verður ekki með gegn Hamburg Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, verður ekki með liði sínu annað kvöld þegar það mætir Hamburg í mestaradeild Evrópu eftir að hafa meiðst á fæti á æfingu. Unglingurinn Theo Walcott er aftur kominn í hóp Arsenal eftir að hafa verið hvíldur og þá er reiknað með að Julio Baptista verði í hópnum. Jens Lehmann snýr einnig aftur í lið Arsenal eftir að hafa tekið út leikbann. 12.9.2006 13:49
United vinnur Celtic Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United og Glasgow Celtic, segist hafa grunað að liðin ættu eftir að mætast í meistaradeildinni í ár þegar hann hætti að leika með enska liðinu á sínum tíma. Keane telur að United muni fara með sigur af hólmi í "Baráttunni um Bretland" annað kvöld. 12.9.2006 13:45
Benitez mætir Koeman á ný Rafa Benitez, stjóri Liverpool, mun í kvöld reyna að forðast að tapa fyrir liði undir stjórn Ronald Koeman annað árið í röð í meistaradeildinni þegar Liverpool mætir PSV Eindhoven. Koeman stýrði liði Benfica á síðustu leiktíð þegar liðið sló Liverpool úr keppni, en viðureign PSV og Liverpool í kvöld verður sýnd beint á Sýn. 12.9.2006 13:30
Inter Milan er með besta hóp í heimi Jose Mourinho segir að þó vissulega verði Chelsea að teljast eitt af þeim liðum sem eru sigurstrangleg í meistaradeildinni í ár, séu að minnsta kosti tíu lið sem hafi alla burði til að vinna keppnina. Hann segir ítalska liðið Inter Milan vera með sterkasta leikmannahóp allra liða í heiminum í dag. 12.9.2006 12:45
Nistelrooy skoraði þrennu Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy fór hamförum og skoraði þrennu þegar Real Madrid burstaði Levante 4-1 á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þetta var fyrsti sigur Real í deildinni í ár. 10.9.2006 21:00
Raikkönen tekur við af Schumacher Það verður Finninn Kimi Raikkönen sem mun taka sæti Michael Schumacher sem ökumaður Ferrari á næsta keppnistímabili í formúlu 1. Þetta tilkynnti stjórn Ferrari eftir Ítalíu-kappaksturinn í dag en áður hafði Schumacher greint frá því að hann hyggðist draga sig í hlé eftir tímabilið. 10.9.2006 20:30
Schumacher ætlar að hætta eftir tímabilið Þýski ökuþórinn Michael Schumacher var rétt í þessum að tilkynna á dramatískum blaðamannafundi eftir Ítalíukappaksturinn að hann hafi ákveðið að þetta verði síðasta tímabilið á hans ferli. Þrjú mót eru eftir á keppnistímabilinu og eftir þau er Schumacher hættur. 10.9.2006 13:36
Schumacher sigraði Aðeins tveimur stigum munar á Fernando Alonso og Michael Schumacher í stigakeppni ökumanna í formúlu 1 eftir að sá þýski sigraði í Ítalíu-kappakstrinum sem var að ljúka rétt í þessu. Alonso féll úr leik þegar 10 hringir voru eftir og fer því stigalaus frá Monza. 10.9.2006 13:15
Alonso fallinn úr keppni Heimsmeistarinn Fernando Alonso var rétt í þessu að falla úr leik í Ítalíu-kappakstrinum. Vélin í bíl Alonso nánast hvellsprakk en þetta er í fyrsta skipti í hjartnær tvö ár sem vél Renault klikkar. 10.9.2006 13:06
Þetta er ekki íþrótt Ökuþórinn Fernando Alonso, sem ekur fyrir Renault í formúlu 1, er æfur eftir að hafa verið refsað fyrir að hindra Felipe Massa í tímatökunum fyrir Ítalíu-kappaksturinn í gær, að því er yfirmenn formúlunnar segja að hafi verið vísvitandi. Alrangt, segir Alonso. 10.9.2006 13:00
Við vinnum fyrir laununum okkar NFL-stjarnan Dhani Jones segir í einkaviðtali við Fréttablaðið að lífið í NFL-deildinni sé ekki bara gleði og glaumur. Ferillinn hefur tekið sinn toll af þessum 29 ára varnarmanni. 10.9.2006 09:30
Heiðar endaði í 9. - 12. sæti Heiðar Davíð Bragason, kylfingur úr Kili, hafnaði í 9.-12. sæti á Thermia mótinu í gær en það er hluti af sænsku mótaröðinni. Heiðar lék á höggi undir pari fyrsta keppnisdaginn en lék síðan illa á öðrum degi eða á fimm höggum yfir pari vallarsins. Hann náði hinsvegar að laga stöðu sína umtalsvert í gær þegar hann lék á tveimur höggum undir pari. 10.9.2006 07:00
Það vantar neistann Kobe Bryant, leikmaður LA Lakers og bandaríska landsliðsins í körfubolta, segir að liðinu skorti neistann sem þarf til að ná árangri á alþjóðlegum vettvangi. Bandaríkin náðu aðeins 3. sæti á nýafstöðnu Heimsmeistaramóti og olli liðið miklum vonbrigðum. 9.9.2006 21:30
Ísland tapaði fyrir Georgíu Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði fyrir Georgíu ytra í dag, 80-65. Þetta var annar leikur liðsins í undankeppni Evrópumótsins en á miðvikudaginn tapaði liðið fyrir Finnum í Laugardalshöllinni. 9.9.2006 19:43
Jafntefli hjá Juve í fyrsta leik Stjörnum prýtt lið Juventus náði aðeins 1-1 jafntelfi gegn Rimini í fyrsta leik sínum í Serie-B deildinni á Ítalíu í dag. Til að gera jafnteflið enn meira niðurlægjandi var Rimini einum leikmanni færra stóran hluta leiksins. 9.9.2006 19:30
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen byrjar á varamannabekk Barcelona sem tekur á móti Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni. Ronaldinho, Messi og Eto´o eru í fremstu víglínu Barca en athygli vekur að fyrirliðinn Carlos Puyol þarf að sætta sig við að hefja leik á bekknum. Leikurinn er að hefjast og er í beinni útsendingu á Sýn. 9.9.2006 17:50
Eiður Smári í hópnum Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Barcelona sem mætir Osasuna á heimavelli sínum Nou Camp í spænsku úrvalsdeildinni eftir skamma stund. Ronaldinho hefur hins vegar snúið aftur í hóp Evrópumeistaranna og því er afar ólíklegt að Eiður Smári fái tækifæri í byrjunarliðinu. 9.9.2006 16:00
Raikkönen á ráspól Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen verður á ráspól í Ítalíu-kappakstrinum í formúlu 1 sem fram fer á morgun. Raikkönen var fyrstur í tímatökum sem var að ljúka rétt í þessu, aðeins 0,002 sekúndum fljótari en Michael Schumacher sem kom næstur. 9.9.2006 14:45
Arnór byrjar vel Arnór Atlason var markahæstur með sjö mörk og þótti besti maður vallarins þegar lið hans FCK bar sigurorð af Lemvig í opnunarleik dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í gærkvöldi. 9.9.2006 13:30
Gasol frá keppni í fjóra mánuði Spænski framherjinn Paul Gasol verður á hliðarlínunni næstu fjóra mánuðina eftir að hafa gengist undir aðgerð á vinstri fæti. Þetta er mikið áfall fyrir lið Memphis Grizzlies í NBA þar sem Gasol er lykilmaður liðsins. 9.9.2006 12:09